Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Farðu frá Chelsea, Ballack Stefan Effenberg, fyrrum fyrirliði Bayern Munchen, segir að Michael Ballack væri hollast að hypja sig frá Chelsea hið fyrsta. Hann segir félagið og leikmennina vera að snúast gegn Ballack og telur ferli hans betur borgið hjá öðru félagi. 12.9.2007 10:37
Fimm milljónir á mann í bónus ef Rússar vinna Englendinga Breska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hafi lofað að greiða hverjum einasta leikmanni rússneska landsliðsins rúmar fimm milljónir króna í bónus ef þeim tekst að leggja Englendinga í undankeppni EM í kvöld. 12.9.2007 10:30
Þórður úr leik hjá Skagamönnum Skagamenn hafa orðið fyrir miklu áfalli í Landsbankadeild karla. Þórður Guðjónsson er með rifinn vöðva í læri og leikur tæplega meira með liðinu það sem eftir lifi leiktíðar. Þórður fékk högg á lærið í leik um daginn og tóku þau sig aftur upp á æfingu í fyrradag. 12.9.2007 10:26
Terry vill leiða Englendinga til sigurs á EM John Terry, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segist vilja að hans verði minnst sem fyrirliðans sem leiddi liðið til sigurs á stórmóti. Hann segir lið Englendinga í dag eiga góða möguleika á að berjast um verðlaun á EM næsta sumar. 12.9.2007 10:09
Hamburgð lagði Magdeburg Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld þar sem Hamburg vann þriðja leikinn í röð með því að leggja Magdeburg á útivelli 29-24 eftir að hafa verið 10 mörkum yfir í hálfleik 19-9. Bertrand Gille var markahæstur í jöfnu liði Hamburg með 6 mörk, en Pólverjinn Karol Bielecki skoraði 7 fyrir heimamenn. 12.9.2007 09:47
Auðvelt hjá ÍR og KR Tveir leikir fóru fram á Reykjavíkurmótinu í körfubolta í gærkvöldi og voru þeir ekki sérlega spennandi. KR-ingar völtuðu yfir Fjölni á útivelli 111-72 og ÍR vann sannfærandi sigur á Val 91-61 í Seljaskóla. 12.9.2007 09:41
Ráðist á Alex Ferguson Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, slapp með smávægileg meiðsli á fæti þegar maður réðist á hann á lestarstöð í Lundúnum á mánudagskvöldið. Maðurinn mætir fyrir rétt í dag og hefur verið kærður fyrir líkamsárás. Ferguson kippti sér ekki upp við árásina og sinnti erindum sínum í borginni þrátt fyrir uppákomuna. 12.9.2007 09:06
Dregur heldur úr rigningunni með kvöldinu Um hádegisbilið í dag voru um 7000 manns búnir að kaupa sér miða á leik Íslendinga og Norður-Íra sem hefst klukkan 18:05 á Laugardalsvelli. Vísir setti sig í samband við sjálfan Sigga Storm og rukkaði hann um veðurspá fyrir leikinn. "Úrkoman er heldur að minnka og það á frekar að draga úr rigningunni þegar líður á kvöldið, svo ég held að þetta verði allt í þessu fína lagi," sagði Sigurður bjartur að vanda. 12.9.2007 16:27
Portúgal og Ísrael úr leik Í kvöld lauk keppni í milliriðli A á Evrópumótinu í körfubolta. Spánn, Rússland og Grikkland unnu sína leiki og eru allar þjóðirnar komnar áfram ásamt landsliði Króatíu. 11.9.2007 22:45
Öll spjót beinast að Donadoni Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítalíu, segist ekki finna fyrir neitt meiri pressu en venjulega fyrir leikinn gegn Úkraínu á miðvikudag. Ítalska landsliðið þarf nauðsynlega á sigri að halda. 11.9.2007 21:45
Afturelding jafnaði í lokin Sautjándu og næstsíðustu umferð 2. deildar karla lauk í kvöld þegar ÍR og Afturelding áttust við í Breiðholtinu. Heimamenn komust tveimur mörkum yfir í leiknum en gestirnir náðu að jafna og úrslitin 2-2. 11.9.2007 20:42
Jafntefli á Akranesi Íslenska U21 landsliðið er með tvö stig að loknum þremur leikjum í riðli sínum í undankeppni Evrópumótsins. Íslenska liðið gerði í kvöld markalaust jafntefli gegn Belgíu en leikið var á Akranesvelli. 11.9.2007 20:07
Benítez: Reina ekki á förum Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að blaðamaðurinn sem skrifaði fréttir þess efnis að Jose Reina gæti verið á leið til Atletico Madrid sé ekki mjög fær á sínu sviði. 11.9.2007 19:15
Tevez hlakkar til að spila með Rooney Argentínski sóknarmaðurinn Carlos Tevez segir að hann geti ekki beðið eftir því að Wayne Rooney snúi til baka eftir meiðsli. Tevez kom til United í sumar og hlakkar honum til að spila við hlið Rooney. 11.9.2007 18:30
Clarke á batavegi Clive Clarke, varnarmaður hjá Leicester, segist vera á hröðum batavegi. Hjarta hans stoppaði tvisvar með stuttu millibili þegar Leicester mætti Nottingham Forest í bikarkeppninni í síðasta mánuði. 11.9.2007 17:45
Stjóri Derby blæs á kjaftasögur Billy Davies, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Derby County, segir ekkert til í þeim sögusögnum að hann hafi átt í deilum við stjórn félagsins. Dagblöð á Englandi sögðu frá því að Davies hafi verið ósáttur við hve lítinn pening hann hefur fengið til leikmannakaupa. 11.9.2007 17:15
Healy klár hjá Norður-Írum Norður-Írar hafa fengið góð tíðindi fyrir leik sinn gegn Íslendingum í undankeppni EM annað kvöld eftir að í ljós kom að þeir David Healy, Keith Gillespie og Jonny Evans eru allir orðnir nógu góðir af meiðslum sínum til að spila leikinn. Þá hefur Eyjólfur Sverrisson staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen verði á varamannabekk íslenska liðsins eins og við var búist. 11.9.2007 16:44
Laporta hótar að banna leikmönnum að spila landsleiki Joan Laporta, forseti spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, segir að réttast væri að landsliðin greiddu félagsliðunum fyrir afnot af leikmönnum í landsleikjum. Hann segir tíma til kominn fyrir FIFA og UEFA að bregðast við þessu. 11.9.2007 16:33
Allir heilir hjá enska landsliðinu Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga getur teflt fram nokkuð heilu liði gegn Rússum á Wembley á morgun eftir að þeir leikmenn sem hann hefur á annað borð úr að moða komust klakklaust í gegn um lokaæfingu í dag. 11.9.2007 14:04
Brassar vinsælir í Bandaríkjunum David Beckham á enn langt í land með að trekkja að jafn marga áhorfendur og brasilíska landsliðið í Bandaríkjunum ef marka má fréttir þar í landi í dag. Brasilíumenn mæta Mexíkóum í vináttulandsleik í Boston annað kvöld og þegar hafa verið seldir um 57,000 miðar á leikinn. 11.9.2007 13:54
Baird: Vorum of sigurvissir gegn Lettum Fyrirliðinn Chris Baird viðurkennir að Norður-Írar hafi verið of sigurvissir í leiknum gegn Lettum um helgina en biður landa sína að missa ekki trú á landsliðinu. Baird varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem réði úrslitum í þeim leik. 11.9.2007 13:12
Argentínumenn lögðu Ástrali Argentínumenn lögðu Ástrali 1-0 í vináttuleik í knattspyrnu sem fram fór í Melbourne í morgun. Það var varnarmaðurinn Martin Demichelis sem skoraði sigurmark Argentínumanna snemma í síðari hálfleiknum. Leikurinn var jafnframt kveðjuleikur Josip Simunic með Áströlum en hann fékk heiðursskiptingu skömmu eftir mark gestanna. 11.9.2007 13:06
Sneijder meiddur Hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder hjá Real Madrid gæti misst af leik Hollendinga við Albani annað kvöld og hugsanlega leik Real gegn Almeria um helgina eftir að hann meiddist á ökkla á æfingu með landsliðinu. Snejder hefur verið í frábæru formi með Real síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar. 11.9.2007 12:55
Bierhof ósáttur við Chelsea Oliver Bierhof, framkvæmdastjóri þýska landsliðsins í knattspyrnu, er afar ósáttur við forráðamenn Chelsea eftir að þeir meinuðu Michael Ballack að ferðast til heimalandsins til að taka þátt í kynningu á landsliðsbúiningi Þjóðverja fyrir EM. 11.9.2007 12:46
Stjörnunni spáð tvöföldum sigri Karla- og kvennalið Stjörnunnar í Garðabæ verða sigursæl á komandi Íslandsmóti í handknattleik ef marka má árlega spá þjálfara og fyrirliða á kynningarfundi fyrir N1 deildina sem haldinn var í hádeginu. Stjörnunni er spáð Íslandsmeistaratitli í karla- og kvennalfokki. 11.9.2007 12:33
Crouch var ekki lagður í einelti Dómarar hafa ekki verið beðnir að taka framherjann Peter Crouch hjá enska landsliðinu sérstaklega fyrir eins og haft var eftir enska dómaranum Graham Poll í fjölmiðlum á dögunum. Þetta segir talsmaður Alþjóða Knattspyrnusambandsins. 11.9.2007 11:35
Lykilmenn Tottenham að ná heilsu Martin Jol, stjóri Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, getur bráðum farið að anda léttar því hann er óðum að endurheimta byrjunarliðsmenn sína úr meiðslum - einn af öðrum. Tottenham hefur byrjað mjög illa í deildinni í sumar og stóllinn farinn að hitna undir stjóranum. 11.9.2007 11:28
Gerrard: Þetta er besta landslið sem ég hef spilað með Steven Gerrard segir að enska landsliðið sem hann spilar með í dag sé það besta sem hann hefur leikið með á ferlinum þegar kemur að hæfileikum einstaka leikmanna. Hann viðurkennir þó að það hafi lítið að segja nema liðið klári verkefni sitt í undankeppninni og tryggi sér sæti á EM á næsta ári. 11.9.2007 10:59
Worthington: Veðrið er fínt á Íslandi Nigel Worthington, landsliðsþjálfari Norður-Íra, segir sína menn vera klára í slaginn óháð veðurskilyrðum eða öðru þegar lið hans mætir Íslendingum á Laugardalsvellinum annað kvöld. Hann krefst þess að leikmennirnir svari vonbrigðunum í síðasta leik og hirði öll stigin gegn Íslendingum. 11.9.2007 10:51
Arsenal: Við þurfum enga milljarðamæringa Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið sé fullfært um að vera í fremstu röð á Englandi án aðstoðar milljarðarðamæringa líkt og keppinautarnir. Hugsanleg yfirtaka á Arsenal hefur verið mikið í fréttum síðustu vikur og menn á borð við Alisher Usmanov og Stan Kroenke hafa þegar keypt hlut í félaginu. 11.9.2007 10:40
Rússar einblína á veikasta hlekkinn í enska landsliðinu Rússnesku landsliðsmennirnir hafa fundið það út að markvörðurinn Paul Robinson sé veikasti hlekkurinn í enska landsliðinu fyrir leik liðanna í undankeppni EM annað kvöld og þeir ætla að nýta sér það. 11.9.2007 09:49
Savage: Ég fer til tunglsins ef Wales fer á HM Miðjumaðurinn Robbie Savage hjá Blackburn og fyrrum landsliðsmaður Wales, segir að landsliðinu hafi farið aftur um mörg ár undir stjórn John Toshack landsliðsþjálfara. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Savage ræðst að þjálfaranum enda eru litlir kærleikar þeirra á milli. 11.9.2007 09:39
Gary Neville óðum að ná sér Enski landsliðsmaðurinn Gary Neville er nú á góðum batavegi eftir að hafa verið frá keppni með Manchester United í næstum hálft ár. Neville meiddist á ökkla þann 17. mars og meiddist svo á læri í upphafi leiktíðar í sumar. "Ég vona að ég nái að spila minn fyrsta leik á næstu tveimur vikum eða svo," sagði Neville í samtali við sjónvarpsstöð félagsins MUTV. 11.9.2007 09:34
Greg Oden þarf í aðgerð á hné Miðherjinn Greg Oden sem Portland Trailblazers valdi fyrstan í nýliðavalinu í NBA í sumar, þarf að gangast undir aðgerð á hné í vikunni. Oden hefur fundið til í hnénu í sumar og eftir rannsókn komu í ljós nokkrar brjóskskemmdir sem laga þarf með aðgerð. Aðgerðin verður framkvæmd í vikunni en ekki er hægt að segja til um hvenær hann verður orðinn klár í slaginn fyrr en eftir aðgerðina. 11.9.2007 09:27
Bati Wayne Rooney langt á undan áætlun Svo gæti farið að framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United sneri mun fyrr en áætlað var til baka úr meiðslum sínum og til greina kemur að hann verði í hóp liðsins gegn fyrrum félögum sínum í Everton á sunnudaginn. Rooney var með brákað bein í fæti frá fyrsta leik tímabilsins gegn Reading. 11.9.2007 09:05
Atli og Heimir leika ekki gegn FH Knattspyrnudeild FH hefur ákveðið að gerður samningur milli FH og Fjölnis skuli standa. Því munu þeir Atli Viðar Björnsson og Heimir Snær Guðmundsson ekki leika með Fjölni gegn FH í úrslitaleik VISA bikarkeppninnar. 11.9.2007 00:17
Slóvenía vann Þýskaland örugglega Næstsíðasta umferðin í milliriðli B á Evrópumótinu í körfubolta fór fram í kvöld. Ítalía, Litháen og Slóvenía unnu sína leiki. Þjóðverjar töpuðu þriðja leiknum í röð og þurfa þeir að vinna Ítalíu í lokaumferð riðilsins til að komast í úrslitakeppnina. 10.9.2007 22:46
Vidic vill fá Ivanovic til United Nemanja Vidic, varnarmaður Manchester United, vill fá Branislav Ivanovic til liðs við félagið. Ivanovic er félagi Vidic í serbneska landsliðinu en hann á fjóra landsleiki að baki. Hann leikur með Lokomotiv frá Moskvu. 10.9.2007 21:00
Annar sigur U19 liðsins á Skotum Íslenska U19 landsliðið spilaði í dag annan æfingaleik sinn gegn skoska U19 landsliðinu. Ísland vann 1-0 sigur en eina mark leiksins skoraði Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður hjá unglingaliði Reading í Englandi. 10.9.2007 20:32
Liverpool býður í Foggia Gazzetta dello Sport á Ítalíu segir að Liverpool hafi boðið átta milljónir punda í miðvallarleikmanninn Pasquale Foggia. Liverpool er í leit að vinstri kantmanni og er Foggia hugsaður í þá stöðu. 10.9.2007 20:15
Shevchenko varar Ítali við Sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko segir að ítalska landsliðið geti búist við erfiðum leik á miðvikudag gegn Úkraínu. Þrátt fyrir að Shevchenko sé úti í kuldanum hjá Chelsea þáspilar hann með úkraínska landsliðinu. 10.9.2007 19:30
Hargreaves og Lampard verða ekki með Ljóst er að miðjumennirnir Owen Hargreaves og Frank Lampard verða ekki með enska landsliðinu gegn Rússlandi á miðvikudag. Þeir eiga við meiðsli að stríða og léku ekki með gegn Ísrael um helgina. 10.9.2007 18:55
Isaksson ætlar aftur í markið Sænski markvörðurinn Andreas Isaksson segist ákveðinn í að vinna sæti sitt hjá Manchester City til baka. Isaksson hefur ekkert leikið með nú í byrjun tímabilsins á Englandi vegna meiðsla. 10.9.2007 18:45
Ósáttur við framkomu Chelsea Þýska knattspyrnusambandið er allt annað en sátt við hve lengi leyfi barst frá Chelsea fyrir því að Michael Ballack gæti leikið í auglýsingu fyrir Adidas. Ballack er fyrirliði þýska landsliðsins og átti að leika í auglýsingunni um helgina. 10.9.2007 18:15
Vinátta Barry og Gerrard hafði sitt að segja Steven Gerrard segir að náið samband sitt við Gareth Barry hafi hjálpað þeim mikið að ná saman á miðju enska landsliðsins. Þeir náðu nær óaðfinnanlega saman þegar enska landsliðið lék gegn Ísrael og má reikna með því að þeir verði þar einnig gegn Rússlandi á miðvikudag. 10.9.2007 17:45