

Á morgun hefst keppnin um að komast inn á Evrópumót karla í fótbolta sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári. Íþróttatölfræðiveitan Gracenote hefur spáð fyrir um gengi þjóðanna og telur að Ísland fari í umspilið.
Spænski ríkissjóðurinn hefur ekki fundið neinar sönnunargögn sem benda til þess að greiðslur spænska stórveldisins Barcelona til fyrirtækis í eigu José María Enríquez Negreira á árunum 2016 til 2018 hafi haft áhrif á úrslit í leikjum félagsins. Negreira var á þessum tíma varaformaður spænsku dómaranefndarinnar, CTA.
Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á þrjár beinar útsendingar á þessum annars fína miðvikudegi. Tveir leikir í Subway-deild kvenna verða á dagskrá, ásamt Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Arthur Melo verður ekki áfram í herbúðum Liverpool eftir að lánssamningur hans frá Juventus rennur út í sumar.
Stiven Tobar Valencia, leikmaður Vals, var svekktur eftir sjö marka tap gegn Göppingen 29-36. Stiven Tobar er sagður vera búinn að skrifa undir hjá Benfica en hann vildi lítið tjá sig um það.
Stiven Tobar Valencia, hornamaður Íslandsmeistara Vals, er á leið til portúgalska félagsins Benfica að yfirstandandi tímabili loknu ef marka má orð handboltasérfræðingsins Arnars Daða Arnarssonar.
Valur tapaði fyrir Göppingen 29-36. Magnús Óli Magnússon var markahæstur í liði Vals með átta mörk. Magnús var svekktur með úrslitin en útilokaði ekki endurkomu í seinni leiknum milli liðanna í Þýskalandi.
Björgvin Páll Gústavsson, markmaður Vals, var svekktur eftir sjö marka tap gegn Göppingen í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Stórmeistaramót Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hófst í kvöld þegar átta lið tókust á. Auk Atlantic komust Dusty, Þór og FH áfram í undanúrslit.
Dómarar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hafa fengið tilmæli um að reyna að gera hlé á kvöldleikjum deildarinnar næsta mánuðinn svo þeir leikmenn sem fagna Ramadan geti brotið föstu.
Barcelona vann nauman 0-1 sigur er liðið heimsótti Roma í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var svekktur eftir sjö marka tap gegn Göppingen í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Óðinn Þór Rikharðsson átti algjörlega frábæran leik fyrir Kadetten Schaffhausen er liðið vann öruggan sex marka sigur gegn sænska liðinu Ystads í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 38-32. Á sama tíma unnu Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg 13 marka risasigur gegn Benfica, 26-39.
Valur tapaði fyrir Göppingen, 29-36, í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld.
Króatíska liðið RK Nexe vann nokkuð öruggan fjögurra marka sigur er liðið heimsótti úkraínska liðið HC Motor Zaporizhzhia í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld, 23-27. Nexe er því með góða forystu fyrir heimaleikinn, en liðið sem vinnur þetta einvígi mætir annað hvort Val eða Göppingen í átta liða úrslitum.
Íslendingalið Bayern München vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld og er því með forskot fyrir seinni leikinn sem fer fram í Lundúnum í næstu viku.
Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia eru búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar eftir fjögurra marka sigur gegn Íslendingaliði Ribe-Esbjerg í kvöld, 33-29.
Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland og íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, þurfti að draga sig úr landsliðshópnum fyrir komandi leiki við Bosníu og Liechtenstein í undankeppni EM 2024. Hákon Rafn Valdimarsson tekur sæti hans.
Víkingur verður án bandaríska miðvarðarins Kyle McLagan í allt sumar eftir að leikmaðurinn meiddist í leik liðsins gegn Val í undanúrslitum Lengjubikarsins síðastliðinn laugardag.
Ákvörðun um framtíð ítalska knattspyrnustjóarns Antonio Conte hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham verður tekin í vikunni. Raunar greina hinir ýmsu miðlar frá því að ákvörðunin verði tekin í seinasta lagi á fimmtudaginn.
Þrjú íslensk landslið munu spila með sorgarbönd í leikjum sínum í vikunni en þetta eru sautján ára og nítján ára landslið karla og svo A-landslið karla.
Lionel Messi er nú eins og flestir landsliðsmenn karla í fótbolta komnir til móts við landslið sín.
Cristian Bunino gat ekki haldið í sér í miðjum fótboltaleik og var rekinn í sturtu áður en hann komst inn á völlinn.
Stórmeistaramót Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hefst í kvöld þegar átta liða úrslitin fara fram. Átta lið unnu sér inn keppnisrétt í gegnum Áskorendamótið og verða allar fjórar viðureignirnar spilaðar á sama tíma.
Mikenna McManus hefur gert samkomulag við Þrótt um að spila með liðinu í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar.
Antoine Griezmann íhugar framtíð sína með franska landsliðinu eftir að hann var ekki gerður að fyrirliða þess.
Forráðamenn West Ham United ku hafa áhuga á Will Still, unga Englendingnum sem hefur gert frábæra hluti með Reims í frönsku úrvalsdeildinni.
Tennisgoðsögnin Martina Navratilova hefur sigrast á krabbameini í hálsi og brjósti en hún greinir frá þessu í viðtali við Piers Morgan í TalkTV sem birt er í dag.
„Þetta er það versta sem gat gerst,“ segir sérfræðingur TV 2 í Noregi um þau tíðindi dagsins að framherjinn Erling Braut Haaland væri dottinn út úr norska landsliðshópnum í fótbolta vegna meiðsla.
Allir leikmenn í landsliðshópi Íslands eru heilir heilsu og voru með á æfingu liðsins í München í dag. Ísak Bergmann Jóhannesson var með eftir að hafa glímt við veikindi um helgina.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta, hefur ákveðið að söðla um í Danmörku þrátt fyrir mikinn áhuga Ringköbing á að halda henni í sínum röðum.
Geof Kotila, fyrrum þjálfari karlaliðs Snæfells er fallin frá, en hann hefur lengst af sínum ferli starfað í Danmörku.
Baldur Sigurðsson hefur nú heimsótt tvö lið í þáttaröðinni „Lengsta undirbúningstímabil í heimi“ sem er á dagskrá á sunnudagskvöldum á Stöð 2 Sport fram að Íslandsmótinu.
Sænsk knattspyrnukona segir ömurlega sögu af upplifun sinni sem leikmaður ítalska félagsins Fiorentina. Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir spilar með ítalska liðinu.
Valsmenn ætla sér stór hluti gegn þýska úrvalsdeildarliðinu Göppinghen í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum í Evrópudeildinni. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda í kvöld. Liðin mætast síðan aftur eftir viku ytra og með hagstæðum úrslitum á heimavelli er allt hægt.
Það lítur verr og verr út fyrir Liverpool að félagið getið fengið enska landsliðsmiðjumanninn Jude Bellingham til sín í sumar.
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands, tók ekki þátt á æfingu liðsins í München í Þýskalandi í gær þar sem hann var nýlentur eftir leik liðs hans Alanyaspor kvöldið áður. Þar hefur hann þurft að aðlagast leikstíl nýs þjálfara.
Fjórar íslenska CrossFit konur voru meðal þeirra sextán efstu í fjórðungsúrslitum undankeppni heimsleikanna i CrossFit. Björgvin Karl Guðmundsson var eini íslenski karlinn sem komst áfram.
Roy Hodgson hefur ekki enn sagt sitt síðasta sem knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni því hann hefur verið ráðinn stjóri Crystal Palace og mun stýra liðinu út yfirstandandi leiktíð.
Ravel Morrison, fyrrverandi ungstirni Manchester United, er þrátt fyrir vandræði sín í DC United í nýjasta landsliðshópi Heimis Hallgrímssonar í Jamaíku.
Gunnar Nelson sneri aftur í búrið á bardagakvöldi UFC sem fram fór í O2-höllinni í Lundúnum á laugardagskvöld.
„Nei eða Já“ var á sínum stað í Lögmál leiksins. Þar var að venju farið yfir það helsta sem hefur drifið á daga NBA-deildarinnar og enn á ný voru skipti Kyrie Irving til Dallas Mavericks til umræðu.
Leikur Vals og Göppingen í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta á hug okkar allan á Stöð 2 Sport í dag. Um er að ræða fyrri leik liðanna í einvíginu.
„Framlengingin“ var á sínum stað í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi. Að þessu sinni var spurt hvort Keyshawn Woods hentaði úrslitakeppninni, hvort tvíeykið menn vildu frekar, hvaða lið kemst ekki í úrslitakeppni Subway-deildar karla, hver sé besti leikmaður deildarinnar og hvað skiptir mestu máli þegar það eru bara tveir leikir eftir af hefðbundinni deildarkeppni.
Gunnar Nelson vann Bryan Barbarena örugglega á laugardagskvöld þegar þeir mættust í búrinu í UFC 286. Þeir virtust ná ágætlega saman en það er ekki oft sem menn fara að hlægja á meðan þeir eru að keppa í UFC.