Fleiri fréttir

Birkir yfirgefur Sampdoria

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er á förum frá Sampdoria eftir aðeins eitt ár hjá félaginu.

Mikill hiti, mikið drama og mikil gleði

Íslenska landsliðið í frjálsum lét ekki hita og skipulagsleysi gestgjafanna stöðva sig heldur braut blað í íslenskri frjálsíþróttasögu með því að komast upp í 2. deild.

Klinsmann: Ég get ekki beðið um meira

Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, var ánægður með sitt lið eftir 2-2 jafnteflið við Portúgal í kvöld. Bandaríska liðið var aðeins tuttugu sekúndum frá því að vinna leikinn og tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á HM í Brasilíu.

Íslenska liðið á palli í 23 greinum af 40

Íslenska landsliðið í frjálsíþróttum komst upp um deild í Evrópukeppni landsliða þegar liðið endaði í 2. sæti í þriðju deild keppninnar í Tbilisi í Georgíu um helgina. Ísland átti í harðri baráttu við Ísrael um 2. sætið en endaði að lokum með fimmtán og hálfu stigi meira.

Ingvar Þór Kale: Aldrei að vita nema ég bjóði Árna í bíó

Nýliðar Víkinga eru í flottum málum í Pepsi-deildinni eftir 1-0 sigur á Breiðabliki í 9. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld en þetta var fimmti sigur Víkingsliðsins í deildinni í sumar. Ingvar Þór Kale, markvörður Víkinga, hélt marki sínu hreinu og var léttur í leikslok.

Ingvar: Danni flaug eins og Jordan

„Það er ansi sætt að vera á toppnum, það er þar sem við viljum vera og vonandi verður það svo," sagði Ingvar Jónsson markvörður Stjörnunnar eftir 2-1 sigur Garðbæinga á Fjölni á Samsung-vellinum í 9. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. En hvað fannst Ingvari um leik hans manna?

Jónas: Virkilega góð helgi fyrir frjálsíþróttir á Íslandi

Jónas Egilsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, er mjög ánægður með árangur íslenska landsliðsins í frjálsum íþróttum, sem náði sögulegum árangri um helgina með því að komast upp í 2. deild Evrópukeppni landsliða.

Aron byrjar á bekknum

Aron Jóhannsson byrjar á varamannabekknum í leik Bandaríkjanna og Portúgal í kvöld. Clint Dempsey byrjar leikinn í stöðu Arons.

Skellti Real Madrid og kominn í NBA

NBA körfuboltaliðið Cleveland Cavaliers í Bandaríkjunum hefur ráðið David Blatt sem þjálfara sinn en hann gerði Macabbi Tel Aviv að Evrópumeisturum í vor.

Bandaríkin ætla að stöðva Ronaldo og komast áfram

Aron Jóhannsson og félagar í Bandaríska landsliðinu í fótbolta geta tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta með því að leggja Portúgal að velli í Brasilíu í kvöld.

Motta: Hitinn lagði Ítalíu ekki Kostaríka

Ítalski miðjumaðurinn Thiago Motta segir óbærilegan hitann í Recife í Brasilíu vera einu ástæðuna fyrir því að Ítalía tapaði 1-0 fyrir Kostaríka í heimsmeistarakeppninni í fótbolta.

Garðar skaut ÍA á toppinn

ÍA lagði Leiknir Reykjavík 2-1 í toppslag 1. deildar karla í fótbolta í dag á Akranesi. Leiknir var 1-0 yfir hálfleik.

Samantekt frá austurríska kappakstrinum í formúlu 1

Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Austurríki í dag og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Ísland komst upp um deild

Ísland náði öðru sæti í 3. deild Evrópukeppni landsliða í frjálsum íþróttum í Tiblisi í Georgíu um helgina eftir harða baráttu við Ísrael um annað sætið. Kýpur vann deildina örugglega.

Kompany: Getum ekki bara treyst á Lukaku

Belgíski varnarmaðurinn Vincent Kompany segir ekki vera sanngjarnt að setja of mikla pressu á Romelu Lukaku á heimsmeistarakeppninni í fótbolta sem fram fer í Brasilíu.

Nico Rosberg fyrstur í mark í Austurríki

Nico Rosberg vann keppnina í Austurríki, liðsfélagi hans Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hætti keppni.

Kolbeinn Höður hljóp sig inn á HM unglinga | Hafdís með Íslandsmet

Íslensku keppendurnir halda áfram að gera vel í 3. deild Evrópukeppni landsliða í frjálsum íþróttum í Tiblisi í Georgíu. Kolbeinn Höður Gunnarsson tryggði sér þátttökurétt á HM unglinga og Hafdís Sigurðardóttir vann langstökkið á nýju Íslandsmeti.

Fimm leikir í Pepsí deild karla í dag

Stjarnan getur komist á topp Pepsí deildar karla í fótbolta í dag þegar liðið fær Fjölni í heimsókn. Topplið FH leikur ekki fyrr en á morgun en fimm leikir eru á dagskrá í dag.

Fossavatnsgangan í hóp með frægustu skíðagöngum í heimi

Fossavatnsgangan á Ísafirði er elsta og fjölmennasta skíðagöngumót á Íslandi og hún hefur nú fengið flotta alþjóðlegan stimpil með því að vera samþykkt sem aðili að Worldloppet en þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Dzeko: Það ætti að senda dómarann heim

Edin Dzeko framherji Bosníu og Hersegóvínu segir að senda ætti dómarann Peter O'Leary heim eftir frammistöðu hans í leik Bosníu og Nígeríu í gær en hann dæmdi löglegt mark Dzeko af í leiknum.

Ísland enn í öðru sæti

Annar keppnisdagur er hafinn í Tiblisi í Georgíu þar sem keppt er í 3. deild Evrópukeppni landsliða í frjálsum íþróttum. Íslensku keppendurnir hafa farið ágætlega af stað í morgun og er liðið enn í öðru sæti.

Van Persie: Æðislegt að leika með Robben

Arjen Robben hefur farið á kostum með hollenska landsliðinu í heimsmeistarakeppninni í Brasilíu og nýtur samherji hans í framlínunni, Robin van Persie, þess að leika með honum.

Fer Embiid sömu leið og Yao Ming?

Fyrir fáum dögum síðan var talið líklegt að Cleveland Cavaliers myndi velja Joel Embiid fyrstan í nýliðavali NBA körfuboltans í Bandaríkjunum í næstu viku. Það hefur breyst.

Hope Solo handtekin

Einn besti markvörður sem kvennafótbolti hefur alið af sér, Hope Solo, var handtekin á föstudagskvöldið á heimili sínu í Kirkland í Washingtonfylki.

Ísland í öðru sæti í Georgíu

Ísland er í öðru sæti eftir fyrri keppnisdag í Evrópukeppni landsliða í frjálsum íþróttum. Keppt er í Georgíu og er keppnin um tvö efstu sætin jöfn og spennandi.

Pjanic: Skiptir alla þjóðina máli

Miðjumaðurinn Miralem Pjanic lykilmaður Bosníu og Hersegóvínu í heimsmeistarakeppninni í fótbolta í Brasilíu segir leikinn í kvöld gegn Nígeríu skipta alla þjóðina miklu máli.

Víkingur Ólafsvík á toppinn

Víkingur frá Ólafsvík lagði botnlið Tindastóls 1-0 á heimavelli sínum í 1. deild karla í fótbolta í dag.

4 laxar á land opnunardaginn í Ytri Rangá

Ytri Rangá opnaði fyrir veiði í gær en áin var aflahæst allra laxveiðiánna í fyrra og það verður að teljast líklegt að hún berjist um þann titil í sumar.

Mertesacker í 100 leikja klúbbinn

Per Mertesacker varnarmaður Þýskalands mun leika sinn 100. landsleik fyrir þjóð sína þegar Þýskaland mætir Gana klukkan 19 í kvöld í heimsmeistarakeppninni í Brasilíu í fótbolta.

Slæm ímyndarleg skilboð fyrir hestaíþróttina

Eins og greint var frá hér á Vísi í gær stytti áfrýjunardómstóll ÍSÍ keppnisbann knapans Þorvalds Árna Þorvaldssonar. Haraldur Þórarinsson formaður hestaíþróttasambands Íslands hefur áhyggjur af því hvaða skilaboð dómurinn gefi fyrir hestaíþróttina.

Sjá næstu 50 fréttir