Formúla 1

Nico Rosberg fyrstur í mark í Austurríki

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg vann í Austurríki.
Rosberg vann í Austurríki. Vísir/Getty
Nico Rosberg vann keppnina í Austurríki, liðsfélagi hans Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hætti keppni.

Lewis Hamilton átti rosalega ræsingu, hann komst úr níunda sæti í það fjórða á fyrsta hring.

Sebastian Vettel missti afl á fyrsta hring. Hann fékk aflið aftur skömmu seinna en var þá orðinn hring á eftir öllum á brautinni. Sebastian Vettel hætti keppni á 35. hring. Þetta var þriðja keppnin sem Vettel klárar ekki á tímabilinu.

Nico Rosberg komst fram fyrir Williams bílana eftir fyrstu umferð á þjónustusvæðinu. Willams liðið hélt sínum ökumönnum örlítið lengur úti á slitnum dekkjum sem kom sér vel fyrir Mercedes liðið.

Sergio Perez leiddi keppnina í langan tíma eftir að fremstu menn höfðu tekið þjónustuhlé. Hann hóf keppnina á harðari dekkjagerð helgarinnar og gat þá haldið lengur áfram án þessa að skipta um dekk.

Rosberg og Valtteri Bottas tóku báðir í einu, fram úr Perez eftir langan tíma fyrir aftan Mexíkóann.



Báðir Toro Rosso bílarnir hættu keppni, það brotnaði fjöðrun á bíl Daniil Kvyat og bremsurnar brugðust Jean-Eric Vergne.

Hamilton gerði atlögu að Rosberg á lokahringjum keppninnar en allt kom fyrir ekki, hann komst ekki fram úr.

Ræsingin í Austurríki fór vel fyrir Mercedes menn og lagði grunninn að góðri keppni.Vísir/Getty
„Var ekki auðveldasta keppnin, mikið sem þurfti að hafa auga með í bílnum. Gott fyrri liðið að ná fyrsta og öðru sæti í dag. Hlakka til að komast í næstu keppni, væri svalt að ná aftur fyrsta og öðru sæti þar,“ sagði Rosberg á pallinum eftir keppnina.

„Þessi braut er rosaleg og aðdáendurnir eru magnaðir,“ sagði Hamilton, sem átti frábæra keppni.

„Ég er mjög ánægður, það er erfitt að koma gleðinni í orð. Við þurftum á svona keppni að halda, hún fór eins og við reiknuðum með. Góð stig fyrir liðið í dag,“ sagði Bottas á sínum fyrsta verðlaunapalli.

„Þetta var mjög mikilvægt fyrir liðið góð niðurstaða. Nico átti góða keppni en Lewis örlítið betri þar sem hann þurfti að komast fram úr fleirum til að komast á pallinn,“ sagði Niki Lauda sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1.

Rosberg fagnaði gríðarlega, enda jók hann forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna.Vísir/Getty
Úrslit keppninnar:

1.Nico Rosberg - Mercedes - 25 stig

2.Lewis Hamilton - Mercedes - 18 stig

3.Valtteri Bottas - Williams - 15 stig

4.Felipe Massa - Williams - 12 stig

5.Fernando Alonso - Ferrari - 10 stig

6.Sergio Perez - Force India - 8 stig

7.Kevin Magnussen - McLaren - 6 stig

8.Daniel Ricciardo - Red Bull - 4 stig

9.Nico Hulkenberg - Force India - 2 stig

10.Kimi Raikkonen - Ferrari - 1 stig

11.Jenson Button - McLaren

12.Pastor Maldonado - Lotus

13.Adrian Sutil - Sauber

14.Romain Grosjean - Lotus

15.Jules Bianchi - Marussia

16.Kamui Kobayashi - Caterham

17.Max Chilton - Marussia

18.Marcus Ericsson - Caterham

19.Esteban Gutierrez - Sauber

Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - hætti keppni

Sebastian Vettel - Red Bull - hætti keppni

Daniil Kvyat - Toro Rosso - hætti keppni


Tengdar fréttir

Felipe Massa á ráspól í Austurríki

Felipe Massa varð fyrstur til að stöðva ráspólaröð Mercedes liðsins. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas var annar og Nico Rosberg varð þriðji.

Rosberg: Ég hef sálfræðilegt forskot á Hamilton

Nico Rosberg telur að hann hafi nú sálfræðilegt forskot á lisðfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Rosberg telur að hann hafi snúið taflinu við þegar hann náði 22 stiga forskoti á Hamilton í síðustu keppni.

Bílskúrinn: Veislan í Kanada

Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki.

Webber: Ricciardo ekki gert nein mistök

Ástralinn Mark Webber hrósaði samlanda sínum og arftaka hjá Red Bull, Daniel Ricciardo eftir að sá síðarnefndi vann kanadíska kappaksturinn á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×