Fleiri fréttir

Bestu myndirnar frá lokakeppnisdögunum á ÓL í London

Ólympíuleikunum í London lauk á sunnudaginn með glæsilegri lokaathöfn. Ljósmyndarar frá Nordic Photos og Getty voru með myndavélarnar á lofti á öllum keppnisstöðunum á meðan leikunum stóð. Í myndasyrpunni má sjá brot af því besta frá síðustu þremur keppnisdögunum.

Nær útilokað að Bretar verði með lið í Ríó

Alex Horne, framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins, segir breskt karlalandslið ekki verða meðal þátttökuþjóða í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í Ríó árið 2016. Þá segir hann ólíklegt að kvennalandslið verði sent til keppni.

Eiður Smári: Ég vil taka síðustu árin með trompi

"Þetta er skringileg staða hjá mér að vera ekki hjá félagsliði en vera valinn í landsliðshópinn," segir Eiður Smári Guðjohnsen en Íslendingar mæta Færeyingum í æfingaleik á Laugardalsvelli annað kvöld.

Pepsi-mörkin: Umfjöllun um 15. umferð karla í heild sinni á Vísi

Hörður Magnússon og félagar hans í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport fóru yfir gang mála í leikjunum úr 15. umferð Pepsideildar karla. Það gekk mikið á í leikjunum sex og alls voru skoruð 28 mörk og höfðu sérfræðingar þáttarsins, Hjörvar Hafliðason og Tómas Ingi Tómasson, um nóg að ræða. Þátturinn er aðgengilegur í heild sinni á sjónvarpshluta Vísis.

Golfsamband Íslands fagnar 70 ára afmæli í dag

Í dag fagnar Golfsamband Íslands að 70 ár eru liðin frá stofnun sambandsins. Föstudaginn 14. ágúst 1942 settust tíu men við borð í golfskála Golfklúbbs Íslands. Þeir voru þangað komnir sem fulltrúar klúbbanna þriggja sem lögðu stund á golfíþróttina til að stofna Golfsamband Íslands. Þetta voru fulltrúar Golfklúbbs Reykjavíkur, Golfklúbbs Akureyrar og Golfklúbbs Vestmannaeyja.

Peter Öqvist: Frábær gluggi fyrir leikmenn Íslands

"Ég elska nýja fyrirkomulagið því það þýðir að heimsklassalandslið á borð við Serbíu koma í heimsókn til Íslands," segir landsliðsþjálfari Íslands í körfuknattleik, Svínn Peter Öqvist.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Serbía 79-91

Ísland tapaði fyrir Serbíu 91-78 í fyrsta leik A-riðils í undankeppni Evrópumeistaramótsins í körfubolta í kvöld en getur engu að síður borið höfuðið hátt eftir leikinn. Liðið barðist af krafti en slakur annar leikhluti varð liðinu að falli í kvöld.

Grétar Rafn reiknar með því að semja í dag eða á morgun

Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson segist reikna með því að ganga frá samningum við nýtt félag í dag eða á morgun. Grétar Rafn hefur verið samningslaus frá því í vor en hann var áður á mála hjá Bolton Wanderers.

Logi Gunnars: Landsleikirnir á móti stóru þjóðunum standa upp úr

"Þetta lið er með þeim bestu í heimi. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu. Þess vegna er maður í þessu og reynir að vera með í eins mörgum leikjum og maður getur. Maður vill mæla sig á móti þeim bestu," segir landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson.

Fjórir Íslandsvinir í landsliðshópi Færeyinga

Karlalandslið Íslands í knattspyrnu mætir Færeyingum í æfingaleik á Laugardalsvelli annað kvöld. Fjórir liðsmenn Færeyinga eru íslenskum knattspyrnuáhugamönnum að góðu kunnir.

Mourinho leggur til nýtt viðurnefni á sjálfan sig

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að viðurnefnið "Hinn eini" sé meira við hæfi en "Hinn einstaki" þar sem hann hefur stýrt félagi til sigurs í þremur sterkustu deildum í Evrópu.

Agger vill vera áfram hjá Liverpool

Daniel Agger, leikmaður Liverpool, hefur tjáð sig um áhuga Manchester City á sér. Hann segist þó umfram allt vilja spila fyrir Liverpool.

Reynsla sem má ekki fara til spillis

27 íslenskir íþróttamenn tóku þátt í Ólympíuleikunum í London sem var slitið á sunnudagskvöld. Óhætt er að segja að lokahátíðin hafi verið glæsileg og þar með í takt við afar vel heppnaða leika sem verða lengi í minnum hafðir.

Verður örugglega troðið í grillið á okkur

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik hefur í kvöld leik í undankeppni Evrópumótsins. Mótherjinn er landslið Serbíu sem hefur án nokkurs vafa á að skipa einu sterkasta landsliði heims. Silfurverðlaun á Evrópumótinu 2009 og fjórða sæti á heimsmeistaramótinu ári síðar eru til marks um getu þeirra.

Jón Daði: Fagmennskan meiri en 2010

Jón Daði Böðvarsson, miðjumaður Selfyssinga, er leikmaður 15. umferðar að mati Fréttablaðsins. Jón Daði skoraði tvívegis í 4–2 sigri á Fram en sigurinn var lífsnauðsynlegur í baráttu Sunnlendinga á botni deildarinnar.

Vítaspyrnuklúður ársins í Austurríki

Boltastrákarnir á Red Bull Arena eru líklega ennþá að leita að boltanum sem Jonathan Soriano, leikmaður Red Bull Salzburg, spyrnti yfir mark Rapid Vínar í deildarleik í gær.

Arnór Ingvi lánaður til Noregs

Hinn stórefnilegi leikmaður Keflvíkinga, Arnór Ingvi Traustason, mun ekki spila fleiri leiki með Keflavík í sumar því búið er að lána hann til norska liðsins Sandnes Ulf.

Skallaði eiginkonuna og var rekinn frá Dolphins

Útherjinn skrautlegi Chad Johnson, sem áður kallaði sig Ochocinco, er ekkert í allt of góðum málum í kjölfar þess að hann var handtekinn og síðan rekinn frá Miami Dolphins.

Frakkar drukku fyrir tvær og hálfa milljón króna

Þó svo Tony Parker hafi fengið glerbrot í augað síðast er hann djammaði var hann samt óhræddur við að kíkja út á lífið í London eftir að franska körfuknattleikslandsliðið lauk keppni á ÓL.

Helsingborg og Lokeren að ná saman um Alfreð

Alfreð Finnbogason verður væntanlega seldur til sænska liðsins Helsingborg fljótlega en hann segir að lítið beri á milli liðsins og Lokeren. Alfreð hefur verið í láni hjá Helsingborg frá Lokeren og algjörlega farið á kostum með sænska liðinu.

U-18 ára liðið komst ekki áfram

Íslenska U-18 ára landsliðið í körfuknattleik komst ekki í úrslitakeppni átta efstu liðanna í B-deild EM eftir tap gegn Finnum í kvöld, 86-78. Ísland leiddi í hálfleik, 49-45.

Start með sex stiga forskot á toppnum

Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson léku saman í fremstu víglínu hjá Start í kvöld er liðið vann sterkan útisigur á Ullensaker/Kisa, 0-3.

Rossi vill fara til AC Milan

Síðasta tímabil var erfitt fyrir ítalska framherjann Giuseppe Rossi. Hann var mikið meiddur og náði aðeins að spila 14 leiki fyrir Villarreal sem saknaði hans mikið og féll úr spænsku úrvalsdeildinni.

Wenger gefst ekki upp á Van Persie

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur ekki gefið upp alla von um að halda Robin van Persie hjá félaginu þó svo ekkert nýtt hafi gerst í viðræðum Van Persie við Lundúnafélagið.

Luck byrjaði NFL-ferilinn með snertimarkssendingu

Andrew Luck, arftaki Peyton Manning hjá Indianapolis Colts, hóf feril sinn hjá Colts með látum. Luck, sem valinn var fyrstur í nýliðavali NFL-deildarinnar, kastaði fyrir snertimarki í sinni fyrstu sendingu.

Ryo lánaður til Wigan

Arsenal er búið að lána japanska ungstirnið, Ryo Miyaichi, til Wigan út komandi leiktíð. Þessi 19 ára gamli vængmaður hefur ekki enn spilað deildarleik fyrir Arsenal síðan hann kom til félagsins árið 2010.

John Terry sleppur við bann í Meistaradeildinni

John Terry, fyrirliði Chelsea, getur spilað með Chelsea í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Knattspyrnusamband Evrópu hefur tekið áfrýjun bannsins til greina og minnkað bannið í tvo leiki.

Llorente vill komast frá Athletic

Fernando Llorente, framherji Athletic Bilbao, hefur tilkynnt forráðamönnum félagsins að hann vilji ekki framlengja samning sinn við félagið.

Mál Arnórs Ingva skýrast í vikunni

Keflvíkingum hefur borist tilboð frá norska félaginu Sandnes Ulf í Arnór Ingva Traustason. Félagið leikur í efstu deild norsku knattspyrnunnar.

Ivanovic fer ekki í bann þrátt fyrir rautt spjald

Branislav Ivanovic, varnarmaður Chelsea, þarf ekki að taka út þriggja leikja bann þrátt fyrir að hafa verið vísað af velli í 3-2 tapinu gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í gær.

Ostapchuk þarf að skila gullinu

Nadzeya Ostapchuk frá Hvíta-Rússlandi þarf að skila gullverðlaunum sínum í kúluvarpskeppni kvenna á Ólympíuleikunum. Ostapchuk féll á lyfjapróf.

Sjá næstu 50 fréttir