Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Drillo spáir því að Birkir Már og félagar tapi bikarúrslitaleiknum Egil Drillo Olsen, þjálfari norska fótboltalandsins, er ekki bjartsýnn fyrir hönd Birkis Más Sævarssonar og félaga í Brann sem mæta Aalesund í norska bikarúrslitaleiknum á sunnudaginn. Aalesund getur unnið bikarinn í annað skiptið á þremur árum en Brann vann bikarinn síðast árið 2004. 3.11.2011 23:15
Ekkert gengur hjá Loga og félögum í Solna Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings þurftu að sætta sig við 87-95 tap á heimavelli á móti Borås Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 3.11.2011 23:09
Þórey Edda hefur störf hjá Frjálsíþróttasambandinu Þórey Edda Elísdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Hún mun aðallega fást við verkefni sem miða að því að efla útbreiðslu frjálsra íþrótta. Þórey Edda mun einnig koma að undirbúningi Ólympíuhóps FRÍ fyrir leikana í London á næsta ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Frjálsíþróttasambandinu í kvöld. 3.11.2011 22:46
Sonur Sir Alex: Að vera 25 ár með Man. United er stærsta afrek pabba Darren Ferguson, sonur Sir Alex Ferguson, segir ákveðni pabba síns og góð eiginkona vera lykilatriðin á bak við það að faðir sinn sé búinn að sitja í stjórastólnum á Old Trafford í aldarfjórðung. Ferguson fagnar 25 ára starfsafmæli um helgina. 3.11.2011 22:45
Páll Axel: Þetta endar með góðu kjaftshöggi „Þetta var heppnissigur hjá okkur í kvöld,“ sagði Páll Axel Vilbergsson, leikmaður Grindvíkinga, eftir sigurinn í kvöld. 3.11.2011 22:29
Öll úrslitin í Evrópudeildinni í kvöld - fimm lið komust áfram Seinni leikjapakka kvöldsins í Evrópudeildinni er nú lokið og þar með er ljóst að fjögur lið tryggðu sér sæti í 32 liða úrslitunum í fjórðu umferð riðlakeppninnar. 3.11.2011 22:09
Hreggviður: Þetta má bara í NBA-deildinni Hreggviður Magnússon sagði að David Tairu hafi litið út eins og eitt stórt spurningamerki í framan þegar hann bað um leikhlé í opnu spili í leik KR og Keflavíkur í kvöld. 3.11.2011 21:36
Benzema: Við erum betri en í fyrra Frakkinn Karim Benzema segir að Real Madrid tefli fram mun sterkara liði í ár en það gerði í fyrra. Hann segir liðið taka stöðugum framförum. 3.11.2011 21:30
Helena og félagar unnu á Ítalíu í kvöld Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska liðinu Good Angeles Kosice unnu fimm stiga útisigur á ítalska liðinu CB Taranto, 61-56, í Meistaradeild Evrópu (Euroleague) í kvöld. 3.11.2011 21:22
Snæfell aftur á sigurbraut eftir stórsigur á Njarðvík - úrslit kvöldsins Snæfellingar enduðu tveggja leikja taphrinu í Iceland Express deild karla með því að vinna 22 stiga sigur á Njarðvík, 89-67, í Hólminum í kvöld. Njarðvíkingar eru hinsvegar búnir að tapa þremur leikjum í röð og þeir litu ekki vel út í kvöld. 3.11.2011 20:50
Fyrri leikjapakki kvöldsins í Evrópudeildinni - þrjú komust áfram Fyrri leikjapakka kvöldsins í Evrópudeildinni er nú lokið en þar ber hæst að þrjú lið tryggðu sér sæti í 32 liða úrslitunum. Liðin sem eru komin áfram upp úr riðlum sínum eftir leiki kvöldsins eru Athletic Bilbao, PSV Eindhoven og Legia Varsjá. 3.11.2011 20:04
AEK úr leik í Evrópudeildinni- Elfar spilaði fyrri hálfleikinn Elfar Freyr Helgason fékk sitt fyrsta alvöru tækifæri með AEK Aþenu í kvöld þegar liðið tapaði 1-3 á heimavelli á móti rússneska liðinu Lokomotiv Moskvu í Evrópudeildinni. 3.11.2011 19:45
Ragna og Ásdís fengu hálfa milljón - úthlutun úr Afrekskvennasjóði Fjórar íþróttakonur og tvö sérsambönd fengu styrk í dag þegar tilkynnt var um áttundu úthlutun úr afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ. Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir og badmintonkonan Ragna Björg Ingólfsdóttir fengu báðar hálfa milljón og danskonurnar Hanna Rún Óladóttir og Sara Rós Jakobsdóttir fengu báðar 250 þúsund krónur. 3.11.2011 19:00
Miðstöð Boltavaktarinnar - allir leikirnir á einum stað Fjölmargir leikir fara fram í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA í kvöld og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis. 3.11.2011 18:00
Sölvi Geir og Ragnar spiluðu 90 mínútur í tapleik Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson spiluðu allan leikinn með FC Kaupmannaghöfn sem tapaði 1-2 á heimavelli á móti þýska liðinu Hannover í Evrópudeildinni í kvöld. Leikurinn fór fram á Parken í Kaupmannahöfn 3.11.2011 17:45
Sveinbjörn sleit krossband í Grindavíkurleiknum - ekki meira með í vetur Sveinbjörn Claessen, fyrirliði ÍR í Iceland Express deild karla í körfubolta, mun ekki spila með liðinu meira á þessu tímabili eftir að í ljós kom að hann sleit krossband í leik á móti Grindavík á dögunum. 3.11.2011 17:02
Tottenham tapaði án Redknapp í Rússlandi Tottenham varð að sætta sig við sitt fyrsta tap í Evrópudeildinni á tímabilinu þegar liðið lá 0-1 á útivelli á móti rússneska liðinu Rubin Kazan. Sigurmark Rússanna kom úr aukaspyrnu á 56. mínútu. 3.11.2011 16:45
Þorsteinn: Tekinn af lífi fyrir að vera á móti Guðjóni Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, er afar ósáttur við þær fullyrðingar núverandi formanns, Jónasar Þórhallssonar, að knattspyrnudeildin hafi tapað 21 milljón króna á rekstrarárinu. 3.11.2011 16:28
O'Shea missir af umspilsleiknum gegn Eistum Varnarmaðurinn John O´Shea verður ekki með írska landsliðinu gegn Eistum í umspilinu um laust sæti á EM næsta sumar. 3.11.2011 16:00
Dalglish vonar að Gerrard missi aðeins af einum leik Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er bjartsýnn á að fyrirliði liðsins, Steven Gerrard, muni aðeins missa af einum leik vegna nýjustu meiðslanna. 3.11.2011 15:15
Tryggvi samdi við Stjörnuna til tveggja ára Tryggvi Sveinn Bjarnason hefur samið við Stjörnuna til næstu tveggja ára og mun því spila með liðinu áfram í Pepsi-deild karla. Þetta staðfesti Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, í samtali við Vísi í dag. 3.11.2011 15:03
Demókratar vilja banna munntóbak og stera í hafnabolta Þegar hugsað er um hafnaboltamann dettur mörgum í hug munntóbak og sterar. Skal engan undra þar sem ótrúlegur fjöldi leikmanna MLB-deildarinnar notar munntóbak og stera. Upp hefur komist um steranotkun margra af bestu leikmönnum síðari ára. 3.11.2011 14:30
Guðmundur: Sigfús í formi á möguleika Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segist vera í leit að sterkum varnarmönnum sem geti spilað fyrir miðri vörn íslenska liðsins. Guðmundur tók hinn stóra og stæðilega Ægi Hrafn Jónsson inn í landsliðshópinn í gær. Hann hefur ekki áður verið á æfingum með landsliðinu. 3.11.2011 14:00
Mayweather vill berjast við Pacquiao í maí Hinn ósigraði hnefaleikakappi Floyd Mayweather Jr. hefur ákveðið að berjast næst þann 5. maí á næsta ári. Hann vill helst mæta Manny Pacquiao en hnefaleikaáhugamenn hafa lengi beðið eftir því að sjá þessa tvo kappa mætast. 3.11.2011 13:30
Með 47 rjúpur um opnunarhelgina Núna er það helgi númer tvö í rjúpunni og spáin heldur rysjótt nema þá helst á norður og austurlandi. Við erum ennþá að fá fréttir af veiðimönnum sem héldu til veiða síðustu helgi og nokkrir hafa gert það ágætt en aðrir fengið minna. 3.11.2011 12:55
EM í mikilli hættu hjá Ólafi Stefánssyni Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur miklar áhyggjur af því að Ólafur Stefánsson geti ekki verið með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu í janúar. Ólafur meiddist í sumar og er ekki enn byrjaður að spila. 3.11.2011 12:45
Tilkynnt um valið á Úrvalsliði HSÍ Nú í hádeginu var tilkynnt um val á Úrvalsliði HSÍ sem mun mæta íslenska landsliðinu í Laugardalshöll annað kvöld. Það var sérstök valnefnd á vegum HSÍ og handboltaáhugamenn sem kusu liðið. 3.11.2011 12:15
Ingimundur Níels kemur aftur heim til Fylkis Ingimundur Níels Óskarsson á ekki von á öðru en að hann snúi aftur heim í Fylki eftir nokkurra mánaða dvöl hjá norska B-deildarliðinu Sandnes Ulf. 3.11.2011 11:45
Beckham mun þekkja sinn vitjunartíma David Beckham leggur mikið á sig til þess að vera í formi og getur enn staðið sig meðal þeirra bestu þrátt fyrir að vera 36 áta gamall. Hann segist ekki vera veruleikafirrtur og muni þekkja sinn vitjunartíma er hann kemur. 3.11.2011 11:15
Arnór spilar áfram þrátt fyrir brjósklos í baki „Ég læstist svona agalega í bakinu eftir þriggja mínútna leik í fyrsta leik okkar í Meistaradeildinni í haust. Eftir það fór ég í rannsóknir og greindist með brjósklos í baki,“ sagði Arnór Atlason, landsliðsmaður í handbolta, eftir landsliðsæfingu í gær. Liðið er nú að æfa saman þessa vikuna en Arnór hefur haldið ótrauður áfram að spila með liði sínu, AG Kaupmannahöfn, þrátt fyrir brjósklosið. 3.11.2011 10:45
Gervinho hefur mikla trú á Hazard Framherji Arsenal, Gervinho, er afar spenntur fyrir því að fá fyrrum liðsfélaga sinn hjá Lille, Eden Hazard, til Arsenal. Hann hefur fulla trú á því að Hazard geti slegið í gegn í enska boltanum. 3.11.2011 10:15
Bjarni gefur kost á sér áfram til formennsku SVFR Skrifstofu SVFR hefur borist tilkynning frá Bjarna Júlíussyni formanni SVFR um að hann gefi áframkost á sér til formennsku í SVFR 3.11.2011 10:00
Metsumar í Stóru Laxá - 795 laxar á land Stóra Laxá í Hreppum endaði í 795 löxum í sumar og er það metveiði í Stóru. Sumarið í ár byrjaði hægt og virtist aldrei ætla í gang eins og á mörgum öðrum ám þetta sumarið en hrökk í gang í lok ágúst með mikillri veiði og gekk þannig langt fram í september. Til að myndar voru nokkur tveggja daga holl sem náðu 100 laxa veiði á svæði I&II. Í sumar var í fyrsta skipti innleitt veiða og sleppa reglur í Stóru en á svæðum1-3 má hirða 1 lax en öllu sleppt á svæði 4. 3.11.2011 09:58
Nær Hróarslækur sér á strik 2012 Engum blöðum er um það að fletta að Hróarslækur var lélegur í sumar og langt undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sér í lagi þar sem sleppingar í fyrra voru í fullu samræmi við fyrri sleppingar samkvæmt okkar heimildum. 3.11.2011 09:55
Stærsta tap í sögu Grindavíkur Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur slegið viðræðum við Guðjón Þórðarson á frest í ljósi þess að deildin var rekin með 21 milljónar króna tapi á síðasta ári. "Skafl sem þarf að moka,“ segir formaðurinn. 3.11.2011 09:45
Redknapp líður vel eftir aðgerðina Harry Redknapp, stjóri Tottenham, gekkst undir hjartaaðgerð í gær. Honum líður nokkuð vel eftir aðgerðina að sögn sonar hans, Jamie, sem meðal annars lék með Liverpool á sínum tíma. 3.11.2011 09:09
Björgvin Páll gæti verið á leið undir hnífinn Markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson er úr leik vegna axlarmeiðsla. Læknir íslenska landsliðsins vill að hann fari í aðgerð. Fari Björgvin í aðgerð verður hann frá keppni í tvo mánuði og missir þar af leiðandi af Evrópumótinu í Serbíu sem fram fer í janúar. 3.11.2011 08:30
Kjartan Henry: Sá að ég hef roð við þessum gæjum Kjartan Henry Finnbogason kom heim til Íslands í fyrrakvöld eftir vikudvöl hjá enska B-deildarliðinu Brighton & Hove Albion þar sem hann þótti standa sig vel. Þar áður var hann hjá danska liðinu Nordsjælland en þangað fór hann strax eftir landsleik Íslands í Portúgal í upphafi síðasta mánaðar. 3.11.2011 08:00
Rúnar: Ég hef metnað til að þjálfa í sterkari deild Rúnar Kristinsson er einn þeirra þjálfara sem voru orðaðir við þjálfarastöðuna hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Lilleström í fjölmiðlum þar ytra í gær. Reyndar sagði Rúnar að fréttin væri frá blaðamönnunum sjálfum komin en vissi þó að nafn hans væri á blaði hjá félaginu. 3.11.2011 07:30
Alexander Petersson: Álagið hefur sitt að segja Það var nánast biðröð á sjúkrabekkinn á æfingu íslenska landsliðsins á íþróttahúsinu á Seltjarnanesi í gær. Einn þeirra sem fengu meðhöndlun var Alexander Petersson, sem hefur verið tæpur í bakinu, enda álagið mikið. 3.11.2011 07:00
Rann á bolta og meiddist Það er óhætt að segja að æfingar íslenska landsliðsins gangi ekki stórslysalaust fyrir sig. Hinn ungi og efnilegi markvörður Hauka, Aron Rafn Eðvarðsson, er einn þeirra sem eru komnir á meiðslalistann. 3.11.2011 06:30
Leikur KR og Keflavíkur sýndur beint á Vísi í kvöld - Valtýr Björn lýsir Bein sjónvarpsútsending verður á fréttavefnum Vísi í kvöld þar sem KR tekur á móti Keflavík í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik. 3.11.2011 06:00
Sacchi: Messi að stinga Ronaldo af Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, er afar hrifinn af Lionel Messi, eins og margir fleiri, og segir að hann sé allt öðrum gæðaflokki en Cristiano Ronaldo. 2.11.2011 23:45
Bayern München og Real Madrid komin áfram - öll úrslit kvöldsins Bayern München og Real Madrid tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld með sigrum í leikjum sínum í 4. umferð riðlakeppninnar. Manchester-liðin unnu bæði sína leiki og eru í ágætum málum í sínum riðlum. 2.11.2011 19:00
Gerrard eignaðist þriðju dótturina Steven Gerrard og eiginkona hans, Alex, fullkomnuðu þrennuna í gær þegar Alex fæddi stúlkubarn í þriðja skiptið. Stúlkan hefur verið nefnd Lourdes en dóttur Madonnu heitir einmitt sama nafni. 2.11.2011 23:00