Fleiri fréttir

Bandaríkjamenn hefndu sín á Grikkjum

Bandaríska karlalandsliðið í körfubolta kom í dag fram sætum hefndum á liði Grikkja á Ólympíuleikunum í Peking með auðveldum 92-69 sigri í riðlakeppninni. Bandaríkjamenn hafa unnið alla þrjá leiki sína og munu fyrir vikið spila um verðlaun á leikunum.

Yao Ming sá um Angóla

Yao Ming var allt í öllu í liði Kínverja þegar það lagði Angólamenn 85-68 á ÓL í Peking. Yao skoraði 30 stig fyrir kínverska liðið og Sun Yue, sem nýverið gekk í raðir LA Lakers, skoraði 11 stig. Joaquim Gome var stigahæstur hjá Angóla með 17 stig.

Hoyte í viðræðum við Boro

Arsenal hefur samþykkt kauptilboð Middlesbrough í bakvörðinn Justin Hoyte og er hann nú á leið í viðræður við félagið um samning. Hoyte er 23 ára gamall og hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal.

Blackburn neitaði tilboði City í Santa Cruz

Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn hefur neitað kauptilboði Manchester City í framherjann Roque Santa Cruz, en Paragvæmaðurinn lék með Blackburn undir stjórn Mark Hughes sem nú stýrir City.

Ævintýralegur sigur hjá Dönum

Evrópumeistarar Dana hafa ekki sagt sitt síðasta orð í handboltakeppninni á ÓL í Peking. Liðið vann ævintýralegan sigur á Rússum í dag 25-24 þar sem úrslitin réðust í aukakasti þegar leiktíminn var liðinn.

Hjörtur: Hefði viljað vera undir 54 sekúndum - Myndir

Hjörtur Már Reynisson segir að mistök á fyrstu 50 metrunum í 100 metra flugsundinu í á ÓL í hádeginu hafi kostað hann dýrt. Hann var þó ánægður með að bæta sinn besta árangur í 100 metra flugsundinu.

Hjörtur bætti sig í flugsundinu

Hjörtur Már Reynisson náði besta tíma sínum til þessa í 100 metra flugsundi í hádeginu þegar hann kom í mark á 54,17 sekúndum í undanrásum á ÓL í Peking.

Árni: Átti ekki von á að ná metinu hans Ödda - Myndir

“Mér leið mjög vel þegar ég labbaði í salinn. Ekkert stress og bara afslappaður. Mér leið svo bara mjög vel í sundinu. Ég sá ég var á undan stráknum við hliðina á mér en annars gerist þetta svo hratt. Þetta eru ekki margar sekúndur,” sagði Árni Már Árnason eftir að hann sló Íslandsmetið í 50 skriðsundi í morgun.

Árni Már setti Íslandsmet

Árni Már Árnason varð í morgun fyrsti íslenski sundkappinn til að setja Íslandsmet á Ólympíuleikunum í Peking. Árni synti 50 metra skriðsund á 22,81 sekúndu og bætti með Arnar Arnarsonar sem var 23,02 sekúndur.

Myndir úr leik Íslands og Suður-Kóreu

Ísland tapaði í morgun naumlega fyrir Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum í Peking í æsispennandi og dramatískum leik. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari var á staðnum og tók þessar góðu myndir í leiknum.

Ólafur: Erfitt að kyngja þessu tapi

„Allur leikurinn var eitt tækifæri. Við gerðum okkur erfitt fyrir með því að klikka mikið í sókninni. Það gekk ágætlega að opna vörnina en skotin fóru ekki inn,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson sem fann sig vel í upphafi leiks í gær en síðan fjaraði undan hans leik. Hann skoraði aðeins eitt mark í leiknum og það rétt fyrir leikslok.

Snorri Steinn: Verðum að nýta færin

„Við fengum frábært færi undir lokin en það atvik endurspeglaði kannski leikinn í heild sinni. Ég veit ekki hvað við klúðruðum mörgum dauðafærum í þessum leik,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson hundsvekktur eftir tapið grátlega gegn Kóreu í morgun.

Grátlegt tap fyrir Suður-Kóreu

Eins og óttast var átti íslenska liðið í vandræðum með lið Suður-Kóreu eins og önnur lið á Ólympíuleikunum í Peking. S-Kórea vann, 22-21.

Fjórar sveitir syntu undir gamla heimsmetinu

Síðasta úrslitasund næturinnar á Ólympíuleikunum í Peking var 4x200 metra skriðsund kvenna. Miklar hræringar voru í sundinu, spennan í hámarki og mikið jafnræði lengst af.

Chelsea gefst ekki upp á Robinho

Peter Kenyon telur að Chelsea eigi enn möguleika á því að landa brasilíska sóknarmanninum Robinho frá Real Madrid. Chelsea bauð 19,7 milljónir punda í leikmanninn í síðustu viku en því var hafnað.

Bjarki hættur með Aftureldingu

Bjarki Sigurðsson hefur látið af störfum sem þjálfari handknattleiksliðs Aftureldingar. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins en ekki er farið nánar út í ástæðuna.

Heimamenn sigursælir

Kínverjar hafa unnið flest gullverðlaun af þeim þjóðum sem keppa á Ólympíuleikunum í Peking eða alls 17. Hinsvegar hafa Bandaríkjamenn unnið til flestra verðlauna í heildina.

Japanskur sigur í 200 metra bringusundi

Japaninn Kosuke Kitajima synti til sigurs í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Peking. Hann kom í mark á 2:07,64 mínútum sem er nýtt Ólympíumet.

Gull í skugga stríðs

Tvö gullverðlaun á Ólympíuleikunum hafa náð að koma brosi á andlit Georgíumanna. Stríðsástand ríkir í Georgíu og um tíma ríkti óvissa um þátttöku landsins á Ólympíuleikunum.

Birkir bestur hjá Brann

Birkir Már Sævarsson var valinn maður leiksins eftir leik Brann og Marseille í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Marseille vann leikinn 1-0 en Birkir þótti besti leikmaður norska liðsins.

Snorri rauf 500 marka múrinn

Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins í handknattleik, rauf 500 marka múrinn í leiknum gegn Þjóðverjum á Ólympíuleikunum í Peking þegar Íslendingar fögnuðu góðum sigri á heimsmeisturunum, 33-29.

Eiður allan leikinn á bekknum

Barcelona átti ekki í vandræðum með Wisla Krakow í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar. Barcelona vann 4-0 sigur en spænska liðið skoraði tvö mörk í hvorum hálfleik.

KR vann í Garðabæ

Fjórtándu umferð Landsbankadeildar kvenna lauk í kvöld með fjórum leikjum. KR er enn sex stigum á eftir Val en Vesturbæjarliðið vann 2-0 útisigur á Stjörnunni í kvöld.

Arsenal ósannfærandi en vann góðan sigur

Arsenal vann góðan 2-0 útisigur á FC Twente í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Twente var betra liðið stóran hluta leiksins en mörk frá William Gallas og Emmanuel Adebayor settu Arsenal í góða stöðu fyrir seinni leikinn.

Markalaust hjá Standard Liege og Liverpool

Standard Liege og Liverpool mættust í kvöld í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Markalaust jafntefli var niðurstaðan þar sem Jose Reina, markvörður Liverpool, var maður leiksins.

O´Neill hefur fylgst vel með FH

Martin O´Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa, segist hafa kortlagt lið FH mjög vel fyrir leik liðanna í Evrópukeppninni annað kvöld. Enska liðið ætlar sér greinilega ekki að vanmeta Hafnfirðinga.

Phelps: Ég er orðlaus

Bandaríski sundkappinn Michael Phelps segist ekki gera sér almennilega grein fyrir því að hann sé orðinn sigursælasti maður í sögu Ólympíuleika eftir að hafa tryggt sér gullverðlaun númer 10 og 11 í morgun.

Vassell úr leik hjá City

Framherjinn Darius Vassell hjá Manchester City verður frá keppni næstu tíu vikurnar eða svo eftir að hafa meiðst á hné í æfingaleik um helgina.

Strákarnir í undanúrslit á EM

Íslenska U-18 ára landsliðið í handbolta tryggði sér í dag sæti í undanúrslitunum á EM sem fram fer í Tékklandi þegar það burstaði Frakka 35-25. Íslenska liðið fer því með Dönum upp úr milliriðlinum en síðar í kvöld kemur í ljós hverjir mótherjar liðsins verða í undanúrslitunum.

Lampard framlengir við Chelsea

Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Lampard var m.a. orðaður við Inter Milan í sumar, en hefur nú ákveðið að leika áfram með Lundúnaliðinu.

Adebayor gaf 15 milljónir í hjálparstarf

Framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Arsenal hefur gefið rúmar 15 milljónir króna til hjálparstarfsins í heimalandi sínu Tógó í Afríku eftir að mikil flóð gengu yfir landið í síðustu viku.

Heimamenn úr leik á ÓL

Heimamenn Kínverjar féllu í dag úr leik í knattspyrnukeppninni á Ólympíuleikunum þegar þeir töpuðu 3-0 fyrir Brasilíumönnum. Thiago Neves (2) og Diego skoruðu mörk Brasilíumanna.

Bale framlengir við Tottenham

Walesverjinn ungi Gareth Bale hjá Tottenham hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem bindur hann til ársins 2012. Samningurinn er eins árs framlenging á fyrri samningi.

Iguodala mun líklega framlengja við Sixers

Hinn fjölhæfi Andre Iguodala hjá Philadelphia 76ers í NBA deildinni mun hafa samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um sex ár. Sagt er að Iguodala, sem spilar sem bakvörður og framherji, muni fá um 80 milljónir dollara fyrir samninginn.

Federer og Nadal í fjórðungsúrslit

Svisslendingurinn Roger Federer tryggði sér í morgun sæti í fjórðungsúrslitunum á ÓL í tennis þegar hann lagði Tékkann Tomas Berdych 6-3 og 7-6 (7-4) í dag. Spánverjinn Rafael Nadal er sömuleiðis kominn áfram eftir 6-4 og 6-2 sigur á Rússanum Igor Andreev.

Ragnheiður komst ekki áfram

Ragnheiður Ragnarsdóttir keppti í morgun í 100 metra skriðsundi á ÓL í Peking. Ragnheiður kom í mark á 56,35 sekúndum og náði ekki í úrslit eftir að hafa náð þriðja sæti í riðli sínum. Íslandsmet Ragnheiðar í greininni er 56,06 sekúndur, en hún keppir í 50 metra skriðsundi á föstudaginn.

Arsenal í vanda fyrir Evrópuleik

Arsene Wenger er strax farinn að sjá eftir því að hafa ekki styrkt lið sitt meira í sumar. Hann stendur nú frammi fyrir því að vera án níu leikmanna fyrir evrópuleikinn gegn FC Twente í kvöld.

Bandarískir yfirburðir

Bandaríska sveitin vann yfirburðarsigur í úrslitasundinu í 4x200 metra skriðsundi karla. Michael Phelps, Ryan Lochte, Ricky Berens og Peter Vanderkaay skipuðu bandarísku sveitina sem kom í mark á 6:58,56 mínútum sem er nýtt heimsmet.

Alain Bernard hafði betur

Eins og við var að búast var gríðarleg spenna í úrslitum 100 metra skriðsunds karla. Frakkinn Alain Bernard brosti þó sínu breiðasta eftir sundið en hann hafði betur gegn Eamon Sullivan frá Ástralíu.

Pellegrini með heimsmet í 200 metra skriðsundi

Federica Pellegrini frá Ítalíu setti nýtt heimsmet í 200 metra skriðsundi kvenna þegar hún kom fyrst í mark í úrslitasundinu. Pellegrini synti á 1:54.82 mínútu og tók gullið.

Einvígi Bernard og Sullivan

Það stefnir allt í magnað úrslitasund í 100 metra skriðsundi karla en undanúrslitasundin fóru fram nú í nótt.

Sjá næstu 50 fréttir