Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. september 2025 20:14 Franz Wagner og Luka Doncic voru stigahæstir á vellinum þegar Þýskaland sló Slóveníu úr leik í átta liða úrslitum á EM í körfubolta. epa/TOMS KALNINS Heimsmeistarar Þýskalands urðu í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Evrópumóts karla í körfubolta eftir sigur á Slóveníu, 99-91.
Luka Doncic fór mikinn í slóvenska liðinu en það dugði ekki til. Los Angeles Lakers-maðurinn skoraði 39 stig, tók tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Slóvenar leiddu stærstan hluta leiksins en Þjóðverjar voru sterkari í 4. leikhluta sem þeir unnu, 29-17. Franz Wagner skoraði 23 stig fyrir þýska liðið, Dennis Schröder nítján og Daniel Theis fjórtán. Sá síðastnefndi tók einnig níu fráköst. Slóvenía náði mest þrettán stiga forskot en liðið sprakk á limminu undir lokin. Doncic kom Slóvenum yfir, 85-86, þegar fjórar mínútur og tólf sekúndur voru eftir. Þetta reyndist næstsíðasta karfa liðsins í leiknum. Þjóðverjar skoruðu fjórtán af síðustu nítján stigum leiksins. Þýskaland mætir Finnlandi í undanúrslitunum á föstudaginn. Í hinni undanúrslitarimmunni eigast Grikkland og Tyrkland við. Þjóðverjar hafa ekki unnið EM síðan 1993, eða í 32 ár.
EM 2025 í körfubolta Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Njarðvík - Keflavík | Stálin stinn í grannaslag Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Sjá meira