Fleiri fréttir

Babel svaf yfir sig í annað sinn

Ryan Babel, leikmaður Liverpool, svaf yfir sig og missti af fundi hollenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Rúmeníu í gær. Landsliðsþjálfarinn Marco van Basten var allt annað en sáttur og tók Babel út úr liðinu.

Riquelme sá um Chile

Í Suður-Ameríku er undankeppni heimsmeistaramótsins farin af stað. Argentína lék sinn fyrsta leik í gær er leikið var gegn Chile. Juan Roman Riquelme skoraði bæði mörk leiksins en Argentína vann 2-0 sigur.

Mikil gleði í Skotlandi

Mikil gleði ríkir í Skotlandi eftir glæstan sigur landsliðsins á Úkraínu í gær. Skotland á eftir að leika tvo leiki í undankeppni Evrópumótsins og er sem stendur í efsta sæti í sínum riðli, ansi óvænt.

Lampard fékk óblíðar móttökur

Hluti af stuðningsmönnum enska landsliðsins púaði á miðjumanninn Frank Lampard í gær. Enska landsliðið lék á móti Eistlandi og vann 3-0 sigur. Lampard kom af bekknum og fékk óblíðar móttökur.

Stórleikur á Ásvöllum í dag

Tveir leikir verða í N1 deild karla í handbolta í dag. Stórleikur verður á Ásvöllum þegar Haukar og Stjarnan eigast við. Í Vestmannaeyjum tekur ÍBV á móti HK og vonast til að ná í sín fyrstu stig. Báðir leikirnir hefjast klukkan 16.

Ragna með silfur í tvíliðaleik

Ragna Ingólfsdóttir lék í morgun með Kati Tolmoff frá Eistlandi til úrslita í tvíliðaleik á alþjóðlega Kýpur mótinu í badminton. Þær biðu þar ósigur fyrir Indverjum í tveimur lotum og hlutu því silfurverðlaunin.

Eiður Smári: Við létum Letta líta vel út

Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen var daufur í dálkinn eftir leikinn í dag. „Þetta lettneska lið er ekkert sérstakt. Þeir litu bara vel út því við gáfum þeim tækifæri til þess," sagði Eiður.

Árni Gautur: Ekki ásættanlegt

„Að tapa 2-4 á heimavelli gegn Lettum er ekki ásættanlegt," sagði Árni Gautur Arason, markvörður íslenska liðsins, við Vísi fljótlega eftir leikinn í dag.

Ragnar: Skitum á okkur

„Við skitum á okkur í fyrri hálfleiknum," sagði varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson eftir leikinn í dag. „Eftir það var þetta miklu betra en maður er samt nánast orðlaus eftir þennan leik."

Jói Kalli: Engan veginn okkar dagur

„Menn eru náttúrulega mjög svekktir eftir þennan leik. Þetta er alls ekki það sem við lögðum upp með," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson eftir 2-4 tap Íslands gegn Lettlandi í dag.

Valur enn á toppnum

Valur er enn á toppi N-1 deildar kvenna í handbolta eftir leiki dagsins. Haukar lögðu Fylki í Árbænum 24-18, Grótta og Fram gerðu 21-21 jafntefli á Nesinu og Stjarnan lagði HK 24-18.

Naumur sigur hjá meisturunum

Íslandsmeistarar Hauka unnu nauman sigur á nýliðum KR 74-71 í kvöld þegar þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta. Keflvíkingar burstuðu Fjölni 88-51 og Grindavík vann auðveldan sigur á Hamri 94-65.

Öruggur sigur hjá Valsstúlkum

Kvennalið Vals vann í kvöld góðan sigur á Wezemaal frá Belgíu 4-0 í Evrópukeppninni í knattspyrnu. Mörk Valsliðsins komu öll með stuttu millibili undir lok leiksins og því hefur liðið unnið einn leik og tapað einum í keppninni.

Henry jafnaði met Platini

Thierry Henry komst í dag upp að hlið Michel Platini sem markahæsti leikmaður franska landsliðsins frá upphafi. Henry skoraði eitt marka Frakka í auðveldum 6-0 útisigri á Færeyingum. Henry skoraði þarna sitt 41. mark fyrir þjóð sína og getur slegið metið þegar Frakkar taka á móti Litháum á miðvikudaginn.

McClaren með augun á Rússum

Steve McClaren lítur á sigur Englendinga gegn Eistum í dag sem klárað formsatriði og er nú farinn að einbeita sér að leiknum við Rússa í næstu viku. Sigur þar tryggir Englendingum sæti á EM á næsta ári.

Eiður orðinn markahæstur

Eiður Smári Guðjohnsen kom íslenska landsliðinu í 1-0 gegn Lettum snemma leiks á Laugardalsvellinum í dag. Þar með er fyrirliðinn orðinn markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi. Eiður hefur skorað 18 mörk, en Ríkharður Jónsson skoraði 17 mörk á ferlinum og átti gamla metið.

Auðvelt hjá Englendingum - Rooney braut ísinn

Englendingar unnu í dag þriðja 3-0 sigur sinn í röð í undankeppni EM þegar liðið lagði Eista á Wembley. Sigur Englendinga var aldrei í hættu eftir að Shaun-Wright Phillips kom liðinu yfir snemma leiks og Wayne Rooney skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið síðan 2004.

Tollefsen tekur við Víkingi

Danski þjálfarinn Jesper Tollefsen var í dag ráðinn þjálfari meistaraflokks Víkings og hefur gert tveggja ára samning við félagið. Tollefsen stýrði liði Leiknis í sumar en hefur nú verið falið stórt hlutverk hjá knattspyrnuakademíu Víkings.

Barry heldur sæti sínu

Miðjumaðurinn Gareth Barry hjá Aston Villa heldur sæti sínu í enska landsliðinu sem mætir Eistum á Wembley nú klukkan 14 og verður í beinni á Sýn. Frank Lampard þarf því að sætta sig við að sitja á bekknum í dag. Sol Campbell tekur stöðu John Terry í vörninni.

Ferguson: Asnalegt að spila æfingaleik í mars

Í gær tilkynnti enska knattspyrnusambandið að það fyrirhugaði að koma á vináttuleik við Frakka þann 26. mars í vor, en það er sérstakur landsleikjadagur hjá FIFA sem notaður verður til æfingaleikja. Ferguson segir þetta asnalega dagsetningu.

Frakkarnir lentir í Þórshöfn

Leikur Færeyinga og Frakka getur farið fram í dag eins og áætlað var eftir að gestirnir náðu loks að lenda í Þórshöfn. Mikil þoka var í Færeyjum í gær og því þurftu Frakkarnir að lenda í Noregi. Samkvæmt reglum UEFA höfðu Frakkarnir rétt á að krefjast þess að leiknum yrði frestað af því þeir komust ekki á leikstað 24 tímum fyrir leik, en þeir ákváðu að spila leikinn.

Frábær hringur hjá Birgi Leifi

Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel á þriðja hringnum á opna Madrídarmótinu í golfi og lauk keppni á fjórum höggum undir pari. Birgir komst naumlega í gegn um niðurskurðinn á mótinu í gær eftir erfiða byrjun, en hefur heldur betru tekið sig á og er í kring um 40. sæti á mótinu sem stendur.

Eiður í byrjunarliðinu gegn Lettum

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur nú tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Lettum í undankeppni EM klukkan 16 á Laugardalsvelli. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á liðinu sem mætti Norður-Írum.

LeBron James meiddist á öxl

Sex leikir voru á dagskrá á undirbúningstímabilinu í NBA deildinni í nótt. LeBron James þurfti að fara af velli meiddur á öxl þegar lið hans Cleveland tapaði fyrir Seattle.

Vísir verður á vellinum í dag

Það verður mikið um að vera í undankeppni EM í knattspyrnu í dag þegar 21 leikur er á dagskrá. Vísir verður með beina lýsingu frá Laugardalsvelli klukkan 16 þar sem Ísland tekur á móti Lettlandi og þá verður fylgst með gangi mála í öðrum leikjum fram á kvöld.

Englendingar í góðum málum

Englendingar hafa átt náðugan dag í leik sínum gegn Eistum í undankeppni EM og hafa yfir 3-0 á Wembley þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Þá hafa skotar yfir 2-1 gegn Úkraínumönnum og virðast ætla að halda toppsætinu í sínum riðli.

Frakkar flugu til Bergen

Franska landsliðið komst ekki til Færeyja í gærkvöld eins og áætlað var þegar þoka gerði það að verkum að fljúga þurfti með liðið til Bergen í Noregi. Vonir standa til um að hægt verði að skila Frökkunum til Þórshafnar nú um hádegið, en annars þarf að fresta leiknum.

Vísir kom Marel í vanda í Molde

Viðtal Fréttablaðsins við Marel Baldvinsson sem birtist hér á Vísi hefur valdið miklu fjaðrafoki í Noregi og þá sérstaklega Molde.

Valdimar með níu í naumum sigurleik

Valdimar Þórsson skoraði níu mörk þegar lið hans, HK Malmö, vann nauman útisigur á Lugi í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 32-31.

Valur aftur á toppinn

Valur tyllti sér aftur á topp N1-deildar kvenna með fimmtán marka sigri á FH í kvöld, 35-20.

Stjarnan vann Skallagrím

Stjörnumenn komu á óvart í kvöld með góðum sigri á Skallagrími í Iceland Express deild karla.

Ólafur áfram með Breiðablik

Ólafur Helgi Kristjánsson verður áfram þjálfari meistaraflokks Breiðabliks en hann staðfesti það í samtali við Vísi.

Gerrard vill Barry í byrjunarliðið

Steven Gerrard, fyrirliði enska landsliðsins gegn Lettum á morgun, telur að Gareth Barry eigi skilið sæti í byrjunarliðinu á morgun.

Barry Smith með tilboð frá Val

Barry Smith stendur til boða að vera áfram hjá Val næstu tvö árin og koma einnig að þjálfarastarfi hjá félaginu.

Birgir lék vel í dag

Birgir Leifur Hafþórsson á ágæta möguleika á að komast í gegn um niðurskurðinn á opna Madrídarmótinu í golfi eftir að hann lék annan hringinn á pari í dag. Leifur er því samtals á þremur höggum yfir pari eftir erfiða byrjun í gær. Það kemur í ljós síðar í dag hvort hann nær í gegn um niðurskurðinn.

Eyjólfur: Sækjum upp kantana

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari segir að íslenska liðið muni leggja áherslu á að sækja upp kantana þegar það tekur á móti Lettum í undankeppni EM á morgun. Hann vill ólmur ná sigri í síðasta heimaleik liðsins í keppninni.

Sjáum til með Eið Smára

"Eiður er búinn að æfa vel og það er búin að vera fín keyrsla á honum," sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari þegar hann var spurður hvort hann reiknaði með 90 mínútum frá Eiði Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Lettum á morgun.

Þorvaldur tekur við Fram

Þorvaldur Örlygsson verður í dag ráðinn þjálfari Fram í Landsbankadeildinni samkvæmt heimildum Vísis. Þorvaldur hefur verið orðaður mikið við Fram undanfarna daga en nú þykir ljóst að hann muni taka við af Ólafi Þórðarsyni. Þorvaldur stýrði liði Fjarðabyggðar í sumar og var áður með lið KA í nokkur ár.

Alonso á leið til Renault á ný?

Þýska blaðið Bild fullyrðir að heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá McLaren í Formúlu 1 hafi undirritað viljayfirlýsingu um að ganga aftur í raðir Renault á næsta ári, að því gefnu að hann fái sig lausan hjá McLaren í vetur.

Tevez vill ljúka ferlinum hjá Boca

Argentínumaðurinn Carlos Tevez segir að hann vilji gjarnan snúa aftur til heimalandsins og spila aftur með Boca Juniors áður en hann leggur skóna á hilluna.

Innbrot hjá foreldrum Paul Scholes

Foreldrar knattspyrnumannsins Paul Scholes hjá Manchester United eru skelkaðir eftir að vopnaðir innbrotsþjófar brutust inn í íbúð þeirra á dögunum og stálu bifreið þeirra.

Warnock er eins og vælandi krakki

Fyrrum knattspyrnudómarinn Graham Poll heldur hvergi aftur af sér í pistli sem hann skrifar um Neil Warnock í Daily Mail í dag. Poll segir dómara ekki hlakka til að vinna með nýráðnum stjóra Crystal Palace sem hann kallar óvinsælasta mann í knattspyrnunni.

Sjá næstu 50 fréttir