Íslenski boltinn

Ólafur áfram með Breiðablik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Kristjánsson verður áfram þjálfari Breiðabliks.
Ólafur Kristjánsson verður áfram þjálfari Breiðabliks. Mynd/Anton

Ólafur Helgi Kristjánsson verður áfram þjálfari meistaraflokks Breiðabliks en hann staðfesti það í samtali við Vísi.

Klásúla var í hans samningi sem heimilaði honum að segja upp samningi sínum við félagið á tímabilinu 5.-15. október.

Ólafur hefur hingað til ekki viljað staðfesta að hann haldi áfram með félagið en segir að hann hafi notað þennan tíma til að ræða við forráðamenn félagsins.

„Það er ekkert óeðlilegt að menn setjist niður að tímabilnu loknu og ræði aðeins málin," sagði Ólafur. „Ég vildi fá ákveðnar breytingar í gegn. Ég náði ekki öllu fram sem ég vildi en þetta var skref í rétta átt."

Hann segir að oft hafi Breiðablik átt unga og efnilega leikmenn sem hafa ekki náð að „slá í gegn" með meistaraflokknum.

„Ég vildi breyta uppbyggingunni þannig að þjálfari meistaraflokks gæti betur sinnt sérþjálfun yngri leikmanna. Ég vil einnig nota þá erlenda leikmenn og hafa þá með á æfingum yngri leikmanna í stað þess að þeir sitji heima og bíði eftir meistaraflokksæfingunni."

Hann segir einnig að hann sé nú kominn af stað með ákveðið verkefni hjá Breiðabliki og vilji ljúka því.

„Mér fannst ég skuldbundinn strákunum í liðinu að halda áfram. Ekki hefði ég viljað að einhver þeirra hefði hoppað frá borði og farið til annars liðs."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×