Sport

Ragna með silfur í tvíliðaleik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Heiða

Ragna Ingólfsdóttir lék í morgun með Kati Tolmoff frá Eistlandi til úrslita í tvíliðaleik á alþjóðlega Kýpur mótinu í badminton. Þær biðu þar ósigur fyrir Indverjum í tveimur lotum og hlutu því silfurverðlaunin.

Ragna tapaði fyrir Karinu Jörgensen frá Danmörku í undanúrslitum í einliðaleik í gær. Karina mætti síðan Kati Tolmoff í úrslitaviðureign og var það sú síðarnefnda sem vann gullið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×