Íslenski boltinn

Ragnar: Skitum á okkur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ragnar á æfingu landsliðsins fyrr í vikunni.
Ragnar á æfingu landsliðsins fyrr í vikunni.

„Við skitum á okkur í fyrri hálfleiknum," sagði varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson eftir leikinn í dag. „Eftir það var þetta miklu betra en maður er samt nánast orðlaus eftir þennan leik."

„Þeir náðu að teygja svakalega á okkur. Framherjarnir voru á sitthvorum kantinum og kantmennirnir gerðu okkur erfitt fyrir þegar þeir duttu inn í svæðin. Þetta var eiginlega fáránlegt," sagði Ragnar.

„Mér fannst Lettarnir gera þetta vel og þeir komu okkur eiginlega í opna skjöldu. Það var lélegt hjá okkur að fá á okkur þrjú mörk úr föstum leikatriðum. Það á bara ekki að gerast í fótboltaleik."

„Við trúðum því samt alltaf að við gætum komið til baka. Eftir að við minnkuðum muninn í 4-2 sóttum við stanslaust en markvörðurinn þeirra kom til bjargar," sagði Ragnar Sigurðsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×