Fleiri
Mikki Massi kominn í Honda liðið 16.3.2007 17:40 Risaslagur í þýska handboltanum í kvöld Stórleikur Gummersbach og Kiel í þýska handboltanum verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 18:25 í kvöld. Hér er á ferðinni sannkallaður toppleikur þar sem lærisveinar Alfreðs Gíslasonar sem sitja í fjórða sæti deildarinnar taka á móti efsta liðinu Kiel. 16.3.2007 16:55 Aragones velur hópinn sem mætir Íslendingum Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, hefur ákveðið að halda tryggð við megnið af leikmönnunum sem lögðu Englendinga 1-0 í æfingaleik í síðasta mánuði. Hann hefur nú tilkynnt hóp sinn fyrir leikina gegn Íslendingum og Dönum í undankeppni EM. 16.3.2007 16:33 Ekkert óvænt hjá McClaren Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga gaf í dag út hvaða leikmenn yrðu í landsliðshópi hans fyrir leikina gegn Ísrael og Andorra í undankeppni EM. Joey Barton, Gareth Barry og Shaun Wright-Phillips detta út úr hópnum sem tapaði síðast fyrir Spánverjum í æfingaleik. 16.3.2007 16:21 Tímabilið búið hjá Walcott Framherjinn ungi Theo Walcott hjá Arsenal verður líklega ekkert meira með liðinu í vor. Hann þarf að fara í uppskurð á öxl, en hafði verið beðinn um að fresta honum vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Walcott, sem er 18 ára í dag, segir meiðslin hafa versnað undanfarnar vikur og ekki sé hægt að fresta aðgerðinni lengur. 16.3.2007 14:30 Sjá næstu 50 fréttir
Ajax rótburstaði PSV Ajax burstaði erkifjendur sína í PSV Eindhoven 5-1 á útivelli í stórleik helgarinnar í hollenska boltanum í dag. Klaas-Jan Huntelaar skoraði tvö mörk fyrir gestina, sem söxuðu forskot PSV niður í fimm stig þegar fimm leikir eru eftir. Þetta var næststærsti sigur Ajax á PSV í sögunni. AZ Alkmaar þurfti að sætta sig við jafntefli við Heracles á útivelli og datt því niður í þriðja sæti á eftir PSV. 18.3.2007 17:03
Inter ætlar að gera risatilboð í Terry Breska blaðið Mail on Sunday fullyrðir að ítalska félagið Inter Milan ætli að gera Chelsea 20 milljón punda tilboð í varnarmanninn og fyrirliðann John Terry í sumar. Talsmaður ítalska liðsins staðfesti áhuga félagsins á Terry í dag og segir liðið fylgjast spennt með varnarjaxlinum. 18.3.2007 17:00
Áhorfendabekkirnir á hafsbotni Íslandsmótið í áhaldafimleikum stendur nú sem hæst í Fimleikahúsi Ármanns í Laugardalnum. Mótið hefur gengið prýðilega en þó var aðstaða fyrir áhorfendur ekki jafn góð og til stóð, því áhorfendabekkir sem pantaðir voru sérstaklega fyrir mótið lentu í skipsháska. 18.3.2007 16:22
Mikilvægur sigur hjá Charlton Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton unnu í dag gríðarlega mikilvægan sigur á Newcastle 2-0 í ensku úrvalsdeildinni. Zheng Zie skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark og fiskaði vítaspyrnu fyrir Charlton, sem lagaði stöðu sína í botnbaráttunni. 18.3.2007 15:46
Jafnt hjá Villa og Liverpool Aston Villa og Liverpool skildu jöfn 0-0 á Villa Park í bragðdaufum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. Steven Gerrard var skipt af velli hjá Liverpool og leit út fyrir að eiga við meiðsli að stríða, en Aston Villa hefur ekki náð að vinna Liverpool á heimavelli síðan árið 1998. Liverpool hefur nú hlotið 54 stig í fjórða sæti deildarinnar, einu stigi minna en Arsenal sem á tvo leiki til góða. 18.3.2007 15:42
Jol: Seljum Berbatov ekki fyrir 40 milljónir Martin Jol stjóri Tottenham, segir að félagið myndi aldrei geta hugsað sér að selja framherjann Dimitar Berbatov - ekki einu sinni þó það fengi 30-40 milljón punda tilboð í hann. Jol segir Búlgarann magnaða minna sig á Johan Cuyff. 18.3.2007 15:23
Denver valtaði yfir Phoenix Nokkur óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Denver rótburstaði Phoenix, Boston hélt upp á dag heilags Patreks með fyrsta sigri sínum í San Antonio í 18 ár og Chicago tapaði fyrir Memphis. Þá vann Cleveland 8. leikinn í röð og Indiana afstýrði vafasömu meti þegar liðið vann sinn fyrsta sigur í 12 leikjum. 18.3.2007 14:05
Frábær árangur hjá Birgi Leifi Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði sínum besta árangri í Evrópumótaröðinni í golfi þegar hann varð í 25-33. sæti á móti á TCL meistaramótinu í Kína. Birgir Leifur fékk 630 þúsund krónur í verðlaunafé og lék lokahringinn í nótt á 68 höggum, eða fjórum höggum undir pari. 18.3.2007 13:58
Raikkönen byrjar vel hjá Ferrari Kimi Raikkönen sigraði í ástralska kappakstrinum í Formúlu 1 í nótt og vann þar með sigur í fyrstu keppni sinni hjá Ferrari-liðinu. Það var samt nýliðinn Lewis Hamilton hjá McLaren sem stal senunni í dag þegar hann náði þriðja sætinu í sinni fyrstu keppni á ferlinum. Félagi hans og heimsmeistarinn Fernando Alonso varð í öðru sæti, en McLaren bílarnir höfðu ekki roð við sprækum Ferrari-bílnum. 18.3.2007 13:48
Auðvelt hjá Barcelona Barcelona er aftur komið á toppinn á Spáni eftir auðveldan 4-0 útisigur gegn Recreativo. Barcelona hefur nú þriggja stiga forystu á toppnum og er til alls líklegt í deildinni þrátt fyrir að vera úr leik í Evrópukeppninni. Samuel Eto´o skoraði tvívegis í kvöld og þeir Zambrotta og Messi sitt markið hvor. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðustu tíu mínúturnar í leiknum. Valencia steinlá 2-0 á heimavelli fyrir Santander fyrr í kvöld. 17.3.2007 21:07
Einar Hólmgeirsson kominn af stað eftir meiðsli Hamburg styrkti stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í dag með góðum sigri á Flensburg á heimavelli 33-31. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur og var sýndur beint á Sýn. Alls voru fjórir leikir á dagskrá í deildinni í dag og í kvöld og þar bar hæst að Einar Hólmgeirsson er nú að ná sér á skrið á ný eftir meiðslin sem kostuðu hann þátttöku á HM í Þýskalandi. 17.3.2007 20:35
Ben Foster: Ég ætla ekkert að lesa blöðin á morgun Markvörðurinn Ben Foster hjá Watford sagðist eiga von á erfiðri viku með enska landsliðinu eftir að hann lét félaga sinn og markvörð Tottenham Paul Robinson skora hjá sér í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. 17.3.2007 20:23
Paul Robinson: Þetta var heppni Paul Robinson, markvörður Tottenham, viðurkenndi að hann hefði haft heppnina með sér í dag þegar hann skoraði mark af um 80 metra færi gegn Watford. Markið skoraði hann gegn félaga sínum í enska landsliðinu, Ben Foster. 17.3.2007 20:12
Vonarglæta hjá West Ham West Ham á enn veika von um að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann frækinn 2-1 útisigur á Blackburn í lokaleik dagsins. Christopher Samba kom heimamönnum yfir strax í upphafi síðari hálfleiks, en þeir Carlos Tevez (víti) og Bobby Zamora skoruðu tvö mörk á fimm mínútum þegar 15 mínútur lifðu leiks og tryggðu Lundúnaliðinu gríðarlega mikilvæg þrjú stig. 17.3.2007 19:13
Stóri-Sam reiður Sam Allardyce var reiður eftir að hans menn í Bolton steinlágu 4-1 á Old Trafford í dag. Hann sagði sína menn hafa gefið Manchester United þrjú mörk og það eftir föst leikatriði, sem eru venjulega sterkasta hlið liðsins í vörn og sókn. 17.3.2007 18:40
Schalke á toppnum - Bayern tapar enn Schalke styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag með 1-0 sigri á Stuttgart. Á sama tíma tapaði Bayern 1-0 fyrir Frankfurt á útivelli. Schalke hefur 53 stig eftir 26 leiki en Bremen getur minnkað forskot þeirra í þrjú stig með sigri á Mainz á morgun. Stuttgart er í þriðja sætinu með 46 stig og Bayern er í fjórða með 44 stig. 17.3.2007 18:25
FCK hafði betur í Íslendingaslagnum FC Kaupmannahöfn hafði betur gegn Skjern 33-27 þegar liðin mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Arnór Atlason skoraði sex mörk fyrir FCK en Vilhjálmur Halldórsson fjögur fyrir Skjern og Vignir Svavarsson eitt. FCK er í efsta sæti deildarinnar en Skjern í því sjöunda. 17.3.2007 18:19
Ferguson: Frábær úrslit Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í dag þegar Manchester United burstaði Bolton 4-1 á Old Trafford og styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 17.3.2007 17:52
Snæfell komið í undanúrslit Snæfell varð í dag fyrsta liðið til að tryggja sig í undanúrslitin í úrslitakeppninni í Iceland Express deildinni þegar liðið lagði Keflvíkinga 103-89 í Keflavík. Snæfell vann báða leiki liðanna og mætir sigurvegaranum úr einvígi KR og ÍR. Í því einvígi unnu KR-ingar öruggan 87-78 sigur á ÍR á útivelli í dag og knúðu þar fram oddaleik. 17.3.2007 17:43
Auðvelt hjá Chelsea Chelsea vann í dag auðveldan 3-0 sigur á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni og minnkaði forskot Man Utd á toppnum niður í sex stig á ný. Paul Robinson, markvörður Tottenham, var maður dagsins eftir að hann skoraði eitt marka sinna manna í 3-1 sigri á Watford. Manchester City vann fyrsta leik sinn í deildinni síðan á nýársdag þegar liðið skellti Middlesbrough á útivelli 2-0. Ekkert mark var skorað í leikjum Reading - Portsmouth og Wigan - Fulham. 17.3.2007 16:54
Paul Robinson markvörður skoraði fyrir Tottenham Enski landsliðsmaðurinn Paul Robinson hjá Tottenham afrekaði það í dag að skora mark fyrir lið sitt í leiknum gegn Watford. Robinson kom Tottenham í 2-0 í leiknum þegar hann tók aukaspyrnu úti á velli sem skoppaði yfir félaga hans í landsliðinu Ben Foster hjá Watford og í netið. Það er því ljóst að aumingja Foster þarf að hlusta á nokkra fimmaurabrandara frá félögum sínum í landsliðshópnum í næstu viku. 17.3.2007 16:32
Bakverðir Englands á meiðslalistanum Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga hefur eflaust grett sig í dag þegar hann fékk þær fréttir að tveir af hægribakvörðum enska landsliðsins meiddust í dag. Gary Neville fór af velli strax í byrjun leiks hjá Manchester United og er meiddur á ökkla. Micah Richards hjá Manchester City fór svo sömu leið í fyrri hálfleik gegn Middlesbrough og því útlit fyrir að hvorugur verði með landsliðinu í næstu viku. 17.3.2007 16:11
Grótta burstaði ÍBV Grótta vann í dag auðveldan sigur á ÍBV í DHL-deild kvenna í handbolta 24-16 eftir að staðan í hálfleik hafði verið jöfn 11-11. Grótta komst upp að hlið Vals í öðru sæti deildarinnar með sigrinum í dag. 17.3.2007 16:09
Ronaldo fór á kostum í stórsigri United Manchester United stefnir nú hraðbyri á að tryggja sér sigur í ensku úrvalsdeildinni, en í dag vann liðið sannfærandi 4-1 sigur á Bolton á Old Trafford. Ji-Sung Park og Wayne Rooney skoruðu tvö mörk hvor og Christiano Ronaldo lagði upp þrjú þeirra, en Gary Speed minnkaði muninn fyrir Bolton. 17.3.2007 14:40
Mikið fjör á Sýn í dag og í kvöld Það verður nóg um að vera á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag þar sem boðið verður upp á handbolta, körfubolta, knattspyrnu og golf. Nú klukka 14:25 hefst stórleikur Hamburg og Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og klukkan 16 hefst annar leikur Keflavíkur og Snæfells í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. 17.3.2007 14:22
Birgir lék á pari Birgir Leifur Hafþórsson lék þriðja hringinn á TCL-mótinu í Kína á pari í nótt og er því enn á sex höggum undir pari á mótinu. Birgir er í 47.-55. sæti á mótinu, en tælenski kylfingurinn Chapchai Nirat er í forystu á mótinu á 21 höggi undir pari. 17.3.2007 14:19
Raikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í Melbourne í Ástralíu á morgun þegar fyrsta keppni ársins fer fram í Formúlu 1. Þetta var í 12. skipti á ferlinum sem Raikkönen nær ráspól og gefur góð fyrirheit um framhaldið hjá honum í sinni fyrstu keppni fyrir Ferrari. Heimsmeistarinn Fernando Alonso, sem einnig ekur fyrir nýtt lið, náði öðrum besta tímanum á McLaren bíl sínum og Nick Heidfeld og Lewis Hamilton urðu í þriðja og fjórða sæti. 17.3.2007 14:07
Kobe Bryant skoraði 65 stig Kobe Bryant var ekki á þeim buxunum að tapa áttunda leiknum í röð með liði sínu LA Lakers þegar það mætti Portlant í NBA deildinni í nótt. Lakers hafði betur 116-111 eftir framlengdan leik, þar sem Kobe Bryant skoraði 65 stig fyrir Lakers. 17.3.2007 13:47
Skólarúta verður að hjólabíl Já það er margt sem hjólamönnum taka sér fyrir hendur á köldum vetrarmánuðum, lítið er hægt að hjóla og því stundum betra að taka sér eitthvað sniðugt og uppbyggilegt fyrir hendur eins og hann Jóikef er að gera. 17.3.2007 12:10
Úrslit úr Karlatölti Mána Mikil stemming var á karlatölti Mána í gærkveldi sem haldið var í reiðhöllinni á Mánagrund. Fjöldi glæstra tilþrifa sáust og er greinilegt að Mánamenn eru vel ríðandi sem fyrr. Á engan er hallað þó að sagt sé að hetja kvöldsins sé Jóhann Gunnar Jónsson en hann reykspólaði yfir b-úrslitin og valtaði síðan yfir A-úrslitin og vann þau við mikin fögnuð áhorfenda. 17.3.2007 11:54
KR-ingar grimmir í Seljaskóla KR-ingar mæta mjög grimmir til leiks í öðrum leiknum gegn ÍR í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar, en vesturbæingar hafa yfir 44-28 í hálfleik og skoraði ÍR aðeins 6 körfur utan af velli allan hálfleikinn. Þá hefur Snæfell yfir 50-46 gegn Keflavík í leik liðanna í Keflavík sem sýndur er beint á Sýn. 17.3.2007 16:46
Chelsea yfir 2-0 Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Andriy Shevchenko og Salomon Kalou skoruðu mörk liðsins. Tottenham hefur yfir 1-0 gegn Watford með marki Jermaine Jenas, en markalaust er í hinum leikjunum þremur sem standa yfir. Fylgist með stöðu mála á Boltavaktinni hér á Vísi. 17.3.2007 15:54
Ívar byrjar fyrir Reading Nú eru að hefjast fimm leikir í ensku úrvalsdeildinni. Ívar Ingimarsson er á sínum stað í byrjunarliði Reading sem tekur á móti Portsmouth, en þar er Brynjar Björn Gunnarsson á bekknum. Heiðar Helguson er á bekknum hjá Fulham sem sækir Wigan heim og þá hafa Chelsea og Tottenham ákveðið að hvíla lykilmenn sína í dag fyrir slaginn í bikarnum á mánudaginn. 17.3.2007 14:55
Grindvíkingar höfðu sigur í Fjósinu Grindvíkingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Skallagrím í Borgarnesi í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í kvöld. Staðan var jöfn 94-94 eftir venjulegan leiktíma, en gestirnir höfðu betur í framlengingu og höfðu 112-105 sigur í æsilegum leik. Liðin mætast á ný í Grindavík um helgina og þar geta heimamenn tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins. 16.3.2007 21:05
Stjarnan í vænlegri stöðu Stjörnustúlkur færðust skrefi nær fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í átta ár í kvöld þegar liðið vann öruggan sigur á Val 33-20 á útivelli í DHL-deild kvenna. Stjarnan hefur nú fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar og á leik til góða. Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar á Val í vetur. 16.3.2007 20:59
Kiel vann stórsigur á Gummersbach Kiel styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld með öruggum útisigri á Íslendingaliði Gummersbach 42-37. Heimamenn voru einfaldlega skrefinu á eftir ógnarsterku liði Kiel allan leikinn, fyrir framan metfjölda áhorfenda í Kölnarena - 19.403 áhorfendur sáu leikinn. 16.3.2007 19:55
Milwaukee - San Antonio á Sýn í kvöld Leikur Milwaukee Bucks og San Antonio Spurs í NBA deildinni frá í gærkvöld verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:40. San Antonio var búið að vinna 13 leiki í röð fyrir viðureignina í gærkvöldi. 16.3.2007 19:22
Valur að fá danskan framherja Danski knattspyrnukappinn, Dennis Bo Mortensen á leið til Vals. Mortensen er 26 ára framherji og er samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland. Bo Mortensen hefur spilað með dönsku ungmennalandsliðunum, m.a. á móti Íslendingum. Arnar Björnsson greindi frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.3.2007 19:17
Mourinho vill halda í Lampard og Terry Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea vill ólmur halda þeim John Terry og Frank Lampard í röðum félagsins þangað til samningur hans rennur út árið 2010, en bresku blöðin hafa mikið ritað um að þeir væru á leið frá Chelsea í sumar. 16.3.2007 18:56
Ferguson og Giggs bestir í febrúar Sir Alex Ferguson og Ryan Giggs hjá Manchester United voru í dag útnefndir knattspyrnustjóri og leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem þeir félagar taka við verðlaununum saman, en þeir urðu einnig fyrir valinu í ágústmánuði. 16.3.2007 18:11
Risaslagur í þýska handboltanum í kvöld Stórleikur Gummersbach og Kiel í þýska handboltanum verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 18:25 í kvöld. Hér er á ferðinni sannkallaður toppleikur þar sem lærisveinar Alfreðs Gíslasonar sem sitja í fjórða sæti deildarinnar taka á móti efsta liðinu Kiel. 16.3.2007 16:55
Aragones velur hópinn sem mætir Íslendingum Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, hefur ákveðið að halda tryggð við megnið af leikmönnunum sem lögðu Englendinga 1-0 í æfingaleik í síðasta mánuði. Hann hefur nú tilkynnt hóp sinn fyrir leikina gegn Íslendingum og Dönum í undankeppni EM. 16.3.2007 16:33
Ekkert óvænt hjá McClaren Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga gaf í dag út hvaða leikmenn yrðu í landsliðshópi hans fyrir leikina gegn Ísrael og Andorra í undankeppni EM. Joey Barton, Gareth Barry og Shaun Wright-Phillips detta út úr hópnum sem tapaði síðast fyrir Spánverjum í æfingaleik. 16.3.2007 16:21
Tímabilið búið hjá Walcott Framherjinn ungi Theo Walcott hjá Arsenal verður líklega ekkert meira með liðinu í vor. Hann þarf að fara í uppskurð á öxl, en hafði verið beðinn um að fresta honum vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Walcott, sem er 18 ára í dag, segir meiðslin hafa versnað undanfarnar vikur og ekki sé hægt að fresta aðgerðinni lengur. 16.3.2007 14:30