Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Muratov óttast að verið sé að undirbúa Rússa undir kjarnorkustyrjöld „Tvær kynslóðir hafa lifað án ógnarinnar af kjarnorkustyrjöld. En það tímabil er liðið. Mun Pútín ýta á kjarnorkuhnappinn eða ekki? Hver veit? Enginn veit það. Það er enginn sem getur svara því.“ 30.3.2023 06:58
Fyrstu hvolparnir í 70 ár Fjórir blettatígurshvolpar fæddust í Indlandi á dögunum. Um er að ræða fyrstu blettatígurshvolpa sem fæðast í landinu í 70 ár. Tegundin var skráð útdauð í landinu á sjötta áratug síðustu aldar. 29.3.2023 23:52
Hleyptu flóttamönnum ekki út þegar eldurinn kviknaði Öryggisverðir í flóttamannabúðum í Ciudad Jarez hleyptu flóttamönnum ekki út þegar eldur kviknaði í búðunum í gær. Minnst 38 létust og 28 eru særðir en flóttamennirnir sjálfir eru sagðir hafa kveikt eldinn. 29.3.2023 15:05
Ákærður fyrir að hafa myrt þrjá og reynt að drepa ellefu í Fields Lögregla í Danmörku hefur ákært 23 ára karlmann fyrir skotárásina í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn í júlí á síðasta ári. Maðurinn er ákærður fyrir þrjú manndráp, ellefu tilraunir til manndráps, auk þess að hafa skotið í átt að 21 til viðbótar. 29.3.2023 13:27
Kallar eftir samstöðu með Pútín Rússar þurfa að fylkja liði um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, því stríðsrekstri ríkisins mun ekki ljúka í bráð. Þetta segir talsmaður Pútíns sem segir einnig að Rússar eigi í stríði við Vesturlönd. 29.3.2023 13:17
Nettröll níddust á föður sex ára drengs sem lést Blaðamaður sem missti sex ára son sinn í janúar hefur orðið vinsælt skotmark fólks á netinu sem segist sannfært um að bóluefni gegn Covid hafi dregið barnið til dauða. Þetta fólk hefur níðst á manninum og sakað hann um að bera ábyrgð á dauða barnsins, jafnvel þó það hafi alls ekki dáið vegna bóluefna. 29.3.2023 11:45
Kínverjar reiðir yfir væntanlegum fundi Tsai og McCarthy Tsai Ing-wen, forseti Taívans, segir að utanaðkomandi þrýstingur muni ekki koma í veg fyrir samskipti Taívans við heiminn. Hún mun ferðast um Bandaríkin á næstu dögum og stendur til að hún fundi þar með Kevin McCarthy, forseta Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 29.3.2023 10:11
Til Þýskalands í sinni fyrstu opinberu heimsókn erlendis sem konungur Karl III Bretakonungur mun funda með helstu leiðtogum Þýskalands og ávarpa þýska þingið í sinni fyrstu opinberu heimsókn sem konungur til erlends ríkis sem hefst í dag. 29.3.2023 08:29
Selenskí sagður uggandi vegna forsetakosninganna vestanhafs Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur áhyggjur af því að mögulegar breytingar á hinu pólitíska landslagi Vestanhafs muni hafa áhrif á gang stríðsins í Úkraínu. „Bandaríki skilja að ef þeir hætta að aðstoða okkur þá vinnum við ekki,“ sagði forsetinn í viðtali við AP. 29.3.2023 08:07
Ísland í öðru sæti yfir öruggustu áfangastaðina fyrir ferðamenn Ísland er eitt af tíu öruggustu áfangastöðunum fyrir ferðamenn. Þetta kemur fram í nýlegri samantekt á breska ferðavefnum Which en stuðst var við gögn frá ráðgjafafyrirtækinu STC. Tekið var mið af náttúrhamförum, fjölda banaslysa í umferðinni, morðtíðni, fjölda hryðjuverka, öryggi kvenkyns ferðamanna og uppbyggingu heilbrigðiskerfis í hverju landi fyrir sig. 29.3.2023 08:01
Adidas setur sig upp á móti merki Black Lives Matter Íþróttavörurisinn Adidas hefur farið þess á leit við yfirvöld í Bandaríkjunum að hafna umsókn Black Lives Matter Global Network Foundation um einkaleyfi á merki stofnunarinnar, sem inniheldur þrjár gular línur. 29.3.2023 07:15
„Óþægilegt þegar eitthvað svona gerist nálægt manni“ Íslenskur námsmaður sem býr í næsta nágrenni við skotárásina sem varð þremur níu ára börnum að bana í Nashville í gær segir atburðinn skelfilegan. Hún segist nær alltaf vör um sig í skólanum vegna þess hversu skotárásir séu algengar í Bandaríkjunum. Við vörum við myndefni sem fylgir þessari frétt. 28.3.2023 20:30
Birtu myndband af lögregluþjónum fella árásarmanninn Lögreglan í Nashville hefur birt myndband úr vestismyndavél lögregluþjónsins sem felldi Audrey E. Hale. Sá síðarnefndi skaut sex manns, þar af þrjú börn, til bana í Covenant School í Green Hills í Nashville í gær. 28.3.2023 15:15
Kveiktu í dýnum í mótmælum en fjölmargir dóu í eldsvoðanum Flóttamenn sem óttuðust að verða fluttir úr landi kveiktu eld sem leiddi til minnst 39 dauðsfalla í Mexíkó í morgun. Forseti Mexíkó segir mennina hafa kveikt í dýnum við mótmæli í flóttamannabúðum í Ciudad Juarez, nærri landamærum Bandaríkjanna, og að þeir hafi misst tök á eldinum. 28.3.2023 14:42
Myndband af úkraínskum „nasistum“ tekið upp á yfirráðasvæði Rússa Utanríkisráðuneyti Rússlands birti í gær myndband sem sagt var sýna úkraínska hermenn áreita konu og barn og skjóta á þau, fyrir að tala rússnesku. Myndbandið átti að vera til marks um að úkraínskir hermenn væru nasistar en ráðuneytið fjarlægði það eftir að í ljós kom að það var tekið upp á yfirráðasvæði Rússa í austurhluta Úkraínu. 28.3.2023 13:43
Hættan á hryðjuverkum sögð veruleg og viðbúnaður aukinn Bresk yfirvöld hafa ákveðið að hækka áhættumat fyrir Norður-Írland upp á næst hæsta viðbúnaðarstig, sem þýðir að hryðjuverk þykja afar líkleg. Ákvörðnin var tekin í kjölfar skotárásar á háttsettan yfirmann í lögreglunni í febrúar. 28.3.2023 12:42
Lést í bílslysi sex dögum eftir að hafa stært sig af tjónleysi Hin átján ára gamla Kara Santorelli lést fyrr í mánuðinum eftir að ekið var á bíl hennar í Flórída-fylki í Bandaríkjunum. Sex dögum fyrir slysið birti hún færslu á TikTok þar sem hún montaði sig af því að hafa aldrei keyrt á manneskju eða bíl. 28.3.2023 11:31
Harry og Elton viðstaddir fyrirtöku hópmálssóknar gegn Daily Mail Harry Bretaprins og Elton John voru meðal viðstaddra þegar dómstóll í Lundúnum tók fyrir hópmálsókn gegn Associated Newspapers, sem á meðal annars og gefur út Daily Mail. 28.3.2023 10:58
Webb mældi hitastig á innstu reikistjörnu Trappist Hitastigið á dagshlið fjarreikistjörnunnar Trappist-1 b nær um 230 gráðum og gefur það til kynna að ekkert andrúmsloft sé þar að finna. Þetta segja meðlimir alþjóðlegs teymis vísindamanna sem beindu öflugum linsum James Webb geimsjónaukans (JWST) að fjarreikistjörnunni. 28.3.2023 10:24
Trump með 25 prósent forskot á DeSantis á landsvísu Donald Trump mælist nú með 50 prósenta fylgi á landsvísu en Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, með 24 prósent. DeSantis farnast hins vegar betur í Iowa og New Hampshire, þar sem fyrst verður gengið til atkvæða í forkosningum forsetakosninganna. 28.3.2023 08:16
Árásin þaulskipulögð og skotmörkin mögulega fleiri Hinn 28 ára Audrey E. Hale, sem réðist inn í Covenant School í Green Hills í Nashville í gær og skaut sex til bana skipulagði árásina í þaula og hugðist láta til skarar skríða á fleiri stöðum, að sögn lögreglu. 28.3.2023 07:05
Netanyahu frestar málinu og segist ætla í viðræður við andstöðuna Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur ákveðið að fresta umræðum um afar umdeildar breytingar á lögum um dómstóla fram að næsta þingi. Segist hann í millitíðinni munu freista þess að ná samkomulagi um málið við pólitíska andstæðinga. 28.3.2023 06:29
Keyrði yfir dekk og skaust upp í loft Ótrúlegt er að ekki fór verr þegar bíll flaug upp í loft á hraðbraut í Los Angeles á dögunum. Bíllinn skaust upp í loft eftir að hafa orðið fyrir dekki sem datt af öðrum bíl á hraðbrautinni. Þrátt fyrir að slysið hafi verið harkalegt þá slasaðist enginn alvarlega samkvæmt lögreglunni í Los Angeles. 27.3.2023 23:40
Kona skaut sex til bana í skóla í Nashville Þrjú börn og þrír fullorðnir voru skotin til bana af konu sem hóf skothríð í kristnum einkaskóla í Nashville í Bandaríkjunum í dag. Konan var síðan skotin til bana af lögregluþjónum sem mættu á vettvang. 27.3.2023 16:25
Á leið aftur til Úkraínu eftir þjálfun í Bretlandi Bretar eru búnir að þjálfa úkraínska hermenn í notkun Challenger 2 skriðdreka, sem framleiddir eru í Bretlandi. Hermennirnir og skriðdrekarnir eru nú á leið til Úkraínu. Þjóðverjar hafa einnig að afhent Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka. 27.3.2023 15:36
Bola Corbyn út úr Verkamannaflokknum Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, ætlar að leggja fram tillögu á aðalfundi flokksins á morgun sem ætlað er að koma í veg fyrir að Jeremy Corbyn, fyrrverandi leiðtogi flokksins, megi bjóða sig fram til þings í næstu kosningum. Corbyn segist ekki ætla að hverfa af sjónarsviðinu. 27.3.2023 14:28
Humza Yousaf tekur við af Sturgeon Humza Yousaf mun taka við sem fyrsti ráðherra Skotlands af Nicola Sturgeon sem sagði af sér fyrir rúmum mánuði síðan. Atkvæðagreiðsla um skipun hans fer fram á þinginu á morgun. 27.3.2023 13:42
Spá því að mannfjöldinn toppi lægra og fyrr en áður var talið Niðurstöður nýrrar rannsóknar virðast benda til þess að „mannfjöldasprengjan“ muni ekki springa, heldur muni mannfjöldinn toppa lægra og fyrr en áður var talið. 27.3.2023 10:40
Myndefni sýnir gífurlega eyðileggingu í Mississippi Hvirfilbylir ollu gídurlegum skemmdum víða í Mississippi og Alabama í Bandaríkjunum en minnst 25 eru látnir og fjölmargir eru særðir. Eyðileggingin er hvað mest í bænum Rolling Fork í Mississippi þar sem myndefni sýnir hvernig stærðarinnar hvirfilbylur fór þvert í gegnum bæinn. 27.3.2023 10:40
Samgöngustarfsmenn í allsherjarverkfall vegna verðbólgunnar Þjóðverjar búa sig undir verulegar raskanir á samgöngum í dag þegar starfsmenn almenningssamgangna leggja niður störf í 24 klukkustundir til að krefjast hærri launa vegna hækkandi verðbólgu. 27.3.2023 08:40
„Augu heimsbyggðarinnar eru á ykkur“: Forsetinn biðlar til ráðamanna að sýna á ábyrgð Isaac Herzog, forseti Ísrael, hefur kallað eftir því að hætt verði við afar umdeildar breytingar á lögum um dómstóla. Tugþúsundir Ísraelsmanna flykktust út á götur í gær eftir að forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu lét varnarmálaráðherrann fjúka vegna málsins. 27.3.2023 07:19
Netanjahú „ekki í tengslum við raunveruleikann“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, rak varnarmálaráðherrann Yoav Galant í dag eftir að hinn síðarnefndi kallaði eftir því að hætt verði við umdeildar breytingar á dómskerfi landsins. Staða hans er talin í hættu eftir vendingarnar. 26.3.2023 22:36
NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands. 26.3.2023 16:10
Æ fleiri karlar pissa sitjandi Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið. 26.3.2023 14:30
Leiðtogi repúblikana laus úr endurhæfingu eftir fall Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, er kominn heim til sín af endurhæfingarstöð eftir að hann fékk heilahristing þegar hann féll fyrr í þessum mánuði. Hann segist ætla mæta aftur í þingið bráðlega. 26.3.2023 11:28
Trump hóf kosningabaráttuna með kór uppreisnarmanna Fyrsti fjöldafundur kosningabaráttu Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hófst með söng kórs stuðningsmanna hans sem voru fangelsaðir fyrir að ráðast á þinghúsið fyrir tveimur árum. Trump eyddi stórum hluta fundarins í að níða saksóknara sem rannsaka hann. 26.3.2023 10:14
Óttast að umdeildar breytingar ógni öryggi Ísraels Varnarmálaráðherra Ísraels hvatti ríkisstjórnina til þess að hætta við umdeildar breytingar á dómstólum landsins í gær. Hann óttast að hatrammar deilur um breytingarnar ógni þjóðaröryggi landsins. 26.3.2023 09:13
ESB lætur undan Þjóðverjum með bann við bensín- og dísilbílum Evrópusambandið og Þýskaland hafa náð samkomulagi um framtíð jarðefnaeldsneytisbíla í Evrópu. Þjóðverjar fá í gegn að undantekningar verði á banni við sölu á nýjum bensín- og dísilknúnum bílum eftir árið 2035. Umhverfissamtök fordæma málamiðlunina. 26.3.2023 07:39
Rússar ráðast í landflutninga með kjarnorkuvopn Rússar ætla að flytja kjarnorkuvopn yfir til Hvíta-Rússlands. Að minnsta kosti tíu flugvélar verða staðsettar í landinu sem borið geta kjarnaodda. 25.3.2023 20:26
Gríðarleg eyðilegging í Mississippi Að minnsta kosti 24 eru látnir eftir kraftmikinn hvirfilbyl sem herjaði á Missisippi í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þúsundir eru án rafmagns og stendur leit að fólki í húsarústum yfir. Óveðrið er hið mannskæðasta í tólf ár. 25.3.2023 20:04
Stefnir stuðningsmönnum til Waco í skugga yfirvofandi ákæru Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda sinn fyrsta fjöldafund í kosningabaráttu sinni í borginni Waco í Texas í dag. Hann hefur undanfarna daga hvatt stuðningsmenn sína til mótmæla og hótað ofbeldi vegna mögulegra ákæra sem hann á yfir höfði sér. 25.3.2023 11:35
Íslendingur í átta ára fangelsi fyrir nauðgun og gróft ofbeldi í Svíþjóð Íslenskur ríkisborgari á fertugsaldri sem hefur þó verið búsettur í Svíþjóð allt sitt líf var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga ungri konu og beita hana grófu ofbeldi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn hefur ítrekað verið dæmdur fyrir kynferðisofbeldi í Svíþjóð. 25.3.2023 10:36
Hneykslaðir foreldrar hröktu skólastjóra burt vegna Davíðsstyttunnar Skólastjóri grunnskóla í Flórída í Bandaríkjunum sá sér þann kost vænstan að segja af sér vegna kvartana foreldra undan því að börnum þeirra hafi verið sýnt klám þegar þau sáu myndir af Davíðsstyttunni við kennslu í listasögu. 25.3.2023 08:55
Þrjár ungar stúlkur ákærðar fyrir líkamsárás og frelsissviptingu Þrjár stúlkur, tólf, þrettán og fjórtán ára, hafa verið ákærðar fyrir að hafa tælt þrettán ára stelpu á ótilgreint heimili í Ástralíu, svipt hana frelsi sínu og beitt hana ofbeldi. Athæfið mun hafa verið tekið upp á myndband. 24.3.2023 23:10
Varar við „dauða og eyðileggingu“ verði hann ákærður Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, varaði í nótt því að „dauði og eyðilegging“ gæti fylgt því ef hann yrði handtekinn. Í sömu færslu kallaði Trump saksóknarann sem talinn er líklegur til að ákæra hann „úrkynjaðan geðsjúkling“ sem hataði Bandaríkin. 24.3.2023 16:29
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent