Fleiri fréttir

Talningaklúður í Danmörku: Mörg hundruð atkvæða færast frá rauðu blokkinni til bláu
Röng niðurstaða var kynnt í kjördæminu Frederikshavn í Danmörku eftir að ljóst varð að talningamenn í Sæby höfðu ruglast á bunkum og talið atkvæði Danmerkurdemókrata sem atkvæði Einingarlistans.

Fimm ljón sluppu úr dýragarði í Sydney
Fimm ljónum tókst að sleppa úr búri sínu í ástralska dýragarðinum Taronga í Sydney í gærkvöldi.

Mette gengur á fund drottningar klukkan tíu
Mette Frederiksen, formaður danskra Jafnaðarmanna og forsætisráðherra, mun ganga á fund Margrétar Þórhildar Danadrottningar klukkan tíu að íslenskum tíma. Þar munu þær ræða niðurstöður þingkosninganna sem fram fóru í Danmörku í gær.

Norður-Kóreumenn skjóta eldflaugum sunnar en nokkru sinni áður
Hermálayfirvöld í Norður-Kóreu skutu að minnsta kosti tíu flugskeytum frá austur- og vesturströndum landsins en ein þeirra fór lengra suður en nokkru sinni áður. Suður-Kóreumenn brugðust við með eigin eldflaugaskotum skömmu síðar.

Mette með pálmann í höndunum eftir sviptingar á ögurstundu
Mette Frederiksen og Jafnaðarmannaflokkur hennar styrktu stöðu sína í þingkosningunum í Danmörku í kvöld. Afar mjótt var á munum og leit í fyrstu út fyrir að Moderaterne yrðu í lykilstöðu við myndun ríkisstjórnar. Nú er ljóst að Frederiksen getur myndað meirihlutastjórn með vinstri flokkum.

Netanjahú gæti sest í stólinn á ný
Benjamín Netanjahú, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, gæti verið á leið í stól forsætisráðherra á ný. Gangi útgönguspár eftir er mögulegt að honum takist að mynda ríkisstjórn með hægriflokkum með naumum meirihluta.

Lars Løkke í lykilstöðu
Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, er í lykilstöðu við myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku. Jafnaðarmannaflokkurinn er enn langstærstur en hvorki vinstri- né hægriblokk munu takast að mynda ríkisstjórn án Moderaterne.

Hefur enn ekki viðurkennt ósigur beint út
Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu, tjáði sig í dag í fyrsta skipti síðan hann tapaði fyrir Luiz Inacio „Lula“ da Silva í forsetakosningum þar í landi 30. október síðastliðinn. Bolsonaro virtist ekki mótmæla niðurstöðunni en hann hefur ekki enn beint viðurkennt ósigur.

Biden tekur olíufélögin á beinið fyrir svívirðilegan gróða
Bandaríkjaforseti segir olíufélögin græða svívirðilega á kostnað tugmilljóna manna sem þjáist vegna stríðsins í Úkraínu. Þau hafi brugðist samfélaginu á sama tíma og þau maki krókinn. Auki þau ekki framleiðsluna og lækki verð til neytenda geti þau búist við að skattahækkunum og öðrum aðgerðum.

Mette nær ekki að mynda meirihluta án Moderaterne
Mette Fredriksen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, heldur ekki meirihluta samkvæmt fyrstu útgönguspám. Erfitt verður að mynda ríkisstjórn án Moderaterne, samkvæmt nýjustu tölum.

75 ára kona barin, skorin og nauðgað
Leppstjórar Rússlands í suðurhluta Úkraínu hafa tilkynnt að fleiri íbúar verði fluttir frá Kherson-héraði en þegar hefur verið gert. Yfirvöld í Kænugarði segir að verið sé þvinga íbúa á brott en Rússar vinna hörðum höndum að því að byggja upp varnir á vestur-bakka Dniproár í kringum Kherson-borg, höfuðborg héraðsins.

Drottning veitir Mette sennilega umboð til myndunar nýrrar stjórnar
Formaður Norræna félagsins telur líklegt að Margrét önnur Danadrottning muni veita Mette Frederiksen forsætisráðherra fyrstri umboð til myndun nýrrar stjórnarað loknum þingkosningum í Danmörku í dag. Enda hafi leiðtogi nýs miðjuflokks opnað á samstarf við vinstriflokkana.

Skutu leynilegum gervihnöttum út í geim með öflugustu eldflauginni
Starfsmenn SpaceX ætla í dag að skjóta svokallaðri Falcon Heavy-eldflaug á loft frá Flórída. Það er öflugasta eldflaugin sem notast er við þessa dagana og verður hún notuð til að skjóta tveimur gervihnöttum út í geim fyrir Bandaríkjaher, auk annarra gervihnatta.

Tveir látnir eftir þyrluslys í Noregi
Tveir eru látnir og einn alvarlega slasaður eftir að þyrla hrapaði í Verdal í Þrándalögum í Noregi í morgun.

Takeoff skotinn til bana
Bandaríski rapparinn Takeoff var skotinn til bana í Houston í Texas í dag. Fjöldi fólks hefur vottað rapparanum virðingu sína á samfélagsmiðlum í dag.

Ganga til kosninga í fimmta sinn á tæpum fjórum árum
Ísraelar ganga nú til kosninga í fimmta sinn á minna en fjórum árum. Kjörsókn hefur ekki mælst meiri í áratugi en kannanir gefa þó til kynna að ekki muni takast að leysa það pólitíska þrátefli sem einkennt hefur stjórnmálin í Ísrael undanfarin ár.

Pútín segir að frestun samnings um kornútflutning sé tímabundin
Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að Rússar hafi ákveðið að frysta samning sem gerður var um að flutningaskip fái að flytja korn frá Úkraínu um svartahaf.

Kosið í Danmörku: Løkke líklegur til að verða í lykilstöðu
Danir ganga að kjörborðinu í dag til að kjósa sér nýtt þing. Spennan er mikil og benda kannanir til að forsætisráðherrann fyrrverandi, Lars Løkke Rasmussen, muni verða í lykilstöðu þegar búið er að telja upp úr kjörkössunum.

Hyggjast halda opin réttarhöld yfir þúsundum mótmælenda
Dómstólar í Íran hyggjast halda opin réttarhöld yfir allt að þúsund einstaklingum sem voru handteknir í mótmælum í Tehran og fleiri en þúsund mótmælendum sem voru handteknir annars staðar í landinu.

Heyrist ekki bofs í Bolsonaro
Enn hefur ekkert heyrst í fráfarandi forseta Brasilíu, Jair Bolsonaro, sem tapaði forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudaginn var.

Faldi metamfetamín í kleinuhring
Landamæralögreglan í Bæjaralandi fann metamfetamín í kleinuhring manns sem hún stöðvaði við landamæraeftirlit. Eiturlyfin voru falin í miðju kleinuhringsins, þar sem sultan er alla jafna.

Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu í símtali við Selenskíj
Joe Biden Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu þegar hann ræddi við Vólódímír Selenskíj forseta Úkraínu fyrr á árinu. Selenskíj á að hafa beðið Biden um frekari fjárstuðning og er Biden sagður hafa orðið pirraður.

Þriðji fíkniefnasmyglarinn látinn á árinu á Grænlandi
Karlmaður á sextugsaldri er látinn eftir að hafa reynt að smygla fíkniefnum innvortis til Grænlands. Hann er sá þriðji síðan í júní sem hefur látist af þeim völdum.

Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu
Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja.

Neyðarskömmtun víða í gildi eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa
Loftvarnaflautur fóru í gang og sprengingar heyrðust víða um Úkraínu í morgun. Íbúar voru hvattir til að leita skjóls, meðal annars í Kænugarði og á að minnsta kosti tíu öðrum svæðum.

Musk sagður íhuga að rukka notendur 20 dollara á mánuði fyrir vottun
Elon Musk er nú sagður íhuga að rukka Twitter-notendur um 20 Bandaríkjadali á mánuði fyrir vottun þess efnis að þeir séu raunverulega þeir sem þeir segjast vera. Auðkennda notendur má þekkja á bláu merki við nafn þeirra á Twitter.

Disney-þemagarðinum í Sjanghæ lokað vegna Covid og gestir fastir inni
Disney-þemagarðinum í Sjanghæ var lokað í morgun vegna Covid-19. Gestum garðsins var tilkynnt að þeir fengju ekki að fara fyrr en þeir hefðu fengið neikvæðar niðurstöður úr skimun.

Færeyingar kjósa nýja þingmenn sína á danska þinginu
Þingkosningar fara fram í Danmörku á morgun. Færeyingar munu þó kjósa um sína tvo fulltrúa á danska þinginu þegar í dag. Stjórnvöld í Færeyjum óskuðu eftir að kjósa sína fulltrúa á danska þinginu á öðrum degi en 1. nóvember þar sem um sé að ræða dag þar sem Færeyingar minnast látinna sjómanna.

Hinir ranglega sakfelldu fá milljarða í skaðabætur frá New York
Borgaryfirvöld í New York hafa samþykkt að greiða Muhammad Aziz og erfingjum Khalil Islam 26 milljónir Bandaríkjadala í skaðabætur en mennirnir sátu í fangelsi í áratugi eftir að hafa verið ranglega sakfelldir fyrir morðið á Malcolm X árið 1965.

Mannskætt slys þegar göngubrú hrundi á Indlandi
Nú er ljóst að 141 hið minnsta lét lífið þegar göngubrú yfir Machchu ánna í Gujarat héraði á Indlandi gaf sig með þeim afleiðingum að hundruð féllu í ánna.

Úkraínumenn vakna við loftvarnaflautur og sprengingar
Loftvarnaflautur ómuðu víða í Úkraínu í morgun og sprengingar hafa heyrst í Kænugarði. Fregnir herma að um hafi verið að ræða sjö til átta sprengingar en að sögn Anton Gerashchenko, ráðgjafa Úkraínuforseta, skutu Rússar um það bil 40 eldflaugum á hin ýmsu skotmörk í morgun.

Lula kjörinn forseti Brasilíu
Vinstrimaðurinn Luiz Inacio „Lula“ da Silva, fyrrverandi forseti Brasilíu, hefur borið sigur úr býtum í brasilísku forsetakosningunum og mun hann því tala við embætti forseti Brasilíu á ný frá og með fyrsta janúar 2023. Hann sigraði mótherja sinn, hægrimanninn og núverandi forsetann Jair Bolsonaro, með 50,83 prósent atkvæða.

Elsti fanginn í Guantanamo látinn laus
Elsti fangi sem setið hefur inni í hinu alræmda Guantanamo Bay-fangelsi, sem Bandaríkjastjórn starfrækir á Kúbu, hefur verið látinn laus.

Lögregla sökuð um að bæla niður kjörsókn í Brasilíu
Brasilíska þjóðin gekk til kosninga fyrr í dag til þess að kjósa sér nýjan þjóðarleiðtoga. Borið hefur á því að fólk hafi áhyggjur af því að kúgun á kjósendum hafi átt sér stað, sumum hafi ekki verið leyft að kjósa.

Hafði með sér frekari tól við árásina auk hamarsins
Maðurinn sem réðst inn á heimili Pelosi hjóna í San Fransisco er sagður hafa haft með sér dragbönd (e. zip ties) og límband, auk hamarsins sem hann réðst að hinum 82 ára Paul Pelosi með.

Minnst 60 látin eftir að göngubrú hrundi
Minnst 60 eru látin eftir að göngubrú hrundi í Gujarat-fylki í vesturhluta Indlands. Talið er að allt að 400 manns hafi verið á brúnni þegar hún hrundi.

Rússar sagðir hafa hakkað síma Truss
Ríkisstjórn Bretlands stendur frammi fyrir háværum köllum eftir því að fregnir varðandi mögulega tölvuáárás á síma Liz Truss, þegar hún var utanríkisráðherra, verði rannsakaðar. Fjölmiðlar í Bretlandi hafa sagt frá því að rússneskir útsendarar hafi brotið sér leið inn í síma Truss í sumar.

Neanderdalsfjölskylda finnst í fyrsta sinn
Vísindamenn hafa í fyrsta sinn fundið fjölskyldu Neanderdalsmanna á einum og sama staðnum. Uppgötvunin veitir meiri upplýsingar en nokkru sinni fyrr um samfélag þessa nána ættingja nútímamannsins.

Féllu hvert um annað og gátu ekki staðið upp
Tala látinna í Seoul í Suður-Kóreu er komin í 153 eftir gífurlegan troðning á hrekkjavökuhátíð í gær. Var þetta í fyrsta sem hátíðarhöld sem þessi fóru fram frá því fyrir tíma Covid og höfðu tugir þúsunda komið saman í miðbæ borgarinnar.

Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga
Yfirvöld í Rússlandi lýstu því yfir í gærkvöldi að ríkið myndi ekki langur taka þátt í samkomulagi sem hefur orðið til þess að rúm níu milljón tonn af korni hafa verið flutt frá Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Úkraínumenn saka Rússa um að reyna að beita hungri sem vopni.

Minnst hundrað látnir eftir bílsprengjur í Mogadishu
Minnst hundrað eru látnir og þrjú hundruð særðir í Sómalíu eftir að tvær bílsprengjur voru sprengdar fyrir utan menntamálaráðuneytið í Mogadishu í gær. Forseti Sómalíu kennir hryðjuverkasamtökunum al Shabaab en samtökin hafa einnig lýst yfir ábyrgð á árásinni.

Fjöldi látinna í Seúl heldur áfram að hækka
Að minnsta kosti 149 eru látin og 150 slösuð eftir að mikill troðningur varð á hrekkjavökufagnaði í Itaewon-hverfi Seúl í Suður-Kóreu í dag. Fyrr í dag greindu miðlar frá því að fimmtíu manns hefðu farið í hjartastopp á viðburðinum. Nærri tvö þúsund viðbragðsaðilar eru sagðir á svæðinu.

Minnst 120 látin og hundrað særð eftir troðning á hrekkjavökufögnuði í Seúl
Nú liggur fyrir að 120 eru látnir og 100 særðir eftir mikinn troðning sem myndaðist á götum Seúl í Kóreu í dag. Yfirvöld höfðu gefið út að um fimmtíu hafi farið í hjartastopp.

Skemmdu nýja flaggskip Rússa í drónaárás
Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á rússneska flotann í Svartahafi við Krímskaga. Notast var við dróna við árásina og þá bæði fljúgandi og siglandi dróna en Úkraínumenn eru sagðir hafa skemmt Makarov aðmírál, flaggskip svartahafsflota Rússa.

Rændu eðalvíni að andvirði 220 milljóna króna
Karl og kona sitja í gæsluvarðhaldi á Spáni, grunuð um að hafa rænt 45 vínflöskum á fínum veitingastað. Það þætti vart í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að flöskurnar eru metnar á 220 milljónir íslenskra króna.