Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðildarumsókn Svía og Finna afgreidd á methraða Aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir Svía og Finna fá aðild að bandalaginu með met hraða. Putin Rússlandsforseti sé nú að uppskera stærra NATO með innrás sinni í Úkraínu, þvert á það sem hann stefndi að. Forsætisráðherra fagnar aðild Finna og Svía að NATO. 29.6.2022 13:19
Krefst þyngri refsingar yfir plastbarkalækninum Saksóknarar í Svíþjóð áfrýjuðu dómi yfir Paolo Macchiarini, ítölskum skurðlækni, sem er sakaður um að hafa beitt sjúklinga grófum líkamsmeiðingum með plastbarkaígræðslum sínum, í dag. Þeir sækjast eftir því að læknirinn hljóti þungan fangelsisdóm. 29.6.2022 12:40
Trump vildi leiða vopnaða stuðningsmenn að þinghúsinu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, vildi leiða stuðningsmenn sína að þinghúsinu þrátt fyrir að honum hefði verið sagt að sumir þeirra væru vopnaðir. Starfsmaður í Hvíta húsinu segir að Trump hafi viljað að málmleitarhlið yrðu fjarlægð til að hægja ekki á stuðningsmönnunum. 29.6.2022 09:11
Vaktin: Myndskeið sýnir árásina á verslunarmiðstöðina Sergei Ryabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, segir aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu skapa óstöðugleika og að í augum stjórnvalda í Rússlandi sé um að ræða neikvæða þróun. 29.6.2022 08:56
Boris segir Pútín ekki hefðu ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði ekki ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona. Þetta segir Boris Johnson, forsætisráðherra Breta. Hann segir hina „brjálæðislegu“ og „macho“ innrás fullkomið dæmi um „eitraða karlmennsku“. 29.6.2022 07:55
Fyrirskipa enn og aftur lokun fréttaveitu Nóbelsverðlaunahafa Yfirvöld á Filippseyjum hafa enn á ný fyrirskipað að fréttaveitunni Rappler verði lokað en hún er stofnuð af Maríu Ressa, sem fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir mannréttindabaráttu sína á síðasta ári. 29.6.2022 06:59
Dómstóll í Póllandi bannar „svæði án hinsegin fólks“ Æðsti áfrýjunardómstóll Póllands hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjögur svokölluð „svæði án hinsegin fólks“ (e. LGBT-free zones) séu ólögleg og skuli afnema. Baráttufólk fagnar niðurstöðunni sem sigri mannréttinda og lýðræðis. 28.6.2022 23:55
Hafi gripið í stýrið og öskrað: „Ég er helvítis forsetinn. Farðu með mig í þinghúsið núna“ Cassidy Hutchinson, fyrrverandi starfsmaður Hvíta hússins, gaf skýrslu á opnum fundi þingnefndar sem rannsakar árásina á bandaríska þinghúsið sem gerð var þann 6. janúar síðastliðinn. Meðal þess sem Hutchinson ber vitni um eru samtöl sem áttu sér stað innan Hvíta hússins á meðan hún starfaði þar. 28.6.2022 21:11
Erfitt að útskýra fyrir börnunum hatrið sem drífur menn til að drepa fólk Samkynhneigð kona segir árás á hinsegin-skemmtistað í miðborg Óslóar vera árás á allt hinsegin samfélagið. Erfitt hafi verið að útskýra fyrir börnum hennar að einhver hataði hana svo mikið, fyrir það eitt að vera samkynhneigð, að hann væri tilbúinn til að drepa fólk. 28.6.2022 19:57
Tyrkir samþykkja aðild Svía og Finna að NATO Tyrkir hafa samþykkt aðildarumsókn Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Einn sögulegasti leiðtogafundur í sögu NATO hófst formlega í Madríd í dag þar sem meðal annars verður samþykkt að auka umsvif bandalagsins í austur Evrópu. 28.6.2022 18:53
Ghislaine Maxwell dæmd í tuttugu ára fangelsi Ghislaine Maxwell var rétt í þessu dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að hafa aðstoðað þáverandi kærasta sinn, Jeffrey Epstein, við að finna og tæla unglingsstúlkur. Fórnarlömb Epstein og Maxwell voru meðal þeirra sem báru vitni fyrir dómi í dag. 28.6.2022 18:39
Samkvæmishúsabann Airbnb orðið varanlegt Í rúmlega tvö ár hafa svokölluð „samkvæmishús“ ekki verið leyfð á vefsíðu Airbnb. Þeir sem brjóta regluna verða bannaðir alfarið hjá heimagistingaþjónustunni. 28.6.2022 18:34
Starfsmaður skotinn til bana vegna of mikils majónes á samloku Samkvæmt fregnum vestanhafs var starfsmaður Subway skotinn til bana vegna of mikils majónes á samloku kúnna um helgina. Staðurinn sem um ræðir er staðsettur í Atlanta í Bandaríkjunum. 28.6.2022 17:01
Stefna á aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands Skoska heimastjórnin stefnir á aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands í október á næsta ári. Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar, segist ætla að draga bresku ríkisstjórnina fyrir dómstóla reyni hún að koma í veg fyrir atkvæðagreiðsluna. 28.6.2022 15:32
Tæplega fimmtíu látnir í bruna í kólumbísku fangelsi Að minnsta kosti 49 eru látnir og tugir slasaðir til viðbótar eftir að eldur kom upp í fangelsi í suðvestanverðri Kólumbíu í morgun. Eldurinn er sagður hafa kviknað í óeirðum í fangelsinu. 28.6.2022 14:34
Ræða við vitni sem sá skjöl brennd í Hvíta húsinu Þingnefnd sem rannsakar á árás á bandaríska þinghúsið boðaði óvænt til opins fundar í dag. Starfsmaður Hvíta hússins sem sá skrifstofustjóra þess brenna skjöl á meðan Donald Trump og félagar reyndu að snúa úrslitum forsetakosninganna við er sagður ætla að bera vitna á fundinum. 28.6.2022 14:11
Hundrað og eins árs gamall fyrrum fangavörður dæmdur í fimm ára fangelsi Dómstóll í Brandenburg dæmdi hundrað og eins árs gamlan mann til fimm ára fangelsisrefsingar í dag fyrir hlutverk hans í helförinni. Maðurinn var fangavörður í hinum illræmdu Sachsenhausen útrýmingarbúðum á árunum 1942 til 1945. Hann neitaði sök í málinu og sagðist ekkert hafa vitað af voðaverkunum sem framin voru í Sachsenhausen. 28.6.2022 13:45
„Þetta er 1937 augnablikið okkar,“ segir yfirmaður breska hersins Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir leiðtoga G7-ríkjanna hafa verið sammála um að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þeir þurfa til að snúa stríðinu sér í hag. Þetta sé það sem Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hafi óskað eftir. 28.6.2022 12:31
Röð hæstaréttardóma grefur undan aðskilnaði ríkis og kirkju Hæstiréttur Bandaríkjanna er sagður hafa grafið undan aðskilnaði ríkis og og kirkju sem kveðið er á um í stjórnarskrá með þremur dómum á síðustu tveimur mánuðum. Í þeim nýjasta var íþróttaþjálfari ríkisskóla hafa rétt á að leiða leikmenn sína í bæn. 28.6.2022 11:37
Lögðu hald á síma kosningalögmanns Trump Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar FBI lögðu hald á farsíma lögmanns Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta í síðustu viku. Lögmaðurinn var framarlega í flokki þeirra sem héldu á lofti stoðlausum samsæriskenningum um kosningasvik og reyndi að fá repúblikana til að koma í veg fyrir að Joe Biden yrði forseti. 28.6.2022 10:24
Versta hitabylgja í Japan í eina og hálfa öld Hitabylgja sem gengur nú yfir Japan er sú versta í júnímánuði í tæplega 150 ár. Mikið álag er á raforkukerfi landsins vegna hitans og vara yfirvöld við því að ekki sé útilokað að grípa þurfi til skammtana. 28.6.2022 09:14
Vaktin: NATO hafi áhyggjur yfir tengslum Kínverja og Rússa Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir bandalagið ekki líta á Kínverja sem andstæðinga sína en þau hafi áhyggjur af sterkum tengslum Rússa og Kínverja og því að Kínverjar dreifi fölskum áróðri um bæði NATO og Vesturlönd. 28.6.2022 08:58
Facebook fjarlægir færslur um þungunarrofspillur eftir hæstaréttardóm Færslur þar sem konum eru boðnar svonefndar þungunarrofspillur hafa verið fjarlægðar af samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram frá því að umdeildur hæstaréttardómur féll í Bandaríkjunum sem svipti konur stjórnarskrárvörðum rétti til þungunarrofs. 28.6.2022 08:40
Þúsundir söfnuðust saman í Osló þvert á tilmæli lögreglu Þúsundir hunsuðu viðvaranir lögreglu í Osló í gær og komu saman við ráðhús borgarinnar til að mótmæla ofbeldi gegn hinsegin fólki og til að minnast þeirra sem létust í hryðjuverkaárás við hinsegin skemmtistað á laugardag. 28.6.2022 08:07
Setja verulegar hömlur á sölu eldsneytis Yfirvöld á Sri Lanka hafa ákveðið að banna alla sölu eldsneytis í landinu nema til farartækja sem teljast nauðsynleg samfélaginu. Ástæðan er mikill eldsneytisskortur en gríðarlegar efnahagsþrengingar hafa gengið yfir landsmenn undanfarin misseri. 28.6.2022 08:05
Að minnsta kosti sautján látnir eftir árás Rússa á verslunarmiðstöð Ljóst er að sautján hið minnsta létust þegar Rússar gerðu eldflaugaárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk í miðhluta Úkraínu í gær. 28.6.2022 07:21
Fundu 46 lík í yfirgefnum flutningabíl í Texas Að minnsta kosti 46 lík fundust í yfirgefnum flutningabíl fyrir utan borgina San Antonio í Texas í gær. Svo virðist sem um hælisleitendur sé að ræða en sextán voru enn á lífi þegar lögreglumenn opnuðu bifreiðina. 28.6.2022 07:11
Tilraun til að taka Krímskaga leiði til þriðju heimsstyrjaldarinnar Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands og náinn bandamaður Vladímír Pútín, segir að ef ríki sem er í Atlantshafsbandalaginu sæki í átt að Krímskaga leiði það til þriðju heimsstyrjaldarinnar. 27.6.2022 23:34
Þrír létu lífið er lest klessti á vörubíl í Missouri Þrír eru látnir og að minnsta kosti fimmtíu slasaðir eftir að járnbrautarlest fór af teinunum í Missouri-ríki í Bandaríkjunum. Lestin skall á vörubíl við gatnamót nærri bænum Mendon. 27.6.2022 22:44
Yngsta fórnarlambið þrettán ára Yngsta fórnarlambið í hópi þeirra sem fundust látin á veitingastað í Austur-London í Suður-Afríku um helgina var þrettán ára. Alls fannst 21 maður látinn á Enyobeni Tavern aðfaranótt sunnudagsins, en hin látnu lágu ýmist á borðum eða á gólfi staðarins. 27.6.2022 22:00
Þrettán manns létu lífið í gasleka Þrettán manns hafa látið lífið og eru rúmlega 250 einstaklingar slasaðir eftir gasleka í borginni Aqaba í Jórdaníu. Íbúar borgarinnar hafa verið beðnir um að loka öllum gluggum og halda sig innandyra. 27.6.2022 20:57
Einn lést í hvirfilbyl í Hollandi Einn einstaklingur lést í hvirfilbyl sem gekk yfir suðurhluta Hollands í dag. Að minnsta kosti tíu aðrir eru slasaðir. 27.6.2022 17:31
Fundur G7 ríkjanna: Selenskí vill stöðva átökin fyrir veturinn Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti biðlar til leiðtoga G7 ríkjanna að stöðva átökin í Úkraínu áður en vetur skellur á. 27.6.2022 16:22
Rúmlega þúsund manns í verslunarmiðstöðinni sem varð fyrir loftárás Rússa Rúmlega eitt þúsund manns voru inni í verslunarmiðstöð í Kremenchuk þegar loftskeyti hæfði miðstöðina, að sögn Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta. Tíu dauðsföll eru staðfest en fjörutíu eru alvarlega særðir og þar af níu í lífshættu. Óttast er að tala fallinna muni hækka brátt. 27.6.2022 15:27
Árásarmaðurinn úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Zaniar Matapour, árásarmaðurinn sem skaut tvo til bana í skotárás í miðborg Oslóar aðfaranótt laugardags, var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag. Matapour er hvorki leyft að eiga samskipti við fjölmiðla né aðra og er gert að sæta einangrun í tvær vikur. 27.6.2022 15:26
Körfuboltastjarna fór fyrir dómara í Rússlandi í dag Bandaríska körfuboltakonan Brittney Griner fór fyrir dómara í undirbúningsyfirheyrslu í Rússlandi í dag. Griner var handtekinn fyrir rúmlega fjórum mánuðum á Sheremetyevo-flugvelli í Moskvu fyrir vörslu á kannabis þegar það fannst hassolía í rafrettu hennar. 27.6.2022 14:17
Skapari grænlenska fánans fallinn frá Grænlenski listamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Thue Christiansen, er látinn, 82 ára að aldri. Christiansen hannaði grænlenska fánann sem samþykktur var árið 1985. 27.6.2022 14:07
Kona fannst látin í rústum hússins sem sprakk Slökkviliðið í Vestur-Miðlöndum á Englandi hefur tilkynnt að kona hafi fundist látin í rústum íbúðarhúss sem sprakk í loft upp í Birmingham í gærkvöldi. 27.6.2022 11:45
Sakaður um að deila ríkisleyndarmálum með fjölskyldunni Lars Findsen, fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar, er sakaður um að hafa deilt ríkisleyndarmálum með nánum ættingjum hans, þar á meðal móður, bróður og kærustu. Sérfræðingur telur málið byggt á veikum grunni 27.6.2022 11:22
Baldwin ræðir við Allen í beinni á Instagram Leikarinn Alec Baldwin hefur greint frá því að hann muni taka viðtal við leikstjórann Woody Allen á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Instagram. 27.6.2022 11:17
Nafngreina mennina sem létust í árásinni í Osló Lögregla í norsku höfuðborginni Osló hefur birt nöfn mannanna tveggja sem létust í skotárásinni aðfararnótt laugardagsins. Mennirnir sem létust hétu Kaare Arvid Hesvik, sextíu ára að aldri, og Jon Erik Isachsen, 54 ára. 27.6.2022 08:52
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ 27.6.2022 08:31
Nýtt bóluefni gefur vonir um útrýmingu malaríu fyrir árið 2040 Miklar vonir eru bundnar við nýtt bóluefni gegn malaríu en sjúkdómurinn er algengasta dánarorsök fimm ára og yngri í Afríku. 600 þúsund manns létust úr malaríu í Afríku árið 2020 en nýtt bóluefni er talið geta lækkað dánartíðnina um allt að 75 prósent. 27.6.2022 08:06
Andersson, Erdogan og Niinistö funda á morgun Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti munu hittast á fundi á morgun til að ræða umsóknir Svíþjóðar og Finnlands að NATO. 27.6.2022 07:36
Íbúar í Tókýó hvattir til að draga úr orkunotkun vegna hitabylgju Yfirvöld í Japan hvetja íbúa stórborgarinnar Tókýó til að draga úr rafmagnsnotkun í dag en mikil hitabylgja gengur nú yfir svæðið sem hefur orsakað mikinn orkuskort. 27.6.2022 07:25