Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bóluefni Moderna virðist virka gegn nýjum afbrigðum veirunnar Bóluefni frá Moderna virðist virka gegn afbrigðum kórónuveirunnar nýju sem kennd hafa verið við Bretland og Suður-Afríku. BBC greinir frá og hefur eftir vísindamönnum hjá lyfjafyrirtækinu sem rannsökuðu blóðsýni úr átta manns sem höfðu verið bólusett með tveimur skömmum af bóluefninu frá Moderna. 25.1.2021 14:54
Framleiðandi kosningavéla krefur Guiliani um háar bætur vegna lyga Framleiðandi Dominion-kosningavélanna (e. Dominion Voting Systems) hefur stefnt Rudy Giuliani, lögmanni Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrir ærumeiðingar og farið fram á greiðslu 1,3 milljarða Bandaríkjadala í miskabætur. 25.1.2021 14:07
Sarah Sanders vill verða næsti ríkisstjóri Arkansas Sarah Sanders, fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi Donalds Trump, hyggst sækjast eftir því að taka við embætti ríkisstjóra Arkansas. Bæði AP og Reuters segja frá því að búist sé við tilkynningu þessa efnis frá Sanders síðar í dag. 25.1.2021 13:15
Handtekinn vegna gruns um að hafa skotið Karolin Hakim til bana Lögregla í Svíþjóð hefur handtekið 22 ára karlmann vegna gruns um að hafa skotið hina 31 árs gömlu Karolin Hakim til bana í Malmö í ágúst 2019. Karolin Hakim starfaði sem læknir og hélt á fjögurra mánaða barni sínu þar sem hún var á gangi með manni sínum fyrir utan heimili sitt þegar hún var skotin í höfuðið. 25.1.2021 11:20
Fagnar stefnumörkun um aukið samstarf Íslands og Grænlands Utanríkisráðherra Grænlands, Steen Lynge, fagnar stefnumörkun íslenskra stjórnvalda um að stórefla samstarf Íslendinga og Grænlendinga. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ráðherrans á heimasíðu landsstjórnar Grænlands í tilefni af útgáfu yfirgripsmikillar skýrslu um verkefnið, sem þeir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson, formaður Grænlandsnefndar ráðherrans, kynntu fyrir helgi. 25.1.2021 11:12
Forseti Portúgals endurkjörinn Marcelo Rebelo de Sousa, forseti Portúgals, var endurkjörinn í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu um helgina. Sousa tók við forsetaembættinu fyrir fimm árum og verður þetta hans annað kjörtímabil. 25.1.2021 10:29
Ný átök á landamærum Kína og Indlands Aftur hefur komið til átaka milli indverskra og kínverskra hersveita við landamæri ríkjanna. Bæði indverskir og kínverskir hermenn eru sagðir hafa særst í átökunum að því er fram kemur í indverskum fjölmiðlum. 25.1.2021 10:18
Níu námuverkamannanna látnir Níu þeirra námuverkamanna sem fastir voru í gullnámu í Shandong-héraði eftir að hún féll saman fyrr í mánuðinum, eru látnir. 25.1.2021 10:04
Forseti Mexíkó greindist með Covid-19 Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, hefur tilkynnt að hann hafi greinst með Covid-19. 25.1.2021 07:50
Verður fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Eistlands Samkomulag hefur náðst milli Umbótaflokksins og Miðflokksins um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Eistlandi. Kaja Kallas, leiðtogi Umbótaflokksins, mun taka við embætti forsætisráðherra og verður þar með fyrsta konan til að gegna embættinu í landinu. 25.1.2021 07:32
Líklegt að þurfi að koma á allsherjar útgöngubanni í þriðja sinn Helsti sóttvarnafræðingur Frakka segir að líklega þurfi að skella í lás og setja allsherjar útgöngubann í öllu landinu í þriðja sinn síðan kórónuveiran lét fyrst á sér kræla, ef allt eigi ekki að fara úr böndunum að nýju. 25.1.2021 07:16
Óeirðir í Hollandi vegna sóttvarnaaðgerða Óeirðalögregla var kölluð út í Eindhoven í Hollandi í gærkvöldi vegna mótmælenda sem hópuðust á götur borgarinnar til að mótmæla nýju útgöngubanni í borginni sem tók gildi í gærkvöldi vegna útbreiðslu Covid-19 á svæðinu. 25.1.2021 07:04
Gengur hægt að bola Kim Kielsen úr starfi Kim Kielsen heldur enn stöðu sinni sem forsætisráðherra Grænlands. Erik Jensen, sem fyrir tveimur mánuðum felldi Kielsen úr formannsstóli Siumut-flokksins, virðist hafa mistekist að sannfæra fulltrúa samstarfsflokkanna í landsstjórn Grænlands um að hann ætti jafnframt að setjast í forsæti landsstjórnarinnar. 24.1.2021 23:10
Sagður hafa skipulagt hefndir gegn samflokksmönnum sem sviku hann Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti er sagður hafa eytt helginni í að skipuleggja hvernig hann geti náð þingsætum af þeim repúblikönum sem honum þykir hafa svikið sig. Trump flaug til Flórídaríkis á miðvikudag, sama dag og Joe Biden var settur í embætti forseta. 24.1.2021 22:51
Breska afbrigðið greindist í Færeyjum Fyrsta tilfelli breska afbrigðis kórónuveirunnar hefur nú verið staðfest í Færeyjum. Sá sem greindist með afbrigðið hafði ferðast til Færeyja frá Afríku og var í sóttkví eftir komuna til landsins. 24.1.2021 17:22
Nýttu glufu í kerfinu til að tryggja sjálfum sér bólusetningu Hópur bæklunarlækna við Sønderjylland-sjúkrahúsið í Danmörku nýtti sér glufu í kerfinu til að tryggja sjálfum sér bólusetningu gegn covid-19. Læknarnir nýttu glufuna til að bóka bólusetningu fyrir sjálfa sig en málið hefur vakið nokkra reiði meðal samstarfsmanna þeirra á sjúkrahúsinu og víðar í danska heilbrigðiskerfinu. 24.1.2021 17:16
Handteknir vegna hótana í garð Mette Frederiksen Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið tvo einstaklinga vegna hótana í garð Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur. Hinir handteknu eru grunaðir um að hafa kveikt í brúðu, sem á var búið að festa mynd af andliti forsætisráðherrans auk skilaboða um líflátshótun. Ekki er útilokað að fleiri verði handteknir vegna málsins að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni í dag. 24.1.2021 15:43
Orrustuþotum og sprengjuvélum flogið yfir Taívansundi Bandarískum herflota var í dag siglt inn í Suður-Kínahaf með því markmiðið að tryggja frjálsar ferðir þar um. Á sama tíma er mikil spenna á Taívansundi eftir að Kínverjar sendu fjölda orrustuþota og sprengjuflugvéla inn á loftvarnasvæði eyríkisins í gær og í dag. 24.1.2021 15:04
Í sérstakri sóttkví eftir að breska afbrigðið greindist á leikskóla sonarins Anna Þorsteinsdóttir, íslensk kona sem búsett er í Danmörku, er nú í tveggja vikna sóttkví eftir að hið svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar greindist á leikskóla sonar hennar. Hún segir stöðuna erfiða. 24.1.2021 10:32
Ellefu bjargað úr námu í Kína Ellefu námuverkamönnum var bjargað úr námu í Kína eftir að þeir höfðu verið fastir þar í tvær vikur. Einn er sagður hafa dáið og örlög tíu til viðbótar eru óljós. Göng sem verið var að grafa í nýrri gullnámu í Kína hrundu í sprengingu þann 10. janúar. 24.1.2021 09:57
Navalní segist ekki ætla að svipta sig lífi í fangelsi Tugir þúsunda Rússa komu saman við mótmæli víðsvegar um Rússlands í gær. Þar af hittust einhverjir í allt að fimmtíu gráðu frosti. Rúmlega þrjú þúsund þeirra voru handteknir af lögreglu sem mætti mótmælendum víða af hörku. 24.1.2021 08:30
Vildi sinn mann í ráðherrastól á síðustu metrunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, íhugaði að skipta út starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna í upphafi mánaðarins. Ætlaði hann sér að skipa annan starfandi ráðherra sem átti að hjálpa honum við að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í fyrra. 23.1.2021 23:01
Ákærður fyrir morðhótanir í garð þingmanns Fimm ákærur hafa verið gefnar út gegn Texasbúanum Garret Miller vegna þátttöku hans í árásinni á bandaríska þinghúsið í upphafi mánaðarins. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa hótað þingkonunni Alexandriu Ocasio-Cortez lífláti. 23.1.2021 22:32
Ræddi við Biden um næstu skref Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, átti símafund með Joe Biden Bandaríkjaforseta í kvöld. Forsætisráðherrann greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í kvöld. 23.1.2021 21:36
Yfir tvö þúsund handtekin í mótmælum í Rússlandi Lögregla í Rússlandi hefur handtekið yfir tvö þúsund mótmælendur víðs vegar um Rússland í mótmælum til stuðnings Alexei Navalní, sem handtekinn var síðustu helgi við komuna til Rússlands. Óeirðalögregla beitti mikilli hörku og voru sumir mótmælendur beittir ofbeldi og dregnir í burtu. 23.1.2021 18:40
Ráðherra sem mælti með sírópi gegn veirunni smitaður Pavithra Wanniarachchi, heilbrigðisráðherra Sri Lanka, hefur greint með kórónuveiruna. Ráðherrann greindist í gær og er sá fjórði í núverandi ríkisstjórn til að greinast. 23.1.2021 17:53
Ströngustu aðgerðir frá upphafi tekið gildi í Noregi Borgaryfirvöld í Osló hafa kallað eftir því höfuðborgarsvæðið verði sett í forgang hvað varðar bólusetningu gegn covid-19. Ströngustu reglur um sóttvarnir og aðgerðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar hafa tekið gildi á ákveðnum svæðum í Noregi, þær ströngustu frá upphafi faraldursins. Aðgerðir voru hertar eftir að svokallað breska afbrigði veirunnar fór að skjóta upp kollinum í nágrannasveitarfélagi höfuðborgarinnar. 23.1.2021 14:08
Tugir mótmælenda handteknir í Rússlandi Tugir hafa verið handteknir í Rússlandi í morgun eftir að stuðningsmenn stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní komu saman til að mótmæla handtöku hans. Navalní og bandamenn hans kölluðu eftir mótmælum í kjölfar þess að hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hafa brotið gegn skilorði með því að fara til Þýskalands í sumar. 23.1.2021 10:57
Biden biðst afsökunar vegna aðbúnaðar þjóðvarðliða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur beðist afsökunar vegna aðbúnaðar liðsmanna í þjóðvarðliði Bandaríkjanna, sem stóðu vaktina við þinghúsið, sem neyddust til að sofa í bílakjallara. 23.1.2021 09:36
Málflutningur gegn Trump hefst 8. febrúar Málaferlin gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir embættisbrot munu hefjast þann 8. febrúar næstkomandi. Þá munu lögmenn beggja fylkinga flytja upphafsræður sínar í öldungadeild Bandaríkjaþings. 23.1.2021 08:54
Ári eftir útgöngubann er lífið í Wuhan komið í fyrra horf Ár er liðið frá því að kínversku borginni Wuhan var svo gott sem lokað vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og um ellefu milljónir íbúa borgarinnar þar sem veiran greindist fyrst í mönnum, settir í algjört útgöngubann. Í dag er líf íbúa að mestu komið í sitt gamla horf en heimurinn stendur enn í ströngu. 23.1.2021 08:04
Útlit fyrir töf á afhendingu AstraZeneca innan Evrópusambandsins Færri skammtar af bóluefni AstraZeneca verða afhentir innan Evrópusambandsins næstu vikurnar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Búist var við hundrað milljónum skammta á fyrsta ársfjórðungi, en samkvæmt Financial Times gætu þeir orðið færri en fjörutíu milljónir. 22.1.2021 23:15
Dapurleg staða í Þýskalandi og víðar Á meðan staðan fer batnandi hér heima heldur faraldurinn áfram að herja af fullum krafti á önnur ríki Evrópu. Takmarkanir voru hertar víða í dag. 22.1.2021 21:37
Réttarhöldin hefjast í næstu viku Réttarhöldin yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefjast í öldungadeild bandaríska þingsins í næstu viku. Þetta sagði Chuck Schumer, leiðtogi Demókrataflokksins í öldungadeildinni í dag. 22.1.2021 21:00
Mögulega hærri dánartíðni meðal þeirra sem smitast af breska afbrigðinu Fyrstu niðurstöður rannsóknar á hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar benda til þess að það gæti verið hættulegra heilsu fólks og leitt til verri veikinda. Þetta er haft eftir Boris Johnson forsætisráðherra á vef breska ríkisútvarpsins. 22.1.2021 17:27
Fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest tilnefningu fyrrverandi herforingjans Lloyd J. Austin til embættis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann er fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. 22.1.2021 16:31
Leiðtogar smyglhringsins dæmdir í fangelsi Fjórir menn hafa verið dæmdir samtals 78 ára í fangelsi vegna dauða 39 farandmanna og kvenna frá Víetnam sem fundust í gámi í Essex árið 2019. Fólkið hefði kafnað í gámnum á meðan verið var að flytja hann frá Belgíu til Bretlands. 22.1.2021 15:19
Rúmlega fimmtíu þúsund Þjóðverjar hafa dáið vegna Covid-19 Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Þýskalandi er kominn yfir fimmtíu þúsund. Yfirvöld þar opinberuðu í dag 859 dauðsföll milli daga og samkvæmt opinberum tölum hafa 50.642 dáið þar í landi. 22.1.2021 14:26
Tókst að fá samband við Trump um borð í Air Force One með því að þykjast vera Piers Morgan Óprúttnum aðilum tókst að fá samband við Donald Trump, þáverandi forseta Bandaríkjanna, í október síðastliðnum með því að þykjast vera sjónvarpsmaðurinn umdeildi Piers Morgan. 22.1.2021 14:07
Bandamenn Navalnís handteknir vegna mótmæla Bandamenn rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, hafa verið handteknir vegna ætlana þeirra um að halda mótmæli vegna handtöku Navalnís víða um Rússland á morgun. Meðal þeirra eru þær Lyubov Sobol, og Kira Jarmísj, talskona Navalnís. 22.1.2021 12:42
Hópur réðst á fimmtán ára dreng um miðjan dag og myrti hann Fimmtán ára drengur var myrtur í Birmingham á Englandi í gær þegar hópur manna vopnaðir hnífum veittist að honum á miðri íbúðargötu. Lögreglan segir að ráðist hafi verið á hann um klukkan hálf fjögur í gær og hann hafi dáið af sárum sínum á sjúkrahúsi. 22.1.2021 09:42
ISIS lýsir yfir ábyrgð á árásinni í Bagdad Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa sagst bera ábyrgð á árásinni á markað á Tayaran-torgi í íröksku höfuðborginni Bagdad í gær þar sem tveir menn sprengdu sjálfa sig í loft upp. Að minnsta kosti 32 létu lífið í árásinni og á annað hundrað særðist. 22.1.2021 08:24
Eyðilegging og rafmagnsleysi í Noregi vegna óveðursins Frank Óveður sem hefur gengið undir nafninu Frank hefur herjað á Norðmenn í gær og í dag og valdið talsverðri eyðileggingu á mannvirkjum og rafmagnsleysi víða um land. 22.1.2021 07:55
Vilja að réttarhöld yfir Trump frestist fram í febrúar Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings fara þess nú á leit við Demókrata að þeir fresti réttarhöldum yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta, í öldungadeildinni fram í febrúar. Þetta skuli gert svo Trump fái færi á að undirbúa varnir í málinu. 22.1.2021 07:31
Fauci segir frelsandi að vinna ekki lengur undir Donald Trump Dr. Anthony Fauci, yfirmaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna og einn helsti sóttvarnasérfræðingur, segir að það sé frelsandi tilfinning að geta nú greint frá vísindalegum staðreyndum í tengslum við kórónuveiruna og faraldur hennar án þess að óttast viðbrögð Donalds Trump. 22.1.2021 06:58