Fleiri fréttir

Segja að hundruðum þúsunda hafi verið vísað frá kjörstað í Simbabve

Miklir ágallar voru á kosningunum sem fóru fram í Simbabve í gær þar sem allt að milljón kjósenda var vísað frá kjörstað áður en þau fengu að kjósa. Þetta segir í skýrslu sem Zimbabwe Election Support Network, stærsti sjálfstæði eftirlitsaðilinn með kosningunum í Simbabve, birti í dag.

Fleiri Bretar deyja í slysum vegna ölvunaraksturs

Ölvunarakstur orsakaði 290 dauðsföll í Bretlandi á síðasta ári, sem er fjórðungsaukning frá árinu 2011, þegar 250 dauðsföll mátti rekja til ölvunaraksturs. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samgöngustofnunar í Bretlandi.

Kosið í Simbabve: Niðurstaðna að vænta innan fimm daga

Talning atkvæða stendur nú yfir í Simbabve, en íbúar landsins kusu bæði til þings og forseta í gær. Kosningarnar fóru friðsamlega fram og kjörsókn var góð, en þrátt fyrir að eftirlitsmenn frá Afríkusambandinu gerðu engar athugasemdir við framkvæmd kosninganna töldu ýmsir frambjóðendur að átt hafi verið við kjörskrár. Niðurstaðna er að vænta innan fimm daga.

Líknardráp áfram bannað

Áfrýjunarréttur í Bretlandi hefur hafnað beiðni tveggja alvarlega fatlaðara manna, sem fóru fram á að bann við líknardrápi yrði afnumið.

Berlusconi bíður lokaniðurstöðu

Til tíðinda dregur væntanlega í dag í málaferlunum gegn Silvio Berlusconi á Ítalíu. Fyrsta dómsmálið af mörgum er komið á leiðarenda í flóknu kerfi ítalskra dómstóla.

Kafari kemst í hann krappan

Eugene van Wyngaardt var brugðið þegar hann rakst á ógnvænlegan hvítháf undan ströndum Port Elizabeth

Tíu prósent stunda ekki kynlíf edrú

Eitt af hverjum tíu pörum í Bretlandi segjast ekki hafa stundað kynlíf edrú í yfir sex mánuði, samkvæmt niðurstöðum úr nýrri könnun.

Gleymdist í fangelsi - var nær dauða en lífi

Daniel Chong, háskólanemi í San Diego í Bandaríkjunum, hefur fengið hálfan milljarð íslenskra króna í skaðabætur frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum eftir að hann var læstur inni í fangaklefa í fjóra daga án vatns né matar.

Sjávarútvegsráðherra Færeyja: "Fáheyrt í samskiptum siðaðra þjóða!"

Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, fordæmir refsiaðgerðir ESB vegna síldveiða Færeyinga. "Ég skil ekki að þeir skuli koma fram með þessum hætti og beita refsiaðgerðum gegn Færeyjum í stað þess að semja um málið við okkur og hin strandríkin,“ segir hann í samtali við Politiken.

ESB beitir refsiaðgerðum gegn Færeyjum vegna síldveiðideilu

Aðildarríki ESB samþykktu í dag að beita refsiaðgerðum gegn Færeyjum vegna deilu um síldveiðar. Aðgerðirnar munu fela í sér bann á löndun og sölu síldar- og makrílafurða í löndum ESB, en bannið mun ekki taka gildi fyrr en framkvæmd þess hefur verið útfærð.

Sér eftir múhameðsmyndaviðbrögðum

Ahmed Akkari, fyrrum talsmaður trúfélags danskra múslíma hefur skipt um skoðun í máli skopmyndanna af Múhameð spámanniog sér eftir orðum sínum og gjörðum.

Flóttafangar í örugga höfn hjá talibönum

Þeir 25 vígamenn sem talibanar frelsuðu úr fangelsi í Pakistan í fyrrakvöld eru komnir í örugga höfn í bækistöðvum hreyfingarinnar í Waziristan-héraði í norð-vesturhluta landsins.

Fleiri óbreyttir falla í Afganistan

Alls létu 1.319 óbreyttir borgarar lífið í átökunum í Afganistan á fyrri helmingi þessa árs. Það er 161 fleiri en var á sama tíma í fyrra, sem nemur um fjórtán prósenta fjölgun.

Ræktuðu mannseyra inni í rottu

Vísindamönnunum í Boston hefur tekist að rækta nokkuð í líkingu við mannseyra úr frumum kúa og kinda. Það gefur góða von um að hægt verði að nýta tæknina fyrir fólk sem hefur misst eyra.

Úthugsaður flótti fanga festur á filmu

Fangi er nú á flótta undan lögreglu í Bandaríkjunum eftir að hafa flúið úr ríkisfangelsi í Arakansas. Flóttinn var úthugsaður og náðist að hluta til á myndbandsupptöku öryggismyndavéla fangelsisins.

Lestarstjórinn var í símanum

Upplýsingar úr svarta kassanum sýna að Francisco Jose Garzon Amo var í símanum þegar hann ók lestinni út af teinunum.

Fórnarlömb rútuslyssins borin til grafar

Fjöldaútför fór fram í bænum Pozzuoli á Ítalíu í dag, en þar voru þeir 38 einstaklingar sem létu lífið í rútuslysi fyrr í vikunni bornir til grafar.

Ashton ræddi við Morsí

Utanríkisfulltrúi Evrópusambandsins segir Múhamed Morsí "hafa það gott” í stofufangelsinu.

Dýrunum gefin þunglyndislyf

Sífellt fleiri hundar og kettir í Svíþjóð fá þunglyndislyf vegna aðskilnaðarkvíða og hræðslu. Sala á slíkum lyfjum hefur aukist um 35 prósent á undanförnum fjórum árum

25 hryðjuverkamenn sluppu

Vígamenn Talibana í Pakistan gerðu mikið áhlaup á fangelsi í bænum Dera Ismail Khan í norðvesturhluta landsins í nótt og frelsuðu þaðan um 250 fanga, þar á meðal 25 manns sem yfirvöld segja "hættulega hryðjuverkamenn“.

Lofar kosningum í desember

Forsætisráðherra Túnis hafnar kröfum um afsögn en segir að lýðræðið verði brátt að veruleika.

Björguðu fyrst þeim sem áttu mesta lífsmöguleika

Læknar á vettvangi rútuslyss í suðurhluta Ítalíu í gær þurftu að vega og meta hverjir ættu mesta möguleika á að lifa af áður en þeir ákváðu hverjum ætti að bjarga fyrst úr flakinu.

Dómur felldur yfir Manning

Herdómstóll í Bandaríkjunum hefur komist að niðurstöðu í máli uppljóstrarans Bradley Manning. Dómurinn verður birtur á morgun.

Ung stúlka hvatti til hópnauðgunar

Ung stúlka er sökuð um að hafa hvatt þrjá drengi til að hópnauðga bekkjarsystur sinni, en hún á að hafa myndað nauðgunina og dreift myndunum um skólann í gegnum veraldarvefinn.

Tók stuttan bíltúr í farangursgeymslu rútu

69 ára gömul kona frá Tromsö lenti í óskemmtilegri lífsreynslu í gær þegar hún læstist inni í farangursgeymslu flugrútunnar milli Osló og Gardemoenflugvallar. 69 ára gömul kona frá Tromsö lenti í óskemmtilegri lífsreynslu í gær þegar hún læstist inni í farangursgeymslu flugrútunnar milli Osló og Gardemoenflugvallar.

Sjá næstu 50 fréttir