Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikil byrði að vera Þjóðverji Þýski rithöfundurinn Bernhard Schlink segir að enn í dag sé erfitt fyrir Þjóðverja að takast á við sögu landsins. Hlutverk landsins í síðari heimsstyrjöldinni grúfi yfir landinu og þýsk börn þurfi enn í dag að takast á við sálarangist yfir því að vera Þjóðverjar. 17.9.2012 16:25
Suu Kyi til Bandaríkjanna Friðarverðlaunahafinn og stjórnarandstöðuleiðtoginn frá Búrma, Aung San Suu Kyi, lagði í dag af stað í sína fyrstu heimsókn til Bandaríkjanna síðan hún var vistuð í stofufangelsi árið 1990. Í Bandaríkjunum mun hún taka við æðstu heiðursverðlaunum sem Bandaríkjaþingið getur veitt. 17.9.2012 13:47
Prinsessa er látin Ragnhildur Noregsprinsessa, stóra systir Haraldar Noregskonungs, lést í gær í Rio de Janeiro í Brasilíu Hún var fædd árið 1930 og var því 82 ára þegar hún lést. Hún giftist Erling Lorentzen árið 1953 og bar frá því nafnið Ragnhildur Alexandra Lorentzen. Ragnhildar var minnst í erlendum fjölmiðlum í gær. Meðal annars minntist Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hennar með hlýjum orðum. 17.9.2012 10:31
Einkaskjalasafn nasistans Joseph Goebbels á uppboð Einkaskjalasafn nasistans Joseph Goebbels verður selt á uppboði í Connecticut í Bandaríkjunum í vikunni. 17.9.2012 07:41
Mikið um kynferðislega misnotkun á bandarískum skátum Í ljós er komið að þagað var um fleiri hundruð tilvika um kynferðislega misnotkun á ungum drengjum innan bandarísku skátasamtakanna US Boy Scouts á löngu tímabili. 17.9.2012 07:19
Lögfræðingar Kate og William mæta fyrir dómara í París Lögfræðingar þeirra Kate Middleton og William Bretaprins munu mæta fyrir dómara í París nú fyrir hádegið þar sem þeir ætla að reyna að koma í veg fyrir frekari dreifingu á tímaritinu Closer með lögbanni en tímaritið birt hefur myndir af Kate nakinni að ofan. 17.9.2012 06:41
Taska með sprengiefni fannst í Suðurhöfn Kaupmannahafnar Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur lokað af götu við Suðurhöfn borgarinnar þar semtaska full af sprengiefni fannst þar í morgun. Töskunni hafði verið stillt upp við einn af olíutönkum Shell olíufélagsins. 17.9.2012 06:35
Sérsveitir úr íranska Byltingarhernum í Sýrlandi Hermenn úr íranska Byltingarhernum hafa verið til staðar í Sýrlandi undanfarna mánuði til að aðstoða og leiðbeina sýrlenska hernum í átökunum sem geisa í landinu. 17.9.2012 06:47
Soyuz geimfar lenti með þrjá geimfara úr Alþjóðlegu geimstöðinni Rússneskt geimfar af Soyuz gerð lenti heilu og höldnu í Kazakhstan snemma í morgun með þrjá geimfara úr Alþjóðlegu geimstöðinni. 17.9.2012 06:44
Kærðu tengdasoninn fyrir að nauðga önd Tyrkneska dagblaðið Habertürk greindi frá því um helgina að karlmaður hefði verið handtekinn í Marmara-héraðinu grunaður um að hafa nauðgað önd. Það voru tengdaforeldrar mannsins sem kærðu hann til lögreglu eftir að þau fundu blóð og fjaðrir í rúmi mannsins. Maðurinn gisti hjá tengdaforeldrunum yfir nóttina. 16.9.2012 23:00
John Major gagnrýnir myndbirtingu Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, John Major, gagnrýnir franska blaðið Closer sem og írska tímaritið Irish Daily harðlega fyrir að birta myndir af hertogaynjunni Kate Middelton berbrjósta. 16.9.2012 15:06
Ætluðu að safna fé fyrir klíkuforingja Hætt hefur verið við fjársöfnun fyrir leiðtoga hinnar alræmdu New York-klíku, Bloods, eftir að það fréttist að gengið ætlaði að safna fé fyrir leiðtogann. Foringinn, Ronald Herron, er almennt álitinn leiðtogi klíkunnar sem hefur fjölmörg líf á samviskunni í gegnum árin. Herron sætir nú ákærum fyrir morð, skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnasölu. 16.9.2012 06:00
Fjórir hermenn drepnir í Afganistan Fjórir hermenn úr fjölþjóðaliði NATÓ í Afganistan voru drepnir í árás á varðstöð í Zabul héraði. Afganskir lögreglumenn sem störfuðu með hermönnunum í varðstöðinni eru grunaðir um verknaðinn. 16.9.2012 10:22
Írar og Ítalir geta líklega skoðað brjóst hertogaynjunnar á næstu dögum Írska dagblaðið Daily Star hefur ákveðið að birta myndir af hertogaynjunni Katrínar Middelton þar sem hún sést berbrjósta í fríi í Frakklandi. Áður birti blaðið Closer myndirnar en konungsfjölskyldan er æf vegna birtingarinnar og hefur meðal annars kært blaðið vegna málsins. 16.9.2012 00:00
Handritshöfundur „sakleysi múslima“ kom vopnaður til dyra Kvikmyndagerðarmaðurinn Nakoula Basseley Nakoula, mætti til yfirheyrslu hjá lögreglunni í heimabæ sínum Cerritos í Kaliforníu fyrr í dag. 15.9.2012 22:00
Sá aðeins einn skotmann Franska lögreglan er búin að taka skýrslu af sjö ára gamalli stúlku sem komst lífs af ásamt fjögurra ára gamalli systur sinni þegar fjölskylda þeirra var myrt með köldu blóði í frönsku ölpunum fyrir um einni og hálfri viku síðan. 15.9.2012 15:15
Tugir þúsunda mótmæltu í Moskvu í dag Tugir þúsunda kröfðust þess í Moskvu í dag að Vladimat Pútin, forsætisráðherra Rússlands, segði af sér. Þetta eru fyrstu stóru mótmælin í Moskvu í þrjá mánuði. Um sjö þúsund lögregluþjónar fylgdust með mótmælunum sem samanstóðu af afar ólíkum hópum. Þannig tók samkynhneigðir aðgerðarsinnar þátt í mótmælunum sem og þjóðernissinnar auk fjölda kennara og stúdenta. 15.9.2012 14:45
500 lögreglumenn gerðu vopn námuverkamanna upptæk Um fimm hundruð lögreglumenn tóku þátt í umfangsmiklum húsleitum í húsakynnum námuverkamanna í Marikana í Suður-Afríku í morgun. Tólf voru handteknir og gríðarlegt magn vopna, þó aðallega sveðjur og önnur eggvopn, voru haldlögð. Fimm af þeim tólf sem voru handteknir reyndust vera með fíkniefni á sér samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. 15.9.2012 13:38
Brutust inn í herstöð í Afganistan Uppreisnarmenn réðust á Camp Bastion-herstöðina í suðurhluta Afganistan í nótt. Tveir bandarískir hermenn létust í árásinni. 15.9.2012 09:59
Fundaði með ráðamönnum Sýrlands í nótt Nýskipaður erindreki Sameinuðu Þjóðanna og Arababandalagsins í málefnum Sýrlands, Lakhdar Brahimi, heimsótti Sýrland í gær. 15.9.2012 10:15
ESB-flokkar í stjórnarmyndunarviðræður Frjálslyndi flokkurinn og Verkamannaflokkurinn munu á næstu dögum hefja stjórnarmyndunarviðræður eftir góða útkomu í þingkosningunum í Hollandi í vikunni. 15.9.2012 03:00
Brjáluð vegna brjóstamynda - ætla að höfða mál gegn Closer Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans, Katrín Middleton, hafa höfðað mál gegn franska tímaritinu Closer. Þetta staðfesti talsmaður kongunsfjölskyldunnar í kvöld. 14.9.2012 20:53
Vinnuálag eykur líkur á hjartasjúkdómum Breskir vísindamenn komust að því með víðtækri rannsókn að vinnuálag eykur líkur á hjartaáföllum og hjartasjúkdómum um 23%. Rannsóknin náði til 200 þúsund einstaklinga en frá henni er greint á fréttavef BBC. 14.9.2012 18:33
Falsanir algengar í vísindalegum rannsóknum Margt bendir til þess að falsanir, ritstuldur og margs konar svindl sé algengt í vísindalegum rannsóknum í dag. Fjallað er um málið hjá 14.9.2012 15:46
Kate og William íhuga málsókn vegna nektarmyndanna Hjónin Kate Middleton og William Bretaprins eru nú að íhuga málsókn gegn franska tímaritinu Closer sem birt hefur myndir af Kate berri að ofan. 14.9.2012 09:34
Tímarit hefur birt nektarmyndir af Kate Middleton Kate Middleton eiginkona William Bretaprins er með böggum hildar því franskt tímarit hefur birt myndir af henni berri að ofan. Breska konungsfjölskyldan er æf af reiði vegna þessara nektarmynda. 14.9.2012 07:06
Rússar byggja stærsta kjarnorkuknúna ísbrjót heimsins Rússar eru nú að byggja stærsta kjarnorkuknúna ísbrjót heimsins, þann fyrsta af gerðinni LK-60. 14.9.2012 06:43
Norrænir glæpahöfundar eins og breska rokkið fyrir 50 árum Hagfræðitímaritið The Economist segir að staða norrænu glæpasagnahöfundanna á heimsvísu sé sú sama og var hjá breska rokkinu á sjöunda áratug síðustu aldar. 14.9.2012 06:35
Lewinsky með opinskáa bók um dvölina í Hvíta húsinu Monica Lewinsky lærlingurinn í Hvíta húsinu sem gerði Bill Clinton þáverandi Bandaríkjanna lífið leitt, eða ljúft eftir því hvernig á það er litið, mun vera að leita sér að útgefenda að opinskárri bók um tímann í Hvíta húsinu. 14.9.2012 08:09
Um 30.000 manns fluttir vegna eldgoss í Gvatemala Um 30.000 manns hafa verið flutt frá nágrenni eldfjallsins Fuego í Gvatemala eftir að eldgos hófst í fjallinu í gær. 14.9.2012 07:17
Obama stóreykur forskot sitt meðal skráðra kjósenda Barack Obama hefur stóraukið forskot sitt á Mitt Romney meðal skráðra kjósenda í Bandaríkjunum. 14.9.2012 07:00
WHO gefur út viðvörun vegna Ebolaveirunnar í Kongó Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur gefið út viðvörun vegna Ebolaveirusýkingar í Lýðveldinu Kongó. 14.9.2012 06:51
Þjófarnir klónuðu stolna bíla Lögregluyfirvöld í Danmörku og Póllandi hafa afhjúpað pólskt þjófagengi sem stolið hefur að minnsta kosti 40 dýrum bílum í Danmörku. 14.9.2012 04:00
Viðbúnaður aukinn vegna árása í Líbíu Lið þungvopnaðra manna sem réðist á sendiráð Bandaríkjanna í Bengasí í Líbíu skákaði í skjóli mótmælenda sem mótmæltu óhróðursmynd um íslam. Árásirnar eru sagðar hafa verið þaulskipulagðar. 14.9.2012 03:00
Seifur er stærstur allra hunda Heimsmetabók Guinnes hefur útnefnt hinn þriggja ára gamla Seif sem stærsta hund veraldar. Seifur er stóri dani og er 112 sentímetrar frá loppu að herðakambi. 13.9.2012 22:00
Með stærstu tvíhöfða í heimi - jafnstórir og meðal mitti karlmanns Heimsmetabók Guinness fyrir árið 2013 kom út í dag en þar er fjallað um mörg ný heimsmet. Athyglisverðasta heimsmetið í bókinni er eflaust metið sem hinn tuttugu og fjögurra ára Egypti, Moustafa Ismail, sló á dögunum. En sá náungi er með stærstu tvíhöfða (e.biceps) í heimi. 13.9.2012 20:59
Neil Armstrong borinn til grafar Tunglfarinn Neil Armstrong var lagður til hinstu hvílu í Ohio í Bandaríkjunum í dag. Stjórnmálamenn, vísindamenn og aðstandendur Armstrongs fjölmenntu á minningarathöfn í Þjóðardómkirkjunni í Washington. 13.9.2012 16:53
Ebólu-faraldur í Kongó Ebóluveiran smitast nú manna á milli í Kongó. Mikil skelfing hefur gripið um sig í landinu en á síðustu vikum hefur að minnsta kosti þrjátíu og einn látist af völdum veirunnar. 13.9.2012 16:06
Minnsti líkamsræktarmaður veraldar látinn Minnsti líkamsræktarmaður veraldar, hinn tuttugu og þriggja ára gamli Aditya Romeo, lést eftir að hafa fengið slagæðargúlp í gær. 13.9.2012 15:40
Clinton fordæmir áróðursmynd um íslam Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur fordæmt kvikmyndina Sakleysi múslíma sem valdið hefur titringi meðal múslíma víða um heim. 13.9.2012 15:03
Áður óþekkt apategund uppgötvuð Í fyrsta sinn í hartnær þrjá áratugi hafa vísindamenn nú uppgötvað áður óþekkta apategund í Afríku. Innfæddir kalla dýrið Lesula. 13.9.2012 13:03
Dalai Lama: Við verðum að skilja að trúarbrögð og siðferði Dalai Lama, trúðarleiðtogi Tíbeta, birti heldur athyglisverða færslu á samskiptamiðlinum Facebook í vikunni. Þar sagði leiðtoginn að sú hugmynd að byggja siðakerfi á trúarbrögðum væri einfaldlega ekki viðeigandi lengur. 13.9.2012 12:22
Sakleysi múslíma verður ekki fjarlægð af YouTube Bandarísk kvikmynd, sem stefnt er gegn múslímum og Múhameð spámanni þeirra, verður ekki fjarlægð af YouTube. Þetta tilkynntu stjórnendur Google í gær. 13.9.2012 11:47
Fréttaskýring: Hvert stefnir Evrópusambandið? Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins boðar breytingar á sáttmála þess. Framkvæmdastjórnin ætlar að kynna tillögur sínar fyrir kosningar til Evrópuþingsins árið 2014. Sameiginlegt fjármálaeftirlit evruríkjanna verður að veruleika um áramótin. 13.9.2012 10:00
Stórlega dregið úr barnadauða í heiminum Stórlega hefur dregið úr barnadauða á heimsvísu og marktækur árangur náðst við að ráðast gegn helstu þáttum sem valda honum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og UNICEF á Íslandi vekur athygli á. 13.9.2012 09:54