Fleiri fréttir

Fyrrum kærustupar deildu um forræði yfir hundi

Það var mikil gleði í dómsal í litlum bæ í grennd við borgina Marseille í Frakklandi á dögunum en þá vann karlmaður forræðisdeilu sem fyrrum kærasta hans höfðaði gegn honum. Deilan snérist þó ekki um barn eins og algengt er í slíkum málum, heldur um hund.

Sagðir hafa lagt á ráðin um dráp á diplómötum

Hópur írana sem nú er í haldi lögreglu í Bankok í Tælandi ætlaði að ráða tvo ísraelska diplómata af dögum. Þetta fullyrðir lögreglan þar í landi. Ekki hefur verið gefið út um hvaða einstaklinga var að ræða en lögreglan segir að undirbúningur fyrir tilræðin hafi verið langt kominn.

Átta palestínsk börn létust í árekstri

Að minnsta kosti átta palestínsk börn og kennari þeirra létust í morgun þegar rúta sem þau voru farþegar í rakst á Ísraelskan flutningabíl. Börnin voru á leið til Ramallah þegar slysið varð. Rútan fór veltu og braust út eldur um leið.

Vill milljarð fyrir koníakssafn

Hollenskur maður ætlar að freista þess að selja koníaks-safn sitt en það telur yfir fimm þúsund flöskur. Verðmætasta flaskan í safninu er metin á um 150 þúsund evrur. Það er ansi mikið fyrir koníak en það sem er merkilegt við flöskuna er að hún kemur frá herliði Napólenos og er frá árinu 1795.

Hundruð brunnu inni í fangelsinu

Meira en þrjú hundruð manns létu lífið í eldsvoða í fangelsi í Hondúras í gær. Tugir brunnu inni meðan slökkvilið var að leita að lyklum. Fimm hundruð fangar sluppu. Ævareiðir aðstandendur heimta svör.

Opinber rannsókn á fangelsisbrunanum í Hondúras

Opinber rannsókn er hafin í Hondúras á eldsvoðanum í fangelsinu í Comayagua en eldsvoðinn kostaði yfir 350 fanga þar lífið í gærdag. Margir fanganna brunnu eða köfuðu til dauða í klefum sínum.

Milljónamæringur í verslunaræði lagður inn

Bandarískur milljónamæringur var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa eytt 20 milljón dollurum í gjafir og smámuni í New York í gær. Hann eyddi meðal annars 1.6 milljón dollara í sápu.

Sarkozy sækist eftir endurkjöri

Nicolas Sarkozy mun sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum í Frakklandi í sumar. Kosið verður 22. apríl næstkomandi.

Wikileaks fordæmir UNESCO

Stjórnendur uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks fordæma menningarstofnun Sameinuðu Þjóðanna fyrir að meina aðstandendum síðunnar aðgangi að ráðstefnu stofnunarinnar um Wikileaks.

Norðmenn þróa nýtt lyf gegn HIV veirunni

Norska lyfjafyrirtækið Bionor Pharmas hefur unnið að þróun á nýju lyfi gegn HIV veirunni en prófanir á lyfinu sýna að það kemur í veg fyrir að HIV smit þróist yfir í eyðni.

Ölvaður Finni gleypti Vísakortið sitt

Finnskur maður mun vakna af áfengisdauða í fangelsisklefa á Amager í Kaupmannahöfn í morgunsárið án peninga, vegabréfs og eiginkonu sinnar.

Öryggissveitir bæla mótmæli

Fjölmennt lið öryggissveita í Barein kæfði í gær mótmæli sjía-múslima, sem höfðu komið saman víða um land til að minnast þess að eitt ár var liðið frá því að mótmæli þeirra gegn stjórn súnní-múslíma hófust.

Þriðjungur hefur aldrei gifst

Rétt tæpur þriðjungur Dana yfir 17 ára aldri er ógiftur og hefur aldrei gifst, að því er fram kemur í úttekt dönsku tölfræðistofnunarinnar. Rétt tæpur helmingur er í hjónabandi sem stendur.

Vill verjast herskáu trúleysi

„Ég óttast að herská veraldarhyggjuvæðing sé að ná völdum í þjóðfélögum okkar,“ segir Sayeeda Warsi, ráðherra í bresku ríkisstjórninni, og hvetur til þess að trúin fái að gegna stærra hlutverki í stjórnmálum.

Treysta Grikkjum ekki til að standa við sparnaðaráform

Efnahagur Grikklands heldur áfram að versna, þrátt fyrir strangar sparnaðarráðstafanir og fjárhagsaðstoð að utan. Grikkjum ekki treyst til að standa við niðurskurðaráformin. Kínverjar gefa óljós loforð um aðstoð.

Bandarískum herflota fylgt

Írönsk eftirlitsskip og herþotur fylgdu eftir bandarískum herskipaflota þegar honum var siglt um Hormús-sund í gær með flugmóðurskipið Abraham Lincoln í fararbroddi.

Hrútur og dádýr gengu í hjónaband

Hrútur og dádýr gengu í hjónaband í dýragarði í Kína í dag. Óvanalegt ástarsamband hrútsins Changmao og dádýrsins Chunzi er víðfrægt í Kína og voru því rúmlega 500 manns viðstaddir þegar hjónabandið var innsiglað.

Ljónynja drap gæslumann sinn

Gæslumaður í dýragarði í Suður-Afríku lést eftir að ljón beit hann í hálsinn. Atvikið átti sér stað í dýragarðinum í Jóhannesarborg.

Romney og Santorum jafnir í skoðanakönnunum

Repúblikanarnir Mitt Romney og Rick Santorum mælast nú með jafn mikið fylgi í skoðanakönnunum. Þeir sækjast eftur útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum.

Mikið tjón á Madagascar

Hitabeltisstormur gekk yfir eyjuna Madagascar í morgun og náðu vindhviðurnar tæplega tvöhundruð kílómetra hraða þegar verst lét. Veðurfræðingar óttast að tjónið af völdum stormsins gæti verið jafn mikið og árið 1994 þegar 200 manns létust og fjörutíu þúsund misstu heimili sín. Eitt dauðsfall hefur þegar verið staðfest en erfiðlega hefur gengið að ná sambandi við strjábýlli svæði eyjarinnar.

Býr í flugstöðinni

Þýskur karlmaður hefur búið í sænskri flugstöð í tvo mánuði. Hann segist ekki vilja fara aftur heim til Þýskalands en hann hafi engan stað til að búa á í Svíþjóð.

97% studdu Gúrbangúllí

Gúrbangúllí Berdímúkhamedov var endurkjörinn með yfirburðum í forsetakosningum sem fram fóru í Túrkmenistan á sunnudag.

Ísraelar kenna Írönum um

Forsætisráðherra Ísraels sakar írönsk stjórnvöld um að hafa staðið á bak við tvær sprengjuárásir á ísraelskar sendiráðsbifreiðar í gær. Önnur árásin var gerð í Tíblisi, höfuðborg Georgíu, en hin í Nýju-Delhi á Indlandi.

Hefur aldrei verið ákærður

Abu Qatada, rúmlega fimmtugur íslamskur predikari, var í gær látinn laus í Bretlandi eftir áratug í fangelsi. Hann þurfti þó að reiða fram tryggingarfé og þarf að sæta eftirliti, að öllum líkindum með útivistarbanni og ökklabandi til öryggis.

Enn hitnar í kolunum í deilunni um Falklandseyjar

Enn hitnar í kolunum í endurvakinni deilu Argentínumanna og Breta um Falklandseyjar. Nú hefur verkalýðsfélag flutningsmanna í Argentínu ákveðið að sniðganga öll bresk skip sem koma til hafnar í Argentínu en hafnarverkamenn í landinu tilheyra þessu verkalýðsfélagi.

Sjá næstu 50 fréttir