Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neyðarástand í Bangkok Neyðarástandi var í morgun lýst yfir í Bangkok höfuðborg Tælands og á nærliggjandi svæðum. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að hundruðir mótmælenda stromuðu inn á skrifstofu innanríkisráðuneytis landsins og tókst Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherr,a naumlega að sleppa undan hópnum. 12.4.2009 10:07
Ætlaði að smygla 250 milljónum til Gaza Egypska lögreglan stöðvaði nýverið för manns sem talinn er hafa ætlað að smygla tveimur milljónum dollara til Hamassamtakanna á Gazasvæðinu í Palestínu. Upphæðin samsvarar 250 milljónum íslenskra króna. 11.4.2009 16:14
Einn látinn eftir skotárás í Hollandi Einn er látinn og þrír slasaðir eftir að maður hóf skothríð á þéttsetnu kaffihúsi í borginni Rotterdam í Hollandi í dag. Kaffihúsagestir yfirbuguðu manninn og héldu honum föngnum þangað til lögregla kom á staðinn. 11.4.2009 13:58
Maóistar drápu fimm lögreglumenn Maóistar drápu fimm lögreglumenn og særðu þrjá í austuhluta Indlands skömmu áður en ráðgert var að Sonia Gandhi, leiðtogi Kongressflokksins, ávarpaði fjöldafund í nágrenni morðstaðarins. 11.4.2009 13:55
Ákvörðun um endurtalningu frestað Hæstiréttur Moldavíu ákvað að fresta í dag umfjöllun sinni um beiðni forseta landsins um endurtalningu atkvæða í þingkosningunum þar í landi síðastliðinn sunnudag. 11.4.2009 13:05
Leiðtogarnir fluttir á brott í þyrlum Tælensk stjórnvöld þurftu að aflýsa fundi leiðtoga í Asíu í annað sinn á fimm mánuðum eftir að þúsundir mótmælenda réðust í gegnum öryggisgæsluna á hótelinu í bænum Pattaya þar sem fundurinn átti að fara fram. 11.4.2009 10:45
Níu létust í sprengjuárás í Írak Níu arabískir hermenn létust og 31 særðist í sjálfsvígsárás í Babel í suðurhluta Íraks í morgun. Hermennirnir stóðu í biðröð við herstöð til að sækja launaseðla sína þegar árásin var gerð. 11.4.2009 10:18
Græddu andlit á manneskju Sjúkrahús í Boston hefur grætt andlit á manneskju og er talið að þetta sé önnur aðgerð þessarar tegundar sem framkvæmd er í öllum heiminum. Á alfræðiorðavefnum wikipedia kemur fram að andlitságræðslur séu enn á tilraunastigi. Þær eru hugsaðar fyrir fólk sem hefur sár í andliti vegna áfalla, bruna eða sjúkdóma. 10.4.2009 13:56
Á þriðja tug létu krossfesta sig á Filippseyjum Á þriðja tug manna létu krossfesta sig á Filippseyjum í morgun til að minnast pínu frelsarans. Á meðfylgjandi myndum sést hvar Ástralinn John Michael er negldur á kross í borginni Bulacan, skammt frá Manila. Michael, sem er 33 ára, lét krossfesta sig ásamt þremur filippeyskum karlmönnum og einni konu. 10.4.2009 11:19
Forseti Georgíu bregst við mótmælum Mikael Sjakasvílí, forseti Georgíu, hefur óskað eftir fundi með leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu. Fjölmenn mótmæli gegn forsetanum héldu áfram í höfuðborginni Tíblísí í gær, annan daginn í röð. Krafist er afsagnar Sjakasvílís vegna einræðistilburða. Hann er einnig gagnrýndur fyrir að hafa leitt þjóðina í styrjöld við Rússa í fyrra með hörmulegum afleiðingum. Sjakasvílís segist vilja ræða við mótmælendur en hann ætli ekki að segja af sér. 10.4.2009 09:51
Forseti Moldavíu óskar eftir endurtalningu atkvæða Vladimír Voronin, forseti Moldavíu, hefur óskað eftir því að atkvæði verði aftur talin í þingkosningum sem fóru fram í landinu um síðustu helgi. 10.4.2009 09:47
Maersk Alabama á leið til Kenýa Bandaríska flutningaskipið Maersk Alabama er nú á leiðinni til Kenýa eftir að sómölskum sjóræningjum mistókst að ná skipinu á sitt vald. Þeir tóku hinsvegar skipstjórann Richard Philips höndum, en samkvæmt fréttavef BBC þá bauðst hann til þess að fara með þeim gegn því að áhöfinin fengi að sigla áfram. 10.4.2009 08:00
Pyntingafangelsum CIA lokað Hinum hrollvekjandi leynifangelsum sem bandaríska ríkisstjórnin starfrækti víðsvegar um hin vanþróaða heim, hefur verið lokað, samkvæmt yfirmanni bandarísku leyniþjónustunnar.Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 10.4.2009 07:00
Svínsleg meðferð Flest dauðsföll bandarískra hermanna í Afganistan verða þegar þeir lenda á vegasprengjum í brynvögnum sínum. 9.4.2009 13:15
Náðu skipi sínu úr höndum sjóræningja Skipverjar á flutningaskipi sem sómalskir sjóræningjar rændu í gær hafa náð skipinu aftur á sitt vald. Skipið er sautján þúsund tonn. 9.4.2009 10:03
Sagði af sér vegna glappaskots Aðstoðarlögreglustjóri Scotland Yard í Bretlandi sagði í morgun af sér eftir glappaskot sem talið er að hafi orðið til að flýta aðgerð gegn grunuðum al-Kaída liðum í Bretlandi. 9.4.2009 09:18
Berlusconi hneykslar með ummælum um fórnarlömb jarðskjálftanna Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, er þekktur fyrir ummæli sem vekja nokkra athygli. Í viðtali við þýska sjónvarpsstöð í gær um jarðskjálftann mikla barst talið að þúsundum manna sem misstu heimili sín og þurfa nú að hafast við í tjöldum. 8.4.2009 12:41
Niðurskurður boðaður á Írlandi Fjármálaráðherra Írlands hefur kynnt harkalegar aðgerðir til þess að koma efnahag landsins á réttan kjöl. Hann boðar bæði niðurskurð og skattahækkanir. 8.4.2009 12:36
Hvað er eldsneytisfærslufræðingur? Nýstárlegum heitum yfir gamalgróin störf er ætlað að laða fólk í atvinnuleit að þeim, eftir því sem markaðsrannsóknarfyrirtækið OnePoll hefur fundið út. 8.4.2009 08:15
Lýtaaðgerð fyrir atvinnuviðtalið Bandaríkjamenn eru farnir að leggja á sig lýtaaðgerðir til að líta betur út í atvinnuviðtölum og ná þannig forskoti á aðra. 8.4.2009 07:23
Rændu peningaflutningabíl í Slagelse Þrír vopnaðir menn rændu peningaflutningabíl í Slagelse í Danmörku í gærkvöldi. Bíllinn beið við bakdyr stórmarkaðar en þar var verið að sækja peninga til að flytja í bankahólf. 8.4.2009 07:15
Obama heimsótti hermenn í Írak Barack Obama Bandaríkjaforseti heimsótti hermenn sína í Baghdad, höfuðborg Íraks, í gær á leið sinni frá Tyrklandi og lauk þar með átta daga ferðalagi sínu sem hófst á G20-ráðstefnunni í London í síðustu viku. 8.4.2009 07:10
250 látnir eftir skjálftann á Ítalíu Tvö hundruð og fimmtíu manns hafa nú fundist látnir eftir jarðskjálftann í Abruzzo-héraðinu á Mið-Ítalíu í fyrradag. Björgunarmenn héldu áfram leit í húsarústum í nótt í köldu veðri á meðan þúsundir heimilislausra höfðust við í tjaldbúðum sem komið hefur verið upp á íþróttavöllum og öðrum bersvæðum. 8.4.2009 06:47
Hermenn fögnuðu Obama í óvæntri heimsókn til Íraks Barack Obama, Bandaríkjaforseti, kom í dag í óvænta heimsókn til Bagdads, höfuðborgar Íraks. Bandarískir hermenn fögnuðu forseta sínum innilega við komu hans til landsins. Þetta var fyrsta heimsókn Obama til Íraks eftir að hann var kjörinn forseti. 7.4.2009 16:24
Óttast vansköpuð börn vegna lyfjagjafar Tíu stúlkur sem fengu mikið af róandi lyfjum í athvarfi bresku kirkjunnar á sjöunda og áttunda áratugnum hafa fætt vansköpuð börn. Óttast er að eins fari um hundruð annarra stúlkna. 7.4.2009 12:41
Tala látinna komin í 207 Enn eru að finnast lík í húsarústum á Ítalíu og eru þau nú orðin yfir 200 talsins. Það er einnig búið að bjarga tugum manna og leit heldur áfram. Snarpur eftirskjálfti reið yfir í dag. 7.4.2009 11:48
Tveir látnir eftir skotárás í Þýskalandi Tveir eru látnir hið minnsta eftir skotárás í dómshúsi í Þýskalandi í morgun. Talið er að byssumaðurinn sem virðist hafa skotið á fólk af handahófi hafi í kjölfarið svipt sig lífi. Ekkert er vitað að svo stöddu um ástæður árásarinnar en aðeins er um mánuður liðinn síðan sautján ára gamall drengur myrti 15 í bænum Winnenden. 7.4.2009 10:38
Öflugur eftirskjálfti á Ítalíu Öflugur eftirskjálfti reið yfir fyrir stundu á ítalíu á sama svæði og varð illa úti í öflugum jarðskjálfta í fyrrinótt þar sem 180 manns létust. Eftirskjálftans varð vart í höfuðborginni Róm sem er í um 100 kílómetra fjarlægð frá upptökum skjálftans. 7.4.2009 09:56
Nýtt klámhneyksli í breska innanríkisráðuneytinu Sjaldan er ein báran stök segir hið fornkveðna og það virðist rætast sem aldrei fyrr hjá Jacqui Smith innanríkisráðherra þessa dagana. Eftir að upp komst um greiðslur þeirra hjónanna fyrir klámmyndir fyrir aðeins nokkrum dögum hefur nýtt mál nú litið dagsins ljós sem snertir sjálfa heimasíðu innanríkisráðuneytisins. 7.4.2009 08:31
Fjögurra leitað eftir skotbardaga í Kaupmannahöfn Fjórir menn eru eftirlýstir af lögreglunni í Kaupmannahöfn eftir að til skotbardaga kom við Hans Knudsens-torgið laust fyrir miðnætti í gærkvöldi. Vitni segja að sex til átta skotum hafi verið hleypt af og nokkrir menn hafi sést forða sér af staðnum á hlaupum. Lögregla fann tóm skothylki á vettvangi en segir ekki ljóst hvort nokkur hafi orðið fyrir skoti. 7.4.2009 08:29
Styðja aukin umsvif í Afganistan með skilyrðum Bandarískur almenningur styður almennt aukin hernaðarumsvif Bandaríkjanna í Afganistan, svo lengi sem megintilgangur þeirra umsvifa sé að berjast gegn hryðjuverkum. 7.4.2009 08:20
Lögleiðing fíkniefna gæti sparað 14 milljarða punda Samkvæmt nýrri skýrslu breskra yfirvalda gæti það breytt töluvert miklu fyrir skattgreiðendur, réttarvörslukerfið, afbrotamenn og fórnarlömb þeirra að leyfa fíkniefni í Bretlandi. 7.4.2009 08:16
Verja minna fé til eldflaugavarna Fjárhagsáætlun Bandaríkjahers gerir ráð fyrir að minna fé verði varið til eldflaugavarna og dýrari varnarmála en meiru eytt í aðgerðir gegn uppreisnarmönnum í Írak og Afganistan. 7.4.2009 08:13
Sjóræningjar náðu bresku flutningaskipi Sómalskir sjóræningjar á Aden-flóa náðu í gær bresku gámaflutningaskipi á sitt vald og er þar um að ræða fimmta skipið sem rænt er á innan við tveimur sólarhringum. Skipið heitir Malaspina Castle, er í eigu Breta en gert út af ítölsku flutningafyrirtæki. 7.4.2009 07:18
Sterkur jarðskjálfti undan strönd Rússlands Jarðskjálfti að styrkleika sjö stig á Richter varð um 300 kílómetra frá Kuril-eyjum, undan Kyrrahafsströnd Rússlands, klukkan tæplega hálffimm í morgun. 7.4.2009 07:16
Fórnarlömb skjálftans á Ítalíu tæplega 180 Nú er ljóst að um 180 manns hafa týnt lífi í jarðskjálftanum á Ítalíu í fyrrinótt. Björgunarmenn halda áfram leit í rústum og eru þúsundir þeirra við störf á hamfarasvæðinu þar sem rigning og kuldi hamla aðgerðum þó að einhverju leyti. 7.4.2009 07:07
Allir vilja hjálpa „Ég heyri í þyrlunum, björgunarsveitir héðan eru að leggja af stað til að hjálpa til á jarðskjálftasvæðinu,“ segir Fífa Larsen í samtali við Fréttablaðið. Fífa, sem búsett er í héraðinu Friuli í norðausturhluta Ítalíu, segir fólk ekki tala um annað en jarðskjálftann og fylgjast grannt með tíðindum. „Hér í Friuli vilja allir hjálpa til því fólki er enn í fersku minni hjálpsemi fólks eftir mjög harðan og mannskæðan jarðskjálfta sem hér varð á áttunda áratugnum.“ 7.4.2009 04:30
Kommúnistar sigruðu Kommúnistaflokkurinn í Moldóvu, sem heldur þar um stjórntaumana, fór með sigur af hólmi í þingkosningum sem fram fóru í landinu á sunnudag, samkvæmt opinberum úrslitum sem tilkynnt voru í gær. 7.4.2009 02:30
Kærður fyrir að vara við jarðskjálftanum á Ítalíu Ítalskur jarðvísindamaður sem varaði við jarðskjálftanum sem þar varð í nótt var kærður til lögreglunnar fyrir hræðsluáróður og skipað að taka viðvaranir sínar af YouTube. 6.4.2009 13:52
Sómalskir sjóræningjar halda áfram að ræna Sómalskir sjóræningjar rændu í dag þrjátíu og tvöþúsund tonna flutningaskipi undan ströndum landsins. Skipið er skráð í Bretlandi en rekið af ítölsku skipafélagi. Áhöfnin mun vera af blönduðu þjóðerni en ekki er vitað hversu fjölmenn hún er. 6.4.2009 12:25
50 látnir eftir jarðskjálftann á Ítalíu Að minnsta kosti fimmtíu manns létu lífið í jarðskjálfanum sem reið yfir mið Ítalíu í nótt. Hundruð bygginga hrundu til grunna. Björgunarsveitir eru nú að leita í rústum hundruða húsa og er búist við að tala látinna eigi eftir að hækka, jafnvel verulega. 6.4.2009 12:20
Anders Fogh baðst ekki afsökunar Anders Fogh Rassmussen verðandi framkvæmdastjóri NATO sagði í ræðu í dag að hann myndi einbeita sér að því að bæta samskipti NATO við Múslima. 6.4.2009 09:19
Ók á vegg eftir langa eftirför Grunaður ræningi endaði flótta sinn undan lögreglu á Fjóni í Danmörku með því að aka á vegg. Lögregla sá fyrst til mannsins þar sem hann ók með 150 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi skammt frá Óðinsvéum. 6.4.2009 08:41
Myndi ekki þekkja í sundur bin Laden og Winonu Ryder Sýnt hefur verið fram á að kennslabúnaður á breskum flugvöllum þekki ekki í sundur Osama bin Laden og Winonu Ryder. 6.4.2009 08:15
Bletturinn á Júpíter fer minnkandi Rauði bletturinn á plánetunni Júpíter hefur minnkað um allt að 15 prósent á nokkrum árum. 6.4.2009 08:10