Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar aldrei verið eldri Í fyrsta sinn í sögunni eru ellilífeyrisþegar í Bretlandi fleiri en börn undir sextán ára aldri. Þetta kemur fram í tölum bresku hagstofunnar sem birtar voru í gær. Þær sýna glögglega að Breska þjóðin er að eldast enda hefur bætt heilbrigðiskerfi og betri lífsskilyrði almennt gert það að verkum að fólk lifir lengur en áður. 22.8.2008 08:47
Pattstaða í öryggisráðinu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til átakanna í Georgíu. Bandaríkjamenn hafa lýst því yfir að þeir séu tilbúnir til að beita neitunarvaldi sínu á tillögu í málinu sem Rússar hafa lagt fram en þar er gert ráð fyrir vopnahléssamningi í sex liðum. Rússar, sem einnig hafa neitunarvald í ráðinu, hafa á hinn bóginn lýst því yfir að þeir muni koma í veg fyrir að ályktun sem samin var af Frökkum nái fram að ganga en í henni er gert ráð fyrir að Rússar hörfi með öllu út af Georgísku landsvæði. 22.8.2008 08:29
DNA rannsóknir þarf til að bera kennsl á fórnarlömbin Grípa þarf til DNA rannsókna til þess að bera kennsl á stóran hluta þeirra sem fórust með þotu Spanair á Madrídarflugvelli á miðvikudaginn var, að sögn spænskra stjórnvalda. 153 létust í slysinu sem er það mannskæðasta á Spáni í 25 ár. 22.8.2008 07:52
Styttist í að Obama tilkynni um varaforsetaefni Áhugamenn um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum halda nú niðri í sér andanum og bíða eftir næstu stórfrétt: hver verður varaforsetaefni Baracks Obama frambjóðanda Demókrataflokksins. 21.8.2008 20:00
Vöruðu Georgíumenn við að ráðast inn í S-Ossetíu Bandaríkjastjórn varaði Georgíumenn við því að ráðast inn í Suður-Ossetíu kvöldið áður en georgískir hermenn fóru þar inn, að sögn sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO. 21.8.2008 19:00
Stutt í samninga um hermenn í Írak Utanríkisráðherra Írak, Hoshyar Zebari segir að Írakar og Bandaríkjamenn séu mjög nálægt þvi að ná samningum um framtíð hersveita Bandaríkjamanna í Írak. 21.8.2008 16:01
Sonur Gaddafi hættir stjórnmálaþátttöku Sayf al-Islam Gaddafi, sonur leiðtoga Líbýu, Muammar Gaddafi, hefur tilkynnt að hann muni ekki hafa frekari afskipti af stjórnmálum í landinu. 21.8.2008 15:40
Kínverjar slökkva á iTunes Talið er að Kínverjar hafi lokað fyrir möguleika á að hala niður tónlist í iPod. Það mun vera vegna mótmælasöngva vegna Tíbets sem hægt er að nálgast á iTunes. 21.8.2008 15:37
Bandarískar telpur bakvið víglínu Rússa Tvær bandarískar telpur sem urðu strandaglópar á bakvið rússnesku víglínuna í Georgíu eru aftur komnar til foreldra sinna. Sendiherra Frakklands í Georgíu fór og sótti þær á bíl sínum. 21.8.2008 15:06
Þriggja daga þjóðarsorg á Spáni Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni eftir að flugvél spænska flugfélagsins Spanair fórst skömmu eftir flugtak frá Baraja-flugvelli í gær. 21.8.2008 15:03
Í aðgerð eftir árás rottweiler-hunda Fimm ára dönsk stúlka, sem tveir rottweiler-hundar réðust á í síðustu viku, gengst nú undir aðgerð á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn vegna áverka sinna. 21.8.2008 14:10
Sri Lanka herjar þungt á Tamíla Orrustuþyrlur hersins á Sri Lanka létu eldflaugum og sprengjum rigna yfir vígstöðvar Tamíl tígra í dag. Hermenn felldu 33 skæruliða í bardögum á jörðu niðri, að sögn hernaðaryfirvalda. 21.8.2008 14:08
Mótmælendur krefjast sjálfstæðis S-Ossetíu og Abkazíu Mótmælafundir hafa verið í Suður-Ossetíu og Abkazíu þar sem aðskilnaðarsinnar heimta sjálfstæði héraðanna frá Georgíu. Leiðtogar aðskilnaðarsinna í báðum héruðum skoruðu á Rússa að viðurkenna sjálfstæði þeirra á fjöldasamkomunum. 21.8.2008 14:02
Sýrlendingar styðja Rússa í Georgíu Forseti Sýrlands sagðist styðja hernaðaraðgerðir Rússa gegn Georgíu, á fundi með fréttamönnum í dag. 21.8.2008 13:06
Sakar Kínverja um fjöldamorð síðastliðinn mánudag Dalai Lama andlegur leiðtogi Tíbeta hefur sakað Kínverja um að hafa skotið 140 mótmælendur til bana í Austur-Tíbet síðastliðinn mánudag. 21.8.2008 11:03
Bandaríkjamenn endurvopna her Georgíu Bandaríkin gera því skóna að þau muni hjálpa Georgíu að endurskipuleggja og endurreisa her sinn eftir bardagana við Rússa í síðustu viku. Bandaríski hershöfðinginn John Craddock er nú í heimsókn í Georgíu. 21.8.2008 10:41
Hátt í 60 látnir eftir mannskæða sjálfsvígsárás í Pakistan Að minnsta kosti 57 manns eru látnir eftir tvær sjálfsmorðsárásir við vopnaverksmiðju í pakistönsku borginni Wah. Árásin átti sér stað er verkamenn voru á leið í og úr vinnu eftir vaktaskipti. Talið er að tala látinna eigi enn eftir að hækka töluvert. 21.8.2008 10:38
Átta ára hryðjuverkamaður Meðal öryggisráðstafana sem bandarísk stjórnvöld hafa gert eftir 9/11 árásirnar er að búa til lista yfir grunaða hryðjuverkamenn. Sá listi er hinn undarlegasti. 21.8.2008 10:22
Sómalskir sjóræningjar láta til sín taka Sómalískir sjóræningjar sölsuðu í morgun undir sig tvö skip undan ströndum landsins í morgun. 21.8.2008 10:05
Uppgötvaði útdauða flugu á ebay Skordýrafræðingurinn Richard Harrington datt í lukkupottinn á dögunum þegar hann keypti steingerfða flugu hjúpaða rafi á uppboðsvefnum ebay. Harrington keypti steingerfinginn á tuttugu dollara, eða sextán hundruð krónur íslenskar, af manni í Litháen. 21.8.2008 08:44
Rússar semja sjálfir ályktun fyrir Öryggisráðið Rússar hafa lagt drög að ályktun fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem tekur á ófriðnum á milli þeirra og Georgíumanna sem staðið hefur undanfarna daga. Í gær höfnuðu Rússar ályktun sem Frakkar lögðu fram í ráðinu en í henni var krafist að Rússar hyrfu tafarlaust frá Georgíu. 21.8.2008 08:36
Líklega tilkynnt um varaforseta Obama fyrir helgi Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum leiða að því líkum að Barack Obama forsetaframbjóðandi muni tilkynna um varaforsetaefni sitt fyrir helgi. Talið er að Obama vilji vera búinn að ljúka því máli áður en demókratar hittast á landsfundi sínum í Colorado á Mánudag. 21.8.2008 08:34
Enn falla hermenn NATO í Afganistan Þrír NATO hermenn létust í bardögum í Afganistan í nótt, aðeins nokkrum dögum eftir að tíu franskir hermenn voru felldir í landinu. Hermennirnir féllu í Ghazni héraði sem pólski herinn fer með forræði yfir, en ekki hefur verið staðfest hverrar þjóðar þeir voru. 21.8.2008 08:32
Rice heimsækir Bagdad Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna heimsótti Írak öllum að óvörum í morgun. Íraskir fjölmiðlar greina frá því að Rice hafi lent á flugvellinum í Bagdad í morgun en heimsókn hennar hafði ekki verið boðuð. 21.8.2008 08:24
Orsaka flugslyssins leitað Sérfræðingar í flugslysum rannsaka nú flak flugvélarinnar sem fórst á flugvellinum í Madrid í gær með þeim afleiðingum að 153 létu lífið. Rannsóknarmennirnir munu leita að vísbendingum um orsök slyssins í flakinu auk þess sem flugritar verða skoðaðir en þeir fundust í nótt. 21.8.2008 07:03
Staðfest að 153 létust í Madríd Yfirvöld á Spáni hafa staðfest að 153 létu lífið og 19 slösuðust þegar flugvél spænska flugfélagsins Spanair fórst á Madrídarflugvelli í morgun. 20.8.2008 22:28
Ekki vitað af Íslendingum um borð í spænsku vélinni Ekki hafa borist fregnir af því að Íslendingur hafi verið um borð í flugvél Spainair sem brotlenti á Madrídarflugvelli í dag. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingarfulltrúi utanríkisráðuneytisins. 20.8.2008 16:23
Óljóst hversu margir eru látnir eftir flugslys Tölur um fjölda látinna í flugslysinu á Madrídarflugvelli fyrr í dag eru mjög á reiki. 20.8.2008 15:26
Flóð neyða þúsundir manna að flýja heimili sín Flóð í Indlandi og Nepal hafa neytt um 50 þúsund manns að flýja heimili sín nú þegar mesta monsún-rigningin stendur yfir. Hafa flóðin sökkt yfir 100 þorpum í Assam héraðinu, eyðilagt heimili og uppskerulönd og neytt þúsundir að flýja á hærri grundu. 20.8.2008 15:16
Flugslys á Madrídarflugvelli Óttast er að sjö hið minnsta hafi látist og fjöldi manna slasast þegar flugvél í eigu spænska flugfélagsins Spanair fór út af flugbraut í flugtaki frá Madrídarflugvelli fyrr í dag. 20.8.2008 14:05
Friður í Kenía ræðst af því hvort tekið verður á spillingu Friður í Kenía ræðst af því hvort ríkisstjórnin þar er reiðubúin að takast á við spillinguna sem samfélagið er gegnsýrt af. Þetta segir fyrrum yfirmaður sérstakrar spillingarnefndar í Kenía sem flýði land fyrir þremur árum eftir að hafa birt upplýsingar sem sýndu fram á spillingu á æðstu stöðum. 20.8.2008 13:44
Líkamleg refsing algeng í bandarískum skólum Meira en 200 þúsund börnum var refsað með líkamlegri refsingu í skólum í Bandaríkjunum á seinasta ári. Í Suður-Bandaríkjunum eru fleiri svörtum börnum refsað en hvítum börnum samkvæmt rannsóknum tvennra hjálparsamtaka. 20.8.2008 12:48
Farartæki rússneska hersins hefja brottflutning frá Georgíu Rússnesk herfarartæki sáust yfirgefa Georgíu í morgun. Blaðamaður Reuters segist hafa séð tylft herflutningsbíla keyra yfir til Rússlands og að í fjarlægð sjáist önnur faratæki nálgast landamærin. Ekkert sást þó til vopnaðra farartækja og þótti flotinn sem var á leið úr landi ekki mjög ógnvænlegur. 20.8.2008 12:09
McCain 5 prósentum yfir Obama í nýrri skoðanakönnun John McCain, forsetaframbjóðandi Repúblikana hefur 5 prósenta forskot á Barack Obama, forsetaframbjóðenda Demókrata í nýrri Reuters/Zogby skoðanakönnun sem birt var í dag. Þykir hann hafa sterkari sýn á efnahagsmál en Obama. 20.8.2008 11:23
Á móti því að þingið komi saman í Simbabve Stjórnarandstöðuflokkurinn MDC í Simbabve hefur lýst yfir andstöðu sinni gegn þeim ráðagerðum ríkisstjórnar Roberts Mugabe forseta landsins að kalla þingið saman. 20.8.2008 10:42
Rússi grunaður um njósnir fyrir Georgíumenn Rússneska leyniþjónustan hefur handtekið yfirmann í hernum og sakar hann um að hafa njósnað fyrir Georgíumenn. 20.8.2008 09:49
Enn sprengt í Alsír Ellefu létust í tveimur sprengingum í Alsír í morgun. Árásirnar koma aðeins sólarhring eftir að fjörutíu og þrír létust í sprengjuárás sem gerð var á herskóla í landinu. Auk þeirra sem létust í morgun eru að minnsta kosti þrjátíu slasaðir. Ekki liggur fyrir hverjir stóðu að baki árásunum. 20.8.2008 08:40
Sarkozy stappar stálinu í hermenn í Afganistan Forseti Frakklands er nú staddur í Afganistan til þess að veita frönskum hermönnum stuðning í baráttu sinni við Talíbana í landinu. Í gær féllu tíu frakkar og tuttugu slösuðust í hörðum bardaga sem stóð í heilan sólarhring. 20.8.2008 07:14
Glitter vill ekki til Englands Breski rokkarinn Gary Glitter er nú aftur í haldi lögrelgunnar á Tælandi en honum var sleppt úr fangelsi í gær. Glitter var dæmdur í fangelsi í landinu árið 2006 fyrir barnaníð. 20.8.2008 07:11
Rændu tankskipi í Aden flóa Tankskipi frá Malasíu var rænt í nótt í Aden flóa. þrjátíu og níu manns eru í áhöfn skipsins sem var að flytja pálmaolíu frá Súmötru til Rotterdam í Hollandi. Ekki er vitað um afdrif skipverjanna að svo stöddu né hverjir stóðu að baki ráninu. 20.8.2008 07:08
Karadzic vill nýjan dómara Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtogi Bosníu Serba, hefur farið fram á að skipt verði um dómara í réttarhöldunum sem nú standa yfir honum í Hag. 20.8.2008 07:02
Rússar styðja ekki tillögu Frakka Vitaly Churkin, sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum, segir að Rússar geti ekki samþykkt drög að tillögu Frakka sem lögð hefur verið fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Drögin gera ráð fyrir því að rússneski herinn hverfi frá Georgíu án tafar. 19.8.2008 22:16
Google fjárfestir í nýrri tegund jarðvarma Hugbúnaðarrisinn Google hyggst fjárfesta meira en tíu milljónum dollara í jarvarma með það fyrir augum að minnka framleiðslukostnað við endurnýjanlega orkugjafa. Google.org, sá hluti hugbúnaðarrisans sem berst gegn loftslagsbreytingum, fátækt og sjúkdómum, sagði að fénu yrði varið í rannsóknir á nýrri tegund jarðvarma, svonefndu EGS. 19.8.2008 17:07
Dregur úr styrk Fay Hitabeltisstormurinn Fay gekk á land í Flórída í dag en olli litlu tjóni þar sem hann náði ekki styrk fellibyls. 19.8.2008 16:48
Gervihnöttur írana fór aldrei á loft Tilraun Írana um helgina til að skjóta á loft gervihnetti misheppnaðist algjörlega og stóðst engan veginn væntingar. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir opinberum bandarískum starfsmönnum, sem ekki vilja láta nafns síns getið. Heimildamaðurinn segir að skömmu eftir flugtak hafi hnötturinn hrapað, og því aldrei komist á sporbaug um jörðu. 19.8.2008 16:02