Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Chavez hótar Globovision Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótaði í gær að loka annarri sjónvarpsstöð sem gagnrýnt hefur störf hans. Fjórða daginn í röð kom til átaka á milli lögreglu og fólks sem mótmælti lokun RCTV-sjónvarpsstöðvarinnar í síðustu viku. 30.5.2007 19:15
Páfinn bað fyrir Madeleine 27 dagar eru liðnir síðan bresku telpunni Madeleine McCann var rænt af hótelherbergi í Portúgal og enn hefur ekkert til hennar spurst. Foreldrar Madeleine hittu Benedikt páfa sextánda í Róm í dag. Hann blessaði mynd af dóttur þeirra og bað fyrir fjölskyldu 30.5.2007 18:58
Fyrrverandi forsætisráðherra Tælands bannað að taka þátt í stjórnmálum Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra í Tælandi fær ekki að taka þátt í stjórnmálum landsins næstu fimm árin. 110 aðrir háttsettir menn úr sama flokki fengu sama dóm nú fyrir stundu. 30.5.2007 18:24
Putin sýnir klærnar Rússneski ríkissaksóknarinn hefur sent helsta stjórnarandstöðuflokki landsins opinbera viðvörun vegna þess sem kallað er öfga-aðgerðir. Þessar öfga-aðgerðir felast í því að Yablonko flokkurinn hjálpaði þekktum pólitískum fréttaskýranda að gefa út bók þar sem Vladimir Putin forseti er harðlega gagnrýndur. 30.5.2007 16:51
Þið munið gleyma 11. september Bandarískur talsmaður al-Kæda hefur hótað Bandaríkjunum verri árás en gerð var 9/11, ef Bush forseti kalli ekki bandarískar hersveitir heim frá öllum ríkjum múslima. Adam Gadahn hefur komið fram á mörgum myndböndum sem talin eru komin frá al-Kæda síðan árið 2005. Hann er Bandaríkjamaður af Gyðingaættum sem snerist til múslimatrúar. Hann hefur þegar verið ákærður fyrir föðurlandssvik og fer huldu höfði. 30.5.2007 16:21
Vilja taka barnaníðinga af lífi Þeirri hugmynd að taka barnaníðinga af lífi jafnvel þótt þeir myrði ekki fórnarlömb sín vex fylgi í Bandaríkjunum. Hæstiréttur í Lousianaríki staðfesti í síðustu viku slíkan dauðadóm. Fimm ríki Bandaríkjanna hafa þegar sett lög sem geta leitt til dauðadóms yfir mönnum 30.5.2007 15:34
Vegabréf Eichmanns fundið Falsað vegabréf sem nazistaforinginn Adolf Eichmann notaði til þess að flýja til Argentínu hefur fundist í Buenos Aires. Eichmann hafði yfirumsjón með helförinni gegn Gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni. Hann lagði meðal annars til breytingar á gasklefunum til þess að þar væri hægt að myrða fleira fólk á skemmri tíma. 30.5.2007 14:05
Pyntingahandbók al-Kæda Hryðjuverkasamtökin al-Kæda nota meðal annars logsuðutæki, straujárn, rafmagnsbora og kjötkróka við að pynta fanga sína. Bandarískir hermenn fundu fyrir nokkru handbók al-Kæda um pyntingar. Handbókin er með teiknuðum skýringarmyndum. Bókin fannst þegar hermennirnir réðust inn í hús í Bagdad til þess að frelsa fimm Íraka sem þar voru í haldi. Þeir höfðu allir verið pyntaðir. 30.5.2007 13:06
Chavez hótar að loka annarri sjónvarpsstöð Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótaði í gær að loka annarri sjónvarpsstöð í landinu sem hefur gagnrýnt stjórn hans. Í síðustu viku fékk stór sjónvarpsstöð í höfuðborginni Caracas leyfi sitt ekki endurnýjað þar sem Chavez sagði stjórnendur hennar hafa á sínum tíma tekið þátt í valdaránstilraun gegn sér. 30.5.2007 13:00
Telur Mahdi-sveitir hafa rænt Bretum í Bagdad Enn hefur ekkert spurst til fimm Breta sem rænt var í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Hoshyar Zebari, utanríkisráðherra landsins, sagði í morgun líklegra að liðsmenn Mahdi-herdeildanna, sem tengjast sjíaklerknum Muqtada al-Sadr, hefðu staðið á bak við ránið. 30.5.2007 12:30
Blair styður hertar refsiaðgerðir gegn Súdan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í morgun yfir fullum stuðningi við hertum refsiaðgerðum Bandaríkjastjórnar gegn súdönsku ríkisstjórninni vegna ástandsins í Darfur-héraði. 30.5.2007 12:15
Ákæra ellefu stríðsmenn fyrir hryðjuverk í Nahr el-Bared Líbönsk stjórnvöld gáfu í dag út ákæru á hendur ellefu félögum í samtökunum Fatah al-Islam fyrir hryðjuverkastarfsemi en samtökin hafa tekist á við líbanska herinn í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Trípóli. Átök héldu áfram í búðunum í nótt. 30.5.2007 11:15
Yoko Ono hámaði í sig hund Yoko Ono hámaði í gær í sig hund, ásamt þekktum breskum listamanni. Þetta fór fram í beinni útsendingu á útvarpsþætti. Og það var enginn venjulegur hundur sem þau átu heldur eðalhundur af Corgi kyni, en það er uppáhalds hundakyn Elísabetar drottningar. Yoko Ono og Mark McGowan voru að mótmæla því að Filipus prins eiginmaður drottningarinnar skaut ref fyrr á þessu ári. 30.5.2007 10:58
Demókrataflokkur Taílands sýknaður af ákæru um kosningasvik Stjórnarskrárdómstóll í Taílandi sýknaði í morgun Demókrataflokk landsins af ákæru um að hafa haft rangt við í kosningum í apríl 2006. Hefði dómstóllinn sakfellt flokkinn hefði hann hugsanlega verið útilokaður frá stjórnmálum og sömuleiðis fjöldi flokksmanna. 30.5.2007 10:45
Peres tilkynnir formlega um framboð sitt Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í morgun formlega að hann hygðist bjóða sig fram til forseta landsins. Það er Knesset, ísraelska þingið, sem velur nýjan forseta í stað Moshes Katsavs þann 13. júní næstkomandi. 30.5.2007 10:12
Bandarískur íslamisti hótar árásum sem skyggja myndu á 11. september Bandaríkin mega búast við árásum mannskæðari en þeim sem áttu sér stað 11. september 2001 verði ekki gengið að kröfum al Qaeda. Þetta segir bandarískur íslamisti í myndbandi sem sett var á Netið í dag. 29.5.2007 23:22
Foreldrar Madeleine fá áheyrn Páfa á morgun Foreldrar Madeleine McCann sem rænt var í Portúgal í byrjun mánaðarins héldu í dag til Rómar en þau munu hitta Benedikt Páfa á morgun. Þau Gerry og Kate McCann flugu frá Faro í Portúgal í einkaþotu sem enski milljónamæringurinn Sir Philip Green lánaði þeim. 29.5.2007 22:42
Zoellick verður næsti forseti Alþjóðabankans George Bush, forseti Bandaríkjanna hefur skipað nýjan forseta Alþjóðabankans en núverandi forseti, Paul Wolfowits lætur af embætti í lok júní í skugga hneykslismáls. Robert Zoellick mun taka við að Wolfowitz. 29.5.2007 21:47
Chavez á enn í stríði við sjónvarpsstöðvar Ríkisstjórn Venesúela hefur ásakað þarlenda sjónvarpsstöð um að hvetja til þess að forseti landsins Hugo Chavez verði myrtur. Ásökunin kemur strax í kjölfar þess að stjórnin lét loka annari sjónvarpsstöð í landinu en sú ákvörðun olli uppþotum í höfuðborginni Caracas og víðar. 29.5.2007 20:45
Leitað að fólki sem gæti hafa smitast af illvígum berklum Bandarísk heilbrigðisyfirvöld leita nú logandi ljósi að fóli sem kann að hafa smitast af ólæknandi berklum um borð í tveimur flugvélum fyrr í mánuðinum. Þessi tiltekna tegund berkla er ónæm fyrir hefðbundnum berklalyfjum. Bandarískur ríkisborgari sem var um borð í báðum flugvélunum hefur verið greindur með berkla af þessari tegund og er nú leitað að fleirum sem kunna að hafa smitast. 29.5.2007 20:17
Keppt um nýra í beinni Þátttakendur í hollenskum raunveruleikaþætti munu keppa um nýra úr dauðvona konu næstkomandi föstudag. Stjórnvöld hafa biðlað til sjónvarpsstöðvarinnar um að hætta við sýningu þáttarins, en aðstandendur þáttarins segja umræðuna varpa ljósi á erfiða stöðu líffæraþega. 29.5.2007 19:23
Sjö dæmdir til dauða fyrir alsæluframleiðslu Frakki, Hollendingur og fimm Kínverjar hafa verið dæmdir til dauða í Indónesíu fyrir að framleiða fíkniefnið ecstasy eða alsælu. Hæstiréttur landsins tók til þess að mennirnir hefðu í verksmiðju sinni framleitt fleiri milljónir taflna. 29.5.2007 17:51
Fimmtán ára drengur gripinn með hníf í sænska þinghúsinu Fimmtán ára piltur var í dag gripinn með hníf í sænska þinghúsinu í Stokkhólmi. Hann var þar á ferð með bekknum sínum og hugðist fá sér sæti á áhorfendapöllum í þinghúsinu þegar málmleitartæki, sem fólk þarf að fara í gegnum, pípti á hann. 29.5.2007 16:48
Stöðumælasektir fyrir reiðhjól Bæjarstjórinn í Fredriksberg í Danmörku vill að bæjarbúar læri að leggja hjólunum sínum almennilega. Annars verða þeir sektaðir. Mads Lebech segir að bæjarfélagið hafi í mörg ár haft starfsmanna á sínum vegum sem fari um og lagi til hjól sem fólk hefur lagt asnalega frá sér. Jafnvel það hafi ekki dugað og bæjarbúar séu orðnir þreyttir á slóðaskapnum. 29.5.2007 16:43
130 japanar í sóttkví í Kanada Um 130 japanskir ferðamenn hafa verið settir í sóttkví í fjallahóteli í Banff í Kanada, af ótta við að þeir séu smitaðir af mislingum. Japanarnir eru flestir skólabörn. Kona í hópnum var veik við komuna til Kanada síðastliðinn fimmtudag. 29.5.2007 16:33
Lög um reykingabann á opinberum stöðum samþykkt í Danmörku Á sama tíma og Íslendingar búa sig undir reykleysi á veitingahúsum og krám á föstudaginn kemur hafa Danir samþykkt lög sama efnis. Það var gert á danska þjóðþinginu í dag með tilstyrk allra flokka nema flokks róttæklinga. 29.5.2007 15:45
Herskáir Palestínumenn farast í sprengingu Þrír íslamskir uppreisnarmenn úr samtökunum Heilagt stríð létu lífið í sprengingu á Gasaströndinni í dag. Haft er eftir heimildarmönnum innan palestínsku öryggissveitanna að svo virðist sem mennirnir hafi verið að búa til sprengju en að sprengiefnið að hafi sprungið í höndunum á þeim. 29.5.2007 15:15
Líklegt að Bush tilkynni um eftirmann Wolfowitz í vikunni Talsmaður Hvíta hússins segir líklegt að George Bush Bandaríkjaforseti greini frá því í vikunni hvern hann hyggist tilnefna í embætti forstjóra Alþjóðabankans í stað Pauls Wolfowitz. 29.5.2007 14:32
Vill einhver karrí ? Flugfreyja hjá British Airways var orðin hundleið á flugvélamat og því keypti hún tilbúinn karrí rétt til þess að hafa með sér í flug. Hún hugðist nota örbylgjuofn flugvélarinnar til þess að hita réttinn. Hún virðist ekki hafa vitað að örbylgjuofnar í flugvélum eru rúmlega helmingi öflugri en örbylgjuofnar sem eru notaðir á jörðu niðri. Það þarf því að pakka flugvélamat í sérstakar umbúðir til þess að þær þoli geislunina. 29.5.2007 14:13
Vísindahvalveiðar lítillækka Japani Ástralir segja hvalveiðar Japana í vísindaskyni gera lítið úr vísindum. Á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Alaska, sem hófst í gær, sögðu þeir að Japanir notuðu útskýringuna einungis til að komast hjá hvalveiðibanninu. Veiðarnar lítillækki bæði Japani og Hvalveiðiráðið. 29.5.2007 12:05
Fyrirlesurum rænt í Bagdad Byssumenn í lögreglubúningum rændu að minnsta kosti þrem erlendum fyrirlesurum og lífvörðum þeirra í Bagdad í morgun. Vitni sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði að mönnunum hafi verið rænt í fjármálaráðuneytinu í hjarta höfuðborgarinnar. Talið er að þeir séu bandarískir sérfræðingar sem hafa verið að kenna starfsfólki ráðuneytisins hvernig á að gera rafræna samninga. 29.5.2007 10:34
Skutu Hamas liða Ísraelskir hermenn fóru í morgun inn á Gaza ströndina og drápu þar tvo Hamas liða sem voru að skjóta eldflaugum á Ísrael. Hamas hafa staðfest að mennirnir hafi verið skotnir en segjast munu halda áfram árásum sínum á Ísrael. 29.5.2007 10:16
Forseti Kazakhstan vill láta handtaka tengdason sinn Hópur lögfræðinga frá Kazakhstan er nú í Vínarborg þar sem þeir reyna fyrir hönd stjórnvalda að fá tengdason forseta landsins handtekinn. Tengdasonurinn var sendiherra Kazakhstan í Austurríki þangað til á laugardaginn þegar hann var rekinn af forsetanum. Handtökubeiðnin virðist vera liður í harðvítugri fjölskyldudeilu. 28.5.2007 20:34
Slóst við hlébarða í rúminu Ísraelskur maður vaknaði upp við það í nótt að hlébarði stökk inn um gluggann á heimili hans og upp í rúm þar sem maðurinn svaf ásamt ungri dóttur og heimiliskettinum. Hann stökk strax á hlébarðann, hafði hann undir og hélt honum í tuttugu mínútur uns hjálp barst. 28.5.2007 20:06
Hitað upp fyrir G8 Lögreglan í Hamborg í Þýskalandi tók hart á mótmælendum í borginni í dag en þangað söfnuðust þúsundir andstæðinga alþjóðavæðingar vegna fundar ASEM, sem eru samtök Evrópu- og Asíulanda. 28.5.2007 19:26
Fordæma myndbirtingu frá banaslysi Díönu Háværar raddir heyrast nú í Bretlandi um að þarlend sjónvarpsstöð hætti við að sýna heimildarmynd um dauða Díönu prinsessu. Í myndinni verða sýndar áður óbirtar ljósmyndir af vettvangi þar sem prinsessan lést. Sjónvarpsstöðin Channel 4 áformar að sýna heimildarmyndina 6. júní næstkomandi. Stöðin hefur legið undir ámæli fyrir að ganga ansi langt í myndbirtingum og framsetningu í ýmsum þáttum. 28.5.2007 19:06
Spænska lögreglan gerir hryðjuverkaáhlaup Fimmtán manns sem grunaðir eru um að vera nýliðar í íslömskum baráttusamtökun voru handteknir í röð áhlaupa Spænsku lögreglunnar í dag. Um 100 manns hafa verið handteknir á Spáni vegna gruns um tengsl við hryðjuverk frá árinu 2004 þegar mannskæðar sprengjuárásir voru gerðar í fjórum lestum í Madrid. 28.5.2007 18:57
SAS aflýsir flugi á morgun Skandinavíska flugfélagið SAS hefur aflýst flugi til og frá Svíþjóð á morgun. Það er fimmti dagurinn í röð sem verkfall sænskra flugliða lamar rekstur félagsins. Verkfallið hófst á föstudag. SAS hætti þá við flest flug til og frá Svíðþjóð vegna deilunnar um vinnuaðstæður flugliðanna. Samningaumleitanir stóðu fram á nótt og báru ekki árangur. 28.5.2007 18:48
Fyrsti fundur Írana og Bandaríkjamanna í 30 ár Íranar og Bandaríkjamenn héldu í morgun fyrsta fund sinn í þrjá áratugi. Öryggismál í Írak voru eina umræðuefni fundarins og ekki var minnst á kjarnorkuáætlun Írana. Bandaríkjamenn vöruðu Írana við að styðja við herskáa öfgahópa í Írak. Erindrekar ríkjanna í Írak, Bandaríkjamaðurinn Ryan Crocker og Íraninn Hassan Kazemi Qomi hittust í Baghdad í morgun. 28.5.2007 18:35
Crocker hljóp Reykjavíkurmaraþon Sendiherra Bandaríkjamanna í Írak, sem er í sviðsljósinu þessa dagana vegna fundar hans við kollega sinn í Íran, telst til Íslandsvina. Ryan Crocker hljóp nefnilega Reykjavíkurmaraþon fyrir 23 árum síðan. 28.5.2007 14:50
Hamleys opnar búð á Indlandi Þekktasta leikfangaverlsun í heimi, Hamleys í London sem er í eigu Baugs, mun væntanlega opna útibú innan tíðar í Nýju Delhi á Indlandi. Það yrði í fyrsta skipti sem Hamleys verður annars staðar en á Regent street í London, ef undan eru skilin útibú verslunarinnar í Magasin í Danmörku. Samningaviðræður við þarlenda aðila eru sagðar ganga vel og búðin gæti opnað strax á næsta ári. 28.5.2007 13:41
Heimildamynd um dauða Díönu prinsessu veldur deilum Breska sjónvarpsstöðin Channel 4 ætlar ekki að hætta við sýningu á umdeildri heimildamynd um dauða Díönu prinsessu þrátt fyrir hávær mótmæli. Í myndinni eru sýndar ljósmyndir af vettvangi sem þykja óhugnanlegar. 28.5.2007 12:34
21 látinn í sprengingu í Baghdad Að minnsta kosti 21 dó og 66 særðust þegar bílsprengja sprakk í miðborg Baghdad í morgun. Sprengingin heyrðist um alla miðborgina og eldur kom upp í að minnsta kosti 10 bílum í grendinni. 28.5.2007 11:59
Jákvæðar viðræður í Baghdad Sendiherra Bandaríkjanna í Írak, Ryan Crocker segir að viðræður hans við sendiherra Írana í landinu hafi gengið vel og verið jákvæðar. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn hyggist bíða átekta og sjá til hverskonar aðgerða verði gripið af hálfu Írana, en Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt Íran fyrir að styðja við bakið á uppreisnarmönnum í Írak. 28.5.2007 11:48
Allt strand hjá SAS Engin lausn virðist í sjónmáli í deilu skandinavíska flugfélagsins SAS og flugliða þess í Svíþjóð. Samningafundur deiluaðila stóð yfir fram á nótt en bar ekki árangur. Verkfallið heldur því áfram í dag, en fulltrúar flugliða munu funda með baklöndum sínum og ákveða með framhald aðgerðanna. 28.5.2007 10:57