Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðist að samkynhneigðum Rússneska lögreglan handtók í dag hóp fólks sem barðist fyrir réttindum samkynhneigðra í landinu. Áður höfðu öfgamenn ráðist að þeim með barsmíðum, en enginn þeirra var tekinn höndum. 27.5.2007 19:00
Ellefu ára strákur felldi ófreskju í Alabama Ellefur ára strákur frá Alabama gæti hafa drepið heimsins stærsta villisvín í síðasta mánuði ef fréttir af stærð skepnunar reynast réttar. Strákurinn elti svínið í marga tíma með föður sínum og hann fékk heiðurinn af því að veita því náðarskotið. Það var níunda kúlan sem felldi svínið því þeir feðgar höfðu skotið það átta sinnum án þess að fella það. 27.5.2007 17:44
Beið dauðans á Everest fjalli 22 ára gömul fjallgöngukona, Usha Bista, sem bjargað var úr hlíðum Everest fjalls á dögunum, segir að klifurfélagar hennar hafi skilið hana eftir. Það var annar hópur klifurgarpa sem gekk fram á stúlkuna sem lá meðvitundarlaus á „dauðasvæðinu“ svokallaða á Everest. 27.5.2007 17:25
Ofbeldi í Moskvu Rússneska lögreglan handtók í dag samkynhneigða mótmælendur sem kröfðust þess að fá að halda Gay Pride hátíð á götum Moskvuborgar. Mótmælendurnir sættu miklu harðræði frá öfgafullum þjóðernissinumm sem börðu fólkið og hreyttu í það ókvæðisorðum. 27.5.2007 16:50
Einn virtasti skrautritari múslíma myrtur Khalil al-Zahawi, einn virtasti skrautritari arabísks leturs í heiminum, var myrtur fyrir utan heimili sitt í Baghdad í gær. Listgreinin er afar hátt skrifuð í Írak jafnt sem í öðrum löndum hins múslímska heims og skrautritarar njóta mikillar virðingar. 27.5.2007 14:50
Fjöldi ábendinga vegna Madeleine Lögreglan í Portúgal segist hafa fengið mikinn fjölda ábendinga í máli Madeleine McCann eftir að ítarlegri lýsing var gefin af manni sem grunaður er í málinu. 24 dagar eru nú liðnir síðan hinni fjögurra ára gömlu telpu var rænt. 27.5.2007 14:10
Hernaðaraðgerðir í Sadr borg Bandarískir og íraskir hermenn gerði í dag árás á Sadr borg, fátækrahverfi í Baghdad, þar sem shía uppreisnarmenn hafa mikil ítök. Hverfið er kennt við múslímaklerkinn shía klerkinn Muqtada al-Sadr sem kom úr felum á föstudaginn var og hvatti shía og súnnía til þess að sameiast gegn innrásarliðinu. 27.5.2007 13:23
Stjórnmálakreppunni afstýrt Vonast er til að stjórnmálakreppan í Úkraínu sé að leysast eftir að Viktor Jústsjenkó, forseti landsins, og Viktor Janukovits, forsætisráðherra, tókst loks að koma sér saman um kjördag fyrir þingkosningarnar í landinu. Ólgan náði hámarki í gær þegar Jústsjenkó lét setja herlið í viðbragðsstöðu. 27.5.2007 13:00
Breskir skólar skiptast eftir kynþáttum Skólar á Englandi eru sífellt að verða einsleitnari þegar kemur að kynþætti. Nýjar tölur frá breskum stjórnvöldum þykja sína fram á þessa þróun en þar kemur fram að mörg sveitarfélög séu að skipuleggja skóla þar sem nemendur eru að miklum meirihluta annað hvort hvítir, svartir eða af asískum uppruna 27.5.2007 11:38
Fréttaritari BBC heill á húfi Alan Johnston, fréttaritari BBC, sem rænt var á Gaza ströndinni 12. mars síðastliðinn, er heill á húfi. Þetta er haft eftir Dr. Ghazi Hamad, háttsettum meðlimi í Hamas. Hamad segist vita hverjir það voru sem stóðu að mannráninu og að hann sé sjálfur að vinna í því að fá hann leystan úr haldi. 27.5.2007 10:56
Mótmælt á götum Caracas Tugþúsundir íbúa Venesúela þustu út á götur höfuðborgarinnar Caracas í gær til að mótmæla lokun sjónvarpsstöðvar sem gagnrýnt hafði ríkisstjórn Hugos Chavez. RCTV-stöðin hafði sent út dagskrá sína í 53 ár en þegar kom að því að endurnýja leyfi hennar á dögunum var því synjað 27.5.2007 10:14
Sakaðir um að senda klasasprengur og taugagas til Líbanon Bandaríkjastjórn hefur undanfarna daga sent talsvert af hergögnum til Líbanon til að aðstoða her landsins við að uppræta hóp herskárra íslamista. Hópurinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fullyrt var að á meðal þeirra vopna sem Bandaríkjamenn hefðu sent væru klasasprengjur og taugagas. 27.5.2007 09:51
Stormur og flóð granda fimm í Texas Fimm létust og tugum manna var bjargað úr flóðum í stormi í Texas í Bandaríkjunum í dag. Frekari veðurham og rigningu er spáð um helgina. Þjóðvarðarlið hefur verið sent til Waco, Austin og San Antonio. Fréttastofa CNN segir að um 100 heimili og fyrirtæki hafi skemmst í veðurhamnum auk þess sem minniháttar meiðsl hafi verið tilkynnt. 26.5.2007 20:45
Simbabve: 200 stjórnarandstæðingar fangelsaðir Lögreglan í Simbabve handtók meira en 200 meðlimi stjórnarandstöðunnar sem funduðu um pólitísk mál í höfuðborginni Harare í dag. Nelson Chamisa talsmaður stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins sagði CNN að lögreglan hefði brotist inn með því að brjóta niður hurðar og hefði síðan tekið fólkið höndum. 26.5.2007 19:51
Herinn settur í viðbragðsstöðu Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, setti hersveitir sínar í viðbragðsstöðu í dag og skipaði þeim að halda til höfuðborgarinnar Kænugarðs. Sáttaumleitanir á milli þeirra Viktors Janukovits forsætisráðherra hafa engan árangur borið. 26.5.2007 19:15
Jabba og Jóda mættu á svæðið Þrjátíu ár eru um þessar myndir frá því að fyrsta Stjörnustríðskvikmyndin var frumsýnd og af því tilefni komu þúsundir aðdáenda myndanna saman í Los Angeles í Bandaríkjunum. Litríkar persónur úr myndunum létu sig ekki vanta á svæðið og geislasverðum var brugðið á loft. 26.5.2007 19:02
Ísraelar vissu að sex daga stríðið var ólöglegt Háttsettur lögfræðingur sem varaði ríkisstjórn Ísraels við því að það væri ólöglegt að byggja gyðingabyggð á hernumdum svæðum Palestínumanna eftir sex daga stríðið árið 1967, hefur nú í fyrsta sinn komið fram og sagt að hann trúi að hann hafi haft rétt fyrir sér. Theodor Meron var lagalegur ráðgjafi utanríkisráðherra ísraels á þessum tíma. Hann er í dag einn virtasti dómari á alþjóðavísu. 26.5.2007 16:58
Kínverjar ögra stefnu um eitt barn Það færist í vöxt í Kína að almenningur komist hjá stefnu stjórnvalda um eitt barn á fjölskyldu með frjósemislyfjum. Stefna stjórnvalda er sú að kona geti aðeins fætt einu sinni. Fjölburafæðingum hefur hins vegar fjölgað mjög síðustu ár, sérstaklega þar sem aðgengi að frjósemislyfjum er auðvelt. 26.5.2007 14:25
Hvölum sprautað á haf út Líffræðingar hjá bandarísku strandgæslunni brugðu í gær á nýstárlegt ráð til að koma tveimur hnúfubökum sem villst höfðu upp í Sacramento-fljót í Kaliforníu aftur út haf. Þeir sprautuðu einfaldlega vatni á hvalina með kröftugum vatnsdælum og við þær aðfarir hröktust þeir frá bátnum og niður með ánni. 26.5.2007 13:30
Írska stjórnin líklega fallin Allt bendir til að Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, haldi embætti sínu eftir þingkosningarnar sem fram fóru í landinu í gær. Slæmu fréttirnar fyrir Ahern eru hins vegar þær að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórninni þurrkaðist nánast út og stjórnin því að líkindum fallin. 26.5.2007 12:45
Öðrum ráðherra rænt Að minnsta kosti fimm manns hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Gaza-ströndina það sem af er degi. Þá var einum af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar rænt á Vesturbakkanum í morgun. 26.5.2007 12:30
Herlið sagt á leið til Kænugarðs Sáttafundur Viktors Jústjenskó, forseta Úkraínu og Viktors Janukovits forsætisráðherra Úkraínu í nótt skilaði engum árangri en áframhaldandi fundir hafa verið boðaðir í dag. Í morgun bárust fregnir af því að sá armur hersveitanna sem væri hliðhollur Jústsjenkó væri á leið til höfuðborgarinnar en á tólfta tímanum fullyrti AFP-fréttastofan að liðsflutningarnir hefðu stöðvast. 26.5.2007 12:11
Fjórir létust í árásum Ísraela á Gasa Fjórir létu lífið og tíu særðust þegar ísraelskar herþotur héldu áfram loftárásum á Gasa í morgun. Ísraelar segja árásirnar svar við ítrekuðum flugskeytaárásum yfir landamærin. Ísraelskar hersveitir réðust einnig inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. 26.5.2007 11:09
Skriðuföll í Kína kosta 21 lífið Að minnsta kosti 21 hefur látið lífið í miklum skriðuföllum í vestanverðu Kína undanfarinn sólarhring. Miklar rigningar hafa geisað á þessum slóðum og því hefur los komist á jarðveg og heilu fjallshlíðarnar farið af stað. Þannig létust tólf manns þegar aurskriða færði þorp í kaf í Sichuan-héraði. Þrjú þúsund húsum skolaði á brott í skriðunni. 26.5.2007 10:35
Enn ósamið í kjaradeilu SAS Ekki er útlit fyrir að verkfall flugliða hjá Svíþjóðararmi SAS-flugfélagsins leysist um hádegisbilið eins og vonast hafði verið til og því er útlit fyrir að flug þess liggi áfram niðri að minnsta kosti fram á mánudag. 26.5.2007 10:30
Bandaríkjamenn á móti tillögum gegn gróðurhúsaáhrifum Bandaríkjamenn eru sagðir leggjast algerlega gegn tillögum sem Þjóðverjar ætla að leggja fyrir fund átta helstu iðnríkja heims um aðgerðir í loftslagsmálum. Á skjali, sem leggja á fyrir fundinn í júní, en Grænfriðungar hafa komist yfir og lekið til fjölmiðla, er að finna ályktunardrög þar sem kveðið er á um að iðnríkin setji sér tímaramma til að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 26.5.2007 10:18
Ráðherra tekinn höndum Ísraelskar hersveitir réðust inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum í morgun og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem Ísraelar handtaka palestínskan ráðherra því í fyrradag var menntamálaráðherrann tekinn höndum ásamt tugum háttsettra liðsmanna Hamas. 26.5.2007 10:01
Óeirðaseggir dæmdir í Danmörku Fimm ungmenni voru í dag dæmd í fangelsi í Danmörku fyrir aðild sína að óeirðunum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þegar ungdómshúsið var rifið. Um er að ræða einn Dana, þrjá Bandaríkjamenn og Kanadamann. 25.5.2007 23:23
Dæmd fyrir morðið á eðalbornum eiginmanni sínum Ekkja jarlsins af Shaftesbury var í dag dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að myrða hann. Líkið af jarlinum fannst í gljúfri í Ölpunum árið 2005. Eiginkonan, Jamila M’Barek var fundin sek um að leggja á ráðin um morðið en hún fékk bróður sinn til að drýgja ódæðið. 25.5.2007 22:59
Star Wars frumsýnd fyrir 30 árum 25. maí er merkisdagur í augum margra því á þessum degi fyrir sléttum 30 árum var kvikmyndin Star Wars eftir George Lucas frumsýnd. Myndin sló í gegn og hefur haft gríðarleg áhrif á kvikmyndasöguna. Menn deila svo um hvort þau áhrif hafi verið til góðs eða ills. 25.5.2007 21:28
Dýrkeypt verkfall hjá SAS Talið er að vinnustöðvun vegna verkfalls átta hundruð starfsmanna SAS-flugfélagsins í Svíþjóð kosti félagið jafnvirði hátt í hundrað og níutíu milljóna íslenskra króna hvern dag sem ekki er flogið. 25.5.2007 20:03
Rigning á Spáni Mörg hundruð manns hafa þurft að hverfa frá heimilum sínum á Mið-Spáni þar sem mikið hefur ringt í vikunni. Vegir hafa farið í sundur í flóðum á svæðinu og vatn flætt yfir lestarteina. 400 íbúar í bænum Alcazar de San Juan urðu að flýja en vatnshæð sumstaðar þar hefur náð einum og hálfum metra að sögn yfirvalda. 25.5.2007 19:45
Forsætisráðherra í þriðja kjörtímabil í röð Allt útlit er fyrir að Berti Ahern verði forsætisráðherra Íralands þriðja kjörtímabilið í röð. Útgönguspár og fyrstu tölur benda til þess að fylking undir forystu Fianna Fáil, flokks Aherns, hafi fengið tæp 45% atkvæða en bandalag mið og vinstri flokka tæp 37%. Kosið var í gær. Ekki er búist við lokatölum fyrr en í byrjun næstu viku. 25.5.2007 19:15
Þjökuð af sektarkennd Enn hefur ekkert spurst til hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi á Portúgal fyrir þremur vikum. Foreldrar hennar segjast þjökuð af sektarkennd yfir því að hafa skilið hana eina eftir með yngri systkinum sínum meðan þau snæddu kvöldverð í næsta nágrenni. Margir foreldrar hefðu þó líkast til gert það sama. 25.5.2007 18:45
Sex létust í flugslysi í Perú Sjö manns komust lífs og sex fórust af þegar perúsk herflugvél hrapaði í skóglendi Amason í norðausturhluta landsins. Flugvélin, sem var nítján sæta De Havilland Twin Otter, fór í loftið í gærkvöld en sambandið rofnaði skömmu síðar við hana. 25.5.2007 16:31
Hið brjálæðislega bensínverð í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn eru farnir að venjast hinu brjálæðislega verði sem er á bensíni þar í landi. Lítrinn er farinn að nálgast heilar fimmtíu krónur. Fyrst þegar bensínið byrjaði að hækka voru viðbrögð neytenda harkaleg. 25.5.2007 16:02
Reggie rúllað upp Tveggja metra langur krókódíll sem hefur læðupokast um fylkisgarð í úthverfi Los Angeles í Bandaríkjunum var handsamaður í gær. Það voru skriðdýrasérfræðingar og þjóðgarðsverðir sem yfirbuguðu dýrið eftir mikla glímu. 25.5.2007 15:33
Nauðlenti eftir býflugnabardaga Boeing farþegaþota nauðlenti í Bournemoth Bretlandi í dag eftir að hafa flogið í gegnum mikinn sverm af býflugum. Níutíu farþegar voru um borð í vélinni sem var á leið til Faros í Portúgal. Vélin var frá flugfélaginu Palmair. 25.5.2007 14:44
Allt um krókódíla Krókódílar eru stærstu núlifandi skriðdýr heimsins og sennilega einu forsögulegu risarnir sem enn eru hér á jörðinni. Rannsóknir hafa sýnt að krókódílar virðast vera skyldari fuglum en öðrum núlifandi tegundum skriðdýra. 25.5.2007 14:27
Gleymdu því góði Bandaríkin hafa hafnað tilraunum Þjóðverja til þess að fá átta helstu iðnríki heims til þess að fallast á að draga verulega úr úblæstri kolefna. Bandaríkjamenn gera þetta með nokkru offorsi. Þjóðverjar ætluðu að leggja fram tillögur þess efnis á ráðstefnu iðnríkjanna sem hefst í Þýskalandi 6 júní næstkomandi. 25.5.2007 14:09
Al-Sadr aftur í sviðsljósið í Írak Róttæki sjíaklerkurinn Moqtada al-Sadr kom í dag í fyrsta sinn fram opinberlega í marga mánuði í Írak. Al-Sadr predikaði við föstudagsbænir í Kufa í austurlhluta Íraks og fordæmdi hersetu Bandaríkjamanna í landinu. 25.5.2007 13:58
Aung San áfram í fangelsi Herforingjastjórnin í Myanmar hefur framlengt stofufangelsi yfir andófskonunni Aung San Suu Kyi í eitt ár. Aung San er þekktasti pólitíski fangi Myanmars, sem áður hét Burma. Hún hefur hlotið friðarverðlaun Nóbels og flokkur hennar vann yfirburðasigur í kosningum árið 1990. Herforingjastjórnin neitaði að viðurkenna úrslitin og sat sem fastast. 25.5.2007 13:51
Neitar að samþykkja stjórnarskrárbreytingu vegna forsetakosninga Forseti Tyrklands, Ahmet Necdet, beitti í dag neitunarvaldi gegn stjórnarskrárbreytingu sem samþykkt hafði verið á tyrkneska þinginu um að þjóðin skyldi kjósa forseta landssins í stað þingsins. 25.5.2007 13:39
Eldur í sjónvarpsturninum í Moskvu Eldur kom upp á svölum í Ostankino-sjónvarpsturninum í Moskvu í morgun án þess þó að nokkurn sakaði. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC kviknaði eldurinn eftir að neisti frá logsuðutæki komst í einangrun. 25.5.2007 11:35
Persson viðurkennir að hafa brotið lög Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur viðurkennt að hafa brotið lög við byggingu herragarðs í austurhluta Svíþjóðar. Með því viðurkenna brotin sleppur Persson við að vera dreginn fyrir dóm en í staðinn verður hann sektaður um litla fjárhæð. 25.5.2007 11:12