Fleiri fréttir Írönskum erindreka rænt í Bagdad Utanríkisráðuneyti Íran staðfesti í dag að írönskum diplómata hafi verið rænt í Bagdad í Írak. Manninum var rænt af byssumönnum sem voru klæddir í írakska herbúninga. Íransstjórn segir honum hafa verið rænt af undirlagi Bandaríkjamanna. 6.2.2007 10:02 Indverjar ræða við Google Google á nú í viðræðum við indversku ríkisstjórnina vegna Google Earth forritsins. Indversk yfirvöld eru hrædd um að of mikið sjáist á myndunum sem eru í Google Earth og að öfgamenn geti notað þær sem teikningar. 5.2.2007 23:25 Öldungadeildin styður Bush Öldungadeild bandaríska þingsins hafnaði í kvöld tillögu sem hefði lýst yfir óánægju þingsins með aukningu hermanna í Írak. Frumvarpið var ekki bindandi fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Það var hugsað sem opinber yfirlýsing um andstöðu við áætlanir Bush. 5.2.2007 23:16 Íranar segja frá framförum 11. febrúar FARS, fréttastofa íranska ríkisins, sagði frá því á laugardaginn var, að 11. febrúar yrði sagt frá stórkostlegum framförum í kjarnorkuáætlun landsins. 11. febrúar er lokadagur hátíðahalda sem minnast uppreisnarinnar í Íran árið 1979. 5.2.2007 22:26 Bítlarnir og Apple ná sáttum Tæknifyrirtækið Apple hefur loksins náð sátt í deilum sínum við Bítlana en þeir eiga útgáfufyrirtæki sem heitir Apple Corps. Allt síðan 1981 hafa Bítlarnir og Apple deilt um réttinn á vörumerkinu Apple. 5.2.2007 22:20 Hraðstefnumót þeirra ríku og fallegu Sumir segja að án peninga geti rómantíkin aldrei blómstrað. Það orðatiltæki varð til þess að ný tegund af svokölluðum hraðstefnumótum varð til. Á þeim eru aðeins ríkir karlmenn og aðeins fallegar konur. Þau hittast síðan öll og finna, ef allt gengur að óskum, ástina. 5.2.2007 21:57 Khodorkovsky ákærður á ný Rússneskir saksóknarar lögðu fram í dag nýjar ákærur á hendur Mikhail Khodorkovsky, fyrrum olíujöfri sem nú situr í fangelsi fyrir skattsvik. 5.2.2007 21:30 Hertar reglur um knattspyrnuleiki á Ítalíu Fótboltavellir á Ítalíu munu ekki opna á ný fyrr en öryggiskröfum hefur verið framfylgt og gæsla á leikjum hert. Þetta sagði innanríkisráðherra Ítalíu, Giuliano Amato, í dag eftir neyðarfund með knattspyrnuyfirvöldum þar í landi. 5.2.2007 21:00 Egypsk stúlka lést úr fuglaflensu 17 ára egypsk stúlka lést í dag af völdum fuglaflensu, eða H5N1 vírusins. Hún er tólfti Egyptinn sem lætur lífið af völdum hennar. Þetta kom fram í fréttum frá ríkisfréttastöð Egyptalands í dag. 5.2.2007 20:30 Róbótar finna sennilega ekki líf á Mars Ef það er líf á Mars, er það sennilega of langt undir yfirborði plánetunnar til að vélmenni geti fundið það og greint. Þetta er niðurstaða sérfræðinga á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar. Ástæðan er sú að hafi nokkurn tímann verið líf á borð við einfrumunga eða bakteríur á Mars þá hefur geimgeislun fyrir löngu eytt um það öllum ummerkjum. 5.2.2007 19:56 Krókódíll í lauginni Saklausum gestum, sem ætluðu að fá sér sundsprett í almenningslaug í Darwin í Ástralíu, brá heldur betur í brún í morgun. Í þann mund sem ljós laugarinnar voru kveikt, svo þeir gætu dýft sér ofan í, skaust tæplega tveggja metra langur ósakrókódíll úr trjáþykkninu og ofan í laugina á undan þeim. 5.2.2007 19:45 Giuliani færist nær framboði Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar, hefur færst skrefi nær því að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna. Giuliani var rétt í þessu að skila inn blöðum þar sem hann lýsir yfir framboði sínu. 5.2.2007 19:15 Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. 5.2.2007 19:00 Framlög til varnarmála aukin George Bush lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir Bandaríkjaþing í dag en það hljóðar upp á tæplega tvö hundruð þúsund milljarða íslenskra króna. Fjórðungur þeirra upphæðar rennur til hermála en skorið verður niður á heilbrigðissviðinu. 5.2.2007 18:45 Fjöldamorð í Neðra-Saxlandi Lögreglan í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi rannsakar nú morð á sex manns en lík þeirra fundust á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen í morgun. 5.2.2007 18:45 Breskir fuglar bannaðir 5.2.2007 16:05 Karlmenn við stýrið Tveir vinir í Kentucky ákváðu að ræna hraðbanka með hraði, svo þeir kæmust örugglega undan. Þeir bundu keðju í stuðarann á pallbínum sem þeir áttu, og vöfðu svo keðjunni utan um hraðbankann. Svo gáfu þeir allt í botn til þess að rífa hraðbankann út úr veggnum. 5.2.2007 15:35 Rússar gegn Serbum í Kosovo Rússar hafa óvænt tekið afstöðu gegn Serbum varðandi sjálfstæði Kosovo héraðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Það verði hinsvegar undir alþjóðlegu eftirliti áfram, og NATO sjái um friðargæslu. 5.2.2007 14:37 Börnum enn rænt til hernaðar Hundruð þúsunda barna eru enn neydd til þess að berjast í herjum og skæruliðasamtökum víðsvegar í heiminum. Bresku samtökin Björgum börnunum segja að haldið sé áfram að ræna börnum til hernaðar í að minnsta kosti þrettán löndum, frá Afganistan til Úganda. 5.2.2007 14:22 Dýragarður sýnir manneskjur Kínverskur dýragarður leitar nú að sex sjálfboðaliðum til að búa á apasvæði garðsins í fimm daga. Garðurinn sem er í Xi'an borg leitar eftir þremur konum og þremur mönnum sem munu búa við sömu skilyrði og aparnir. Fólkið mun keppa um val á þvi hver sýnir dýrunum mesta alúð og eru 53 þúsund íslenskar krónur í verðlaun. 5.2.2007 13:58 Kona við stýrið 5.2.2007 13:45 Hinn fullkomni glæpur ? 5.2.2007 13:30 Fanga meinaður aðgangur að fangelsi Maður sem strauk úr fangelsi í Belgíu reyndi að gefa sig fram, en var vísað frá fangelsinu þar sem hann framvísaði ekki persónuskilríkjum. Hakim Ghazouani, 24 ára, strauk úr fangelsi í Ghent í síðasta mánuði eftir að hafa fengið leyfi til að fara til læknis. Lögreglan lýsti eftir manninum og varaði almenning við, en Ghazouani var dæmdur fyrir rán og fíkniefnasölu. 5.2.2007 13:25 Smástirni á leiðinni Vísindamenn fylgjast nú grannt með smástirninu Apophis sem talið er að muni koma óþægilega nálægt jörðu, fyrst árið 2029 og svo aftur 2036. Smástirnið verður þær nær jörðu en tunglið, og margir fjarskiptagervihnettir og það mun sjást greinilega með berum augum. Líkur á að Apophis lendi á jörðinni eru þó ekki taldir nema 1:24000. 5.2.2007 13:11 Varað við afleiðingum árásar á Íran Hópur breskra góðgerðarsamtaka, trúfélaga og verkalýðssambanda hafa varað Tony Blair forsætisráðherra við afleiðingum þess að ráðist verði á Íran. Í bréfi samtakanna segir að hernaðaraðgerðir gegn landinu muni hafa hrikalegar afleiðingar og skora því á Blair að þrýsta á George Bush Bandaríkjaforseta um að hefja viðræður við stjórnvöld í Teheran þegar í stað. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum grunar að kjarnorkuáætlun Írana sé ekki í friðsamlegum tilgangi og því hafa Bandaríkjamenn ekki útilokað hernað gegn þeim. 5.2.2007 12:15 Páfi fordæmir boltaofbeldi Benedikt sextándi páfi hefur fordæmt ofbeldið sem hann segir setja ljótan blett á knattspyrnu, eftir að ítalskur lögreglumaður lést í óeirðum eftir fótboltaleik á Sikiley á föstudaginn. Páfi hvatti íþróttayfirvöld til að koma á lögum og reglu. Páfagarður sendi ekkju lögreglumannsins samúðarkveðjur. 5.2.2007 11:37 Ein særðist í bréfsprengingu í London Bréfsprengja sprakk á skrifstofu í miðborg Lundúna fyrir hádegi og særði einn starfsmann. Lögregla segir að svæðinu í kringum Victoria Street hafi verið lokað eftir að ábending barst um grunsamlegan pakka. 5.2.2007 11:17 Stóri vinningurinn hans Bills Bill Helko, sem býr í Kaliforníu varð himinlifandi þegar hann vann fyrsta vinning í lottói í sinni sveit, enda hljóðaði vinningurinn upp á 412.000 dollara. Til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig hringdi Bill í lottóið og fékk staðfest að hann væri með réttar tölur fyrir fyrsta vinning. 5.2.2007 11:14 Fjórfætt eldvarpa Dýralæknir hefur verið sektaður um 16000 krónur fyrir að valda eldsvoða sem brenndi fjós til kaldra kola á bóndabæ í Lichten Vourde, í Hollandi. Dýralæknirinn hafði verið að reyna að fá bóndann til að breyta samsetningu fóðursins sem hann gaf kúm sínum. Hann sagði að fóðrið ylli óeðlilegri gasmyndun í kúnum. Til þess að sanna mál sitt kveikti hann á eldspýru fyrir aftan eina kúna þegar hún fretaði. 5.2.2007 10:58 Sex skotnir á veitingastað Sex fundust látnir á kínverskum veitingastað í smábænum Sittensen, suður af Hamborg í Þýskalandi í morgun. Fólkið hafði verið skotið til bana í nokkrum herbergjum veitingastaðarins. Lögregla veit ekki enn hvað gerðist, hefur ekki borið kennsl á líkin en segir fólkið allt af asísku bergi brotið. 5.2.2007 10:39 18 fórust í sprengingum Tvær bílsprengjur bönuðu 18 og særðu um 60 í Bagdad í Írak nú áðan. Í stærri sprengingunni í suðurhluta borgarinnar fórust 10 og í hinni, sem sprakk á bílaverkstæði í miðborginni, fórust 8. 5.2.2007 10:34 Friðurinn heldur á Gaza Enn er hljótt á götum Gaza eftir vopnahléið sem samið var um á föstudag. Byssumenn Hamas og Fatah hafa yfirgefið varðstöðvar sínar og í þeirra stað eru nú komnir lögreglumenn. Fatah og Hamas hafa einnig skipst á gíslum sem teknir hafa verið í átökum undanfarinna vikna. 5.2.2007 10:26 Viðræður um kjarnorkumál Norður-Kóreu hefjast á ný Á fimmtudag hefjast á ný viðræður sex ríkja um kjarnorkumál Norður-Kóreu. Ríkin sem eiga fulltrúa í viðræðunum eru Norður-Kórea, Suður-Kórea, Kína, Japan, Rússland og Bandaríkin. Norður-Kóreumenn sprengdu sína fyrstu kjarnorkusprengju í október á síðasta ári. 5.2.2007 10:12 Varaforseti Íraks vill fleiri hermenn strax Varaforseti Íraks, súnníinn Tariq Hashimi vill að Bandaríkjamenn flýti sér að senda fleiri hersveitir til landsins til að stöðva blóðbað undanfarinna vikna. Hann segir að nýhafin herferð gegn ofbeldi í landinu, þar sem uppreisnarmenn verða hundeltir, verði að takast vel ef koma á böndum á ástandið í landinu. 5.2.2007 09:51 Boða mestu herferð gegn andófsmönnum sem farin hefur verið Herferð írakskra og bandarískra hersveita gegn andófsmönnum í Bagdad, sem staðið hafa fyrir fjömörgum blóðugum árásum undanfarna mánuði, hefst innan skamms og verður stærrri en nokkur aðgerð sem lagt hefur verið í frá því að ráðist var inn í Írak fyrir nærri fjórum árum. 4.2.2007 20:17 Edwards vill hækka skatta til þess að bæta heilbrigðisþjónustu John Edwards, sem býður sig fram sem forsetaefni demókrata fyrir kosningarnar 2008, segir að hann vilji hækka skatta, aðallega á þá ríku, til þess að greiða fyrir bætta heilbrigðisþjónustu í landinu en hann kynnir áætlun þar að lútandi á morgun. 4.2.2007 19:46 Kreistir chillivökva yfir augum sér Mexíkóskur maður, sem hyggst setja heimsmet í chilipiparáti, er svo ónæmur fyrir styrk belgjanna að hann úðar þeim í sig eins og hverju öðru sælgæti. Hann gengur jafnvel svo langt að kreista safann úr þeim yfir augunum á sér. 4.2.2007 19:45 Vilja til Bretlands til að rannsaka lát Litvinenkos Rússneskir rannsóknarlögreglumenn sem rannsaka dauða fyrrverandi njósnarans Alexanders Litvinenkos hafa óskað eftir því við innanríkisráðuneyti Bretlands að fá að koma til landsins vegna rannsóknarinnar. 4.2.2007 19:15 Yfir þúsund hafa fallið í vikunni Yfir þúsund manns liggja í valnum í Írak eftir átök og árásir undanfarinna sjö daga. Stjórnvöld í landinu segja fylgismenn Saddams Hussein hafa staðið á bak við hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. 4.2.2007 18:58 Ætla að senda þúsundir sjálfsmorðsárásar-manna af stað Talibanar segjast munu senda þúsundir sjálfsmorðsárásarmanna gegn herliði NATO sem statt er í Afganistan og reynir að ráða niðurlögum þeirra. Frá þessu greindi einn leiðtoga þeirra í samtali við Reutersf-fréttastofuna í dag 4.2.2007 17:32 Þjóðverjar heimsmeistarar í handknattleik Þjóðverjar tryggðu sér í dag heimsmeistaratitilinn í handknattleik á heimavelli þegar þeir lögðu nágranna sína Pólverja í úrslitaleik frammi fyrir fullu húsi í Köln. Lokatölur í leiknum urðu 29-24. 4.2.2007 16:56 Áframhaldandi skærur á Gasaströndinni í dag Vopnahlé sem fylkingar Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna sömdu um á föstudag hefur ekki haldið í dag því komið hefur til átaka milli fylkinganna á Gasaströndinni. 4.2.2007 16:45 Ætla að kenna breskum ungmennum mandarín og urdu Breskum táningum verður boðið upp á læra tungumálin mandarín og urdu til jafns við frönsku og þýsku samkvæmt nýjum hugmyndum breskra menntamálayfirvalda. 4.2.2007 16:24 Vindhviður sagðar hafa farið upp í 73 metra á sekúndu Íbúar í miðhluta Flórída sem urðu fyrir barðinu á kröftugum stormi sem gekk yfir svæðið á föstudag héldu í dag áfram að leita að heillegum munum í rústum húsa sinna. Fram kemur á fréttavef CNN að vindhviður hafi farið upp í 73 metra á sekúndu og rifið allt sem á vegi þeirra varð. 4.2.2007 15:39 Starfsmenn alþjóðlegu geimstöðvarinnar í endurbótaleiðangri Tveir af starfsmönnum alþjóðlegu geimstöðvarinnar fóru í dag í geimgöngu þar sem lokið verður við að koma upp nýju kælikerfi í stöðinni. 4.2.2007 15:09 Sjá næstu 50 fréttir
Írönskum erindreka rænt í Bagdad Utanríkisráðuneyti Íran staðfesti í dag að írönskum diplómata hafi verið rænt í Bagdad í Írak. Manninum var rænt af byssumönnum sem voru klæddir í írakska herbúninga. Íransstjórn segir honum hafa verið rænt af undirlagi Bandaríkjamanna. 6.2.2007 10:02
Indverjar ræða við Google Google á nú í viðræðum við indversku ríkisstjórnina vegna Google Earth forritsins. Indversk yfirvöld eru hrædd um að of mikið sjáist á myndunum sem eru í Google Earth og að öfgamenn geti notað þær sem teikningar. 5.2.2007 23:25
Öldungadeildin styður Bush Öldungadeild bandaríska þingsins hafnaði í kvöld tillögu sem hefði lýst yfir óánægju þingsins með aukningu hermanna í Írak. Frumvarpið var ekki bindandi fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Það var hugsað sem opinber yfirlýsing um andstöðu við áætlanir Bush. 5.2.2007 23:16
Íranar segja frá framförum 11. febrúar FARS, fréttastofa íranska ríkisins, sagði frá því á laugardaginn var, að 11. febrúar yrði sagt frá stórkostlegum framförum í kjarnorkuáætlun landsins. 11. febrúar er lokadagur hátíðahalda sem minnast uppreisnarinnar í Íran árið 1979. 5.2.2007 22:26
Bítlarnir og Apple ná sáttum Tæknifyrirtækið Apple hefur loksins náð sátt í deilum sínum við Bítlana en þeir eiga útgáfufyrirtæki sem heitir Apple Corps. Allt síðan 1981 hafa Bítlarnir og Apple deilt um réttinn á vörumerkinu Apple. 5.2.2007 22:20
Hraðstefnumót þeirra ríku og fallegu Sumir segja að án peninga geti rómantíkin aldrei blómstrað. Það orðatiltæki varð til þess að ný tegund af svokölluðum hraðstefnumótum varð til. Á þeim eru aðeins ríkir karlmenn og aðeins fallegar konur. Þau hittast síðan öll og finna, ef allt gengur að óskum, ástina. 5.2.2007 21:57
Khodorkovsky ákærður á ný Rússneskir saksóknarar lögðu fram í dag nýjar ákærur á hendur Mikhail Khodorkovsky, fyrrum olíujöfri sem nú situr í fangelsi fyrir skattsvik. 5.2.2007 21:30
Hertar reglur um knattspyrnuleiki á Ítalíu Fótboltavellir á Ítalíu munu ekki opna á ný fyrr en öryggiskröfum hefur verið framfylgt og gæsla á leikjum hert. Þetta sagði innanríkisráðherra Ítalíu, Giuliano Amato, í dag eftir neyðarfund með knattspyrnuyfirvöldum þar í landi. 5.2.2007 21:00
Egypsk stúlka lést úr fuglaflensu 17 ára egypsk stúlka lést í dag af völdum fuglaflensu, eða H5N1 vírusins. Hún er tólfti Egyptinn sem lætur lífið af völdum hennar. Þetta kom fram í fréttum frá ríkisfréttastöð Egyptalands í dag. 5.2.2007 20:30
Róbótar finna sennilega ekki líf á Mars Ef það er líf á Mars, er það sennilega of langt undir yfirborði plánetunnar til að vélmenni geti fundið það og greint. Þetta er niðurstaða sérfræðinga á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar. Ástæðan er sú að hafi nokkurn tímann verið líf á borð við einfrumunga eða bakteríur á Mars þá hefur geimgeislun fyrir löngu eytt um það öllum ummerkjum. 5.2.2007 19:56
Krókódíll í lauginni Saklausum gestum, sem ætluðu að fá sér sundsprett í almenningslaug í Darwin í Ástralíu, brá heldur betur í brún í morgun. Í þann mund sem ljós laugarinnar voru kveikt, svo þeir gætu dýft sér ofan í, skaust tæplega tveggja metra langur ósakrókódíll úr trjáþykkninu og ofan í laugina á undan þeim. 5.2.2007 19:45
Giuliani færist nær framboði Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar, hefur færst skrefi nær því að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna. Giuliani var rétt í þessu að skila inn blöðum þar sem hann lýsir yfir framboði sínu. 5.2.2007 19:15
Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. 5.2.2007 19:00
Framlög til varnarmála aukin George Bush lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir Bandaríkjaþing í dag en það hljóðar upp á tæplega tvö hundruð þúsund milljarða íslenskra króna. Fjórðungur þeirra upphæðar rennur til hermála en skorið verður niður á heilbrigðissviðinu. 5.2.2007 18:45
Fjöldamorð í Neðra-Saxlandi Lögreglan í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi rannsakar nú morð á sex manns en lík þeirra fundust á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen í morgun. 5.2.2007 18:45
Karlmenn við stýrið Tveir vinir í Kentucky ákváðu að ræna hraðbanka með hraði, svo þeir kæmust örugglega undan. Þeir bundu keðju í stuðarann á pallbínum sem þeir áttu, og vöfðu svo keðjunni utan um hraðbankann. Svo gáfu þeir allt í botn til þess að rífa hraðbankann út úr veggnum. 5.2.2007 15:35
Rússar gegn Serbum í Kosovo Rússar hafa óvænt tekið afstöðu gegn Serbum varðandi sjálfstæði Kosovo héraðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Það verði hinsvegar undir alþjóðlegu eftirliti áfram, og NATO sjái um friðargæslu. 5.2.2007 14:37
Börnum enn rænt til hernaðar Hundruð þúsunda barna eru enn neydd til þess að berjast í herjum og skæruliðasamtökum víðsvegar í heiminum. Bresku samtökin Björgum börnunum segja að haldið sé áfram að ræna börnum til hernaðar í að minnsta kosti þrettán löndum, frá Afganistan til Úganda. 5.2.2007 14:22
Dýragarður sýnir manneskjur Kínverskur dýragarður leitar nú að sex sjálfboðaliðum til að búa á apasvæði garðsins í fimm daga. Garðurinn sem er í Xi'an borg leitar eftir þremur konum og þremur mönnum sem munu búa við sömu skilyrði og aparnir. Fólkið mun keppa um val á þvi hver sýnir dýrunum mesta alúð og eru 53 þúsund íslenskar krónur í verðlaun. 5.2.2007 13:58
Fanga meinaður aðgangur að fangelsi Maður sem strauk úr fangelsi í Belgíu reyndi að gefa sig fram, en var vísað frá fangelsinu þar sem hann framvísaði ekki persónuskilríkjum. Hakim Ghazouani, 24 ára, strauk úr fangelsi í Ghent í síðasta mánuði eftir að hafa fengið leyfi til að fara til læknis. Lögreglan lýsti eftir manninum og varaði almenning við, en Ghazouani var dæmdur fyrir rán og fíkniefnasölu. 5.2.2007 13:25
Smástirni á leiðinni Vísindamenn fylgjast nú grannt með smástirninu Apophis sem talið er að muni koma óþægilega nálægt jörðu, fyrst árið 2029 og svo aftur 2036. Smástirnið verður þær nær jörðu en tunglið, og margir fjarskiptagervihnettir og það mun sjást greinilega með berum augum. Líkur á að Apophis lendi á jörðinni eru þó ekki taldir nema 1:24000. 5.2.2007 13:11
Varað við afleiðingum árásar á Íran Hópur breskra góðgerðarsamtaka, trúfélaga og verkalýðssambanda hafa varað Tony Blair forsætisráðherra við afleiðingum þess að ráðist verði á Íran. Í bréfi samtakanna segir að hernaðaraðgerðir gegn landinu muni hafa hrikalegar afleiðingar og skora því á Blair að þrýsta á George Bush Bandaríkjaforseta um að hefja viðræður við stjórnvöld í Teheran þegar í stað. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum grunar að kjarnorkuáætlun Írana sé ekki í friðsamlegum tilgangi og því hafa Bandaríkjamenn ekki útilokað hernað gegn þeim. 5.2.2007 12:15
Páfi fordæmir boltaofbeldi Benedikt sextándi páfi hefur fordæmt ofbeldið sem hann segir setja ljótan blett á knattspyrnu, eftir að ítalskur lögreglumaður lést í óeirðum eftir fótboltaleik á Sikiley á föstudaginn. Páfi hvatti íþróttayfirvöld til að koma á lögum og reglu. Páfagarður sendi ekkju lögreglumannsins samúðarkveðjur. 5.2.2007 11:37
Ein særðist í bréfsprengingu í London Bréfsprengja sprakk á skrifstofu í miðborg Lundúna fyrir hádegi og særði einn starfsmann. Lögregla segir að svæðinu í kringum Victoria Street hafi verið lokað eftir að ábending barst um grunsamlegan pakka. 5.2.2007 11:17
Stóri vinningurinn hans Bills Bill Helko, sem býr í Kaliforníu varð himinlifandi þegar hann vann fyrsta vinning í lottói í sinni sveit, enda hljóðaði vinningurinn upp á 412.000 dollara. Til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig hringdi Bill í lottóið og fékk staðfest að hann væri með réttar tölur fyrir fyrsta vinning. 5.2.2007 11:14
Fjórfætt eldvarpa Dýralæknir hefur verið sektaður um 16000 krónur fyrir að valda eldsvoða sem brenndi fjós til kaldra kola á bóndabæ í Lichten Vourde, í Hollandi. Dýralæknirinn hafði verið að reyna að fá bóndann til að breyta samsetningu fóðursins sem hann gaf kúm sínum. Hann sagði að fóðrið ylli óeðlilegri gasmyndun í kúnum. Til þess að sanna mál sitt kveikti hann á eldspýru fyrir aftan eina kúna þegar hún fretaði. 5.2.2007 10:58
Sex skotnir á veitingastað Sex fundust látnir á kínverskum veitingastað í smábænum Sittensen, suður af Hamborg í Þýskalandi í morgun. Fólkið hafði verið skotið til bana í nokkrum herbergjum veitingastaðarins. Lögregla veit ekki enn hvað gerðist, hefur ekki borið kennsl á líkin en segir fólkið allt af asísku bergi brotið. 5.2.2007 10:39
18 fórust í sprengingum Tvær bílsprengjur bönuðu 18 og særðu um 60 í Bagdad í Írak nú áðan. Í stærri sprengingunni í suðurhluta borgarinnar fórust 10 og í hinni, sem sprakk á bílaverkstæði í miðborginni, fórust 8. 5.2.2007 10:34
Friðurinn heldur á Gaza Enn er hljótt á götum Gaza eftir vopnahléið sem samið var um á föstudag. Byssumenn Hamas og Fatah hafa yfirgefið varðstöðvar sínar og í þeirra stað eru nú komnir lögreglumenn. Fatah og Hamas hafa einnig skipst á gíslum sem teknir hafa verið í átökum undanfarinna vikna. 5.2.2007 10:26
Viðræður um kjarnorkumál Norður-Kóreu hefjast á ný Á fimmtudag hefjast á ný viðræður sex ríkja um kjarnorkumál Norður-Kóreu. Ríkin sem eiga fulltrúa í viðræðunum eru Norður-Kórea, Suður-Kórea, Kína, Japan, Rússland og Bandaríkin. Norður-Kóreumenn sprengdu sína fyrstu kjarnorkusprengju í október á síðasta ári. 5.2.2007 10:12
Varaforseti Íraks vill fleiri hermenn strax Varaforseti Íraks, súnníinn Tariq Hashimi vill að Bandaríkjamenn flýti sér að senda fleiri hersveitir til landsins til að stöðva blóðbað undanfarinna vikna. Hann segir að nýhafin herferð gegn ofbeldi í landinu, þar sem uppreisnarmenn verða hundeltir, verði að takast vel ef koma á böndum á ástandið í landinu. 5.2.2007 09:51
Boða mestu herferð gegn andófsmönnum sem farin hefur verið Herferð írakskra og bandarískra hersveita gegn andófsmönnum í Bagdad, sem staðið hafa fyrir fjömörgum blóðugum árásum undanfarna mánuði, hefst innan skamms og verður stærrri en nokkur aðgerð sem lagt hefur verið í frá því að ráðist var inn í Írak fyrir nærri fjórum árum. 4.2.2007 20:17
Edwards vill hækka skatta til þess að bæta heilbrigðisþjónustu John Edwards, sem býður sig fram sem forsetaefni demókrata fyrir kosningarnar 2008, segir að hann vilji hækka skatta, aðallega á þá ríku, til þess að greiða fyrir bætta heilbrigðisþjónustu í landinu en hann kynnir áætlun þar að lútandi á morgun. 4.2.2007 19:46
Kreistir chillivökva yfir augum sér Mexíkóskur maður, sem hyggst setja heimsmet í chilipiparáti, er svo ónæmur fyrir styrk belgjanna að hann úðar þeim í sig eins og hverju öðru sælgæti. Hann gengur jafnvel svo langt að kreista safann úr þeim yfir augunum á sér. 4.2.2007 19:45
Vilja til Bretlands til að rannsaka lát Litvinenkos Rússneskir rannsóknarlögreglumenn sem rannsaka dauða fyrrverandi njósnarans Alexanders Litvinenkos hafa óskað eftir því við innanríkisráðuneyti Bretlands að fá að koma til landsins vegna rannsóknarinnar. 4.2.2007 19:15
Yfir þúsund hafa fallið í vikunni Yfir þúsund manns liggja í valnum í Írak eftir átök og árásir undanfarinna sjö daga. Stjórnvöld í landinu segja fylgismenn Saddams Hussein hafa staðið á bak við hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. 4.2.2007 18:58
Ætla að senda þúsundir sjálfsmorðsárásar-manna af stað Talibanar segjast munu senda þúsundir sjálfsmorðsárásarmanna gegn herliði NATO sem statt er í Afganistan og reynir að ráða niðurlögum þeirra. Frá þessu greindi einn leiðtoga þeirra í samtali við Reutersf-fréttastofuna í dag 4.2.2007 17:32
Þjóðverjar heimsmeistarar í handknattleik Þjóðverjar tryggðu sér í dag heimsmeistaratitilinn í handknattleik á heimavelli þegar þeir lögðu nágranna sína Pólverja í úrslitaleik frammi fyrir fullu húsi í Köln. Lokatölur í leiknum urðu 29-24. 4.2.2007 16:56
Áframhaldandi skærur á Gasaströndinni í dag Vopnahlé sem fylkingar Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna sömdu um á föstudag hefur ekki haldið í dag því komið hefur til átaka milli fylkinganna á Gasaströndinni. 4.2.2007 16:45
Ætla að kenna breskum ungmennum mandarín og urdu Breskum táningum verður boðið upp á læra tungumálin mandarín og urdu til jafns við frönsku og þýsku samkvæmt nýjum hugmyndum breskra menntamálayfirvalda. 4.2.2007 16:24
Vindhviður sagðar hafa farið upp í 73 metra á sekúndu Íbúar í miðhluta Flórída sem urðu fyrir barðinu á kröftugum stormi sem gekk yfir svæðið á föstudag héldu í dag áfram að leita að heillegum munum í rústum húsa sinna. Fram kemur á fréttavef CNN að vindhviður hafi farið upp í 73 metra á sekúndu og rifið allt sem á vegi þeirra varð. 4.2.2007 15:39
Starfsmenn alþjóðlegu geimstöðvarinnar í endurbótaleiðangri Tveir af starfsmönnum alþjóðlegu geimstöðvarinnar fóru í dag í geimgöngu þar sem lokið verður við að koma upp nýju kælikerfi í stöðinni. 4.2.2007 15:09