Fleiri fréttir Bandaríkjamenn óttast að ríkisstjórn Líbanons verði steypt Yfirvöld í Bandaríkjunum trúa því að Sýrland, Íran og Hisbollah séu að reyna að kollvarpa líbönsku ríkisstjórninni sem Fouad Siniora, forsætisráðherra, fer fyrir. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins, sagði Sýrlendinga beita sér að þessu marki til að koma í veg fyrir rannsókn sérstaks dómstóls á máli þeirra sem sakaðir eru um að hafa myrt Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. 1.11.2006 18:19 De Beers vill útrýma blóðdemöntum Demantarisinn De Beers óttast að frumsýning kvikmyndarinnar "Blóðdemanturinn" með Leonardo DiCaprio hafi neikvæð áhrif á gimsteinasölu og hvetur því til áhrifaríkari herferðar gegn svokölluðum átakademöntum eða blóðdemöntum sem uppreisnarmenn og vígahópar í mörgum Afríkuríkjum selja á svörtum markaði til að fjármagna áframhaldandi átök. 1.11.2006 17:58 Demókratar leiða í skoðanakönnunum Skoðanakannanir sem Reuters skýrði frá í dag sýna að demókratar í Bandaríkjunum eru með meiri stuðning en Repúblikanar í 12 af 15 lykilsætum í komandi þingkosningum. 1.11.2006 12:10 Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifa undir friðarsamkomulag Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifuðu undir nýtt friðarsamkomulag í morgun. Vonast er til þess að það eigi eftir að koma skriði á viðræður sem er ætlað að binda endi á eina lengstu og hrottalegustu borgarastyrjöld í Afríku. 1.11.2006 11:50 Varnarmálaráðherra Rússlands líklegur arftaki Pútíns Rússneski varnarmálaráðherrann, Sergei Ivanov, neitaði í morgun að svara spurningum um hvort að hann væri líklegur til þess að taka við af Pútin Rússlandsforseta þegar hann leggur niður völd árið 2008. 1.11.2006 11:14 Breytingar framundan í stjórnarfari Kyrgistans Þjóðhöfðingi Kyrgistans, Kurmanbek Bakiyev, komst í dag að samkomulagi við stjórnarandstöðuna í landinu um drög að stjórnarskrá sem takmarkar völd þjóðhöfðingans og veitir meiri völdum til þjóðþingsins. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar segja drögin verða lögð fyrir þingið til samþykkis á fimmtudag. 31.10.2006 23:30 Öfgafullir gyðingar mótmæla Gay Pride í Jerúsalem Hópur öfgarétttrúaðra gyðinga kveiktu í ruslatunnum og hentu grjóti í lögreglumenn í Jerúsalem í kvöld til að mótmæla áætlun um að halda kröfugöngu samkynhneigðra í borginni helgu. Þrír lögreglumenn slösuðust og fimm mótmælendur voru handteknir í óeirðum sem ísraelskir fjölmiðlar kalla ein öfgafyllstu mótmæli í borginni í langan tíma. 31.10.2006 23:15 Fílar eru gáfaðri en við héldum Fílar stóðust nýlega mikilvægt gáfnapróf í Bronx-dýragarðinum í New York í Bandaríkjunum: þeir þekktu sjálfan sig í spegli. Það virðist smáatriði fyrir mannfólkið en fyrir utan okkur mennina eru það einungis simpansar, höfrungar - og núna fílar, sem átta sig á því að þeirra eigin spegilmynd er ekki annað dýr. 31.10.2006 23:00 Leiðtogi Hisbollah segir viðræður um fangaskipti hafnar Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah, segir viðræður við Ísraelsmenn um skipti á föngum vera hafnar. Skæruliðar Hisbollah rændu í júlí tveimur ísraelskum hermönnum í því augnamiði að semja um lausn Líbana sem hafa verið í haldi Ísraela árum saman. 31.10.2006 22:05 Öryggisráðið neitar að taka harða afstöðu í málefnum Vestur-Sahara Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að framlengja umboð friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Vestur-Sahara í hálft ár í viðbót en neitaði að samþykkja beiðni um að Marokkóbúar yrðu þvingaðir til að gæta betur að mannréttindum eftir að Frakkar mótmæltu henni. 31.10.2006 22:00 Eiður Smári borinn slasaður af velli Eiður Smári Guðjohnsen var borinn slasaður af velli í leik liðs hans Barcelona við fyrrverandi félaga Eiðs í Chelsea. Ekki hafa borist neinar fréttir af því hversu illa Eiður er meiddur en eins og meiðslin litu út í sjónvarpi má gera ráð fyrir því að hann verði frá keppni í einhvern tíma. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli eftir að Didier Drogba jafnaði fyrir Chelsea á 93.mínútu. 31.10.2006 21:49 Al-Jazeera sjónvarpar á ensku frá og með 15. nóvember Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera mun hefja útsendingar á ensku þann 15. nóvember, til viðbótar við fréttir og fréttatengt efni á arabísku. Al-Jazeera verður þá fyrsta alþjóðlega sjónvarpsstöðin á ensku sem hefur höfuðstöðvar í Miðausturlöndum, nánar tiltekið í Doha í Katar. Auk þess á sjónvarpsstöðin myndver í London, Washington og Kuala Lumpur. 31.10.2006 21:45 Stór lögregluaðgerð gegn mansali og vændi í Noregi 140 norskir lögreglumenn réðust í dag gegn skipulagðri vændisstarfsemi í Osló og Björgvin. 51s árs gamall Norðmaður er grunaður um að hafa stjórnað vændishringnum. Portkonurnar komu flestar frá Taílandi og frá Nígeríu. 31.10.2006 21:39 Herinn hugsanlega sendur til Napólí Stjórnvöld á Ítalíu ræða nú þann mögleika að senda herlið til Napólí til þess stilla til friðar í borginni. Ofbeldisglæpum hefur fjölgað þar á síðastliðnum dögum og vilja ráðamenn grípa í taumana fyrr en síðar. 31.10.2006 21:00 Botha, fyrrum forseti Suður-Afríku, látinn P.W. Botha sem var forsætisráðherra Suður-Afríku 1978-1984 og forseti landsins 1984-1989 lést á heimili sínu í dag. Botha var harður stuðningsmaður aðskilnaðarstefnunnar þó svo að undir lok forsetatíðar sinnar hafi hann slakað lítillega á henni. Botha var 90 ára. 31.10.2006 20:46 Bjargað með gervifrjóvgun Kóalabirnir, sem urðu til með gervifrjóvgun, voru kynntir í dýragarði í Queensland í Ástralíu í gær. Birnirnir eru átta en þrír þeirra voru sýndir almenningi. Þeir eru á bilinu 10 til 12 mánaða. Vísindamenn vilja fara þessa leið til að tryggja viðhald stofnsins. 31.10.2006 20:45 Blair slapp við rannsókn á Íraksstríðinu Breska ríkisstjórnin hafði betur þegar atkvæði voru greidd um kröfu stjórnarandstöðunnar um nýja rannsókn á Íraksstríðinu. 298 þingmenn greiddu atkvæði á móti tillögunni en 273 greiddu tillögunni atkvæði sitt. Stjórnarandstaðan krafðist þess að þáttur Breta í aðdraganda Íraksstríðsins og eftirmála þess yrði rannsakaður. 31.10.2006 20:15 Aftur að samningaborðinu Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa ákveðið að setjast aftur að samningaborðinu og reyna að finna lausn á kjarnorkudeilu sinni við nágrannaríki sín og Vesturveldin. Þetta var ákveðið á óformlegum fundi embættismanna frá Bandaríkjunum, Kína og Norður-Kóreu í dag. Viðræðurnar sigldu í strand fyrir um ári. 31.10.2006 20:00 Ræktuðu lifrarfrumur úr stofnfrumum Breskir vísindamenn við háskólann í Newcastle segjast hafa ræktað agnarsmáa búta af mennskum lifrarvef. Lifrarfrumurnar ræktuðu þeir úr stofnfrumum sem fengnar voru úr naflastrengjum. "Smálifrarnar" verða notaðar til lyfjatilrauna, þannig má koma í veg fyrir tilraunaslys eins og þegar sex sjúklingar urðu alvarlega veikir við lyfjatilraunir í Northwich Park. 31.10.2006 19:45 Bretar vilja samkomulag til framtíðar Bresk stjórnvöld leggja áherslu á að nýr samningur um losun gróðurhúsalofttegunda verði tilbúinn eigi síðar en árið 2008. Kyoto-bókunin um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda gildi aðeins til ársins 2012. 31.10.2006 18:45 Bush ætlar að beita sér í málefnum Darfur George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag myndu vinna að áætlun til að takast á við neyðarástand og mannréttindabrot í Darfur í Súdan, þar sem 200 þúsund manns hafa fallið og áætlað er að tvær og hálf milljón manna hafi flúið heimili sín. Hann tilkynnti þetta eftir fund með nýskipuðum Darfur-fulltrúa sínum um skýrslu þess síðarnefnda. 31.10.2006 17:30 Hart sótt að Færeyingum í Norðurlandaráði Hart verður sótt að Færeyingum í Norðurlandaráði, á morgun, vegna þess að þar í landi eru engin lög sem banna að níðst sé á samkynhneigðum, og þeir niðurlægðir. Það verður Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem tekur Færeyinga til bæna, í fyrirspurnartíma. 31.10.2006 16:54 Bush tekur lokasprettinn Íraksstríðið hefur verið helsta vopn demókrata í kosningabaráttunni og það er að virka vel ef marka má skoðanakannanir. George W. Bush forseti veit hins vegar sem er að vika er langur tími í pólitík og reynir nú að snúa vopninu í höndum þeirra. 31.10.2006 16:46 Gæsluvarðhald framlengt yfir múslimum í Danmörku Gæsluvarðhald var í dag framlengt um fjórar vikir, yfir fimm múslimum sem voru handteknir í Óðinsvéum, í Danmörku, í byrjun september. 31.10.2006 15:49 Danskt herlið eins lengi og Írakar vilja Danskt herlið verður eins lengi í Írak og ríkisstjórn Íraka fer fram á og Sameinuðu þjóðirnar samþykkja. Andres Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkru sagði þetta á blaðamannafundi í gær í Kaupmannahöfn. Írakar hafa óskað eftir því að vera herliðsbandamanna í landinu verði framlengd um ár. 31.10.2006 15:06 Daniel Ortega líklegur til sigurs í Níkvaragva 31.10.2006 14:52 Hyldýpi örvæntingarinnar blasti við forsætisráðherranum 31.10.2006 13:38 40 Írökum rænt Meira en 40 Írökum hefur verið rænt í árás á strætisvagna sem voru á leið til Bagdad um hádegisbil í dag samkvæmt fregnum frá lögreglunni í Tíkrít. 31.10.2006 12:59 Stjórnarandstaðan í Kasakstan sammála Borat Stjórnarandstöðuleiðtoginn í Kasakstan sagði í morgun að Sacha Baron Cohen, sá sem leikur vitleysinginn Borat, hefði ekki valið Kasakstan sem bakgrunn fyrir brandara sína í nýrri bíómynd ef ástand mála þar í landi væri betra. 31.10.2006 12:08 Spánverjar reyna að stemma stigu við flóttamönnum frá Afríku Dómsmálaráðherra Spánar, Lopez Aguilar, sagði í morgun eftir fundahald í Senegal, að Afríkuríki yrðu að reyna að stemma stigu við fjölda flóttamanna sem reyna að komast til Evrópu. 31.10.2006 11:48 Smygla fólki yfir Eyrarsundsbrúna Lögregla í Svíþjóð hefur handtekið sjö manns í tengslum við það sem talið er umfangsmikið smygl á fólki til landsins. Fram kemur á vef Nyhedsavisen að lögregla hafi stöðvað fjórar smygltilraunir frá því á föstudag en í öll skiptin var reynt að smygla fólki frá Danmörku og yfir Eyrarsundsbrúna. 31.10.2006 11:17 Norður-Kórea að samningaborðinu á ný Norður-Kórea hefur samþykkt að setjast aftur að samningaborðinu til viðræðna við hinn svokallaða Sexveldnahóp samkvæmt fréttum frá Suður-Kóreu og Kína. 31.10.2006 11:06 Lögreglan í Marseille handtekur fimm ungmenni Lögreglan í Marseille í Frakklandi handtók í morgun fimm ungmenni vegna gruns um að þau hafi tekið þátt í árás á strætisvagn fyrr í vikunni, en ung kona hlaut brunasár á 70% líkama síns í árásinni. 31.10.2006 10:50 Írakar þurfa 100 milljarða dollara vegna uppbyggingarstarfs Alls er talið að Írakar eigi eftir að þurfa á um 100 milljarða dollara, sem samsvarar um 6.840 milljörðum íslenskra króna, að halda næstu fjögur til fimm árin til þess að endurbyggja innviði stjórnkerfisins. 31.10.2006 10:30 35 kínverskir námuverkamenn verða innlyksa 35 kínverskir námuverkamenn urðu innlyksa í morgun eftir gassprengingu í kolanámu í norðvesturhluta Kína samkvæmt fregnum frá kínversku fréttastofunni Xinhua. 31.10.2006 10:13 Viðvarandi rafmagnsleysi í Írak vegna árása Leyniskyttur og morðhótanir gera það að verkum að rafvirkjar í Írak fást ekki lengur til að gera við rafmagnslínur í höfuðborginni. Ekki hefur tekist að gera við aðveitulínur til höfuðborgarinnar vegna ofbeldismanna sem hóta iðnaðarmönnum. Íbúar Bagdad fá því stundum ekki rafmagn nema í tvo tíma á dag. 30.10.2006 23:39 Glasaungar til bjargar kóalakyninu Vísindamenn í Ástralíu kynntu í dag hóp af ungum kóalabjörnum sem eru afrakstur nýrrar glasafrjóvgunartækni. Kóalabirnir eru ekki í bráðri útrýmingarhættu en náttúruverndarstofnanir hafa tegundina þó á gátlista. 25 glasaungar hafa nú litið dagsins ljós, vísindamönnum og kóalaunnendum til mikillar gleði. 30.10.2006 23:30 3 milljónir Íraka á vergangi vegna átakanna Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 3 milljónir flóttamanna hafi flúið heimili sín til þess að reyna að komast burt frá átakasvæðum í Írak. Aðrar hjálparstofnanir giska á svipðar tölur og allar telja að flóttamannastraumurinn fari sífellt vaxandi. Rúmlega 1,6 milljónir hafa flúið heimalandið en litlu færri eru á vergangi í Írak. 30.10.2006 22:39 Bretaprins hættir við að heimsækja Peshawar Karl Bretaprins hefur aflýst ferð sinni og Kamillu konu sinnar til Peshawar í norðvesturhluta Pakistans, samkvæmt ráðleggingum frá pakistönskum yfirvöldum. Opinberlega var engin ástæða gefin fyrir breytingunni önnur en ráðleggingar pakistanskra stjórnvalda, en líklega var óttast um öryggi prinsins eftir að sprengjuárás á grunnskóla varð 80 manns að bana í dag. 30.10.2006 22:15 73ja kílóa þungur skötuselur Norsk hjón settu heldur betur í þann stóra þegar þau lönduðu 73ja kílóa þungum skötusel í Þrándheimsfirði í gær. Eftir því sem segir á fréttavefnum skip.is er þetta einn stærsti skötuselur sem sögur fara af. Fiskurinn var 165 sm að lengd. Lögreglan á staðnum var fengin til að vigta fiskinn svo enginn dirfðist að véfengja fiskisöguna. 30.10.2006 22:00 Atvinnuleysi í Frakklandi ekki minna í 5 ár Atvinnuleysi í Frakklandi í september mældist hið lægsta í fimm ár, 8,8%. Þetta eru góðar fréttir fyrir ríkisstjórn Dominique de Villepins, sem hefur lagt einna mesta áherslu á að auka atvinnutækifæri. Atvinnuleysi í Frakklandi hefur minnkað um rúmlega eitt prósentustig á einu og hálfu ári, þó að ungt fólk eigi enn nokkuð erfitt með að fá vinnu. 30.10.2006 21:45 Spánverji laus úr haldi palestínskra mannræningja Spænskur maður sem vinnur hjá hjálparstofnun á Gaza-ströndinni í Palestínu var látinn laus úr haldi mannræningja sem rændu honum úr bíl hans fyrr í dag. Manninum var rænt rétt við Khan Younis í suðurhluta Palestínu. Spánverjinn, Roberto Villa Sexto, sem er 32ja ára, hefur unnið við hjálparstarf í Palestínu í tvö ár. 30.10.2006 21:30 Olmert styrkir stöðu ísraelsku stjórnarinnar Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, um samstarf við hinn þjóðernissinnaða Yisrael Beitenu-flokk. Telja stjórnmálaskýrendur að það torveldi mögulegar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna. Með tilkomu nýrra þingmanna eykst meirihluti ríkisstjórnarinnar um ellefu þingsæti. 30.10.2006 20:45 Nýtt fangelsi fyrir sex fanga á Pitcairn Bresk fangelsismálayfirvöld tilkynntu í gær að fljótlega yrði hafist handa við fangelsisbyggingu á eyjunni Pitcairn í Kyrrahafinu. Fangelsið er sérstaklega byggt fyrir sex eyjaskeggja sem voru dæmdir til fangavistar fyrir kynferðisafbrot í vor. Þessir sex eyjaskeggjar eru 10% af heildaíbúafjölda eyjarinnar. 30.10.2006 20:30 Varar við skiptingu Íraks og brotthvarfi Bandaríkjamanna Skipting Íraks myndi leiða til þjóðernishreinsana og gríðarmikilla bardaga á milli trúarhópa, að mati sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum. Hann varar einnig Bandaríkjamenn við því að yfirgefa Írak án fyrirvara. "Fyrst Bandaríkjamenn komu óboðnir til Íraks, ættu þeir ekki að fara frá Írak óboðnir," sagði furstinn Turki al-Faisal á blaðamannafundi eftir ræðu sem hann hélt í Washington í dag. 30.10.2006 19:53 Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjamenn óttast að ríkisstjórn Líbanons verði steypt Yfirvöld í Bandaríkjunum trúa því að Sýrland, Íran og Hisbollah séu að reyna að kollvarpa líbönsku ríkisstjórninni sem Fouad Siniora, forsætisráðherra, fer fyrir. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins, sagði Sýrlendinga beita sér að þessu marki til að koma í veg fyrir rannsókn sérstaks dómstóls á máli þeirra sem sakaðir eru um að hafa myrt Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. 1.11.2006 18:19
De Beers vill útrýma blóðdemöntum Demantarisinn De Beers óttast að frumsýning kvikmyndarinnar "Blóðdemanturinn" með Leonardo DiCaprio hafi neikvæð áhrif á gimsteinasölu og hvetur því til áhrifaríkari herferðar gegn svokölluðum átakademöntum eða blóðdemöntum sem uppreisnarmenn og vígahópar í mörgum Afríkuríkjum selja á svörtum markaði til að fjármagna áframhaldandi átök. 1.11.2006 17:58
Demókratar leiða í skoðanakönnunum Skoðanakannanir sem Reuters skýrði frá í dag sýna að demókratar í Bandaríkjunum eru með meiri stuðning en Repúblikanar í 12 af 15 lykilsætum í komandi þingkosningum. 1.11.2006 12:10
Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifa undir friðarsamkomulag Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifuðu undir nýtt friðarsamkomulag í morgun. Vonast er til þess að það eigi eftir að koma skriði á viðræður sem er ætlað að binda endi á eina lengstu og hrottalegustu borgarastyrjöld í Afríku. 1.11.2006 11:50
Varnarmálaráðherra Rússlands líklegur arftaki Pútíns Rússneski varnarmálaráðherrann, Sergei Ivanov, neitaði í morgun að svara spurningum um hvort að hann væri líklegur til þess að taka við af Pútin Rússlandsforseta þegar hann leggur niður völd árið 2008. 1.11.2006 11:14
Breytingar framundan í stjórnarfari Kyrgistans Þjóðhöfðingi Kyrgistans, Kurmanbek Bakiyev, komst í dag að samkomulagi við stjórnarandstöðuna í landinu um drög að stjórnarskrá sem takmarkar völd þjóðhöfðingans og veitir meiri völdum til þjóðþingsins. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar segja drögin verða lögð fyrir þingið til samþykkis á fimmtudag. 31.10.2006 23:30
Öfgafullir gyðingar mótmæla Gay Pride í Jerúsalem Hópur öfgarétttrúaðra gyðinga kveiktu í ruslatunnum og hentu grjóti í lögreglumenn í Jerúsalem í kvöld til að mótmæla áætlun um að halda kröfugöngu samkynhneigðra í borginni helgu. Þrír lögreglumenn slösuðust og fimm mótmælendur voru handteknir í óeirðum sem ísraelskir fjölmiðlar kalla ein öfgafyllstu mótmæli í borginni í langan tíma. 31.10.2006 23:15
Fílar eru gáfaðri en við héldum Fílar stóðust nýlega mikilvægt gáfnapróf í Bronx-dýragarðinum í New York í Bandaríkjunum: þeir þekktu sjálfan sig í spegli. Það virðist smáatriði fyrir mannfólkið en fyrir utan okkur mennina eru það einungis simpansar, höfrungar - og núna fílar, sem átta sig á því að þeirra eigin spegilmynd er ekki annað dýr. 31.10.2006 23:00
Leiðtogi Hisbollah segir viðræður um fangaskipti hafnar Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah, segir viðræður við Ísraelsmenn um skipti á föngum vera hafnar. Skæruliðar Hisbollah rændu í júlí tveimur ísraelskum hermönnum í því augnamiði að semja um lausn Líbana sem hafa verið í haldi Ísraela árum saman. 31.10.2006 22:05
Öryggisráðið neitar að taka harða afstöðu í málefnum Vestur-Sahara Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að framlengja umboð friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Vestur-Sahara í hálft ár í viðbót en neitaði að samþykkja beiðni um að Marokkóbúar yrðu þvingaðir til að gæta betur að mannréttindum eftir að Frakkar mótmæltu henni. 31.10.2006 22:00
Eiður Smári borinn slasaður af velli Eiður Smári Guðjohnsen var borinn slasaður af velli í leik liðs hans Barcelona við fyrrverandi félaga Eiðs í Chelsea. Ekki hafa borist neinar fréttir af því hversu illa Eiður er meiddur en eins og meiðslin litu út í sjónvarpi má gera ráð fyrir því að hann verði frá keppni í einhvern tíma. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli eftir að Didier Drogba jafnaði fyrir Chelsea á 93.mínútu. 31.10.2006 21:49
Al-Jazeera sjónvarpar á ensku frá og með 15. nóvember Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera mun hefja útsendingar á ensku þann 15. nóvember, til viðbótar við fréttir og fréttatengt efni á arabísku. Al-Jazeera verður þá fyrsta alþjóðlega sjónvarpsstöðin á ensku sem hefur höfuðstöðvar í Miðausturlöndum, nánar tiltekið í Doha í Katar. Auk þess á sjónvarpsstöðin myndver í London, Washington og Kuala Lumpur. 31.10.2006 21:45
Stór lögregluaðgerð gegn mansali og vændi í Noregi 140 norskir lögreglumenn réðust í dag gegn skipulagðri vændisstarfsemi í Osló og Björgvin. 51s árs gamall Norðmaður er grunaður um að hafa stjórnað vændishringnum. Portkonurnar komu flestar frá Taílandi og frá Nígeríu. 31.10.2006 21:39
Herinn hugsanlega sendur til Napólí Stjórnvöld á Ítalíu ræða nú þann mögleika að senda herlið til Napólí til þess stilla til friðar í borginni. Ofbeldisglæpum hefur fjölgað þar á síðastliðnum dögum og vilja ráðamenn grípa í taumana fyrr en síðar. 31.10.2006 21:00
Botha, fyrrum forseti Suður-Afríku, látinn P.W. Botha sem var forsætisráðherra Suður-Afríku 1978-1984 og forseti landsins 1984-1989 lést á heimili sínu í dag. Botha var harður stuðningsmaður aðskilnaðarstefnunnar þó svo að undir lok forsetatíðar sinnar hafi hann slakað lítillega á henni. Botha var 90 ára. 31.10.2006 20:46
Bjargað með gervifrjóvgun Kóalabirnir, sem urðu til með gervifrjóvgun, voru kynntir í dýragarði í Queensland í Ástralíu í gær. Birnirnir eru átta en þrír þeirra voru sýndir almenningi. Þeir eru á bilinu 10 til 12 mánaða. Vísindamenn vilja fara þessa leið til að tryggja viðhald stofnsins. 31.10.2006 20:45
Blair slapp við rannsókn á Íraksstríðinu Breska ríkisstjórnin hafði betur þegar atkvæði voru greidd um kröfu stjórnarandstöðunnar um nýja rannsókn á Íraksstríðinu. 298 þingmenn greiddu atkvæði á móti tillögunni en 273 greiddu tillögunni atkvæði sitt. Stjórnarandstaðan krafðist þess að þáttur Breta í aðdraganda Íraksstríðsins og eftirmála þess yrði rannsakaður. 31.10.2006 20:15
Aftur að samningaborðinu Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa ákveðið að setjast aftur að samningaborðinu og reyna að finna lausn á kjarnorkudeilu sinni við nágrannaríki sín og Vesturveldin. Þetta var ákveðið á óformlegum fundi embættismanna frá Bandaríkjunum, Kína og Norður-Kóreu í dag. Viðræðurnar sigldu í strand fyrir um ári. 31.10.2006 20:00
Ræktuðu lifrarfrumur úr stofnfrumum Breskir vísindamenn við háskólann í Newcastle segjast hafa ræktað agnarsmáa búta af mennskum lifrarvef. Lifrarfrumurnar ræktuðu þeir úr stofnfrumum sem fengnar voru úr naflastrengjum. "Smálifrarnar" verða notaðar til lyfjatilrauna, þannig má koma í veg fyrir tilraunaslys eins og þegar sex sjúklingar urðu alvarlega veikir við lyfjatilraunir í Northwich Park. 31.10.2006 19:45
Bretar vilja samkomulag til framtíðar Bresk stjórnvöld leggja áherslu á að nýr samningur um losun gróðurhúsalofttegunda verði tilbúinn eigi síðar en árið 2008. Kyoto-bókunin um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda gildi aðeins til ársins 2012. 31.10.2006 18:45
Bush ætlar að beita sér í málefnum Darfur George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag myndu vinna að áætlun til að takast á við neyðarástand og mannréttindabrot í Darfur í Súdan, þar sem 200 þúsund manns hafa fallið og áætlað er að tvær og hálf milljón manna hafi flúið heimili sín. Hann tilkynnti þetta eftir fund með nýskipuðum Darfur-fulltrúa sínum um skýrslu þess síðarnefnda. 31.10.2006 17:30
Hart sótt að Færeyingum í Norðurlandaráði Hart verður sótt að Færeyingum í Norðurlandaráði, á morgun, vegna þess að þar í landi eru engin lög sem banna að níðst sé á samkynhneigðum, og þeir niðurlægðir. Það verður Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem tekur Færeyinga til bæna, í fyrirspurnartíma. 31.10.2006 16:54
Bush tekur lokasprettinn Íraksstríðið hefur verið helsta vopn demókrata í kosningabaráttunni og það er að virka vel ef marka má skoðanakannanir. George W. Bush forseti veit hins vegar sem er að vika er langur tími í pólitík og reynir nú að snúa vopninu í höndum þeirra. 31.10.2006 16:46
Gæsluvarðhald framlengt yfir múslimum í Danmörku Gæsluvarðhald var í dag framlengt um fjórar vikir, yfir fimm múslimum sem voru handteknir í Óðinsvéum, í Danmörku, í byrjun september. 31.10.2006 15:49
Danskt herlið eins lengi og Írakar vilja Danskt herlið verður eins lengi í Írak og ríkisstjórn Íraka fer fram á og Sameinuðu þjóðirnar samþykkja. Andres Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkru sagði þetta á blaðamannafundi í gær í Kaupmannahöfn. Írakar hafa óskað eftir því að vera herliðsbandamanna í landinu verði framlengd um ár. 31.10.2006 15:06
40 Írökum rænt Meira en 40 Írökum hefur verið rænt í árás á strætisvagna sem voru á leið til Bagdad um hádegisbil í dag samkvæmt fregnum frá lögreglunni í Tíkrít. 31.10.2006 12:59
Stjórnarandstaðan í Kasakstan sammála Borat Stjórnarandstöðuleiðtoginn í Kasakstan sagði í morgun að Sacha Baron Cohen, sá sem leikur vitleysinginn Borat, hefði ekki valið Kasakstan sem bakgrunn fyrir brandara sína í nýrri bíómynd ef ástand mála þar í landi væri betra. 31.10.2006 12:08
Spánverjar reyna að stemma stigu við flóttamönnum frá Afríku Dómsmálaráðherra Spánar, Lopez Aguilar, sagði í morgun eftir fundahald í Senegal, að Afríkuríki yrðu að reyna að stemma stigu við fjölda flóttamanna sem reyna að komast til Evrópu. 31.10.2006 11:48
Smygla fólki yfir Eyrarsundsbrúna Lögregla í Svíþjóð hefur handtekið sjö manns í tengslum við það sem talið er umfangsmikið smygl á fólki til landsins. Fram kemur á vef Nyhedsavisen að lögregla hafi stöðvað fjórar smygltilraunir frá því á föstudag en í öll skiptin var reynt að smygla fólki frá Danmörku og yfir Eyrarsundsbrúna. 31.10.2006 11:17
Norður-Kórea að samningaborðinu á ný Norður-Kórea hefur samþykkt að setjast aftur að samningaborðinu til viðræðna við hinn svokallaða Sexveldnahóp samkvæmt fréttum frá Suður-Kóreu og Kína. 31.10.2006 11:06
Lögreglan í Marseille handtekur fimm ungmenni Lögreglan í Marseille í Frakklandi handtók í morgun fimm ungmenni vegna gruns um að þau hafi tekið þátt í árás á strætisvagn fyrr í vikunni, en ung kona hlaut brunasár á 70% líkama síns í árásinni. 31.10.2006 10:50
Írakar þurfa 100 milljarða dollara vegna uppbyggingarstarfs Alls er talið að Írakar eigi eftir að þurfa á um 100 milljarða dollara, sem samsvarar um 6.840 milljörðum íslenskra króna, að halda næstu fjögur til fimm árin til þess að endurbyggja innviði stjórnkerfisins. 31.10.2006 10:30
35 kínverskir námuverkamenn verða innlyksa 35 kínverskir námuverkamenn urðu innlyksa í morgun eftir gassprengingu í kolanámu í norðvesturhluta Kína samkvæmt fregnum frá kínversku fréttastofunni Xinhua. 31.10.2006 10:13
Viðvarandi rafmagnsleysi í Írak vegna árása Leyniskyttur og morðhótanir gera það að verkum að rafvirkjar í Írak fást ekki lengur til að gera við rafmagnslínur í höfuðborginni. Ekki hefur tekist að gera við aðveitulínur til höfuðborgarinnar vegna ofbeldismanna sem hóta iðnaðarmönnum. Íbúar Bagdad fá því stundum ekki rafmagn nema í tvo tíma á dag. 30.10.2006 23:39
Glasaungar til bjargar kóalakyninu Vísindamenn í Ástralíu kynntu í dag hóp af ungum kóalabjörnum sem eru afrakstur nýrrar glasafrjóvgunartækni. Kóalabirnir eru ekki í bráðri útrýmingarhættu en náttúruverndarstofnanir hafa tegundina þó á gátlista. 25 glasaungar hafa nú litið dagsins ljós, vísindamönnum og kóalaunnendum til mikillar gleði. 30.10.2006 23:30
3 milljónir Íraka á vergangi vegna átakanna Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 3 milljónir flóttamanna hafi flúið heimili sín til þess að reyna að komast burt frá átakasvæðum í Írak. Aðrar hjálparstofnanir giska á svipðar tölur og allar telja að flóttamannastraumurinn fari sífellt vaxandi. Rúmlega 1,6 milljónir hafa flúið heimalandið en litlu færri eru á vergangi í Írak. 30.10.2006 22:39
Bretaprins hættir við að heimsækja Peshawar Karl Bretaprins hefur aflýst ferð sinni og Kamillu konu sinnar til Peshawar í norðvesturhluta Pakistans, samkvæmt ráðleggingum frá pakistönskum yfirvöldum. Opinberlega var engin ástæða gefin fyrir breytingunni önnur en ráðleggingar pakistanskra stjórnvalda, en líklega var óttast um öryggi prinsins eftir að sprengjuárás á grunnskóla varð 80 manns að bana í dag. 30.10.2006 22:15
73ja kílóa þungur skötuselur Norsk hjón settu heldur betur í þann stóra þegar þau lönduðu 73ja kílóa þungum skötusel í Þrándheimsfirði í gær. Eftir því sem segir á fréttavefnum skip.is er þetta einn stærsti skötuselur sem sögur fara af. Fiskurinn var 165 sm að lengd. Lögreglan á staðnum var fengin til að vigta fiskinn svo enginn dirfðist að véfengja fiskisöguna. 30.10.2006 22:00
Atvinnuleysi í Frakklandi ekki minna í 5 ár Atvinnuleysi í Frakklandi í september mældist hið lægsta í fimm ár, 8,8%. Þetta eru góðar fréttir fyrir ríkisstjórn Dominique de Villepins, sem hefur lagt einna mesta áherslu á að auka atvinnutækifæri. Atvinnuleysi í Frakklandi hefur minnkað um rúmlega eitt prósentustig á einu og hálfu ári, þó að ungt fólk eigi enn nokkuð erfitt með að fá vinnu. 30.10.2006 21:45
Spánverji laus úr haldi palestínskra mannræningja Spænskur maður sem vinnur hjá hjálparstofnun á Gaza-ströndinni í Palestínu var látinn laus úr haldi mannræningja sem rændu honum úr bíl hans fyrr í dag. Manninum var rænt rétt við Khan Younis í suðurhluta Palestínu. Spánverjinn, Roberto Villa Sexto, sem er 32ja ára, hefur unnið við hjálparstarf í Palestínu í tvö ár. 30.10.2006 21:30
Olmert styrkir stöðu ísraelsku stjórnarinnar Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, um samstarf við hinn þjóðernissinnaða Yisrael Beitenu-flokk. Telja stjórnmálaskýrendur að það torveldi mögulegar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna. Með tilkomu nýrra þingmanna eykst meirihluti ríkisstjórnarinnar um ellefu þingsæti. 30.10.2006 20:45
Nýtt fangelsi fyrir sex fanga á Pitcairn Bresk fangelsismálayfirvöld tilkynntu í gær að fljótlega yrði hafist handa við fangelsisbyggingu á eyjunni Pitcairn í Kyrrahafinu. Fangelsið er sérstaklega byggt fyrir sex eyjaskeggja sem voru dæmdir til fangavistar fyrir kynferðisafbrot í vor. Þessir sex eyjaskeggjar eru 10% af heildaíbúafjölda eyjarinnar. 30.10.2006 20:30
Varar við skiptingu Íraks og brotthvarfi Bandaríkjamanna Skipting Íraks myndi leiða til þjóðernishreinsana og gríðarmikilla bardaga á milli trúarhópa, að mati sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum. Hann varar einnig Bandaríkjamenn við því að yfirgefa Írak án fyrirvara. "Fyrst Bandaríkjamenn komu óboðnir til Íraks, ættu þeir ekki að fara frá Írak óboðnir," sagði furstinn Turki al-Faisal á blaðamannafundi eftir ræðu sem hann hélt í Washington í dag. 30.10.2006 19:53