Fleiri fréttir Augusto Pinochet handtekinn í Chile 30.10.2006 16:39 Spænska ríkisstjórnin tortryggir Baska Spænska ríkisstjórnin vill frekari sannanir fyrir því að aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA sé hætt ofbeldisverkum, áður en hún gengur til friðarviðræðna. 30.10.2006 16:07 Danskar konur gagnrýnni á Íraksstríðið en karlar Danskar konur eru mun gagnrýnni á veru dansks herliðs í Írak en karlar samkvæmt nýrri könnun sem rannsóknarstofnin Catinét hefur gert fyrir Ritzau-fréttastofuna. Tæplega 57 prósent danskra kvenna telur að aldrei hefði átt að senda hermenn til Írak en 27 prósent eru á öndverðri skoðun. 30.10.2006 15:27 Vill leggja niður Norðurlandaráð Norðurlandaráð hefur engin völd og leggja ætti það niður, skrifar sænska dagblaðið Dagens Nyheter. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum bera hins vegar lof á norrænt samstarf. 30.10.2006 15:20 Ástarnorn varð að endurgreiða þóknun Þýsk kona hefur unnið mál gegn "Ástarnorn" sem hafði þegið fé fyrir að fá kærasta konunnar til að snúa til hennar aftur, eftir að slitnaði upp úr sambandinu 30.10.2006 14:41 Kafa í skipsflak Svartskeggs sjóræningja Bandarískir fornleifafræðingar eru nú að kafa undan ströndum Norður-Karólínu, til þess að skoða skipsflak sem þeir telja vera flaggskip Svartskeggs sjóræningja. 30.10.2006 14:17 Forseti Ísraels neitar að víkja Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur neitað að segja af sér meðan saksóknarar skoða hvort eigi að leggja fram ákærur á hendur honum um nauðganir og kynferðislega áreitni. 30.10.2006 13:44 Vilja að múslimaklerkur dragi sig í hlé Hart er lagt að áströlskum múslimaklerki að segja af sér, eftir að hann lýsti því yfir í predikun að fáklæddar konur væru að biðja um að þeim væri nauðgað. 30.10.2006 13:21 Beðið úrslita í Kongó Síðari umferð forsetakosninganna í Kongó fór fram í gær og stóð baráttan milli sitjandi forseta og fyrrverandi leiðtoga uppreisnarmanna. Þetta voru fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í landinu rúma fjóra áratugi. Verið er að telja atkvæði nú og endanlegra úrslita að vænta í lok vikunnar. 30.10.2006 13:15 Hungruðum fækkar ekki Tíu árum eftir að leiðtogar heimsbyggðarinnar strengdu þess heit að fækka hungruðum um helming, hefur lítið gerst, samkvæmt nýrri skýrslu Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. 30.10.2006 13:10 Afgerandi sigur Luis Inacio Lula da Silva var endurkjörinn forseti Brasilíu með miklum meirihluta atkvæða um liðna helgi. Búið er að telja nærri því öll atkvæði og hlaut Da Silva um 61% atkvæða. Þetta var síðari umferð kosninganna þar sem valið stóð á milli sitjandi forseta og Geraldo Alckmin, fyrrverandi ríkisstjóra í Sao Paulo. 30.10.2006 12:45 Alvarleg kreppa yfirvofandi ef ekkert að gert Loftslagsbreytingar gætu valdið miklum samdrætti í alþjóðlegu efnahagslífi og kostnaður vegna þess orðið jafnvirði tæplega fimm hundruð biljóna íslenskra króna verði ekkert að gert. Þetta kemur fram í skýrslu bresks hagfræðings sem unnin er fyrir bresk stjórnvöld og birt í dag. 30.10.2006 12:15 Tony Blair ræður Al Gore í vinnu Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ráðið Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna sem ráðgjafa ríkisstjórnar sinnar í umhverfismálum. 30.10.2006 11:43 Kjósendur í Serbíu samþykkja nýja stjórnarskrá Dagblöð í Serbíu flytja fregnir af því í dag að kjósendur hafi samþykkt nýja stjórnarskrá sem kveður á um að Kosovo sé órjúfanlegur hluti Serbíu. Íbúar í Kosovo fengu þó ekki að taka þátt í kosningunni. 30.10.2006 11:41 Kongólskur hermaður skýtur tvo til bana Kongólskur hermaður skaut tvo starfsmenn kosninganna í Kongó til bana í morgun eftir að kosningunum hafði lokið. Talið er að hermaðurinn hafi verið drukkinn. 30.10.2006 11:26 Lögfræðingur Saddams gengur út úr réttarsal Aðallögfræðingur Saddams Hussein gekk í dag út úr réttarsalnum eftir að hafa lagt fram lista með tólf kröfum sem hann vildi að yrði fullnægt áður en réttarhaldið myndi halda áfram. 30.10.2006 10:59 Mecom þarf að reka eittþúsund starfsmenn Breska fjölmiðlasamsteypan Mecom, sem keppti við Dagsbrún um kaup á norska fjölmiðlarisanum Orkla Media, þarf að reka minnst eittþúsund starfsmenn til þess að dæmið gangi upp, að sögn norska blaðsins Aftenposten. 30.10.2006 10:46 Höfða mál vegna síðari heimsstyrjaldarinnar 30.10.2006 10:30
Sjá næstu 50 fréttir
Spænska ríkisstjórnin tortryggir Baska Spænska ríkisstjórnin vill frekari sannanir fyrir því að aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA sé hætt ofbeldisverkum, áður en hún gengur til friðarviðræðna. 30.10.2006 16:07
Danskar konur gagnrýnni á Íraksstríðið en karlar Danskar konur eru mun gagnrýnni á veru dansks herliðs í Írak en karlar samkvæmt nýrri könnun sem rannsóknarstofnin Catinét hefur gert fyrir Ritzau-fréttastofuna. Tæplega 57 prósent danskra kvenna telur að aldrei hefði átt að senda hermenn til Írak en 27 prósent eru á öndverðri skoðun. 30.10.2006 15:27
Vill leggja niður Norðurlandaráð Norðurlandaráð hefur engin völd og leggja ætti það niður, skrifar sænska dagblaðið Dagens Nyheter. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum bera hins vegar lof á norrænt samstarf. 30.10.2006 15:20
Ástarnorn varð að endurgreiða þóknun Þýsk kona hefur unnið mál gegn "Ástarnorn" sem hafði þegið fé fyrir að fá kærasta konunnar til að snúa til hennar aftur, eftir að slitnaði upp úr sambandinu 30.10.2006 14:41
Kafa í skipsflak Svartskeggs sjóræningja Bandarískir fornleifafræðingar eru nú að kafa undan ströndum Norður-Karólínu, til þess að skoða skipsflak sem þeir telja vera flaggskip Svartskeggs sjóræningja. 30.10.2006 14:17
Forseti Ísraels neitar að víkja Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur neitað að segja af sér meðan saksóknarar skoða hvort eigi að leggja fram ákærur á hendur honum um nauðganir og kynferðislega áreitni. 30.10.2006 13:44
Vilja að múslimaklerkur dragi sig í hlé Hart er lagt að áströlskum múslimaklerki að segja af sér, eftir að hann lýsti því yfir í predikun að fáklæddar konur væru að biðja um að þeim væri nauðgað. 30.10.2006 13:21
Beðið úrslita í Kongó Síðari umferð forsetakosninganna í Kongó fór fram í gær og stóð baráttan milli sitjandi forseta og fyrrverandi leiðtoga uppreisnarmanna. Þetta voru fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í landinu rúma fjóra áratugi. Verið er að telja atkvæði nú og endanlegra úrslita að vænta í lok vikunnar. 30.10.2006 13:15
Hungruðum fækkar ekki Tíu árum eftir að leiðtogar heimsbyggðarinnar strengdu þess heit að fækka hungruðum um helming, hefur lítið gerst, samkvæmt nýrri skýrslu Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. 30.10.2006 13:10
Afgerandi sigur Luis Inacio Lula da Silva var endurkjörinn forseti Brasilíu með miklum meirihluta atkvæða um liðna helgi. Búið er að telja nærri því öll atkvæði og hlaut Da Silva um 61% atkvæða. Þetta var síðari umferð kosninganna þar sem valið stóð á milli sitjandi forseta og Geraldo Alckmin, fyrrverandi ríkisstjóra í Sao Paulo. 30.10.2006 12:45
Alvarleg kreppa yfirvofandi ef ekkert að gert Loftslagsbreytingar gætu valdið miklum samdrætti í alþjóðlegu efnahagslífi og kostnaður vegna þess orðið jafnvirði tæplega fimm hundruð biljóna íslenskra króna verði ekkert að gert. Þetta kemur fram í skýrslu bresks hagfræðings sem unnin er fyrir bresk stjórnvöld og birt í dag. 30.10.2006 12:15
Tony Blair ræður Al Gore í vinnu Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ráðið Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna sem ráðgjafa ríkisstjórnar sinnar í umhverfismálum. 30.10.2006 11:43
Kjósendur í Serbíu samþykkja nýja stjórnarskrá Dagblöð í Serbíu flytja fregnir af því í dag að kjósendur hafi samþykkt nýja stjórnarskrá sem kveður á um að Kosovo sé órjúfanlegur hluti Serbíu. Íbúar í Kosovo fengu þó ekki að taka þátt í kosningunni. 30.10.2006 11:41
Kongólskur hermaður skýtur tvo til bana Kongólskur hermaður skaut tvo starfsmenn kosninganna í Kongó til bana í morgun eftir að kosningunum hafði lokið. Talið er að hermaðurinn hafi verið drukkinn. 30.10.2006 11:26
Lögfræðingur Saddams gengur út úr réttarsal Aðallögfræðingur Saddams Hussein gekk í dag út úr réttarsalnum eftir að hafa lagt fram lista með tólf kröfum sem hann vildi að yrði fullnægt áður en réttarhaldið myndi halda áfram. 30.10.2006 10:59
Mecom þarf að reka eittþúsund starfsmenn Breska fjölmiðlasamsteypan Mecom, sem keppti við Dagsbrún um kaup á norska fjölmiðlarisanum Orkla Media, þarf að reka minnst eittþúsund starfsmenn til þess að dæmið gangi upp, að sögn norska blaðsins Aftenposten. 30.10.2006 10:46
Kínverjar funda með leiðtogum Suðaustur-Asíuríkja Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao átti fund með leiðtogum Suðaustur-Asíuríkja í kínversku borginni Nanning í morgun. Með þessu eru Kínverjar að sýna aukin áhrif sín á svæðinu. 30.10.2006 09:56
Pakistanski herinn gerir árás á þjálfunarbúðir Al Kaída Allt að 80 íslamskir vígamenn biðu bana í árás pakistanska hersins á íslamskan skóla sem var rekinn af stuðningsmanni Talibana. 30.10.2006 09:48
Leiðtogi Múslíma í Nígeríu fórst í flugslysi Leiðtogi Múslíma í Nígeríu fórst í flugslysi þar dag. Flugvélin, sem var af gerðinni Boeing 737 frá nígeríska flugfélaginu ADC, hrapaði í flugtaki nærri höfuðborginni Abuja. Múslímaleiðtoginn, súltáninn Mohammadu Maccido og tveir þingmenn voru meðal þeirra rúmlega 100 sem létu lífið, en talið er að fjórir hafi komist lífs af. 29.10.2006 15:55
Bradshaw flokkar ekki ruslið sitt Ben Bradshaw umhverfisráðherra Bretlands, og einn harðasti gagnrýnandi íslenskra hvalveiða, er tekinn á beinið í Daily Mail í dag fyrir að fara ekki eftir eigin endurnýtingarreglum í sorphirðunni heima hjá sér. Blaðið birtir myndir af húsi ráðherrans, og ruslapokum þar fyrir utan, sem eiga að sýna að ráðherrann flokki ekki endurnýtinanlegt sorp frá öðru rusli. 29.10.2006 15:06
Endurkoma Schwarzeneggers Arnold Schwarzenegger tekst að snúa vonlausri stöðu sér í hag og snýr andstæðinginn auðveldlega niður. Þetta er ekki söguþráður í Hollywood kvikmynd heldur raunveruleiki ríkisstjórans Arnolds sem hefur á einu ári náð að vinna sér upp úr verulegum óvinsældum í yfirburðastöðu. 29.10.2006 13:54
Brennuvargar hvattir til að gefa sig fram Móðir eins slökkviliðsmannsins sem fórst í skógar- og kjarreldunum í Suður-Kaliforníu um helgina hvetur þá sem kveiktu eldana til að gefa sig fram við lögreglu. Fjórir slökkviliðsmenn týndu lífi í eldunum og einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. 29.10.2006 12:50
Kastró á batavegi Fídel Kastró, forseti Kúbu kom fram í sjónvarpi í heimalandi sínu í gær í fyrsta sinn í rúman mánuð. Forsetinn, sem varð áttræður í ár, hefur verið að jafna sig eftir erfiða aðgerð. Hann gekk um gólf á upptökunni sem sýnd var og sagði sögur af andláti sínu stórlega ýktar. 29.10.2006 12:47
Átök á ársafmæli óeirðanna Kona á þrítugsaldri brenndist illa og þrír fengu vott af reykeitrun þegar hópur ungmenna kveikti í strætisvagni í hafnarborginni Marseilles í Frakklandi í gær. Þau ruddurst inn í vagninn, köstuðu þar frá sér flösku fullri af eldfimum vökva og kveiktu í. Konan fékk annars og þriðja stigs brunasár á höndum, fótum og andliti. Strætisvagninn eyðilagðist. Á föstudaginn var ár liðið frá miklum óeirðum í Frakklandi og var lögreglan því viðbragðsstöðu um helgina ef til átaka kæmi. Aðeins kom til smávægilegra átaka. 29.10.2006 11:15
5000 egypskir öryggissveitarmenn fluttir að landamærunum að Gaza Egyptar flutti í kvöld rúmlega fimm þúsund öryggissveitarmenn að landamærunum að Gaza-svæðinu. Þetta var gert eftir að fréttir bárust af því að svo gæti farið að Ísraelar sprengdu göng sem notuð væru til að smygla vopnum inn á palestínskt landsvæði. Egyptar munu einnig hafa gripið til þessara liðsflutninga af ótta við að herskáir Palestínumenn myndi brjóta sér leið í gegnum landamæravegg milli Gaza-svæðisins og Egyptalands. Fyrir voru aðeins 750 landamæraverðir. 28.10.2006 22:26
Útlit fyrir að Gilad Shalit fái frelsi Útlit er fyrir að Gilad Shalit, ísraelski hermaðurinn sem herskáir Palestínumenn rændu í sumar, verði látinn laus á næstu dögum. Ránið á Shalit varð kveikjan að átökum Ísraela og Palestínumanna á Gaza-svæðinu í sumar. 28.10.2006 12:47
Verðlaunum heiti fyrir upplýsingar um brennuvarga Yfirvöld í Suður-Kaliforníu hafa boðið jafnvirði tæpra 35 milljóna íslenskra króna fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku þeirra sem grunaðir eru um að hafa kveikt kjarr- og skógarelda sem loga í ríkinu. Fjórir slökkviliðsmenn hafa týnt lífi í baráttunni við eldana og sá fimmti liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. 28.10.2006 12:44
Friðarviðræður hafnar í Genf Friðarviðræður milli stríðandi fylkinga á Srí Lanka hófust í morgun í Genf í Sviss. Þar munu fulltrúar stjórnvalda og uppreisnarmanna Tamíltígra reyna hvað þeir geta til að koma í veg fyrir að allsherjar borgarastyrjöld brjótist út í landinu. 28.10.2006 12:39
Kosið um stjórnarskrá Serbíu Kjósendur í Serbíu ganga í dag og á morgun að kjörborðinu í morgun til að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá landsins. Samkvæmt henni telst Kósóvó óaðskiljanlegur hluti Serbíu. 28.10.2006 12:22
7 týndu lífi þegar súrefniskútur sprakk Minnst 7 týndu lífi þegar súrefniskútur sprakk í Tiblisi, höfuðborg Georgíu í dag. Sprengingin varð á áfyllingarstöði Isani-Samgori hverfi. Byggingin, þar sem fyllt var á súrefniskúta, hrundi. Björgunarmenn eru enn að störfum í rústunum og óttast að fleiri eigi eftir að finnast látnir þar. 27.10.2006 23:45
Vilja leyfa 30 grömm af maríjúana til einkaneyslu Íbúar í Nevada-ríki í Bandaríkjunum greiða atkvæði um það í næsta mánuði hvort leyfa eigi fólki sem hefur náð 21. árs aldri að eiga allt að tæpum 30 grömmum af maríjúana og geyma það á eigin heimili. Sem stendur er Alaska eina ríkið í Bandaríkjunum sem refsar ekki þeim sem hafa maríjúana til eigin neyslu undir höndum. 27.10.2006 23:00
Djúpsteikt Coca Cola vekur lukku í Texas Tölvunarfræðingur frá Bandaríkjunum bætti á dögunum við úrval djúpsteiktra matvæla þegar hann bauð, fyrstur manna, upp á djúpsteikt Coca Cola. 27.10.2006 22:45
Bildt selur hlutabréf Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur selt hlutabréf sín í fyrirtæki sem fjárfestir í rússneska orkugeiranum. Andstæðingar hans sögðu hættu á hagsmunaárekstrum ef hann héldi þeim. Bildt segist hafa selt hlutabréf sín í fyrirtækinu fyrir nokkrum vikum. 27.10.2006 21:45
Samúræji í Þýskalandi Samúræjarnir svonefndu eru sjaldséð sjón nú til dags. Einn slíkur virðist þó hafa verið á ferli um Hamborg í Þýskalandi í nótt. Sá hafði tekið sér far með neðanjarðarlest en neitaði að greiða fargjaldið. Þegar lögregla kom á vettvang dró þessi þýski samúræi upp stóreflis sverð og sveiflaði því í kringum sig af miklum móð. 27.10.2006 19:30
Úranvinnsla á öðru stigi Íranar hafa hafið annars stigs auðgun á úrani en slík vinnsla er talin færa þá nær því að geta búið til kjarnorkusprengju. 27.10.2006 19:00
Hefndum hótað Talibanar saka herlið Atlantshafsbandalagsins í Afganistan um þjóðarmorð og hóta grimmilegum hefndum vegna loftárása á saklausa hirðingja í vikunni. 27.10.2006 18:45
Pronk aftur til Súdans Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Súdan, Jan Pronk, mun snúa aftur til höfuðborgarinnar Khartoum þrátt fyrir að stjórnvöld í Súdan vilji ekki sjá hann. Talsmaður SÞ greindi frá þessu í dag. 27.10.2006 18:02
Enn kveikt í strætisvagni í Frakklandi Tveir vopnaðir menn kveiktu í strætisvagni rétt norður af París, höfuðborg Frakklands, í dag. Franska lögreglan greindi frá þessu. Í dag er eitt ár frá því til alvarlega óeirða kom í Frakklandi. Minningarganga var farin í einu úthverfa Parísar í dag þar sem óeirðirnar í fyrra blossuðu fyrst upp. 27.10.2006 17:50
Salerni fyrir kynskiptinga? Hvaða salerni á kynskiptingur að nota í ítalska þinghúsinu í Róm? Þessari spurningu reyna nú þingmenn að svara á neðri deild þingsins þangað sem kynskiptingur hefur fyrst náð kjöri í Evrópu. Vladimir Luxuria er fæddur karlmaður en gengur um í kvennfötum. Hann á eftir að gangast undir kynskiptiaðger. Kona sem situr á þingi fyrir hægriflokk hefur gert athugasemd við það að Vladimir noti salerni kvenna. 27.10.2006 17:49
Argentínumenn vilja kaupa hergögn frá Rússum Stjórnvöld í Argentínu hafa afhent Rússum eins konar innkaupalista yfir þau hergögn sem Argentínumenn ásælist og vilji kaupa af þeim. Sergei Ivanov, varnarmálaráðherra Rússlands, greindi frá þessu eftir viðræður við starfsbróður sinn frá Argentínu í dag. Itar-Tass fréttastofan rússneska greinir frá þessu. 27.10.2006 17:30
Gefur út handtökuskipun á hendur Pinochet Dómari í Chile hefur gefið út handtökuskipun á hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í landinu vegna glæpa sem framdir voru í leynilegu fangelsi sem starfrækt var í valdatíð hans í Chile. 27.10.2006 16:53
Tveim múslimum sleppt úr haldi í Danmörku Dönsk yfirvöld hafa látið lausa tvo af sjö ungum múslimum sem voru handteknir í Óðinsvéum í september síðasliðnum. Þeir eru grunaðir um að hafa undirbúið hryðjuverk í Danmörku. 27.10.2006 15:35
Óeirðanna í Frakklandi minnst Að minnsta kosti 500 manns tóku þátt í göngu í Clichy-sous-Bois, úthverfi Parísar, í dag til að minnast tveggja táningspilta sem léstust úr raflosti fyrir ári. Talið var að drengirnir hefðu verið að flýja lögreglu en dauði þeirra leiddi til óeirða meðal fátækra innflytjenda víða um Frakkland þar sem kveikt var í bæði bílum og húsum. 27.10.2006 15:33