Fleiri fréttir

Rice segir mistök hafa verið gerð í Írak

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir ýmis mistök hafa verið gerð í tengslum við innrásina í Írak og eftirmála hennar en í grunninn hafi verið rétt að koma Saddam Hússein, fyrrverandi forseta, frá völdum. Ráðherrann er staddur í heimsókn á Bretlandi, þar sem mótmælendur hafa fylgt henni eftir við hvert fótmál.

Íranar gera tilraunir með ný flugskeyti

Íransher gerði í gær tilraunir með nýja gerð af flugskeytum sem talið er að hægt verði að skjóta á skotmörk í Ísrael og herstöðvar Bandaríkjamanna við Persaflóann. Fregnir þess efnis valda nú Bandaríkjamönnum áhyggjum í ljósi kjarnorkudeilunnar við Írana sem enn er í hnút.

Fólk flutt nauðugt af flóðasvæðum

Björgunarsveitarmenn og íbúar í bænum Wildberg í Þýskalandi búa sig undir það versta, en vatnshæð í ánni Saxelfur hefur aukist töluvert síðustu klukkustundirnar. Svo gæti farið að 19 fjölskyldu í Dresden verði fluttar nauðungar frá heimilum sínum í dag sökum flóðahættu.

Ákvörðun Frakklandsforseta fordæmd

Verkalýðsfélög og stúdentar fordæma þá ákvörðun Chiracs Frakklandsforseta að staðfesta umdeilda vinnulöggjöf sem mótmælt hefur verið víða um Frakkland síðustu vikur. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar ætla áfram að stefna á allsherjarverkfall í landinu í næstu viku.

Eldflaugaárásir í Gasa-borg

Ísrelsher gerði í morgun eldflaugaárás á knattspyrnuvöll í Gasa-borg. Eldflaugum var einnig skotið á garð í miðri borginni. Ekki liggur fyrir hvort einhverjir hafi fallið í árásunum.

Skipstjórinn yfirheyrður

Lögreglan í Bahrain yfirheyrir nú skipstjóra snekkju sem fór á hliðina í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að fimmtíu og sjö manns drukknðu. Tveggja er enn saknað. Saksóknari í Bahrain segir skipstjórann ekki hafa nauðsynleg leyfi og því sé hann í haldi.

Frakklandsforseti ætlar að staðfesta vinnulöggjöf

Chirac Frakklandsforseti ætlar að staðfesta umdeilda vinnulöggjöf þrátt fyrir mikil mótmæli á götum Frakklands síðustu vikur. Hann heitir því þó að tveimur umdeildum ákvæðum verði breytt.

Svíar taka út fangelsi stríðsglæpadómstólsins

Sænskum yfirvöldum hefur verið falið að gera úttekt á fangelsinu sem hýsti Slobodan Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseta, meðan réttað var yfir honum fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi. Forsetinn lést þar fyrr í þessum mánuði.

Ár flæða yfir bakka sína í Evrópu

Ár flæða nú yfir bakka sína í sex ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og valda miklum skemmdum. Minnst fjórir hafa farist í flóðunum. Vatn flæðir um götur og inn í hús og hefur þurft að flytja mörg þúsund manns frá heimilum sínum.

Skemmtiferð lauk með skelfingu

Skemmtiferð um Persaflóann lauk hræðilega í gærkvöldi, þegar stór snekkja, yfirfull af fólki, fór á hliðina með þeim afleiðingum að 57 manns drukknuðu. Flestir í bátnum voru útlendingar í verktakavinnu í Bahrain.

Minnst 70 fórust í jarðskjálfta

Að minnsta kosti 70 manns létu lífið í snörpum jarðskjálftakippum í Íran í nótt. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka.

Blóðug átök á Gaza

Blóðug átök brutust út í dag milli andstæðra fylkinga Palestínumanna á Gaza-ströndinni. Átökin hófust eftir að bílsprengja varð Palestínumanni að bana. Maðurinn var foringi skæruliðasamtaka sem hafa staðið fyrir flugskeytaárásum á Ísrael.

Sprenging á iðnaðarsvæði í Hollandi

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir að sprenging varð í verksmiðju í iðnaðarhverfi nálægt Haag í Hollandi í dag. Mikill viðbúnaður var á svæðinu eftir sprenginguna en slökkviliðsmenn sögðu hættu á frekari sprengingum.

Sprenging í Istanbúl

Að minnsta kosti einn lét lífið og fjölmargir særðsut þegar sprengja sprakk nálægt strætisvagnastöð í Istanbúl í Tyrklandi í dag.

Vonar að hægt verði að komast hjá refsiaðgerðum

Mohammed El-Baradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, segist vonast til þess að hægt verði að komast hjá refsiaðgerðum gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Hann sagði vissulega hægt að grípa til aðgerða og þar með stigmagna deiluna en það leysi hana ekki.

Stúlka á fyrsta ári lést úr fuglaflensu í Indónesíu.

Stúlka á fyrsta ári léstu úr fuglaflensu í Indónesíu á dögunum. Heilbrigðisráðuneyti landsins greindi frá þessu í dag en rannsóknarstofa Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar í Hong Kong staðfesti þetta eftir rannsóknir á sýnum úr stúlkunni. Þar með hafa tuttugu og þrír látist af völdum sjúkdómsins í Indónesíu.

Palestínumenn hvattir til að sýna stillingu

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hvatti í dag Palestínumenn til að sýna stillingu eftir að leiðtogi herskárra samtaka féll í eldflaugaárás Ísraelshers á Gasa-ströndinni í dag. Haniyeh hefur þegar falið innanríkisráðherra heimastjórnarinnar að rannsaka tildrög árásarinnar.

57 létust

Minnst fimmtíu og sjö týndu lífi þegar farþegaskip fór á hvolf rétt utan við Bahrein í Persaflóa í gærkvöld.

Fjöldi þorpa rústir einar

Nokkur hundruð þorp eru í rúst eftir þrjá snarpa jarðskjálfta í vesturhluta Írans í morgun. Minnst fimmtíu létust í skjálftunum og 800 slösuðust.

Að minnsta kosti 50 létust og 800 slösuðust

Nokkur hundruð þorp eru í rúst eftir þrjá snarpa jarðskjálfta í vesturhluta Írans í morgun. Minnst fimmtíu létust í skjálftunum og 800 slösuðust. Upptök skjálftanna þriggja voru í fjalllendi á milli tveggja iðnaðarborga í vesturhluta Írans. Sá fyrsti var öflugastur og mældist sex á Richter. Strax á eftir komu tveir skjálftar upp á um það bil fimm.

Hættir um jólin

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, mun hætta í stjórnmálum um jólin. Þetta hefur breska blaðið Telegraph eftir nánum samstarfsmönnum forsætisráðherrans.

Vilja ekki heita Hansen, Jensen eða Nielsen

Danir vilja ólmir skipta út nöfnunum Jensen, Nielsen og Hansen og taka upp sjaldgæfari eftirnöfn sem þykja flottari að því er fram kemur á vef Berlinske Tidene í morgun. Ný nafnalög taka gildi í Danmörku á morgun sem gerir Dönum það kleift að skipta út eftirnöfnum sínu og velja sér ný. Þegar hafa borist fjölmargar umsóknir um nafnabreytingu og eru flestar þeirra tengdar eftirnöfnunum Jensen, Nielsen og Hansen.

Naomi Campbell handtekin fyrir barsmíðar

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell var handtekin á heimili sínu í dag. Hún er sökuð um að hafa barið aðstoðarkonu sína eftir að þær lentu í rifrildi.

Atvinnulöggjöf stenst stjórnarskrá Frakka

Stjórnarskrárdómstóll í Frakklandi úrskurðaði í dag að ný atvinnulöggjöf sem valdið hefur miklum deilum stæðist stjórnarskrá. Þar með er allt útlit fyrir að löggjöfin nái fram að ganga, að því gefnu að Chirac Frakklandsforseti samþykki hana.

Lítil trú á stjórninni

Stuðningsmenn hægriflokka í Ísrael spá því að samsteypustjórn undir forystu Kadima og Olmerts verði skammlíf, og enn skammlífari verði Palestínumönnum afhentur hluti af Vesturbakkanum.

Fá 30 daga frest

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur veitt Íran 30 daga frest til að sannfæra ráðið um að landið stefni ekki á að verða kjarnorkuríki. Íranar segja það rétt þjóðarinnar að framleiða úran og segjast ekki hræðast hótanir Vesturvelda

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur veitt Íran 30 daga frest

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur veitt Íran 30 daga frest til að sannfæra ráðið um að landið ætli ekki að hefja framleiðslu á kjarnavopnum. Öryggisráðið krafðist þess í fyrsta skipti í gær að Íranar falli frá þeim hluta kjarnorkuáætlunar sinnar sem geri þeim kleift að smíða kjarnorkuvopn.

Þrjátíu rútufarþegar létust og þrír slösuðust

Um þrjátíu rútufarþegar létust og þrír slösuðust í Yunnan héraði í Kína í gærkvöld. Rútan steyptist ofan í 100 metra djúpan dal við borgina Zhaotong en alls var þrjátíu og einn maður innanborðs. Barn er meðal hinna slösuðu og liggur það í dái. Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins.

Enginn mun njóta friðhelgi

Enginn mun njóta friðhelgi sem ákærður hefur verið fyrir að fremja voðaverk fyrir herforingjastjórn Augusto Pinochet á árunum 1973-1990. Frá þessu greindi Michelle Bachelet, forseti Chile við vígsluathöfn minnisvarða um fórnarlömb Pinochet stjórnarinnar í gær.

Mómælendur ekki á því að gefast upp í París

Brotnar rúður og málningarslettur úti um allt, voru það sem blasti við íbúum Parísar þegar þeir héldu til vinnu í morgun. Nærri fimm hundruð manns voru handteknir í miklum mótmælum í höfuðborginni í gær.

Snarpur skjálfti í Japan í morgun

Jarðskjálfti upp á fimm stig mældist 80 kílómetra undir sjávarbotni í um 240 kílómetra fjarlægð norðaustur af Tókýó, höfuðborgar Japans í dag. Að sögn japönsku veðurstofunnar er enginn hætta á flóðbylgjum. Engar fréttir hafa borist af skemmdum eða slysum á fólki en mikið er um jarðskjálfta í Japan enda liggur landið á fjórum flekaskilum.

Hvatti Ísraela til að láta af einhliða ákvörðunum

Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, sagði í morgun að niðurstaða kosninganna í Ísrael í gær breytti sáralitlu í samskiptum Ísraela og Palestínumanna, þar til Ehud Olmert breyti stefnu sinni um einhliða ákvarðanir Ísraela varðandi framtíðarlandamæri Ísraels og Palestínu.

Kosningaþátttaka í Ísrael aldrei minni

Kosningaþátttaka í ísraelsku þingkosningunum sem fram fóru í gær, er sú allra minnsta í sögu landsins. Kadima-flokkurinn bar sigur af hólmi, hann náði þó ekki meirihluta og mun að öllum líkindum mynda samsteypustjórn með Verkamannaflokknum.

Villepin tilbúinn að gera breytingar á vinnulöggjöf

Franska lögreglan handtók í gær yfir sex hundruð manns vegna mótmæla við fyrirhugaða vinnulöggjöf í landinu. Forsætisráðherrann segist nú, í fyrsta sinn, tilbúinn að gera breytingar á lögunum.

Hagnaður H&M eykst um 20 milljarða

Hagnaður sænsku fataverslunarkeðjunnar Hennes & Mauritz, H&M jókst um 20 prósent á fyrsta ársfjórðungi og nam 16,7 milljörðum íslenskra króna. H&M opnaði sex verslanir og lokaði þremur á fyrsta ársfjórðungi fjárhagsársins.

Starfsmannstjóri Hvíta hússins segir af sér

Andrew Card sagði í gær af sér sem starfsmannastjóri Hvíta hússins í Washington. Joshua Bolten, sem verið hefur yfirmaður fjárlagadeildar, hefur tekið við embættinu. Reiknað er með að Karl Rove, einn helsti stjórnmálaráðgjafi forsetans, þurfi einnig að taka pokann sinn.

Ætla að birta fleiri myndir frá Abu Ghraib

Bandarísk stjórnvöld ætla að gera ljósmyndir sem sýna bandaríska hermenn kvelja fanga í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad, opinberar. Frá þessu greindu Bandarísku borgararéttindasamtökin í morgun.

Kadima spáð flestum sætum á ísraelska þinginu

Útgönguspár benda til þess að Kadima-flokkur Ehuds Olmerts, starfandi forsætisráðherra, hafi fengið flest þingsæti í kosningum sem fóru fram í Ísrael í dag. Flokkurinn mun því verða í oddaaðstöðu þegar kemur að því að mynda nýja stjórn.

Þrjár milljónir manna mótmæla í Frakklandi

Hátt á þriðju milljón mótmælti nýrri vinnulöggjöf harðlega í Frakklandi í dag. Andstæðingar hennar segja yngra fólki gert erfiðara um vik að fá langtímaráðningu og auðveldi vinnuveitendum að halda launum niðri. Lögreglan átti fullt í fangi með að verjast æstum mótmælendum sem ætla ekki að bakka fyrr en lögin verða dregin til baka.

Kosið í Ísrael í dag

Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag. Valkostir eru afar skýrir að þessu sinni en á meðan Kadimaflokkurinn og Verkamannaflokkurinn vilja rýma minni landnemabyggðir, segja forsvarsmenn Likud-bandalagsins það ekki koma til greina. Útgönguspár verða birtar þegar kjörstöðum lokar í kvöld, kl. 20 að íslenskum tíma.

Sjá næstu 50 fréttir