Erlent

FBI varar við fölskum heimasíðum

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur sent út aðvörun vegna falskra heimasíðna sem gefa sig út fyrir að vera söfnunarsíður til handa fórnarlömbum flóðanna í Asíu. Heimasíðurnar líkjast raunverulegum söfnunarsíðum en ef greiddur er peningur inn á uppgefna staði komast þeir aldrei til skila til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Aðrar falskar heimasíður gefa möguleika á niðurhali (download) á svokölluðum bakdyrum sem í raun gefur fullan aðgang að öllu sem er að finna í tölvu notandans. Samkvæmt Icecec ehf., sem bæði er verkfræðistofa og veitir öryggisráðgjöf, reyna fölsku heimasíðurnar að tæla notendur inn á síðurnar með því að senda þeim tölvupóst sem hvetur til fjárstuðnings við fórnarlömb flóðbylgjunnar. Þess vegna er nauðsynlegt að vera vel á verði og láta ekki af hendi peninga í gegnum heimasíður sem líta ekki út fyrir að vera ekta og eru ekki á vegum viðurkenndra hjálparsamtaka. FBI hefur ekki gefið út um hvaða falskar heimasíður er hér um að ræða. Að auki hefur FBI tilkynnt að manna á milli gangi mikið af fölskum tölvupósti þar sem sendandinn lofar aðstoð við að finna eftirlýstan/týndan einstakling á hamfarasvæðunum gegn greiðslu. Fólk er beðið að vera vel á verði og taka þessum tölvusendingum með varúð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×