Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Finnst réttast að dómsmálaráðherra stígi til hliðar Stjórnarandstaðan íhugar nú hvaða skref verða stigin til að draga dómsmálaráðherra til ábyrgðar eftir að skrifstofa þingsins fjallaði um í minnisblaði að honum væri skylt að afhenda þinginu upplýsingar innan tiltekins frests í máli sem tengist veitingu ríkisborgararéttar. Þingflokksformaður Pírata finnst réttast að ráðherrann stígi til hliðar. 29.3.2023 12:10
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna fyrir austan en veðurspáin versnar þar í kvöld og hætta á frekari snjóflóðum. 29.3.2023 12:03
Stærsta Reykjavíkurskákmót sögunnar hefst í dag Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Reykjavíkurskákmótinu og nú en það verður sett eftir hádegi í dag. Forseti Skáksambands Íslands segir sprengingu hafa átt sér stað í skákáhuga í heiminum og Reykjavíkurskákmótið sé með þekktustu og sterkustu skákmótum heims. 29.3.2023 11:59
Senda liðsauka austur áður en veðrið skellur á Tuttugu björgunarsveitarmenn verða sendir með flugi til Austfjarða í dag til viðbótar við þá tugi sem þar eru þegar að störfum. Snjóflóðahætta á svæðinu hefur aukist með versnandi veðurspá. Mikil snjókoma er í kortunum í kvöld og úrkomuviðvörun á svæðinu orðin appelsínugul. 29.3.2023 11:44
Magnús margsaga um atburðarásina örlagaríku í Barðavogi Magnús Aron Magnússon sem ákærður er fyrir morð í Barðavogi í fyrra neitaði fyrir við aðalmeðferð málsins fyrir dómi í dag að hafa sparkað ítrekað í höfuð Gylfa Bergmanns Heimissonar sem lést af áverkum sínum. Hann hafði þó lýst slíkum spörkum við lögreglumenn daginn örlagaríka en sú frásögn var tekin upp á búkmyndavél lögreglumanns. Magnús Aron hafði litlar skýringar á því hvers vegna litlir áverkar hefðu verið á honum eftir átökin. 29.3.2023 11:39
Dæsti og bað dómarann um að tala hærra Aðalmeðferð í Barðavogsmálinu svokallaða hófst í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní í fyrra. 29.3.2023 09:57
Fjarðarheiði lokuð og unnið að því að bjarga fólki af heiðinni Björgunarsveitir vinna nú að því að aðstoða fólk á Fjarðarheiði sem lagði á heiðina í morgun. Meðal þeirra sem eru í vandræðum eru farþegar sem áttu bókað með Norrænu, sem leggur úr höfn í hádeginu. 29.3.2023 09:52
Aðstoðuðu um fimmtíu manns við Pétursey í nótt Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt þar sem fjöldi fólks hafði fest bíla sína á þjóðvegi 1 við Pétursey. Ófærð var þá orðin mikil á svæðinu. 29.3.2023 09:48
„Maður er ekki í pólitík fyrir sjálfa sig heldur fyrir aðra“ Formaður Samfylkingarinnar hefur síðustu daga fundað með fólki á Suðurnesjunum og rætt um heilbrigðismál. Um er að ræða fyrstu fundina í fundaröð fer út um allt land. Formaðurinn segir að mikilvægt sé að heyra hvað fólkinu í landinu finnst um stærstu málaflokkana í pólitíkinni. 29.3.2023 09:01
Gekk ekki að fá flugmenn af frívakt á Gæsluþyrluna Ekki tókst að manna þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar útkall barst í gærmorgun eftir rútuslys á Öræfum. 29.3.2023 07:36
Hafa náð saman um fríverslun við Moldóvu EFTA-ríkin og Moldóva hafa komist að samkomulagi um fríverslunarsamning sem undirritaður verður á næsta ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein í júní næstkomandi. 29.3.2023 07:29
Háskóli Íslands leggst enn gegn banni við rekstri spilakassa Háskóli Íslands er enn á móti því að rekstur spilakassa verði bannaður. Í umsögn um frumvarp þess efnis segir Jón Atli Benediktsson rektor meðal annars að skólinn hafi hreinlega ekki efni á því að kassarnir verði bannaðir. 29.3.2023 06:53
Vongóðir um að halda tréhúsinu Formaður heilbrigðisnefndar segist bjartsýnn á að lausn finnist á málunum þannig að sex vinir geti fengið að halda trjákofanum sínum sem þeim hafði verið fyrirskipað að rífa. Drengirnir segja verkefnið hafa styrkt vináttu sína heilmikið. 28.3.2023 23:46
Fjórði garðurinn hefði afstýrt hörmungunum Hættuástand er enn í gildi fyrir austan vegna snjóflóða. Ekki er víst að því verði aflétt á næstunni sökum þess hve veðurspáin fyrir svæðið er slæm. Ljóst er að snjóflóðavarnagarðar áttu stóran þátt í því að ekki fór verr þegar stærstu snjóflóðin féllu í gær. 28.3.2023 22:27
Harður árekstur á Fagradal Tveggja bíla árekstur varð í Fagradal á Austurlandi fyrr í kvöld. Tveir voru fluttir á slysadeild. 28.3.2023 21:41
Eldur við bílapartasölu á Akureyri Slökkvilið var kallað til að Bílapartasölunni Austurhlíð, austanmegin við Akureyri fyrr í kvöld eftir að eldur kom fyrir utan húsið. 28.3.2023 20:21
Kviknaði í tvinnbíl í Breiðholti Eldur kviknaði í bifreið sem lagt var í bílskúr í Breiðholtinu í Reykjavík í dag. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að um tvinnbíl hafi verið að ræða, það er bíl sem gengur fyrir bæði rafmagni og jarðeldsneyti. 28.3.2023 20:19
Háskólarnir megi aldrei verða útungunarstöð fyrir atvinnulífið Hugvísindafólk er uggandi yfir áherslubreytingu háskólaráðherra sem vill að háskólarnir svari betur kalli atvinnulífsins. Forseti Mála- og menningardeildar Háskóla Íslands segir stefnuna vera í anda nýfrjálshyggju. Háskólarnir megi aldrei verða útungunarstöð fyrir atvinnulífið. 28.3.2023 19:30
Forseti Íslands brast í söng um Emil í Kattholti Forseti Íslands lék á alls oddi í Vík í Mýrdal í dag þegar hann brast í söng með nemendum Víkurskóla og svo bauð hann krökkunum að fara í sjómann við sig. Forsetahjónin eru nú í tveggja daga opinberri heimsókn í Mýrdalshreppi. 28.3.2023 19:17
„Þeir koma hér trekk í trekk með lygina að vopni“ Fjórir nefndarmenn og áheyrnarfulltrúi allsherjar- og menntamálanefndar báru af sér sakir á Alþingi í dag. Þingmennirnir fundu sig knúna til að gera það eftir að dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn og aðra alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt. 28.3.2023 18:33
Eldur kviknaði í jeppling við Nettó Slökkvilið var kallað út að bílastæðinu við Nettó á Völlunum í Hafnarfirði nú fyrir skömmu eftir að eldur kviknaði í í jeppling. 28.3.2023 18:26
Þrjátíu daga skilorð fyrir árás á fyrrverandi kærustu: „Ég get ekki leyft neinum að leggja á mig hendur, aldrei“ Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína á heimili sínu á Akureyri. Árásin átti sér stað í september 2021. 28.3.2023 18:07
Rýmingu aflétt að hluta til Ákveðuð hefur að aflétta rýmingu á hluta þeirra húsa sem rýmd voru í Neskaupstað og á Seyðisfirði í gær. Þetta var ákveðið í kjölfar þess sem Veðurstofa Íslans mat aðstæður á Austfjörðum með tilliti til snjóflóðahættu í dag. 28.3.2023 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vegurinn um Fagradal sem tengir helstu byggðarlög Austfjarða við Egilstaði opnaði síðdegis í dag eftir tæpa sólarhringslokun. Hvorki viðbragðsaðilar né aðrir höfðu komist um veginn, sem liggur meðal annars í Neskaupstað, vegna snjóflóðahættu. Við förum yfir stöðuna í beinni útsendingu og ræðum meðal annars við Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra Fjarðabyggðar. 28.3.2023 18:00
Búið að opna Norðfjarðargöng og Fagradal Búið er að opna bæði Norðfjarðargöng og Fagradalsveg. Báðum leiðunum var lokað í gær í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Austurlandi. 28.3.2023 17:32
Gul viðvörun á Austfjörðum á fimmtudaginn Gul viðvörun tekur á ný gildi á Austfjörðum á fimmtudaginn vegna snjókomu. Verður hún í gildi í heilan sólarhring. 28.3.2023 16:40
Sakar nefndarmenn á Alþingi um að þiggja gjafir frá hælisleitendum Dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar og aðra Alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem þingið hefur veitt ríkisborgararétt. Nefndin hefur sakað ráðherrann um að hafa brotið lög með því að koma í veg fyrir að Útlendingastofnun afhendi gögn í tengslum við veitingu á ríkisborgararétt. 28.3.2023 15:30
Grunur beinist að göngumönnum í Hnappadal Slökkvistarfi er að ljúka eftir að gróðureldur kviknaði við Eldborg í Hnappadal. Verið er að senda björgunarsveitir sem kallaðar voru til til baka. 28.3.2023 15:25
Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. 28.3.2023 14:10
Þrír fluttir á slysadeild eftir að rúta valt á Öræfum Rúta með tæplega þrjátíu farþegum valt í Öræfasveit í dag. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til Hafnar í Hornafirði og verða þaðan fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Enginn þeirra slösuðu er með lífshættulega áverka. 28.3.2023 13:50
Rútur í veseni á Fjarðarheiði bætast við álag á Seyðfirðinga Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði fyrr í dag þrátt fyrir að búið sé að rýma fjölda húsa í bænum. Úr skipinu kom fjöldi fólksbíla og rúta sem sumar hverjar lentu í vandræðum á Fjarðarheiði. 28.3.2023 12:18
Ekki útlit fyrir að rýmingum verði aflétt næstu daga Ekki er útlit fyrir að rýmingum verði aflétt á næstunni en rýmingar í Neskaupstað, Seyðisfirði og á Eskifirði eru enn í gildi. Mikil snjóflóðahætta er enn á svæðinu og því útlit fyrir að rýmingar haldi næstu daga. Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Neskaupstað í nótt. 28.3.2023 12:07
Aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað sem gripið var til vegna snjóflóðahættu í bænum í gær. Rýming gærdagsins er að öðru leyti enn í fullu gildi, það er á svæði 4, 6, 16 og 17 í Neskaupstað og sömuleiðis á Seyðisfirði og Eskifirði. 28.3.2023 12:04
Hyggjast gera allt til að stöðva hvalveiðar Íslendinga í eitt skipti fyrir öll Paul Watson, stofnandi baráttusamtakana Sea Shepherd, hyggst sigla skipinu John Paul Dejoria hingað til lands í apríl og gera allt sem í valdi hans stendur til að stöðva hvalveiðar við Ísland. 28.3.2023 11:54
Glóð frá opnum eldi orsök stórbruna á Tálknafirði Bruninn sem varð í nýbyggingu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish í botni Tálknafjarðar varð líklegast vegna glóðar sem barst frá opnum eldi sem unnið var með í plastteninga sem ekki voru langt frá. Málið telst upplýst en enginn var með stöðu sakbornings við rannsókn málsins. 28.3.2023 11:43
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. 28.3.2023 11:36
Gular viðvaranir fyrir sunnan Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi í kvöld. Spáð er austan stormi og snjókomu á báðum landsvæðum. 28.3.2023 10:39
Hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að spyrja hvort um grín væri að ræða Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða. 28.3.2023 10:20
Níu gistu í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt. Ákveðið var að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðanna sem féllu í bænum í gærmorgun. 28.3.2023 10:11
Ummerki um fleiri flóð Snjóathugunarmenn Veðurstofunnar eru byrjaðir að skoða aðstæður á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. Ummerki eru um að fleiri snjóflóð hafi fallið fyrir ofan Neskaupstað en þau sem vart varð við í gær. 28.3.2023 09:52
Fit for 55: „Eins og að segja fólki að fara til útlanda með Norrænu“ Utanríkisráðherra segir það algjörlega kristaltært að ekkert verði af loftlagssköttum ESB um millilandaflug án þess að tillit verði tekið til séríslenskra aðstæðna. Um sé að ræða víðtækasta mál frá því að Ísland varð aðili að EES samningnum og forgangsröðun eftir því. Þingmaður Miðflokksins segir að verði innleiðingin samþykkt sé verið að rústa stöðu Íslands sem stoppistöðvar í tengiflugi. 28.3.2023 09:34
Tveimur fjallgöngumönnum bjargað á Hamragarðaheiði Tveir lentu í hremmingum í nótt þar sem þeir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðaheiði við Eyjafjallajökul. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að annar maðurinn hafi fallið niður fellið nokkurn spöl og við það endaði hinn í sjálfheldu og komst ekki niður til félaga síns. 28.3.2023 07:46
Samskiptastjóri Carbfix var efasemdamaður í loftslagsmálum „Það er alveg kristaltært í mínum huga að loftslagsváin er ein alvarlegasta ógnin sem mannkynið stendur frammi fyrir. Við höfum stefnt lífsskilyrðum til framtíðar í stórhættu og á okkur öllum hvílir þung ábyrgð um að bregðast hratt og afgerandi við.“ 28.3.2023 07:34
Ekkert frést af frekari snjóflóðum Ekkert hefur frést af frekari snjóflóðum á Austfjörðum í nótt og hefur veðrið verið með rólegasta móti. 28.3.2023 07:33
Fresta kynningu fjármálaáætlunar Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður ekki kynnt í dag eins og til stóð og mun hún væntanlega líta dagsins ljós á morgun þess í stað. 28.3.2023 07:26
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent