Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. 28.3.2023 14:10
Þrír fluttir á slysadeild eftir að rúta valt á Öræfum Rúta með tæplega þrjátíu farþegum valt í Öræfasveit í dag. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til Hafnar í Hornafirði og verða þaðan fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Enginn þeirra slösuðu er með lífshættulega áverka. 28.3.2023 13:50
Rútur í veseni á Fjarðarheiði bætast við álag á Seyðfirðinga Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði fyrr í dag þrátt fyrir að búið sé að rýma fjölda húsa í bænum. Úr skipinu kom fjöldi fólksbíla og rúta sem sumar hverjar lentu í vandræðum á Fjarðarheiði. 28.3.2023 12:18
Ekki útlit fyrir að rýmingum verði aflétt næstu daga Ekki er útlit fyrir að rýmingum verði aflétt á næstunni en rýmingar í Neskaupstað, Seyðisfirði og á Eskifirði eru enn í gildi. Mikil snjóflóðahætta er enn á svæðinu og því útlit fyrir að rýmingar haldi næstu daga. Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Neskaupstað í nótt. 28.3.2023 12:07
Aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað sem gripið var til vegna snjóflóðahættu í bænum í gær. Rýming gærdagsins er að öðru leyti enn í fullu gildi, það er á svæði 4, 6, 16 og 17 í Neskaupstað og sömuleiðis á Seyðisfirði og Eskifirði. 28.3.2023 12:04
Hyggjast gera allt til að stöðva hvalveiðar Íslendinga í eitt skipti fyrir öll Paul Watson, stofnandi baráttusamtakana Sea Shepherd, hyggst sigla skipinu John Paul Dejoria hingað til lands í apríl og gera allt sem í valdi hans stendur til að stöðva hvalveiðar við Ísland. 28.3.2023 11:54
Glóð frá opnum eldi orsök stórbruna á Tálknafirði Bruninn sem varð í nýbyggingu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish í botni Tálknafjarðar varð líklegast vegna glóðar sem barst frá opnum eldi sem unnið var með í plastteninga sem ekki voru langt frá. Málið telst upplýst en enginn var með stöðu sakbornings við rannsókn málsins. 28.3.2023 11:43
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. 28.3.2023 11:36
Gular viðvaranir fyrir sunnan Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi í kvöld. Spáð er austan stormi og snjókomu á báðum landsvæðum. 28.3.2023 10:39
Hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að spyrja hvort um grín væri að ræða Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða. 28.3.2023 10:20
Níu gistu í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt. Ákveðið var að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðanna sem féllu í bænum í gærmorgun. 28.3.2023 10:11
Ummerki um fleiri flóð Snjóathugunarmenn Veðurstofunnar eru byrjaðir að skoða aðstæður á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. Ummerki eru um að fleiri snjóflóð hafi fallið fyrir ofan Neskaupstað en þau sem vart varð við í gær. 28.3.2023 09:52
Fit for 55: „Eins og að segja fólki að fara til útlanda með Norrænu“ Utanríkisráðherra segir það algjörlega kristaltært að ekkert verði af loftlagssköttum ESB um millilandaflug án þess að tillit verði tekið til séríslenskra aðstæðna. Um sé að ræða víðtækasta mál frá því að Ísland varð aðili að EES samningnum og forgangsröðun eftir því. Þingmaður Miðflokksins segir að verði innleiðingin samþykkt sé verið að rústa stöðu Íslands sem stoppistöðvar í tengiflugi. 28.3.2023 09:34
Tveimur fjallgöngumönnum bjargað á Hamragarðaheiði Tveir lentu í hremmingum í nótt þar sem þeir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðaheiði við Eyjafjallajökul. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að annar maðurinn hafi fallið niður fellið nokkurn spöl og við það endaði hinn í sjálfheldu og komst ekki niður til félaga síns. 28.3.2023 07:46
Samskiptastjóri Carbfix var efasemdamaður í loftslagsmálum „Það er alveg kristaltært í mínum huga að loftslagsváin er ein alvarlegasta ógnin sem mannkynið stendur frammi fyrir. Við höfum stefnt lífsskilyrðum til framtíðar í stórhættu og á okkur öllum hvílir þung ábyrgð um að bregðast hratt og afgerandi við.“ 28.3.2023 07:34
Ekkert frést af frekari snjóflóðum Ekkert hefur frést af frekari snjóflóðum á Austfjörðum í nótt og hefur veðrið verið með rólegasta móti. 28.3.2023 07:33
Fresta kynningu fjármálaáætlunar Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður ekki kynnt í dag eins og til stóð og mun hún væntanlega líta dagsins ljós á morgun þess í stað. 28.3.2023 07:26
„Hún vaknaði upp við það að glugginn og flóðið kemur yfir hana“ Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í morgun og þá hafa snjóflóð fallið í Mjóafirði og á Reyðarfirði utan byggðar. Íbúi í Neskaupstað segir atburðina erfiða fyrir marga og áminning um mannskæð snjóflóð í bænum fyrir hálfri öld. 27.3.2023 23:46
Hnupluðu reiðufé af ferðamönnum með útsmoginni aðferð Á rúmum mánuði hefur Þjóðgarðinum á Þingvöllum borist upplýsingar um fimm vasaþjófnaði á Hakinu og á öðrum stöðum í Almannagjá þar sem mannmergð er. 27.3.2023 23:14
Allt skólahald fellt niður í Fjarðabyggð á morgun Ekkert skólahald verður í leik- og grunnskólum í Neskaupstað, á Eskifirði, og Fáskrúðsfirði á morgun. 27.3.2023 22:34
„Fólkinu líður eðlilega illa, þetta er mikið áfall“ Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa. 27.3.2023 21:14
Lítur blóðmælingar Greenfit alvarlegum augum Formaður læknafélagsins segist lítað það alvarlegum augum að fyrirtæki sem sérhæfi sig í heilsufarsmælingum bjóði upp á blóðmælingar og segir nauðsynlegt að skýr skil séu á milli þess hvað telst heilbrigðisþjónusta og hvað ekki. Embætti landlæknis skoðar nú tilkynningar um fyrirtækið. 27.3.2023 21:00
Leikskólabörn rappa um Kjarval Krakkar á leikskólanum Kvistaborg fóru í hljóðver í dag til að taka upp frumsamið rapplag sem fjallar um listmálarann Jóhannes Kjarval. Krakkarnir sömdu textann sjálfir og máluðu málverk úti í náttúrunni að hætti myndlistarmannsins. 27.3.2023 20:00
Fluttu ólétta konu yfir á Egilsstaði Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið á ellefta tímanum í morgun og fór austur á land vegna snjóflóðanna sem féllu þar í morgun. Í kvöld flutti þyrlan svo ólétta konu frá Neskaupstað og yfir á Egilsstaði. Gert er ráð fyrir því að þyrlan verði fyrir austan í nótt. 27.3.2023 19:56
Fara af neyðarstigi á hættustig Þegar snjóflóð féllu á Neskaupstað í morgun var neyðarstigi Almannavarna lýst yfir. Nú hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig. 27.3.2023 19:15
Snjóflóð féll á yfirgefna byggingu á Seyðisfirði Snjóflóð féll á byggingu á Seyðisfirði í dag. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Landsbjargar var um að ræða yfirgefna byggingu. Töluverður fjöldi björgunarsveitarmanna eru nú komnir austur og tilbúnir til aðstoðar. 27.3.2023 18:45
Leita að eiganda peninga í óskilum Heiðarlegur borgari fann peninga í verslun í Mosfellsbæ í síðustu viku og kom þeim í hendur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Eigandans er nú leitað. 27.3.2023 18:45
Fanney Birna ráðin dagskrárstjóri Rásar 1 Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður og formaður siðanefndar Blaðamannafélags Íslands hefur verið ráðin dagskrárstjóri Rásar 1. Hún tekur við af Þresti Helgasyni en hann sagði starfi sínu lausu í febrúar síðastliðnum eftir að hafa gegnt starfinu í nærri níu ár. 27.3.2023 18:34
Hlupu uppi fíkniefnasala sem reyndist vera í ólöglegri dvöl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði fyrr í dag afskipti af aðila sem grunaður var um að að selja fíkniefni. Sá reyndi að komast undan á hlaupum en var hlaupinn uppi af lögreglumönnum. 27.3.2023 18:18
Mættir austur með tryllitæki Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun. Björgunarsveitarmenn hafa fjölmennt þangað og í önnur bæjarfélög á svæðinu til að hjálpa og vera til taks ef önnur snjóflóð falla. 27.3.2023 17:49
Landsbankinn vekur athygli á fölsuðu myndefni í dreifingu Landsbankinn segir miður að einhver sjái sér hag í að vega að Eddu Falak með ósmekklegum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum vegna falsaðs myndskeiðs og myndar sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. 27.3.2023 16:34
Leita að ökumanni sem ók á ungan strák á hlaupahjóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni bifreiðar sem ók á ungan pilt á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík síðastliðinn föstudagsmorgun. 27.3.2023 15:43
Vilja breyta orðalagi laganna til að tryggja gagnsæi hjá dómstólum Þingmenn Viðreisnar hafa lagt til breytingu á lögum um meðferð einka- og sakamála til að skýra lög sem dómstólar hafa undanfarið vísað til þegar þeir hafa takmarkað fréttaflutning úr dómssal. Þingmennirnir segja samfélagið hafa ríka hagsmuni af því að starfsemi dómstóla sé gagnsæ og fari fram fyrir opnum tjöldum. 27.3.2023 15:43
Brýnt að ljúka ofanflóðavörnum: „Þetta sýnir þörfina svo vel“ Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir snjóflóðin sem féllu í Neskaupstað í morgun skiljanlega hafa áhrif á íbúa en flestir þekki söguna af mannskæða flóðinu 1974. Mikilvægi þess að ljúka ofanflóðavörnum í bænum hafi bersýnilega komið í ljós í morgun og bæjarstjóri segir þau vinna að málinu með íbúum sem ein heild. 27.3.2023 12:31
Sjötíu viðbragðsaðilar á leið með flugi austur: „Það er mjög mikil snjóflóðahætta á svæðinu“ Rýming stendur yfir vegna minnst þriggja snjóflóða sem féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og taka þær til 160 húsa. Eitt flóðanna féll á fjölbýlishús í bænum og eru tíu slasaðir, enginn alvarlega. Leitarhundar eru á leið austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar auk sjötíu viðbragðsaðila sem fara með flugi á svæðið í dag. Mikil snjóflóðahætta er á svæðinu og neyðarstigi almannavarna lýst yfir. 27.3.2023 12:21
Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið. 27.3.2023 11:55
Glæsileg þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi opnuð Ný þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi var formlega opnuð á föstudaginn fyrir helgi. Miðstöðin er um sjö hundruð fermetrar að stærð og kostaði ríflega sex hundruð milljónir króna. 27.3.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður sjónum aðallega beint austur á firði en í morgun féllu þrjú snjóflóð í Norðfirði. 27.3.2023 11:36
Fólki mjög brugðið og ýfir upp gömul sár Íbúum í Neskaupstað er mjög brugðið eftir snjóflóðin í morgun, að sögn íbúa í bænum. Fjöldi fólks hefur komið sér fyrir í fjöldahjálparstöð í Egilsbúð. Flóðin ýfa upp gömul sár eftir mannskæð snjóflóð fyrir fjórum áratugum. 27.3.2023 11:22
Lýsir hvernig hurðin „sprakk“ og snjór ruddist inn Íbúi á annarri hæð húss við Starmýri í Neskaupstað segir snjóflóðið sem féll úr Nesgili í morgun hafa náð inn í íbúðina og fjölskyldumeðlimir orðið fastir inni í herbergi. Fjölskyldumeðlimir hafi meiðst lítillega. 27.3.2023 11:06
Leitarhundar á leiðinni austur með þyrlu Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni í loftið með þrjá björgunarsveitarmenn og jafnmarga leitarhunda á Hornafjörð til að vera til taks vegna snjóflóðanna og viðvarandi snjóflóðahættu á Austfjörðum. 27.3.2023 10:36
Afmarka göngugötuhluta Laugavegs betur Gatnamót Laugavegs og Frakkastígs, þar sem fyrrnefnd gatan verður að göngugötu, verða betrumbætt á næstu dögum og afmörkun göngugötusvæðisins gerð skýrari. 27.3.2023 10:24
Gróðursetja milljón plöntur á fimm árum Með verkefninu Nýmörk sem nýlega var sett á laggirnar er stefnt að því að gróðursetja eina milljón plöntur á næstu fimm árum víðs vegar um landið. Gert er ráð fyrir því að plönturnar muni ná að þekja fjögur hundruð til fimm hundruð hektara af landi. 27.3.2023 10:10
Vaktin: Snjóflóð féllu í Neskaupstað og unnið að rýmingu Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og féll eitt þeirra á fjölbýlishús við Starmýri í bænum. Unnið er að rýmingu og búið er að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér neðst í fréttinni. 27.3.2023 10:03
Það sem skal gera við rýmingu Lögreglan á Austurlandi hefur birt tilmæli á Facebook-síðu sinni um hvað skal gera við rýmingu. Unnið er að því að rýma hús bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði. 27.3.2023 09:37
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent