Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hæg umferð úr Mosfellsbæ til Reykjavíkur vegna farms á veginum Löng bílaröð hefur myndast á Vesturlandsvegi, úr Mosfellsbæ og til Reykjavíkur, og gengur umferð mjög hægt eftir að farmur fór af bíl nærri Korputorgi. 3.1.2023 08:23
Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur kallar eftir lest til Keflavíkur „Við getum ekki lengur stungið höfðinu í sandinn. Það er tilvalið verkefni að úthýsa uppbyggingu lestar til Keflavíkur ef verkefnið reynist hagkvæmt en ákvörðun um þetta er vitaskuld á ábyrgð ríkisins.“ 3.1.2023 06:58
Mikil fjölgun myglugreininga Rannsóknarstofa Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri greindi 1.532 sýni í fyrra þar sem grunur lék á að myglu væri að ræða. Þetta er 22 prósenta fjölgun frá fyrra ári. 3.1.2023 06:43
Neyðarskýlin ekki lengur opin allan sólarhringinn Reykjavíkurborg hyggst ekki halda áfram með sólarhringsopnanir neyðarskýla borgarinnar, nú þegar nýtt ár er gengið í garð og kuldakast desembermánaðar yfirstaðið. 3.1.2023 06:27
Skilaboð send til 30 þúsund notenda Sportabler 30 þúsund notendur smáforritsins Sportabler fengu meldingu í morgun um að brotist hafi verið inn á reikning þeirra og persónuupplýsingum stolið. Öryggisrannsókn Sportabler hefur leitt í ljós að engum persónuupplýsingum notenda hafi verið stolið. 2.1.2023 23:54
Hlæjandi maður, handtekinn hundur og bífræfinn grænmetisþjófur Verkefni lögreglunnar eru jafn misjöfn og þau eru mörg og enginn dagur er eins. Vísir fór yfir dagbókarfærslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2022 og tók saman nokkur athyglisverð, óvenjuleg, og í sumum tilvikum spaugileg útköll. 2.1.2023 23:37
„Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“ „Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“ spyr Sirrý Arnardóttir, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst, sem sat heillengi föst fyrir aftan bílaleigubíl sem kínverskur ferðamaður hafði leigt ásamt fjölskyldu sinni. Sá virtist ekki kunna að skipta um gír, aka út í kant eða keyra í hringtorgi. 2.1.2023 21:22
„Að rústa þér andlega og líkamlega er það eina sem ég mun einbeita mér að“ Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um nálgunarbann á hendur manni sem ítrekað hefur haft uppi grófar hótanir, þar á meðal líflátshótanir, í garð annars manns og fjölskyldu hans. 2.1.2023 21:09
Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. 2.1.2023 20:42
„Þú getur gert þetta bara á Tenerife“ Endurvinnslan er hætt að greiða skilagjald beint inn á greiðslukort. Í staðinn var smíðað nýtt snjallforrit sem fólk getur notað heima hjá sér. Mikil aðsókn hefur verið í endurvinnslustöðvar í dag og framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir nýja fyrirkomulagið hafa mælst vel fyrir. 2.1.2023 19:41
Kaldasti desember í meira en hundrað ár Ríflega hundrað ára kuldamet féll í Reykjavík í desember en hann var síðast kaldari árið 1916. Veðurfræðingur segir of snemmt að segja til um hvort um sé að ræða áhrif loftslagsbreytinga en vissulega hafi verið miklar öfgar í veðri síðustu tvo mánuði. 2.1.2023 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður farið yfir kuldakastið í nýliðnum desember þegar ríflega hundrað ára kuldamet féll í Reykjavík. Veðufræðingur segir of snemmt að segja til um hvort öfgar í veðrinu í vetur séu tilkomnar vegna loftslagsbreytinga, en þeirri spurningu er varpað fram. 2.1.2023 18:31
Sigríður Soffía Níelsdóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé. 2.1.2023 17:23
„Ég er ekki í neinum felum fyrir þessari þjóð“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri var valinn maður ársins af fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og var valið kynnt í Kryddsíld á gamlársdag. Ásgeir segist sofa vel á næturnar þrátt fyrir ábyrgð í starfi og vera kurteis maður, að minnsta kosti að mati mömmu sinnar. 2.1.2023 17:14
Árið hófst á fíngerðri svifryksmengun Svifryksmengun lá yfir höfuðborgarsvæðinu síðustu klukkustundir ársins 2022 og fyrstu klukkustundir ársins 2023 en veðuraðstæður vógu upp á móti henni. Áberandi hátt hlutfall fínasta og hættulegasta svifryksins mældist á gamlárskvöld og nýársnótt. 2.1.2023 15:34
Aldrei fleiri þyrluútköll en í fyrra Metfjöldi þyrluútkalla var hjá Landhelgisgæslunni í fyrra en þá sinnti flugdeild hennar 299 útköllum. Meirihluti þeirra var vegna sjúkraflutninga og þriðjungur var á sjó. 2.1.2023 14:36
Níðstangargrín fór öfugt ofan í hestafólk og ekki bætti annállinn úr skák Formaður Landssambands hestamanna segir hestafólk almennt ekki geta hlegið að gríni þess efnis að kaupa eigi fallegan hest til þess eins að saga af honum hausinn. Formaðurinn tjáir sig í tilefni atriðis í Áramótaskaupinu þetta árið. Hann ítrekar áhyggjur af ofbeldi sem þrífist í starfsemi Sólsetursins. Þá er hestafólk svekkt að ekkert hafi verið fjallað um Landsmót hestamanna í íþróttaannál RÚV. 2.1.2023 14:19
Hafnar ásökunum um leyndarhyggju og einræðistilburði Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í borginni segir ásakanir Sjálfstæðismanna um leyndarhyggju og einræðistilburði órökstuddar og óskiljanlegar. Ekki sé hægt að ræða málefni Ljósleiðarans á opnum fundum þar sem trúnaður ríki um málið innan rýnihóps. 2.1.2023 13:15
Sinna fræðslu um skaðsemi flugelda óháð hvað björgunarsveitir selja Forstjóri Umhverfisstofnunar segir stofnunina eiga að sinna fræðsluhlutverki varðandi loftgæði vegna flugelda. Formaður Landsbjargar segir herferð stofnunarinnar nú fyrir áramót hafa komið aftan að björgunarsveitunum og niður á flugeldasölu. 2.1.2023 13:07
Mygla í nokkrum leikskólum til viðbótar, borgin bregðist hraðar við Mygla hefur fundist á nokkrum leikskólum í Reykjavík og bætast þeir þar með í sístækkandi hóp grunn-og leikskóla sem glíma við mygluvanda. Sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs segir mun betur fylgst með húsnæði en áður. Ekki er ljóst hvort myglan muni hafa áhrif á starfsemi skólanna. 2.1.2023 12:01
Minnihlutinn „bara að þyrla upp ryki“ Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sakar fulltrúa meirihlutans í borgarstjórn um einræðistilburði eftir að þeir höfnuðu að setja málefni Ljósleiðarans á dagskrá fundar borgarstjórnar í tvígang. Oddviti Framsóknar í borginni segir minnihlutann aðeins vera að þyrla upp ryki. 2.1.2023 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Flugeldasala, mygla, jarðvinnsla líkamsleifa og meint leyndarhyggja meirihlutans í Reykjavík verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 2.1.2023 11:42
Hætta að dreifa Fréttablaðinu á heimili fólks Fréttablaðið greinir frá því að hætt verði að dreifa blaðinu inn á heimili íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri. 2.1.2023 11:19
Brotist inn í tilkynningarþjónustu Sportabler Fjölmargir notendur smáforritsins Sportabler hafa fengið meldingu í morgun um að brotist hafi verið inn á reikning þeirra og persónuupplýsingum stolið. Reikningsupplýsingar eru ekki sagðar vera í hættu. 2.1.2023 09:57
Marta sakar fulltrúa meirihlutans um einræðistilburði Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sakar fulltrúa meirihlutans í borgarstjórn um einræðistilburði eftir að þeir höfnuðu að setja málefni Ljósleiðarans á dagskrá fundar borgarstjórnar sem fram fer á morgun. Segir Marta að leyndarhyggja Viðreisnar, Samfylkingar, Framsóknarflokks og Pírata hafi með þessu náð nýjum hæðum og að ákvörðunin komi í veg fyrir að borgarfulltrúar utan meirihlutans geti sinnt sínu lögboðna starfi. 2.1.2023 07:56
Hálka og hálkublettir á stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu Hálka eða hálkublettir eru á stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu og á flesum vegum á suðvesturhorni landsins. 2.1.2023 07:00
Handtekinn eftir útafakstur á Vatnsendavegi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann eftir að tilkynnt hafði verið um að bíl hafði verið ekið út af Vatnsendavegi um klukkan 18:30 í kvöld. 1.1.2023 21:49
Frábær fimleikaaðstaða á Egilsstöðum Fimleikar eru sú íþróttagrein á Egilsstöðum og nágrenni, sem hefur slegið hvað mest í gegn á svæðinu en nú eru um fjögur hundruð börn og unglingar að æfa fimleika hjá Hetti. „Fimleikar eru geggjaðir“, segir formaður Fimleikadeildar Hattar. 1.1.2023 21:05
„Þetta var ekki minn fyrsti leiksigur“ Það var stemmning á Bessastöðum í dag en leikari, réttarmannfræðingur, kvensjúkdómalæknir og tónskáld voru meðal þeirra sem sæmd voru hinni íslensku fálkaorðu eins og hefðin býður upp á á nýársdag. 1.1.2023 20:58
„Þetta er ekki huglægt mat“ Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru sum ósátt við það hversu hratt er gripið til veðurviðvarana og lokana eins og gert var í gær á gamlársdag. Veðurfræðingur segir viðvaranir byggðar á bestu gögnum en í gær hafi lægðin fært sig sunnar en búist var við, og það hratt. Því hafi farið betur en á horfðist. 1.1.2023 20:32
Sjáðu Kryddsíld í heild sinni Óhætt er að segja að umræðurnar hafi verið hressilegar í hinni árlegu Kryddsíld sem sýnd var í beinni útsendingu á Stöð 2 í gær. 1.1.2023 20:31
Vonar að löggan mæti á ráðstefnu um hugvíkkandi efni Skipuleggjandi fyrstu ráðstefnunnar um hugvíkkandi efni hér á landi vonar að lögreglan og dómsmálaráðherra mæti en enn sem komið er eru slík efni ólögleg hér. Margir þekktustu sérfræðingar í geiranum segi frá byltingarkenndum niðurstöðum rannsókna sinna á slíkum efnum. 1.1.2023 20:00
Öxnadalsheiði lokað vegna fastra bíla Veginum um Öxnadalsheiði hefur verið lokað vegna fastra bíla í Bakkaselsbrekku. Ljóst er að vegurinn verður ekki opnaður í kvöld og verður staðan tekin aftur í fyrramálið. 1.1.2023 19:26
Svara spurningunni um hvað skuli gera við flugeldaruslið Sorpa hefur birt upplýsingar hvað skuli gera við flugeldarusl nú eftir áramótin sem margir skilja eftir á götum og gangstéttum. Þar kemur fram að skila eigi slíku rusli á endurvinnslustöðvar Sorpu sem opna á ný á morgun, mánudag. 1.1.2023 19:14
„Þetta átak Umhverfisstofnunar kom aftan að okkur“ Formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir flugeldasöluna á síðustu dögum nýliðins árs hafa verið nokkurn veginn á pari við söluna 2021. Hann segir að átak Umhverfisstofnunar hafi komið aftan að félaginu, en flugeldasala er ein helsta fjármögnunarleið björgunarsveitanna. 1.1.2023 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru sum ósátt við það hve hratt er gripið til veðurviðvarana og lokana, eins og gert var í gær á gamlársdag. Veðurfræðingur segir viðvaranir byggðar á bestu gögnum en að í gær hafi lægðin fært sig sunnar en búist var við - og það hratt. 1.1.2023 18:00
„Ráði hnefarétturinn er voðinn vís“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræddi stöðu Íslands í samfélagi þjóða í nýársávarpi sínu fyrr í dag og þá sérstaklega í tengslum við þá stöðu sem uppi er í alþjóðasamfélaginu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. 1.1.2023 17:37
Fjórir í bíl sem valt á Þingvallavegi Enginn slasaðist þegar bíll sem fjóra um borð valt á Þingvallavegi í morgun. 1.1.2023 17:27
Ragnar Erling kominn með vinnu og horfir fram á veginn Ragnar Erling Hermannsson hefur látið að sér kveða í umræðunni um málefni heimilislausra undanfarin misseri. Hann fékk vinnu á dögunum og á nú sér þann draum heitastan að eignast heimili. 1.1.2023 17:00
„Þau þurftu að skapa sér allt úr því sem þau höfðu hér“ Námið í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað var fyrst til að byrja með tveggja vetra nám í húsmóðurfræðum en þó með mesta áherslu á fög eins og íslensku, dönsku,stærðfræði og matarefnafræði. Einnig var súrkálsgerð kennd. Stúlkur fengu eingöngu inngöngu í skólann á fyrstu árum hans. 1.1.2023 16:07
Þessi fjórtán fengu fálkaorðuna á Bessastöðum Guðni Th. Jóhannesson forseti sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. 1.1.2023 14:52
Biskup Íslands tilkynnir starfslok Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands mun láta af embætti eftir átján mánuði. Þetta kom fram í nýárspredikun hennar í Dómkirkjunni í morgun. 1.1.2023 12:37
Ferðaþjónustan ósátt: Bagalegt að aflýsa ferðum vegna óveðurs sem kemur ekki Ferðaþjónustuaðilar eru hugsi yfir hversu auðvelt er að grípa til lokana og appelsínugulra viðvarana. Öllum ferðum frá 31. desember var aflýst vegna vonskuveðurs sem aldrei kom. Svona uppákomur rýri traust á íslenskri ferðaþjónustu. 1.1.2023 12:21
Nýársbarnið drengur sem fæddist í Reykjavík Hann verður allavega elstur í bekknum, drengurinn sem er, ef marka má úttekt fréttastofu, óumdeilt fyrsta barn ársins á Íslandi. Hann kom í heiminn tuttugu og eina mínútu yfir miðnætti á Landspítalanum í Reykjavík. 1.1.2023 12:20
Tíkin Wanna fannst eftir átta daga leit í fönn í hlíðum Ingólfsfjalls Mikil gleði er á heimili í Hveragerði þessa dagana eftir að tíkin Wanna fannst eftir að hafa verið týnd í átta sólarhringa og fimm klukkustundir í bruna gaddi og miklum snjó. 1.1.2023 11:04