Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frítt í sund fyrir börn í Reykjavík og miðnæturopnanir í Laugardalslaug Frítt verður í sundlaugar Reykjavíkur fyrir börn á grunnskólaaldri frá og með 1. ágúst 2022 en borgarráð samþykkti í dag svohljóðandi tillögu menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Einnig var samþykkt tillaga um miðnæturopnun á fimmtudagskvöldum í Laugardalslaug frá og með 4. ágúst til áramóta. 30.6.2022 13:38
Hækka frístundastyrk um helming Borgarráð hefur samþykkt að hækka frístundastyrk í 75 þúsund krónur fyrir hvert barn þann 1. janúar 2023. 30.6.2022 13:29
„Við óttumst að það séu mistök í uppsiglingu“ Ákvörðun um að færa faglega símaþjónustu læknavaktarinnar til heilsugæslunnar eru kaldar kveðjur til starfsfólks að mati Gunnlaugs Sigurjónssonar stjórnarformanns Læknavaktarinnar sem óttast að stór mistök séu í uppsiglingu. 30.6.2022 13:00
Kosningaloforðið uppfyllt átta árum eftir að Betra Sigtún bauð fram Þau tíðindi urðu á Vopnafirði í vikunni að gatan Sigtún var malbikuð. Árið 2014 bauð framboðið Betra Sigtún þar sem malbikun götunnar var eitt helsta stefnumálið. 30.6.2022 12:56
Bregðast við bilun með Boeing-þotu í innanlandsflugið Icelandair boðar raskanir á innanlandsflugi í dag vegna tæknilegra vandamála sem komu upp í gær en flugi frá Reykjavík til Akureyrar var seinkað ítrekað þar til því var að lokum aflýst. 30.6.2022 12:12
Líst ekkert á vefsöluna og vill skerpa á lögum Þingmaður Vinstri grænna segir flokkinn mótfallinn því að heimila vefsölu með áfengi. Réttara væri að herða löggjöfina til að koma í veg fyrir að Íslendingar geti stofnað fyrirtæki erlendis og selt áfengi inn á íslenskan markað. 30.6.2022 11:51
Framkvæmdir í Bláfjöllum komnar á fullt Framkvæmdir við tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum eru komar á fullt. Reiknað er með að önnur þeirra verði kominn í gagnið á næstu skíðavertíð. 30.6.2022 11:42
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar höldum við áfram umfjöllun um efnahagsmálin og verðbólguna og ræðum við formann Starfsgreinasambandsins sem segir að heimild þurfi til að lengja í óverðtryggðum lánum til að létta greiðslubyrði þeirra í upphafi lánstímans. 30.6.2022 11:30
Enn sanka dansarar úr Reykjanesbæ að sér verðlaunum Dansarar úr Reykjanesbæ virðast ekki geta hætt að vinna til verðlauna á heimsmeistaramótinu í dansi á Spáni. Í gær vann danspar í eldri flokki til bronsverðlauna. 30.6.2022 11:06
Arnar snýr ekki aftur í World Class Verktakasamningi Arnars Grant hjá líkamsræktarstöðinni World Class hefur verið sagt upp. 30.6.2022 10:43
Segir vinnubrögð Vegagerðarinnar kosta bílaleigur milljarða Formaður bílaleigunefndar Samtaka ferðaþjónustunnar segir að sprenging hafi orðið á framrúðutjóni eftir að Vegagerðin jók blettaviðgerðir með slitlagi. Bílaleigur meta tjónið sitt á um 2,5 milljarða árlega. Samtökin krefjast þess að stjórnvöld banni blettaviðgerðir með slitlagi. 30.6.2022 10:35
Talið nauðsynlegt að breyta umdeildu ákvæði í kosningalögunum Stefnt er að því að gera breytingar á nýjum kosningalögum sem tóku gildi um áramótin. Nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar eru sagðar hafa varpað ljósi á ýmislegt sem betur mætti fara. Nauðsynlegt er talið að breyta umdeildu ákvæði um hæfi kjörstjórna. 30.6.2022 08:47
Landbúnaðarháskólanum falið að koma með tillögur um eflingu kornræktar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur falið Landbúnaðarháskóla Íslands að vinna drög að aðgerðaáætlun til eflingar kornræktar. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins, þar sem segir að mikilvægi innlendrar kornræktar hafi aukist verulega í tengslum við fæðuöryggi þjóðarinnar. 30.6.2022 08:08
Gætu ráðstafað kolefnissköttum til tekjulágra til að draga úr ójöfnuði Íslensk stjórnvöld gætu stuðlað að réttlátum umskiptum í loftslagsmálum með því að ráðstafa skatttekjum af kolefnislosun til heimila og fyrirtækja í viðkvæmri stöðu, að mati Loftslagsráðs. Ólíkt öðrum Evrópuríkjum hefur Ísland enga stefnu um að láta tekjur renna til loftslagstengdra verkefna. Ráðið telur að auka þurfi gagnsæi og tengja loftslagsmál skýrar við áætlanagerð opinberra fjármála. 30.6.2022 08:00
Óviðræðuhæfur maður vistaður í fangageymslu eftir að hafa reynt að sparka í lögreglumenn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gær vegna slagsmála, eignaspjalla og fleiri brota en þegar flytja átti manninn á lögreglustöð freistaði hann þess að sparka í lögreglumenn. Maðurinn gistir fangageymslur þar til hann verður viðræðuhæfur, segir í dagbók lögreglunnar. 30.6.2022 06:37
Kærði Heimkaup til lögreglu vegna netverslunar Heimkaup hófu í dag netsölu áfengis fyrst stórmarkaða. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur óskýran lagaramma í kringum netsölu áfengis skapa skakka stöðu á samkeppnismarkaði. Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum segir áfengissölu Heimkaupa ólöglega og því hafi hann kært fyrirtækið til lögreglu. 29.6.2022 23:02
Biðst afsökunar á að hafa brugðist þolendum Vítalía Lazareva segist hafa brugðist öðrum þolendum í Twitter-færslu í kvöld. Þórður Már Jóhannesson, Ari Edwald og Hreggviður Jónsson hafa kært hana og Arnar Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífsins. 29.6.2022 20:49
„Gríðarlegt andlegt og félagslegt sjokk og fjárhagslegt tjón“ Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnaði í dag tilboði Samhjóla, félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni, um að hjólhýsabyggðin fái að vera áfram gegn því að félagið sinni nauðsynlegum framkvæmdum. Formaður félagsins segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og að sveitarfélagið hefði getað farið mannlegri leið að niðurstöðunni en hún gerði. 29.6.2022 20:47
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rússland er helsta ógnin við öryggi Evrópu samkvæmt nýrri hernaðarstefnu sem leiðtogar Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag. Forsætisráðherra segir óviðeigandi að Tyrkir hafi blandað málefnum Kúrda inn í aðildarviðræður Svía og Finna að bandalaginu. 29.6.2022 18:08
Björgunarsveit kölluð út vegna tveggja slysa hjá Glymi Útkall barst á Björgunarsveitum á Vesturlandi rétt fyrir klukkan þrjú í dag vegna göngukonu sem hrasaði og slasaðist á fæti á leið að Glymi í stórum gönguhóp. Skömmu síðar barst annað útkall vegna ferðamanns sem hafði runnið niður gil steinsnar frá fyrri slysstað. 29.6.2022 17:09
Jóhann Páll slær á orðróm um varaformannsframboð Jóhann Páll Jóhannsson segist ekki hafa í hyggju að bjóða sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. 29.6.2022 16:29
Einar tók fyrstu skóflustungu að nýjum leikskóla Fyrsta skóflustunga var tekin að nýjum leikskóla í Vogabyggð í dag við hátíðlega athöfn. Einar Þorsteinsson, sem tekur við embætti borgarstjóra að hálfu kjörtímabili liðnu, reið á vaðið og tók fyrstu skóflustungu. 29.6.2022 15:29
Gagnrýnin á framgöngu Tyrkja Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það hafi verið óviðeigandi af hálfu Tyrkja að setja óskyld mál á dagskrá í aðdraganda aðildarumsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún segir það skipta máli að fá tvær Norðurlandaþjóðir inn í bandalagið. 29.6.2022 14:37
„Þessu Pro-life fólki er hjartanlega skítsama um líf barna eftir fæðingu“ Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur Laugarneskirkju, áréttar að Biblían minnist ekki orði á þungunarrof eða á það hvenær líf hefjist í raun. Hann segir að kristnum mönnum beri að setja sig í spor þeirra þjáðu, sem í tilfelli þungunarrofs séu tilvonandi mæður sem neyðist til að rjúfa þungun. 29.6.2022 14:37
RÚV náði ekki sambandi við Pólland og sýnir því ekki landsleikinn Margir hafa eflaust tekið eftir því að lokaleikur kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu fyrir Evrópumeistaramótið er hvergi sjáanlegur. Ástæðan er einföld; tæknilegir örðuleikar. 29.6.2022 14:28
Arnar vísar aðdróttunum um fjárkúgun á bug Arnar Grant segir kæru Ara Edwald, Hreggviðs Jónssonar og Þórðar Más Jóhannessonar á hendur honum og Vítalíu Lazarevu vera fráleita tilraun til að afvegaleiða umræðu um málið. 29.6.2022 13:34
Viðskiptalífið hafi viljað verkið burt löngu áður en slysið varð Höfundur útilistaverksins Eggin í Gleðivík segir að viðskiptalífið hafi viljað verk hans í burtu löngu áður en hörmulegt slys varð á Djúpavogi í síðustu viku. Listamaðurinn segir að það muni stórskyggja á menningarlífið í bænum þegar verkið verður fært. Staðsetningin sé hluti af verkinu. 29.6.2022 12:21
Eyrún Ingibjörg ráðin sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti samhljóða að ráða Eyrún Ingibjörgu Sigþórsdóttur í starf sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar næstu fjögur árin. Hún var áður oddviti og sveitarstjóri á árunum 2006 til 2014. 29.6.2022 12:12
Fjórða tilfelli apabólunnar: Grunur um innanlandssmit Í gær greindist fjórði einstaklingurinn með apabólu á Íslandi. Um er að ræða karlmann á miðjum aldri. Svo virðist sem um sé að ræða innanlandssmit frá áður óþekktum smitbera. 29.6.2022 12:05
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um leiðtogafund Nato sem nú fer fram í Madríd á Spáni. Tyrkir sættust á það í gær að samþykkja inngöngu Svía og Finna í bandalagið. 29.6.2022 11:35
Jarðskjálfti í Bárðarbungu af stærðinni 3,5 Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 varð í Bárðarbungu klukkan 08:16 í morgun. 29.6.2022 11:01
Linda stýrir Kvennaathvarfinu Linda Dröfn Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til að gegna starfi framkvæmdastýru Samtaka um kvennaathvarf. Hún tekur við starfinu af Sigþrúði Guðmundsdóttur, sem stýrt hefur athvarfinu síðastliðin sextán ár. 29.6.2022 10:51
Sneru við til Reykjavíkur nokkrum mínútum fyrir lendingu Flugvél Icelandair á leið til Akureyrar í morgun var snúið nokkrum mínútum fyrir lendingu á Akureyri. Veðurskilyrði reyndust erfið á flugvellinum. 29.6.2022 10:31
Allt að tuttugu stiga hiti Í dag verður veðrinu misskipt milli landshluta að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Svalast verður við norðurströndina en hiti gæti náð allt að tuttugu stigum sunnanlands. 29.6.2022 08:04
Fram á nótt að gera allt klárt fyrir fótboltaveisluna Fjórir af hörðustu KA-mönnum Akureyrarbæjar voru á fullu í gærkvöldi að græja síðustu knattspyrnuvellina þar sem spilað verður á fjölmennasta strákamóti ársins næstu daga. Fyrsta helgin í júlí er fram undan og venju samkvæmt liggur straumurinn norður. 29.6.2022 07:00
Nokkur atvik þar sem lögregla kom andlega veikum og ölvuðum til aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum verkefnum á kvöldvaktinni í gær þar sem hún aðstoðaði fólk með andlega erfiðleika eða fólk sem var ölvað. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en ekki greint frá nánar. 29.6.2022 06:50
Leggur fram frumvarp í haust um víðtækar rannsóknarheimildir lögreglu Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra mun í haust leggja fram frumvarp um víðtækar rannsóknarheimildir lögreglu. Lögregla mun meðal annars fá víðtækari heimildir til að afla upplýsinga til að meta ógn af hryðjuverkum og segir Jón þær verða í takt við það sem gengur og gerist í nágrannaríkjum Íslands. 29.6.2022 06:30
Víkingur Heiðar og EFLA hlutu útflutningsverðlaunin Fyrirtækið EFLA hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari var heiðraður fyrir störf sín á erlendri grundu. Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri EFLU, veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. 28.6.2022 22:45
Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis. 28.6.2022 22:44
„Sýnileikinn besta vopnið gegn hatrinu“ Á fimmtudaginn fer fram samstöðufundur á Austurvelli til stuðnings hinsegin fólks í Noregi og fjölskyldum þeirra. Skipuleggjendur fundarins segja að fræðsla sé lykillinn að því að uppræta fordóma og að hatrið megi ekki sigra. 28.6.2022 22:30
„Hann er bókstaflega að dreifa misvísandi og hættulegum upplýsingum“ Ummæli Jordan Peterson um transbörn og aðgerðir þeirra, sem hann lét falla í Íslandi í dag á sunnudag, hafa vakið reiði meðal transsamfélagsins á Íslandi. Sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks segir Peterson dreifa misvísandi og hættulegum upplýsingum sem geti valdið ungu fólki skaða, sé þeim fylgt. 28.6.2022 21:57
Brjálað að gera hjá glæsilegri prjónastofu á Hvammstanga Ein glæsilegasta prjónastofa landsins er á Hvammstanga en þar er meira en nóg að gera við að framleiða vörur úr íslenskri ull. Teppi með íslenska fánanum rjúka út eins og heitar lummur. 28.6.2022 21:05
Íslendingar slá alls konar met í ferðalögum Íslendingar eru að slá öll met í ferðalögum til útlanda og í fjölda gistinátta innanlands. Forstjóri Icelandair telur að tafir á flugvöllum víða um heim vegna manneklu lagist ekki fyrr en í vetur. 28.6.2022 21:01
NATO verði enn sterkara með inngöngu Finna og Svía Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist ákaflega fegin að hindranir við inngöngu Finna og Svía í NATO hafi verið fjarlægðar. Atlantsahafsbandalagið verði enn sterkara og öruggara með inngöngu ríkjanna tveggja. 28.6.2022 20:50
Vaxandi þensla og barátta um vinnuafl Vaxandi þensla er í efnahagslífinu eftir að kórónuveirufaraldrinum lauk. Ferðaþjónustan er komin á fullan skrið og aukinn þrýstingur er ábyggingaframkvæmdir. Seðlabankastjóri segir þetta geta leitt til þess að atvinnugreinar fari að bítast um starfsfólk. 28.6.2022 19:31