Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rúta fór út af við Efstadal Rúta fór út af veginum við Efstadal austur af Laugarvatni upp úr klukkan eitt eftir hádegi í dag. Hópur fólks var í bílnum en allir sluppu óhultir og bílstjórinn var einn fluttur til læknisskoðunar. 27.5.2022 16:28
Segir að gera þurfi greinarmun á hatursorðræðu og öflugri pólitískri umræðu Mannréttindalögmaður segir að gera þurfi greinarmun á því hvað teljist öflug pólitísk umræða og hatursorðræða. Stjórnvöldum beri að tryggja frelsi einstaklinga til að taka þátt í pólitískri umræðu. 27.5.2022 15:41
Flestir sem bíða brottflutnings frá Nígeríu og Írak Tæplega tvö hundruð manns sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi bíða nú brottvísunar, flestir þeirra frá Nígeríu og Írak. Flestir verða sendir til Grikklands sem afnam nýlega takmarkanir á móttöku fólks sem er vísað frá öðrum löndum. 27.5.2022 15:35
Þóru létt eftir að hafa lagt Óperuna í launadeilu fyrir Landsrétti Landsréttur hefur snúið við niðurstöðu héraðsdóms í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni, Þóru í vil. Þóra, sem er ein fremsta óperusöngkona þjóðarinnar, höfðaði málið vegna greiðslu vangoldinna launa. Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag. 27.5.2022 15:24
Orð Jens Garðars sjókvíaeldismanns eldast illa ISA veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði. 27.5.2022 15:18
Fjölgar atvinnuleyfum fyrir leigubíla um hundrað Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að fjölga atvinnuleyfum fyrir leigubifreiðaakstur um hundrað á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, eða svokölluðu „takmörkunarsvæði I“. 27.5.2022 15:04
Styttan aftur á stall við hátíðlega athöfn á morgun Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur verður sett aftur á sinn stall við hátíðlega athöfn á morgun. Henni var stolið í vor og komið fyrir í öðru listaverki. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir gjörninginn hafa vakið meiri áhuga á sögu Guðríðar. 27.5.2022 13:35
D'Hondt haukur í horni xD í Garðabæ Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins bar sig vel eftir sveitarstjórnarkosningar þrátt fyrir tap flokksins víðs vegar um landið. Bjarni nefndi höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ til vitnis um sterka stöðu flokksins en þá stöðu getur Bjarni meðal annars þakkað D'Hondt. 27.5.2022 13:34
Þurfa að segja upp öllum hjúkrunarfræðingum fyrir mánaðarmót Öllum hjúkrunarfræðingum á Læknavaktinni verður sagt upp fyrir mánaðarmót þar sem til stendur að færa símaráðgjöf yfir til Heilsugæslunnar. Fagstjóri hjúkrunar hjá Læknavaktinni á Læknavaktinni segir það óskiljanlegt að yfirvöld ætli að færa þjónustuna á milli staða í ljósi stöðunnar innan heilbrigðiskerfisins. 27.5.2022 13:00
Segir skýringar ráðherra á lagagrundvelli brottvísana villandi Lögfræðingur sem starfað hefur sem talsmaður umsækjenda um alþjóðlega vernd hjá Rauða krossinum segir það rangt hjá dómsmálaráðherra að verið sé að fylgja lögum við fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir fjölda hælisleitenda. Nýtt útlendingafrumvarp ráðherra muni þrengja rétt hælisleitenda hér á landi til muna. 27.5.2022 12:57
„Hatursáróður getur aldrei beinst gegn valdhöfum“ Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju hafnar því að ummæli hans um að fyrirhugaður brottflutningur hátt í þrjú hundruð hælisleitenda og flóttamanna falli undir fasisma sé haturso. Hann segir áhyggjuefni að flokksmenn VG skilji ekki merkingu hatursorðræðu. 27.5.2022 12:16
Íbúar á Austurlandi bjartsýnastir á veðursæld í sumar Maskína hefur birt könnun um vonir landsmanna til veðursældar í sumar. Áberandi er hve bjartsýnir íbúar á Norður- og Austurlandi eru á gott veður í sumar, samanborið við íbúa höfuðborgarsvæðisins sem ekki eru jafn vongóðir. 27.5.2022 12:06
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um niðurstöður Barnaþings sem haldið var á dögunum en skýrla þingsins var afhent ríkisstjórninni í morgun. 27.5.2022 11:35
Þrír nýir skrifstofustjórar í nýja ráðuneytinu Sigríður Valgeirsdóttir, Ari Sigurðsson og Jón Vilberg Guðjónsson hafa öll tekið við stöðum skrifstofustjóra í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Ráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skipaði þau Sigríði og Ara að undangenginni auglýsingu og þá hefur Jón Vilberg verið fluttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu yfirstjórnar í ráðuneytinu. 27.5.2022 11:13
Bregðast við fjöldabrottvísun með nýju frumvarpi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar munu leggja sameiginlega fram frumvarp til að bregðast við stöðu þeirra sem nú stendur til að senda úr landi með fjöldabrottvísun. 27.5.2022 11:01
Þetta eru tíu hvössustu staðir þjóðveganna Með svokallaðri hviðuþekju hefur Vegagerðin lokið við kortlagningu tíu hvössustu staða þjóðveganna. 27.5.2022 10:59
Sævar Freyr áfram bæjarstjóri á Akranesi í nýjum meirihluta Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar kjörtímabilið 2022 – 2026, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá flokkunum. 27.5.2022 10:28
Davíð Þór biðst afsökunar á ummælum um Katrínu Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og fyrrverandi sambýliskonu, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. 27.5.2022 09:25
Missteig sig illa á Úlfarsfelli Starfsmenn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu komu konu til aðstoðar sem hafði misstigið sig illa í göngu á Úlfarsfelli í gær. 27.5.2022 08:46
Vill dusta rykið af áformum um nýja flugstöð í Reykjavík Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir tímabært að dusta rykið af áformum um nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Nærri tvö ár eru síðan áform um að byggja nýja flugstöð voru kynnt en gert er ráð fyrir að hún verði um sextán hundruð fermetrar að stærð. 26.5.2022 23:09
Skoða hversu margir hér á landi hafa farið aftur heim til Úkraínu Dæmi eru um að flóttafólk frá Úkraínu sem hafa dvalið hér á landi hafi snúið aftur heim. Stöðugur straumur fólks er þó enn til Íslands en gera má ráð fyrir að flóttamenn verði yfir þrjú þúsund í árslok með þessu áframhaldi. 26.5.2022 22:01
Dásamlegt að vera sauðfjárbóndi Botnótt og golsótt lömb eru í miklu uppáhaldi hjá sauðfjárbónda á Bjarnarhöfn í Helgafellssveit á Snæfellsnesi en á búin eru fjögur hundruð og tuttugu fjár. Lömbin eru mörkuð tveggja daga gömul. 26.5.2022 20:30
„Við ætlum bara að vanda okkur og láta verkin tala“ Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynduðu í dag meirihluta í Kópavogi en Sjálfstæðismenn halda bæjarstjórnarstólnum. Verðandi bæjarstjóri kveðst spennt fyrir verkefninu og segir góðan samhljóm milli flokkanna. Meirihlutaviðræður standa enn yfir í nokkrum sveitarfélögum víða um land, tólf dögum eftir kjördag. 26.5.2022 20:01
Rjómablíða í borginni liðkaði fyrir viðræðum Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir að meirihlutaviðræður í Reykavík gangi vel. Hún leyfir sér að vera bjartsýn á að flokkarnir nái saman, en treystir sér ekki til að segja hvenær það verði. 26.5.2022 19:07
Önd varð fyrir bíl á Miklubrautinni Miskunnsamur borgari reyndi sitt besta í dag til að koma í veg fyrir að andafjölskylda yrði síðdegisumferðinni á Miklubrautinni að bráð. 26.5.2022 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Meirihlutar hafa verið myndaðir í flestum sveitarfélögum landsins. Nýr meirihluti hefur verið myndaður á Akureyri og Ásdís Kristjánsdóttir var kynnt sem nýr bæjarstjóri í Kópavogi í dag. 26.5.2022 18:01
Foreldar barna í Breiðholtsskóla segja öryggi þeirra ógnað Foreldrar tveggja barna í Breiðholtsskóla hafa sent skólayfirvöldum bréf þess efnis að börnin muni ekki mæta í skólann fyrr en ráðist hefur verið í úrbætur á umsjón og eftirliti með nemendum, ekki síst í frímínútum. 26.5.2022 17:15
Alþingi verði að koma áfengislöggjöf til nútímans Í formála ársskýrslu ÁTVR skrifar forstjóri ríkisfyrirtækisins, Ívar Arndal, að ef vefverslun einkaaðila með áfengi verði leyfð á Íslandi, sé smásala innanlands í raun gefin frjáls. Dómsmálaráðherra telur nauðsynlegt að stigin verði skref í átt að frjálsari sölu áfengis. 26.5.2022 16:15
Flóttamönnum gengið misvel að finna leiguhúsnæði Misjafnlega hefur gengið hjá flóttamönnum frá Úkraínu að finna leiguhúsnæði en hópi fólks var gert að yfirgefa Hótel Sögu í vikunni til að rýma fyrir komu annarra. Aðgerðarstjóri móttöku flóttamanna segir fólkið fá aðstoð við leitina en staðan á leigumarkaði sé slæm. Verið er að finna fleiri lausnir til að bregðast við auknum fjölda. 26.5.2022 16:01
Ásdís verður bæjarstjóri Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, verður bæjarstjóri Kópavogs samkvæmt nýjum málefnasamningi flokksins við Framsókn. 26.5.2022 15:12
Kynntu málefnasamning í Kópavogi Klukkan í dag þrjú hefst blaðamannafundur í Gerðasafni í Kópavogi þar oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bænum kynna nýjan málefnasamning. 26.5.2022 14:57
Drógu vélarvana bát í land Björgunarsveit í Hafnarfirði var kölluð út snemma í morgun vegna vélarvana báts sem rak hratt að landi. 26.5.2022 14:01
Fólk þurfi ekki að örvænta þó álagið sé mikið: „Við sinnum öllum“ Heilbrigðisráðherra segir það alvarlegt ef álag á bráðamóttöku bitnar á sjúklingum en ítrekar að öllum sé sinnt. Verið sé að skoða fjölbreyttar lausnir til að bregðast við stöðunni í heilbrigðiskerfinu en yfirvöld munu ekki láta úrbætur stranda á skorti á fjármunum 26.5.2022 13:00
Meirihluti loksins myndaður á Akureyri Oddvitar Bæjarlista Akureyrar, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks á Akureyri hittust í bústað í gær og mynduðu meirihluta bæjarstjórnar. 26.5.2022 12:42
Sigríður nýr forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins Sigríður Gunnarsdóttir mun taka við sem forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins þann 1. október næstkomandi. Hún tekur við starfinu af Laufeyju Tryggvadóttur. 26.5.2022 12:25
Hádegisfréttir Bylgjunnar Maður sem myrti fjölda barna í skotárás í skóla í Texas í Bandaríkjunum greindi frá fyrirætlunum sínum á samfélagsmiðlum. Aðgerðaleysi lögreglu er gagnrýnt. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 26.5.2022 12:03
Hvergerðingar gera ráð fyrir rúmlega hundrað milljónum króna í bætur Fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis segir framtíð Hamarshallarinnar, sem varð mikið bitbein í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, alfarið vera í höndum nýrrar bæjarstjórnar. Þá segir hann að gert sé ráð fyrir því að tjónabætur vegna hallarinnar muni nema 108 milljónum króna. 26.5.2022 11:43
Stöðug skjálftavirkni á Reykjanesskaga Skjálftavirkni hefur verið stöðug á Reykjanesskaga seinustu daga en um 200 skjálftar hafa mælst frá því á miðnætti. 26.5.2022 11:14
Fimm á slysadeild eftir að eldur kom upp Fimm voru fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í herbergi í fjölbýlishúsi við Miklubraut um klukkan níu í morgun. Enginn er þó alvarlega slasaður en grunur er um að fólkið hafi fengið reykeitrun. 26.5.2022 09:49
Allt að fjórar vikur í einangrun fyrir apabólusmitaða Þeir sem greinast smitaðir með apabólu hér á landi þurfa að vera í einangrun þar til öll útbrot hafa gróið. Ferlið getur tekið allt að fjórar vikur. 26.5.2022 09:39
Lögreglan skutlaði manni í strætó sem gekk síðan í skrokk á bílstjóranum Maður sem var skilinn eftir af strætó á bensínstöð á Blönduósi fékk far með lögreglunni að Varmahlíð þar sem hann fór aftur í vagninn. Þegar komið var að endastöð gekk hann í skrokk á strætóbílstjóranum ásamt félaga sínum. 26.5.2022 08:11
Ók rafhlaupahjóli á kyrrstæða bifreið Klukkan rétt rúmlega tvö í nótt voru tvö rafhlaupaslys í miðbænum tilkynnt til lögreglu. Í því fyrra hafði rafhlaupahjóli verið ekið á kyrrstæða bifreið og í því seinna hafði ökumaður misst stjórn á farartækinu þegar hann var með farþega á hjólinu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 26.5.2022 07:16
Ásdís verði næsti bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, verður bæjarstjóri Kópavogs samkvæmt nýjum málefnasamningi flokksins við Framsókn. 25.5.2022 22:50
Ná saman í Hveragerði og auglýsa eftir bæjarstjóra Fulltrúar Okkar Hveragerðis og Framsóknarflokksins skrifuðu undir málefnasamning í Hveragerði í kvöld. Flokkarnir munu mynda meirihluta á komandi kjörtímabili. 25.5.2022 22:28
Þurfa ekki að greiða fyrir þá sem borguðu ekki fyrir bílastæðin Brimborg ehf. þarf ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur í deilu félaganna um hvort að Brimborg bæri ábyrgð á því að greiða fyrir þá viðskiptavini bílaleigu félagsins sem nýttu sér bílastæði við Hafnartorg án þess að greiða fyrir það. 25.5.2022 22:00