Innlent

„Hatursáróður getur aldrei beinst gegn valdhöfum“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Davíð Þór gagnrýnir Orra Pál og Líf fyrir viðbrögð þeirra við gagnrýni hans.
Davíð Þór gagnrýnir Orra Pál og Líf fyrir viðbrögð þeirra við gagnrýni hans. Vísir

Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju hafnar því að ummæli hans um að fyrirhugaður brottflutningur hátt í þrjú hundruð hælisleitenda og flóttamanna falli undir fasisma sé haturso. Hann segir áhyggjuefni að flokksmenn VG skilji ekki merkingu hatursorðræðu. 

Ummæli Davíðs Þórshafa verið harðlega gagnrýnd af sumum en aðrir fagnað hörðum orðum hans um ríkisstjórnina vegna fyrirhugaðra fjöldabrottvísana um þrjú hundruð hælisleitenda og flóttafólks frá Íslandi. 

Orðum sínum, sem hann birti á Facebook, beindi Davíð Þór aðallega að flokksliðum Vinstri grænna, sem hann sakaði meðal annars um hræsni og lygar. 

„Í fréttum er það helst að fasistastjórn VG hefur ákveðið að míga á Barnasáttmála SÞ, sem hún þó lýgur því að hún hafi „lögfest“ á Íslandi, en þar kemur skýrt fram að hann gildi um öll börn í lögsögu hvers ríkis - óháð því með hvaða hætti þau komu þangað,“ skrifaði Davíð Þór í færslunni á Facebook á þriðjudag, sem vakið hefur hörð viðbrögð. 

Davíð skrifaði jafnframt að sérstakur staður sé í helvíti fyrir fólk sem „selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“

„Hatursáróður getur aldrei beinst gegn valdhöfum“

Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna fordæmdi ummæli Davíðs Þórs samdægurs og sagði þau ala á hatursorðræðu í samfélaginu. 

„Þetta finnst mér mjög áhugaverð ummæli vegna þess að hatursorðræða er mjög skýrt skilgreint hugtak. Þú getur ekki bara notað það um allt sem þér finnst dónalegt eða ósmekklegt eða særir tilfinningar þínar,“ sagði Davíð Þór í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.

„Hatursorðræða er skipulagður áróður gegn minnihlutahópi, gegn hópi fólks vegna uppruna, litarháttar, trúarbragða, kynhneigðar og svo framvegis. Það er hatursáróður. Hatursáróður getur aldrei beinst gegn valdhöfum. Það er sama hvað valdhafar eru gagnrýndir óvægið, miskunarlaust, sama hvað orðbragðið er truntalegt, sama hvaða siðareglur gagnrýnin kann að brjóta. Eðli málsins samkvæmt getur gagnrýni á stjórnvöld aldrei talist til hatursorðræðu einfaldlega vegna þess hvernig það hugtak er skilgreint.“

Hann segir áhyggjuefni að þingflokksformaður flokks skuli ekki skilja hugtakið. 

„Mér finnst áhyggjuefni að þingflokksformaður flokks, sem í orði kveðnu er að skera upp herör gegn hatursorðræðu, skuli ekki skilja hugtakið. Það er óneitanlega svolítið skondið að sami flokkur og nú er að skera upp herör gegn hatursorðræðu skuli vera sami stjórnmálaflokkur og þótti ástæða til að setja Útvarp sögu á ríkisframlög. Mér finnst það ekki alveg ganga upp.“

Gagnrýnir Líf fyrir að gera sjálfa sig að „fórnarlambi“

Orri Páll er ekki einn VG-liða sem fordæmt hefur orð Davíðs Þórs. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG og oddviti flokksins í borginni, skrifaði á Facebook í gærkvöldi að Davíð Þór hafi „triggerað“ hana. 

„Davíð Þór... er mjög triggeruð. Ég þekki svona ofbeldismenn, hef elskað þá og búið með þeim og skilið við þá. Megi þeir finna frið í sálinni,“ skrifaði Líf en hún hefur síðan eytt færslunni. 

Davíð Þór brást við færslunni í Morgunútvarpi Rásar 2 og sagðist þykja mjög leiðinlegt hafi hann með gagnrýni sinni sært tilfinningar Lífar. 

„Ennþá leiðinlegra finnst mér að hún skuli líta, ef það er það sem hún er að segja, á mig sem ofbeldismann. Leiðinlegast af öllu finnst mér þó að það fyrsta sem heyrist frá henni, sem einum af leiðtogum Vinstri grænna, um þá ákvörðun flokkssystkina hennar að gera ekkert til að koma í veg fyrir að senda hátt í þrjú hundruð manns út í aðstæður sem eru ekki nokkurri manneskju bjóðandi,“ sagði Davíð.

„Það fyrsta sem heyrist í henni um það mál er hvað rausið í einhverjum reiðum kalli út í bæ særi hennar persónulegu tilfinningar. Allt í einu er málið farið að snúast um hana og hennar tilfinningar og hún orðið fórnarlambið en ekki þessar þrjú hundruð manneskjur sem flokkssystkini hennar eru með í höndunum hvað varðar líf og limi þeirra.“

Líf skrifaði sömuleiðis á Twitter að hana langaði að þjóðnýta kirkjuna og síðan leggja allt niður sem tengist henni en hefur síðan eytt tístinu og beðist afsökunar á því. 

Framkvæmdastjóri þingflokks segir afmennskun hatursorðræðu

Anna Lísa Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna, hefur þá gagnrýnt Davíð Þór skrifaði á Twitter í fyrradag að ummæli Davíðs væru afmennskun á stjórnmálamönnum og að þau teldust til hatursorðræðu. 

„Afmennskun í orðræðu er hatursorðræða. Það er mjög mikilvægt í opinberri umræðu að við gerum okkur grein fyrir krafti sem fylgir orðum sem skilgreina aðrar manneskjur sem fasista, meindýr, sníkjudýr, sjúkdóma, óþverra, uppvakninga og djöfla,“ skrifaði Anna Lísa. 

„Hatursorðræða gagnvart sjótnmálum og stjórnmálamönnum hefur raunverulegar afleiðingar, við lesum regluega um viðurstyggilega spillta eða hættulega stjórnmálamenn eða sem eru ýmist undirlægjur, fullir af mannhatri og mannvonsku og standa jafnvel fyrir nýjum helförum, eða eru fasistar eins og sóknarprestur þjóðkirkjunnar orðar það í færslu í gær.“

Davíð Þór hafnar því að ummæli hans um fasisma í samhengi við stjórnarhætti VG séu úr lausu lofti gripin. 

„Ég vildi óska að það væri til eitthvað orð yfir þá pólitík að ákveðinn hópur fólks eigi ekki að fá að njóta borgaralegra réttinda vegna uppruna síns eða þjóðernis. Og það megi jafnvel flytja nauðungarflutningum í óboðlegar aðstæður þar sem mannréttindi þeirra eru virt að vettugi. Ó, jú, fyrirgefðu, það er til orð yfir þá pólitík. Það orð er fasismi,“ segir Davíð.

Sema Erla biður flokksmenn VG að hætta

Tístþráður Önnu Lísu hefur verið harðlega gagnrýndur og hún meðal annars sökuð um að reyna að afvegaleiða umræðuna. 

Gunnar B. Svavarsson tekur til dæmis undir með Davíð Þór að VG sýni í málinu hræsni. 

Rithöfundurinn Sjón kemur Davíð til varnar. 

Baráttukonan Sema Erla Serdar biður flokksliða Vinstri grænna um að hætta. Hún segist sjálf hafa lifað með ofbeldi hatursorðræðu.

Erlendur segir hugtakið fasista ekki geta fallið undir afmennskun. Um sé að ræða pólitískt hugtak. 

Sóley Tómasdóttir fyrrverandi oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn gagnrýnir fyrrverandi flokksmenn sína á Twitter. Hún skrifar að ekki sé hægt að slíta hatursorðræðu og afmennskun úr samhengi við valdakerfi samfélagsins. 


Tengdar fréttir

Davíð Þór biðst afsökunar á ummælum um Katrínu

Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og fyrrverandi sambýliskonu, í samtali við mbl.is í gærkvöldi.

Prestar eigi að bregðast við þegar valdhafar dæmi jaðarsetta til helvítisvistar

Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri segir varhugavert að veita eigi prestum tiltal fyrir að vera harðorðir þegar tilefni sé til. Hann segir þá skjóta skökku við að biskup Íslands hafi gagnrýnt ríkisstjórn landsins fyrir fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir en veiti presti tiltal fyrir að gagnrýna það sama. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×