Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Metfjöldi útskrifast úr HÍ og HR í dag Aldrei hafa fleiri kandídatar útskrifast úr Háskóla Íslands en í dag. Meira en 2.500 munu taka við grunn- eða framhaldsprófsskírteinum sínum í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag. Eins er metfjöldi kandídata að útskrifast úr Háskólanum í Reykjavík, eða 700 manns. 19.6.2021 10:18
Unglingar falsa stafræn ökuskírteini til að komast inn á staði Næturlífið er að ná vopnum sínum og ný kynslóð er að fóta sig eftir langan vetur. Hún þarf að laga sig að nýrri tækni: Borið hefur á því að ungmenni fái myndvinnslumenn til þess að lappa upp á stafræn ökuskírteini sín til þess að færa aldurinn nær löglegum viðmiðum. 19.6.2021 09:01
Hundi rænt fyrir utan verslun í nótt Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Ung kona var handtekin í nótt grunuð um að hafa rænt hundi, hvers eigandi hafði bundið hann fyrir utan búð í Breiðholti sem hann var að versla í. Konan var vistuð í fangageymslu fyrir rannsókn málsins í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 19.6.2021 07:14
Tillaga um Pál í heiðurssætið var felld Tillaga um að Páll Magnússon tæki heiðurssæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar var felld með yfirgnæfandi meirihluta á kjördæmisráði flokksins síðasta laugardag. 19.6.2021 07:01
Perlugestir geta tekið flugið niður í Öskjuhlíð Gestir Perlunnar munu geta ferðast á allt að fimmtíu kílómetra hraða niður í Öskjuhlíð þegar svokölluð fluglína verður tekin þar í notkun. 18.6.2021 21:01
Langreyndir starfsmenn látnir fara í hópuppsögn eftir einkavæðingu Heilsuvernd ehf., einkafyrirtæki sem tók við rekstri hjúkrunarheimila fyrir Sjúkratryggingar Íslands á Akureyri í aprílmánuði, hefur á undanförnum dögum sagt upp á þriðja tug starfsmanna öldunarheimilanna. 18.6.2021 20:34
Ætla að búa saman í Nornahúsi einungis ætluðu konum á besta aldri Fimm vinkonur ætla að búa saman í svokölluðu Nornahúsi sem mun rísa í stað hússins sem brann á Bræðraborgarstíg í fyrra. 25 íbúðir verða í húsinu og geta því fleiri bæst í hópinn en íbúðirnar verða einungis seldar konum yfir sextugt. 18.6.2021 20:00
Aflétting sóttvarnareglna á landamærum metin í lok mánaðar Aflétting sóttvarnareglna á landamærunum verður metin í lok mánaðar. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Ferðaþjónustan vonast til að sóttkví við komuna til landsins verði afnumin. 18.6.2021 19:00
Ferðamennirnir miður sín og í farsóttarhúsi Ferðamenn sem greindust með Delta-afbrigði kórónuveirunnar í vikunni eru miður sín, að sögn yfirlæknis. Þá beri að hafa í huga fyrir veisluhöld helgarinnar að stór hluti yngri aldurshópa sé aðeins hálfvarinn. 18.6.2021 18:41
Sagt upp 64 ára eftir 20 ár í starfi Sextíu og fjögurra ára gamalli konu með 20 ára starfsreynslu var sagt upp störfum á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri á dögunum, en ætla má að uppsögnin sé liður í hagræðingaraðgerðum nýrra rekstraraðila heimilisins, sem tóku við fyrir skemmstu. 18.6.2021 18:35
„Menn eru búnir að reyna þetta mjög lengi“ Líkan Íslenskrar erfðagreiningar, sem spáir fyrir um það hversu langt fólk á eftir ólifað, er nákvæmara en öll önnur sambærileg líkön, að sögn forstjóra. Líkanið hafi þó talsvert meira forspárgildi hjá þeim eldri en yngri. 18.6.2021 18:35
Hrauninu verður leyft að flæða yfir Suðurstrandarveg Ekki verður reynt að koma í veg fyrir að hraun úr Geldingadölum flæði yfir Suðurstrandarveg, en þess í stað verður hugað að því að verja Grindavíkurbæ og nærliggjandi vegi. Búist er við að hraunið muni skríða yfir veginn á næstu vikum. 18.6.2021 18:31
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá fyrirhuguðum áætlunum yfirvalda vegna hraunflæðis sem stefnir að Suðurstrandavegi. Yfirvöld hafa valið að leyfa hrauninu að flæða yfir Suðurstrandaveg en ætla að reyna að verja Grindavíkurbæ, Grindavíkurveg og Reykjanesbraut. 18.6.2021 18:24
Landsréttur lækkar bætur í Shaken Baby-máli Landsréttur hefur staðfest skaðabótaskyldu Reykjavíkurborgar gagnvart fjögurra manna fjölskyldu í máli sem hefur verið kennt við Shaken Baby-heilkenni. Fjölskyldunni hafði verið dæmdar samtals átta milljónir króna í skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur en Landsréttur ákvað að lækka skaðabæturnar í samtals fjórar milljónir króna. 18.6.2021 16:04
Skipstjóri sviptur skipstjórnarréttindum vegna siglingar undir áhrifum fíkniefna Landsréttur staðfesti í dag sakfellingardóm yfir skipstjóra sem gerðist sekur um að stýra fiskiskipi undir áhrifum tetrahýdrókannabínóls og metýlfenídats. 18.6.2021 15:59
Sýknaður í Landsrétti eftir sextán ára dóm í héraði Lithái á sextugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru fyrir að hafa banað landa sínum á svipuðu reki í Úlfarsárdal þann 8. desember 2019. Karlmaðurinn, Arturas Leimontas, var sakfelldur fyrir manndráp í héraðsdómi í janúar og dæmdur í sextán ára fangelsi. 18.6.2021 15:46
Sex mánaða fangelsi fyrir að stinga kærasta fyrrverandi kærustu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás og fíkniefnabrot. 18.6.2021 14:36
Enginn stuðningur fylgir samþykkt þings um aukna sálfræðiþjónustu Tryggvi Guðjón Ingason, formaður Sálfræðingafélags Íslands, veltir því fyrir sér hvort einróma samþykktir Alþingis um greiðsluþátttöku ríkisins sé sýndargjörningur. 18.6.2021 13:47
Borgarbyggð er sýkn af 60 milljóna króna kröfu brottrekins sveitarstjóra Héraðsdómur Vesturlands kvað í dag upp dóm þess efnis að Borgarbyggð væri sýkn af öllum kröfum Gunnlaugs Auðuns Júlíussonar. 18.6.2021 13:24
Flutningsskipið sem strandaði komið til hafnar Flutningsskip Eimskip sem strandaði í Álasundi í Noregi í gær er komið til hafnar. Níu manns voru um borð en enginn slasaðist. 18.6.2021 12:07
Ferðamennirnir reyndust með indverska afbrigðið Ferðamennirnir tveir sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar fyrr í vikunni reyndust með Delta-afbrigðið svokallaða, sem rakið er til Indlands, samkvæmt niðurstöðum raðgreiningar. Talið er að fólkið hafi smitast rétt áður en það kom til landsins og þá þykir ólíklegt að það hafi smitað út frá sér. 18.6.2021 12:05
Þjóðgarðsvörður segir stúlkurnar heppnar að vera enn á lífi Stúlkurnar þrjár sem komust í hann krappann á uppblásnum báti á Þingvallavatni snemma í morgun eru heppnar að vera enn á lífi, segir þjóðgarðsvörður. Þingvallavatn sé stórhættulegt og það beri að varast á hvaða árstíma sem er. 18.6.2021 12:05
Fara fram á gæsluvarðhald til næsta föstudags vegna hnífstungunnar Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið karlmann með hnífi í kviðinn á aðfaranótt síðasta sunnudags. Farið verður fram á vikulangt gæsluvarðhald til viðbótar yfir manninum og verður hann leiddur fyrir dómara síðar í dag. 18.6.2021 11:56
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á kórónuveirufaraldrinum en enginn greindist innanlands í gær. 18.6.2021 11:35
Inga Sæland segist glöð auglýsa á Facebook Formaður Flokks fólksins, hélt þrumuræðu yfir stuðningsmönnum sínum á 17. júní hátíð flokksins. 18.6.2021 10:48
Enginn greindist innanlands á 17. júní Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, á sjálfum þjóðhátíðardeginum. 18.6.2021 10:42
Móður veitt forsjá í forsjárdeilu Hæstiréttur dæmdi í fyrradag móður fullt forræði dóttur sinnar. Í dóminum kemur fram að hún hafi tálmað umgengni barnsins við föður þess allt frá því að hún sakaði hann um kynferðisbrot gegn barninu. 18.6.2021 10:32
Partýsprengja um helgina Telja má líklegt að laugardagurinn 19. júní verði mikill veisludagur. Brautskráning kandídata við Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll og kandídatar við Háskólann í Reykjavík fá sínar viðurkenningar við athöfn í Hörpu. 18.6.2021 10:15
Mikill viðbúnaður við Þingvallavatn vegna þriggja stúlkna í neyð Mikill viðbúnaður var upp úr klukkan sjö í morgun eftir að tilkynning barst Neyðarlínu um þrjár stúlkur í vandræðum á bát í Þingvallavatni. 18.6.2021 08:21
Þrjár líkamsárásir og ofurölvi par á veitingastað með barn Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt og þurfti lögregla á höfuðborgarsvæðinu að hafa afskipti af nokkrum fjölda fólks vegna ölvunar. 18.6.2021 06:11
Fyrrverandi upplýsingafulltrúi fer fram á 23 milljónir Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, hefur höfðað bótamál á hendur íslenska ríkinu á grundvelli þess að staða hans hjá Umhverfisstofnun hafi verið lögð niður með ólögmætum hætti. Hann fer fram á tveggja ára laun og miskabætur, en krafan nemur samtals 23 milljónum króna. 17.6.2021 20:41
Sverði Vigdísar ætlað að verja vísindi og þekkingu Sýning helguð forsetatíð og störfum Vigdísar Finnbogadóttir, fyrrum forseta Íslands, verður sett upp í Loftskeytastöðinni. Persónulegir munir Vigdísar verða til sýnis, en hún afhenti Háskóla Íslands munina við hátíðlega athöfn í morgun. Þeirra á meðal er sverð sem hún fékk gefins í Finnlandi. 17.6.2021 19:08
Dansað á Miklatúni í tilefni dagsins Forsætisráðherra flutti hátíðlegt ávarp á Austurvelli í dag þegar þjóðhátíðardegi Íslendinga var fagnað. Fjórtán voru sæmdir fálkaorðunni en hátíðarhöld voru hófleg vegna samkomutakmarkanna. 17.6.2021 19:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á Stöð 2 segjum við frá þjóðhátíðarfögnuði Íslendinga. Við komum víða við, förum á Bessastaði, í Höfða, Hveragerði og Miðbæinn. 17.6.2021 18:09
Látin eftir slys í Hvalfirði Konan sem féll í skriðu í Hvalfirði síðastliðið þriðjudagskvöld lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi í morgun. Hún hét Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir og var fædd árið 1977. 17.6.2021 17:59
Alvarlegt fjórhjólaslys í Borgarfirði Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mann í dag sem hafði lent í fjórhjólaslysi í nágrenni Borgarness. Slysið var alvarlegt að sögn lögreglunnar á Vesturlandi. 17.6.2021 16:50
Lögregla stoppaði vegfarendur og bauð þeim far í bólusetningu Mikið kapp var lagt í að koma út öllum bóluefnaskömmtum sem heilsugæslan á Húsavík hafði til umráða í gær eftir heldur dræma mætingu í bólusetningu. Lögreglan á Húsavík lagði þar hönd á plóg, fór á rúntinn, fann óbólusett fólk og kippti því með sér á bólusetningarstöðina. 17.6.2021 15:54
Fyrrverandi seðlabankastjóri meðal 14 fálkaorðuhafa Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í dag. Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, var á meðal þeirra sem hlaut orðuna. 17.6.2021 15:24
Flutningaskip Eimskips strandaði í Noregi Flutningaskip Eimskips strandaði í Álasundi í Noregi í dag. Níu menn eru um borð í skipinu en enginn þeirra slasaðist. 17.6.2021 13:52
Tilkynnti rangan sigurvegara í Morfís: „Mér líður ömurlega“ Bæði keppnislið á úrslitakvöldi MORFÍS í gær komust í sigurvímu og bæði upplifðu hræðilega vonbrigðatilfinningu þess sem tapar í úrslitakeppni. Sigurgleði Flensborgarskólans entist þó skemur en Verslunarskólans því oddadómari keppninnar tilkynnti þar ranglega að Flensborg hefði unnið áður en hann leiðrétti sig nokkru síðar. 17.6.2021 13:27
Fjallkonan í ár er Hanna María Hanna María Karlsdóttir leikkona er fjallkonan í ár. Hún flutti ávarp á hátíðarathöfn á Austurvelli í dag. 17.6.2021 11:48
„Kannski gerði faraldurinn okkur að meiri þjóð en við höfum lengi verið“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á Austurvelli í dag í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. Hún telur að heimsfaraldurinn hafi skapað mikla samstöðu meðal Íslendinga og jafnvel gert þá að meiri þjóð en þeir hafa lengi verið. 17.6.2021 11:31
Mannréttindadómstóllinn vísaði kæru Ólafs frá Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun kæru Ólafs Ólafssonar frá dómi. 17.6.2021 11:17
Hátíðarhöld um allt land Í dag fagna Íslendingar þjóðhátíðardegi sínum og fjölbreytt dagskrá verður um allt land. Dagskráin litast að nokkru leiti af þeim samkomutakmörkunum sem enn eru í gildi. 17.6.2021 10:25
Kveðja Alþingi misviljug eftir dramatískt kjörtímabil Þó framboðslistar liggi ekki að öllu leyti fyrir og vitaskuld óvíst hvernig væntanlegar kosningar fara er ljóst að fjölmargir þingmenn eru á förum – sumir af fúsum og frjálsum vilja og aðrir ekki. 17.6.2021 09:01