Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrirbyggjandi meðferð minnkar líkurnar á endurkomu um 42 prósent Fyrirbyggjandi meðferð með krabbameinslyfinu olaparib minnkar áhættuna á endurkomu brjóstakrabbameins um 42 prósent hjá arfberum BRCA1 og BRCA2 stökkbreytinga. 16.6.2021 09:24
Bein útsending: Hvert stefnir Ísland í alþjóðasamvinnu? Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Norræna húsið og utanríkisráðuneytið í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Vestnorræna ráðið standa nú í fjórða sinn fyrir ráðstefnu um alþjóðamál, að þessu sinni í dag klukkan 9 í Norræna húsinu. 16.6.2021 08:15
Þrjár tegundir bætast á lista yfir bannaða hunda Til stendur að bæta þremur tegundum á bannlista yfir hunda sem ekki má flytja til landsins. Félag ábyrgra hundaeigenda gagnrýnir nálgunina, sem formaður félagsins segir skapa „falskt öryggi“. 16.6.2021 07:34
Dómsmálaráðherra stendur vörð um djammið Eigendur skemmtistaða í miðbænum telja málflutning lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um að sjá megi ávinning af styttri opnunartíma skemmtistaða vegna faraldursins, byggja á veikum forsendum. Lögreglan hefur kallað eftir samtali við hagsmunaaðila í miðborginni um endurskoðun á opnunartíma. Dómsmálaráðherra segir af og frá að reglum verði breytt á þessum forsendum. 16.6.2021 07:11
Borgarstjóri segir ekki standa til að viðhalda styttri opnunartíma Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir ekki standa til að viðhalda styttri opnunartíma skemmtistaða í miðborginni. Hann segist hins vegar myndu fagna því ef fólk byrjaði fyrr á kvöldin að skemmta sér og færi þá sömuleiðis fyrr heim. 16.6.2021 06:41
Þyrla Gæslunnar sótti slasaða konu við Flekkudalsfoss Björgunarsveitir, lögregla og slökkvilið var kallað á vettvang í gær eftir að tilkynnt var að kona hefði fallið á göngu við Flekkudalsfoss. Konan var slösuð og flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans. 16.6.2021 06:19
„Getur Haraldur Benediktsson ekki keppt við konu án hótana?“ Yfirlýsingar Haralds Benediktssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í dag hafa vægast sagt farið öfugt ofan í margar samflokkskonur hans. 15.6.2021 22:40
Tveggja bíla árekstur við Ártúnsbrekku Tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Höfðabakka og Ártúnsbrekku rétt eftir klukkan níu í kvöld. 15.6.2021 21:36
Telur ekki sitt hlutverk að fella dóm yfir stjórnendum Landspítala Landlæknir segir það ekki vera sitt hlutverk að fella dóm yfir stjórnendum Landspítalans vegna hópsýkingar á Landakoti. Hlutverk embættisins sé einungis að finna hvað hefði mátt fara betur. 15.6.2021 20:55
„Maður getur aldrei tryggt það að allir verði sáttir“ Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, sér ekki hvað bærinn hefði getað gert öðruvísi í máli Sifjar Huldar Albertsdóttur, sem sagði af sér sem bæjarfulltrúi í gær. Hún hefur krafið bæjarfélagið um bætur vegna þess hvernig það tók á kvörtun hennar um einelti sem hún segist hafa orðið fyrir af hálfu starfsmanns Ísafjarðarbæjar. 15.6.2021 20:38
Fögnuðu fyrstu útskriftinni með oddaflugi yfir eldgosið Fyrsta svokallaða oddaflugið yfir eldgosið í Geldingadölum var farið í gærkvöld, þegar flugkennarar Flugakademíu Íslands fylktu liði frá Reykjavíkurflugvelli. Rúmlega þrjátíu manns útskrifuðust frá skólanum í vikunni. 15.6.2021 20:01
„Alls ekki óþekkt að svona staða komi upp“ Hafrannsóknastofnun hefur lagt til þrettán prósenta lækkun á þorskkvóta eftir ofmat á stofninum. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lýsa áhyggjum af stöðu hafrannsókna og krefjast úrbóta. 15.6.2021 19:35
Strauk úr sóttvarnahúsinu og gekk í skrokk á fyrrverandi Karlmaður var í gær dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir líkamsárásir og brot á nálgunarbanni gegn fyrrverandi kærustu sinni og brot á sóttvarnarlögum. 15.6.2021 19:17
Konur standast helst ekki áttatíu kíló í bekkpressu Til stendur að endurskoða inntökuskilyrði í sérsveitina í ljósi þess að engin kona hefur komist í sveitina. Ríkislögreglustjóri segir að konur verði hvattar til að gefa kost á sér. 15.6.2021 19:00
Kviknaði í bíl á Arnarnesbrú Eldur kom upp í bíl á Arnarnesbrúnni í Garðabæ rétt eftir klukkan sex í kvöld. Slökkvilið var kallað út og er búið að slökkva eldinn í bílnum. 15.6.2021 18:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dökk skýrsla Landlæknisembættisins sýnir að ófullkomin hólfaskipting á Landakoti og skortur á aðgerðastjórn og sýnatöku orsakaði umfangsmestu hópsýkingu hér á landi. Við ræðum skýrsluna við Ölmu Möller landlækni í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. 15.6.2021 18:21
Haraldur þiggur ekki annað sæti ef hann tapar oddvitaslagnum Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, mun ekki þiggja annað sæti á lista flokksins í kjördæminu ef hann tapar baráttunni um oddvitasætið við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í prófkjöri flokksins um næstu helgi. 15.6.2021 17:51
78% ónæmi náð: Um tvær vikur í afléttingu allra takmarkana Hlutfall fullorðinna Íslendinga sem eru ónæmir fyrir Covid-19 er komið upp í 78,1%, þ.e. þeirra sem eru annaðhvort komnir með fyrsta skammt bóluefnis eða ónæmi vegna sýkingar. 15.6.2021 17:09
Fengu tilkynningu um mann fastan undir vörubíl Lögreglunni á Suðurlandi barst síðdegis í dag tilkynning um að vörubíll hefði oltið út af vegi á Grímsnesi og að maður væri þar fastur undir. 15.6.2021 16:36
Beinin sem fundust í Húnavatnssýslu ekki úr manni Bein sem fundust í fjöru á Skaga í Húnavatnssýslu síðdegis í gær reyndust ekki vera mannabein. Talið var að um bein úr handleggi manns væri að ræða en svo reyndist ekki. Þetta staðfestir Runólfur Þórhallsson, formaður kennslanefndar ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. 15.6.2021 16:19
Hælisleitendur sem neituðu að fara í Covid-próf fá þjónustu á ný Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður þjónustu til palestínsks manns sem neitað hafði að undirgangast próf við kórónuveirunni áður en flytja átti hann til Grikklands. 15.6.2021 15:25
Slæm hólfaskipting réði úrslitum um harmleikinn á Landakoti Ófullkomin hólfaskipting á Landakoti var helsti áhrifaþáttur þess að hópsýking á sjúkrahúsinu í vetur hafði eins alvarlegar afleiðingar og raun bar vitni, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu. 15.6.2021 15:21
„Guð forði okkur frá því að verði byggt þarna“ Ný landfylling í Sundahöfn er mikið deilumál og eru íbúar í Laugarnesi ekki parsáttir við það að verið sé að bæta í fyllinguna þessa dagana. Áætlanir eru uppi um að nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna rísi þar sem verið er að koma landfyllingunni niður og eru íbúar á svæðinu áhyggjufullir um að náttúru- og útsýnisspjöll fylgi þessari uppbyggingu. 15.6.2021 15:10
Bólusetning á pari og engir aukaskammtar í dag Ekki verður hægt að mæta í Laugardalshöll í dag og fá bóluefni Pfizer gegn kórónuveirunni án þess að vera með boðun. 15.6.2021 14:32
Mætingin ræður því hvort Pfizer-afgangar verða boðnir öllum Búið er að bólusetja yfir sjö þúsund manns með bóluefni Pfizer í Laugardalshöll í dag en til stendur að bólusetja með alls níu þúsund skömmtum í dag. 15.6.2021 13:30
Engir upplýsingafundir næstu vikur og uppfæra Covid.is sjaldnar Síðan covid.is verður framvegis uppfærð einungis á mánudögum og fimmtudögum og frá 1. júlí verður síðan einungis uppfærð á fimmtudögum. Þá verða ekki haldnir upplýsingafundir vegna kórónuveirunnar á næstu vikum nema þörf krefur. 15.6.2021 12:39
Þorskurinn veldur vonbrigðum: Hefði viljað hafa þetta öfugt Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að þorskkvótinn verði lækkaður um 13% á næsta fiskveiðiári, úr 256 þúsund tonnum í 222 þúsund tonn. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra segir vonbrigði að samdráttur sé í ráðgjöfinni. 15.6.2021 12:14
Telja raunhæft að flytja út vetni til Rotterdam Allt að 200 til 500 megavött orku gætu verið flutt úr landi í formi fljótandi vetnis til Hollands á síðari hluta þessa áratugar. Forskoðun Landsvirkjunar og Rotterdam-hafnar leiddi í ljós að verkefni væri ábatasamt og að tæknin væri fyrir hendi. 15.6.2021 11:57
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um tillögur Hafrannsóknarstofnunar um að þorskkvótinn minnki um þrettán prósent og fáum álit sjávarútvegsráðherra á tillögunum. 15.6.2021 11:50
Lilja í tímabundið leyfi frá störfum Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mun að læknisráði fara í tímabundið veikindaleyfi. 15.6.2021 11:31
Könnun MMR: Sjálfstæðisflokkur mælist með 27 prósent fylgi Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 27,0 prósent í nýrri könnun MMR, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en í síðustu könnun sem lögð var fyrir síðustu vikuna í maí. 15.6.2021 11:06
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. 15.6.2021 10:54
Mannabein fundust í fjöru í Húnavatnssýslu Íbúi á Skaga í Húnavatnssýslu fann eftir hádegi í gær bein sem talin eru vera úr manni. Lögregla og björgunarsveitir voru kallaðar til og fór ítarleg leit fram á svæðinu í kring en ekkert fleira fannst sem talið er geta tengst beininu. 15.6.2021 10:53
Leggja til 13% lækkun á þorskkvóta eftir ofmat á stofninum Hafrannsóknastofnun leggur til að sjávarútvegsráðherra lækki þorskkvóta um 13% á þessu fiskveiðiári. Vísar stofnunin til ofmats á stærð þorskstofnsins undanfarin ár og lítilla árganga. 15.6.2021 10:26
Sumarið svíkur Íslendinga Klárlega einn mesti kuldi af þessum toga í áraraðir, segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. 15.6.2021 10:06
Bein útsending: Miklabraut og Sæbraut í stokk Opinn fundur Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra í Reykjavík, um tillögur um Miklubrautarstokk og Vogabyggðarstokk hefst í dag klukkan 9 og stendur til klukkan 11. 15.6.2021 08:30
Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi í dag Í dag taka gildi nýjar reglur um sóttvarnaaðgerðir. Fjöldatakmörk miðast nú við 300 manns og nándarreglan verður einn metri í stað tveggja. Þá er engin regla um nánd á sitjandi viðburðum en öllum skylt að bera grímu. 15.6.2021 06:56
Gekk berserksgang í sameign fjölbýlishúss Töluvert annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt, meðal annars vegna óspekta bæði innan- og utandyra. 15.6.2021 06:43
Gunnar Birgisson er látinn Gunnar Birgisson, fyrrverandi alþingismaður og bæjar- og sveitarstjóri, er látinn. Samkvæmt andlátstilkynningu í Morgunblaðinu lést Gunnar á heimili sínu í gær. Hann var 73 ára. 15.6.2021 06:22
Ólíkir ráðherrar saman á fundi NATO fyrir hönd Íslands Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins (NATO) funduðu í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Tveir ráðherrar Íslands sátu fundinn en þeir hafa nokkuð misjafna sýn á hlutverk bandalagsins og hvort Ísland eigi í raun heima þar. 14.6.2021 22:52
Aðför Samherja einsdæmi á Norðurlöndum Norrænir fjölmiðlar virðast flestir kannast við hótanir, ofbeldi og hatur í sinn garð, sem stórt vandamál. Enginn þeirra hefur þó heyrt af eins alvarlegum árásum fyrirtækis á hendur fjölmiðlafólki og þeim sem Samherji réðst í eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um Namibíumálið. 14.6.2021 22:45
Síðasta ár sýni ávinning af styttri opnunartíma skemmtistaða Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, kallar eftir samtali við hagsmunaaðila í miðborginni um endurskoðun á opnunartíma skemmtistaða. Hann segist hafa séð dramatíska breytingu síðasta árið, á þeim brotum sem lögregla sinnir venjulega um helgar. 14.6.2021 20:51
Milljörðum lykilorða lekið á netið Milljörðum lykilorða var lekið í umfangsmiklum gagnaleka í síðustu viku. Sérfræðingur í netöryggismálum segir það ekki spurningu um hvort heldur hvenær fólk lendi í að gögnum tengdum þeim verði lekið. 14.6.2021 20:02
Hvetur foreldra til að ýta við ungmennum fæddum 2003 og 2004 Erfiðlega gekk að koma út bóluefni Janssen í dag. Til að tryggja að skammtar eyðilegðust ekki var öllum boðið að mæta. 14.6.2021 19:53
„Ömurlegt að ár eftir ár geti þessi maður haldið ótrauður áfram“ Ung kona, sem lýsir því hvernig hún varð fyrir stöðugu áreiti eldri manns þegar hún var barn, segir kerfið taka þátt í ofbeldinu með því að líta í aðra átt. Sami maður fái að halda ótrauður áfram að áreita barnungar stúlkur. 14.6.2021 19:16