Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Hélt við værum örugg undir snjóflóðavarnargarðinum“ Íbúi sem þurfti ásamt fjölskyldu sinni að yfirgefa heimili sitt á Siglufirði í gær vegna snjóflóðahættu segist undrandi því snjóflóðagarður sé við húsið. Greinilegt sé að verið sé að endurmeta snjóflóðavarnir á svæðinu. Talið er að altjón hafi orðið á skíðasvæði Siglfirðinga í snjóflóði í gær en lyftan virðist hafa sloppið. 21.1.2021 19:00
Gunnar Smári segir aumt að bjóða far og halda því þá fram að hann heimti undir sig einkaþotu Gunnar Smári Egilsson blaðamaður hefur ritað mikla grein þar sem hann svarar því sem á hann stendur í óútkominni bók Einars Kárasonar: Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. 21.1.2021 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stórtjón varð þegar vatnslögn við Háskóla Íslands gaf sig í nótt og ríflega tvö þúsund tonn af vatni flæddu um byggingar skólans. Sýnt verður frá vatnsflaumnum sem starfsfólk og slökkvilið hefur barist við í dag í kvöldfréttum Stöðvar 2. 21.1.2021 18:00
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. 21.1.2021 17:46
Pervertinn sagður hár, grannur og úlpuklæddur í kringum þrítugt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn er talinn í kringum þrítugt, hár og grannur. 21.1.2021 16:18
Pilturinn látinn laus í fyrradag Ungi maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna árásar í Borgarholtsskóla í síðustu viku var sleppt úr haldi í fyrradag. Úrskurður héraðsdóms um gæsluvarðhald var kærður til Landsréttar, sem sneri úrskurðinum við. 21.1.2021 15:01
Þurfum að vera búin undir veirustofna sem sleppa undan bóluefni Sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að búa sig undir það að stofnar kórónuveirunnar komi fram, sem bóluefni bíti ekki á. Ekki sé heldur ljóst hversu lengi ónæmi af þeim bóluefnum sem leyfi hafa fengist fyrir vari lengi og ekki útilokað að bólusettir þurfi aftur í bólusetningu. 21.1.2021 14:29
Miklar breytingar á starfi á Háskólatorgi og Gimli Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að öll kennsla sem fram hafi farið í húsakynnum Háskólatorgs og Gimli verði nú rafræn. Þá verður jarðhæð í Gimli ónothæf næstu mánuði og sama gildi um fyrirlestrarsali á jarðhæð á Háskólatorgi. 21.1.2021 14:29
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. 21.1.2021 14:14
Pervert heldur skólastarfi Seljaskóla í gíslingu Atli Már Gylfason blaðamaður segir gersamlega óþolandi að lögreglan skuli ekki grípa til aðgerða vegna perverts sem gengur laus í Seljahverfinu. 21.1.2021 14:09
Hafa dælt úr skólanum í hálfan sólarhring Slökkviliðsmenn sem eru að störfum í byggingum Háskóla Íslands eru nú farnir að sjá fyrir endann á aðgerðum á staðnum. Þeir vonast til að lokið verði við að dæla vatni af göngum skólans á næstu klukkutímum. 21.1.2021 12:52
Lögðu hald á sjötíu kannabisplöntur í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í Hafnarfirði í vikunni. 21.1.2021 12:41
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. 21.1.2021 12:35
Biður fólk að hætta að senda tölvupósta til að komast ofar í forgangsröðun Sóttvarnalæknir biðlar til fólks að hætta að senda embætti landlæknis og sóttvarnalæknis tölvupósta með óskum um að komast framar í forgangsröðun í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Slíkt skapi aðeins óþarfa álag á starfsfólk og leiði ekki til neins. 21.1.2021 12:21
Lýsti áhyggjum af stöðu ferðaþjónustunnar á Alþingi Þingflokksformaður Viðreisnar segir óljóst hvernig stjórnvöld ætli að bregðast við vanda ferðaþjónustunnar takist ekki að bólusetja meirihluta þjóðarinnar fyrir sumarið. Ferðamálaráðherra segir stjórnvöld standa með ferðaþjónustunni en þróun í faraldursins í öðrum löndum ráði einnig miklu. 21.1.2021 12:21
Skoða hver ábyrgð Veitna sé vegna tjónsins í HÍ Arndís Ósk Ólafsdóttir, forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum, segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort fyrirtækið sé skaðabótaskylt vegna vatnstjónsins sem varð í byggingum Háskóla Íslands í nótt eftir að stór kaldavatnslögn við skólann rofnaði með tilheyrandi vatnsleka. 21.1.2021 11:58
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Við fjöllum um tjónið í Háskóla Íslands í hádegisfréttum okkar en í nótt sprakk vatnsæð sem varð þess valdandi að gríðarlegt magn vatns flæddi inn í byggingar á Háskólasvæðinu. 21.1.2021 11:31
Þóttust vera eftirlitsmenn MAST í heimsókn til hundagæslu Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á atburði þar sem tveir einstaklingar heimsóttu hundagæslu undir því yfirskyni að vera starfsmenn stofnunarinnar. Sett var út á starfsemina og hún stöðvuð. 21.1.2021 11:26
Fáum heldur færri skammta frá Pfizer næstu vikur en gert var ráð fyrir Heldur færri skammtar af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer gegn kórónuveirunni koma til landsins á næstu vikum en gert var ráð fyrir. Skorturinn verður hins vegar bættur upp í mars og heildarfjöldi skammta í marslok verður því óbreyttur frá því sem áætlað var. 21.1.2021 11:18
Gryfjan í Stúdentakjallaranum „eins og sundlaug“ Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi Félagsstofnunar Stúdenta, sem rekur Stúdentakjallarann, Bóksölu stúdenta og veitingasöluna Hámu á Háskólatorgi segir ekki ljóst hversu mikið tjón stofnunarinnar er vegna vatnslekans sem varð í Háskóla Íslands í nótt. 21.1.2021 11:08
Háskóli Íslands er ekki tryggður fyrir tjóninu Háskóli Íslands er ekki tryggður fyrir tjóninu sem varð vegna gríðarlegs vatnsleka í fimm byggingum skólans í nótt, að sögn rektors. Hann segir ljóst að tjónið sé gríðarlegt og hafi einmitt orðið í þeim skólastofum sem eru í notkun í kórónuveirufaraldrinum. 21.1.2021 10:58
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki. 21.1.2021 10:40
Svona var 155. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Fundinum verður streymt á Vísi. 21.1.2021 10:29
Brynjar tróð góðum nikótínkodda í vör á forsetastóli Ýmsir sem fylgdust með umræðum á þinginu í gær ráku upp stór augu þegar Brynjar Níelsson, í sæti forseta Alþingis, dró fram bauk úr vasa sínum. 21.1.2021 10:04
Hurðir sprungu undan gríðarlegum vatnsflaumnum Gríðarlegt tjón varð á byggingum Háskóla Íslands í miklum vatnsleka á svæðinu í nótt, að sögn sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs skólans. Tvær byggingar; Gimli og Háskólatorg, fóru verst úti. Hurðir sprungu undan vatninu og í Gimli náði flaumurinn upp í rafmagnstöflur. 21.1.2021 09:03
Handritin í Árnagarði óhult „Það fór ekkert inn til okkar og handritin eru óhult.“ Þetta segir Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, í samtali við Vísi, aðspurð um hvort að vatnslekinn í byggingum Háskóla Íslands hafi náð inn í handritageymslur stofnunarinnar. 21.1.2021 08:57
Engin starfsemi í mörgum byggingum Háskóla Íslands Öll starfsemi Háskóla Íslands á Háskólatorgi, í Gimli, Lögbergi, Árnagarði og aðalbyggingu mun liggja niðri að minnsta kosti til hádegis í dag vegna gríðarlegs vatnstjóns sem orðið hefur í byggingum skólans. 21.1.2021 08:38
Enn engar tilkynningar um ný flóð á Tröllaskaga Veðurstofunni hafa enn ekki borist nýjar tilkynningar um að ný snjóflóð hafi fallið í Siglufirði eða annars staðar á Tröllaskaga. Beðið er eftir að birti til að hægt sé að taka betur stöðuna, en margir vegir á svæðinu eru sem stendur lokaðir og því ekki útilokað að flóð hafi fallið. 21.1.2021 07:29
Bannað að leigja út bústaði í Þingvallaþjóðgarði í gegnum Airbnb Þingvallanefnd hefur ákveðið að bannað verði að leigja út sumarbústaði sem eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum í gegnum Airbnb eða aðrar sambærilegar leigur. Nefndin samþykkti að slíkt ákvæði færi inn í lóðaleigusamninga á fundi í desember. Ákvæðið gildir til næstu tíu ára. 21.1.2021 06:59
Gríðarlegt vatnstjón í HÍ: Meira en tvö þúsund tonn af vatni runnu út eftir rof á kaldavatnslögn Ljóst þykir að gríðarmikið vatnstjón varð í nokkrum byggingum Háskóla Íslands í Vesturbæ Reykjavíkur eftir að rof varð á aðalkaldavatnsæð Veitna við Suðurgötu í nótt. 21.1.2021 06:26
Gjörólíkir persónuleikar Bidens og Trumps eigi eftir að hafa áhrif á stefnuna Albert Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra, segir viðbúið að margt muni breytast hvað varðar bandaríska utanríkisstefnu nú eftir að Joe Biden og hans stjórn hefur tekið við völdum í Bandaríkjunum að lokinni embættistíð Donalds Trump. Samkeppni Bandaríkjanna og Kína muni þó áfram vega þungt í bandarískri utanríkisstefnu. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, tekur undir þetta og sér fram á breytta stefnu í málefnum Norðurslóða og samskiptum við bandamenn í Evrópu. 21.1.2021 00:29
Telur elsta nafn Íslands vera Thymele og gríska sæfara hafa fundið landið Grískur fréttamiðill segir nýja vísbendingu um að það voru Grikkir sem fundu Ísland á fjórðu öld fyrir Krist og að eyjan hafi fyrst verið kennd við altari. Breskur málvísindamaður telur að fyrsta nafn Íslands, sem gríski sæfarinn Pýþeas er sagður hafa gefið landinu, hafi ekki verið Thule heldur Thymele, sem á forngrísku þýðir altari. 20.1.2021 23:23
„Af hverju í ósköpunum þurfum við að láta leggja grasblett og berjarunna?“ Guðmundur Heiðar Helgason, markaðsstjóri Strætó og íbúi í Vogabyggð, furðar sig á vinnubrögðum Reykjavíkurborgar og segir ósveigjanleika hennar leiða til sóunar á tíma og peningum. 20.1.2021 23:16
„Hin miklu tíðindi“ eru þau að nú er kona varaforseti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, óskar nýjum forseta Bandaríkjanna velfarnaðar nú þegar hann hefur tekið við embætti. Guðni hyggur að meiri áhersla verði lögð meðal annars á loftslagsmál og jafnréttismál í tíð nýrrar ríkisstjórnar í Bandaríkjunum frá því sem var í stjórnartíð Trump. Guðni segir ein stærstu tíðindin vera þau að í fyrsta sinn sé það nú kona sem gegni embætti varaforseta. 20.1.2021 20:05
Höfðu varað við því að heilsugæslan væri ekki tilbúin Kvensjúkdómalæknar höfðu varað við því að heilsugæslan væri ekki í stakk búin til að taka yfir krabbameinsskimanir um áramótin. Þeir segja of mikla óvissu ríkja sem auki líkur á mistökum. Kona sem greindist með alvarlegar frumubreytingar fær engin svör um hvenær hún fær að fara í frekari rannsóknir. 20.1.2021 19:45
Vegrið vantar við tugi kílómetra vegarins um Ísafjarðardjúp Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins sem varð í Skötufirði á laugardag er ekki lokið. Hálka var á veginum þegar slysið varð og afar lélegt símasamband var á svæðinu. Þá voru engin vegrið við veginn þar sem að bíllinn rann út af og hafnaði í sjónum. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að samkvæmt úttekt sem gerð var við Ísafjarðardjúp árið 2013 vanti vegrið á nokkurra tuga kílómetra kafla, meðal annars í Skötufirði, til að uppfylla núgildandi kröfur. 20.1.2021 19:23
Umdeildur sendiherra Bandaríkjanna kveður og þakkar Trump Jeffrey Ross Gunter lýkur í dag störfum sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Þetta tilkynnir hann á Facebook-síðu sendiráðsins en Gunter var tilnefndur í embættið af Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, árið 2019. 20.1.2021 18:55
Rafræn bólusetningarvottorð aðgengileg á morgun Þeir fyrstu sem fengu bólusetningu við covid-19 hér á landi fá sína seinni sprautu í dag og á morgun. Embætti landlæknis leggur nú lokahönd á rafræna lausn sem á að gera fólki kleift að nálgast bólusetningarvottorð í gegnum netið á heimasíðunni heilsuvera.is. 20.1.2021 18:24
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Joe Biden sór embættiseið og tók við völdum sem forseti Bandaríkjanna í dag. Við förum ítarlega yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 en vænta má að stefnubreytingar í Hvíta húsinu muni hafa víðtæk áhrif, bæði vestanhafs og á alþjóðavísu. 20.1.2021 18:02
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks hugsi yfir stjórnarskrárfrumvarpi Katrínar Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hefur kallað eftir sérstakri umræðu um stöðu stjórnarskrármála á Alþingi á morgun. Hann segir nauðsynlegt að skýrt verði hvað réði áherslum forsætisráðherra í væntanlegu þingmannafrumvarpi hennar um breytingar á stjórnarskránni. 20.1.2021 16:52
Hækka viðbúnaðarstig og rýma svæði á Siglufirði Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðbúnaðarstig í hættustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Ákveðið hefur verið að rýma svæði sem er syðst á Siglufirði og mun lögregla hafa samband við fólkið sem þarf að yfirgefa heimili sín. 20.1.2021 15:23
Lögreglan lýkur brátt rannsókn á málinu í Ásmundarsal Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýkur væntanlega rannsókn sinni á hvort að sóttvarnarlög hafi verið brotin í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Í framhaldinu verður hún send til ákærusviðs sem tekur ákvörðun um framhaldið. 20.1.2021 15:00
Náfrændi Hreiðars Más genginn í Sósíalistaflokkinn Jökull Sólberg Auðunsson frumkvöðull segir nýfrjálshyggjuna komin að þrotum og hefur gengið til liðs við Sósíalistaflokkinn. 20.1.2021 14:26
Talinn hafa ekið of hratt og ekki gætt að viðvörunarmerkjum Ökumaður bifhjóls sem lést í slysi á Innstrandavegi við Hrófá, suður af Hólmavík, í júní 2019 er talinn hafa ekið of hratt og ekki gætt að viðvörunarmerkjum um einbreiða brú og hættu. Hann hafi misst stjórn á hjólinu við nauðhemlun, fallið af því og kastast á kyrrstæðan bíl. 20.1.2021 14:14
Samfélagið á Flateyri slegið Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins í Skötufirði gengur vel en er ekki lokið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Bænastund verður haldin í Flateyrarkirkju í kvöld. Sóknarpresturinn segir slysið hafa mikil áhrif á samfélagið. 20.1.2021 14:01