Fleiri fréttir

Nærri 70 prósent á móti sölu áfengis í matvöruverslunum

Um það bil tveir af hverjum þremur eru á móti sölu áfengis í matvöruverslunum. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir niðurstöðurnar koma á óvart. Þingmaður Vinstri grænna segir tíðindin hins vegar vera ánægjuleg.

Hótaði fyrrverandi eiginkonu með sms

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi nýverið fyrir að hafa sent fyrrverandi eiginkonu sinni sms þar sem hann hótaði henni.

Ráðist á öryggisvörð í austurborginni

Fleiri en einn karlmaður réðust á öryggisvörð, sem jafnfrfamt er afgreiðslumaður í sólarhringsverslun í austurborginni, upp úr miðnætti. Kom til átaka og hlaut öryggisvörðurinn einhverja áverka, en þó ekki alvarlega.

Ræða ábendingar landlæknis

Velferðarnefnd fundaði í gær um ábendingar landlæknis vegna eftirlits með lyfjaávísunum og lyfjanotkun. Fundurinn var haldinn í framhaldi fundar með Geir Gunnlaugssyni landlækni á mánudag.

Mátti ekki mótmæla á sendiráðslóðinni

Íslenska ríkið var í gær sýknað af tveggja og hálfrar milljónar skaðabótakröfu Lárusar Páls Birgissonar sem var handtekinn í tvígang við að mótmæla fyrir framan bandaríska sendiráðið.

MP5 sögð öruggari en skammbyssa

Ekkert lögregluembættanna hefur enn farið fram á að fá MP5-hríðskotabyssur til afnota en yfirmaður lögreglunnar á Akureyri segir hríðskotabyssurnar öruggari en skammbyssur og því verði líklega farið fram á að fá þær.

„Skrítið að Íslandsstofa treysti ekki íslensku fagfólki“

Forsvarsmenn Félags kvikmyndagerðarmanna undra sig á því að ekki hafi verið leitað til íslensks fagfólks við gerð kynningarmyndbands nýrrar herferðar Íslandsstofu fyrir Inspired by Iceland. Erlendir aðilar leikstýrðu og tóku upp myndbandið.

Fleiri með presta en lækni í kauptúninu

Í úttekt Byggðastofnunar á staðsetningu starfa ríkisins sést að á höfuðborgarsvæðinu eru langflest störf hjá ríkinu. Prestar eru í fleiri þéttbýliskjörnum en heilsugæsla. „Ekki nógu vel gefið,“ segir Björn Valur Gíslason varaþingmaður.

Átta dómar fallið gegn Íslandi síðastliðinn áratug

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur átta sinnum á tíu árum dæmt íslenska ríkið skaðabótaskylt vegna brota á Mannréttindasáttmála Evrópu. Jón Steinar Gunnlaugsson telur Ísland ekki eiga að vera aðila að dómstólnum.

Hluti bænda lepur dauðann úr skel

Styrkir til sauðfjár- og kúabúskapar svara til þrefalds launakostnaðar þeirra sem við greinina vinna. Ný samantekt Vísbendingar á búfjárreikningum sýnir að laun bænda í þessum greinum eru við og undir lágmarkslaunum.

Erfðaskrá stjúpu gildir

Hæstiréttur sneri á mánudaginn við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur vegna deilu um skiptingu dánarbús.

Það sem við vitum um byssurnar frá norska hernum

Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu á 150 MP5 hríðskotarifflum frá norska hernum til ríkislögreglustjóra. Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýna harðlega að svo mikið magn vopna hafi verið afhent lögreglunni án sérstaks samþykkis ráðherra eða umræðu í þinginu.

Þukla á hrútum á Kex Hostel

Fulltrúar landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins mætast á laugardaginn í keppni í hrútaþukkli þar sem meta á hvernig hrútarnir koma undan sumri.

Kvíðin á hverjum einasta degi

Herborg Svana Hjelm fæddi stúlku í heiminn fyrir nítján árum síðan og fékk sú stutta nafnið Sunneva Ýr og er Sævarsdóttir. Sunneva var brosmild og skemmtileg stelpa sem átti stundum erfitt með að hemja skapið þegar henni mislíkaði eitthvað. Þrettán ára gömul var Sunneva greind með mikla ofvirkni og byrjaði að taka inn Rítalín og leiddist eftir það inn á braut fíkniefna.

Byssubrand(ar)ar ríkisstjórnarinnar

Meðlimir ríkisstjórnarinnar og dyggir stuðningsmenn vilja gera lítið úr umræðunni um vélbyssuvæðingu lögreglunnar með gamansemina að vopni.

Sjá næstu 50 fréttir