Hælisumsóknum fjölgað um 400 prósent á fimm árum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. október 2014 12:09 Ghasem Mohamadi, afgönskum hælisleitanda, var veitt pólitískt hæli á Ísland á dögunum. Vísir/Pjetur
Í ársskýrslum Útlendingastofnunar fyrir árin 2011, 2012 og 2013 kemur meðal annars fram að hælisumsóknum hér á landi hefur fjölgað mjög undanfarin ár. Hækkunin hefur numið um 50 prósentum á milli ára frá árinu 2009. Það ár voru umsóknir 35 en voru í fyrra 172. Fjöldi þeirra hefur því tæplega fimmfaldast á fimm árum. Útlendingastofnun hefur gefið út ársskýrslur fyrir árin 2011 til 2013 en skýrslugerð hefur setið á hakanum undanfarin ár vegna álags. Í frétt á vefsíðu stofnunarinnar segir að í skýrslunum megi glögglega sjá þann árangur sem náðst hafi í sérstöku átaki innanríkisráðuneytis og stofnunarinnar sem hófst í lok árs 2012. „Tekist hefur að halda hinum svokallaða málahala í skefjum og saxa nokkuð á hann. Þannig var 80 hælismálum ólokið hjá Útlendingastofnun í lok árs 2012 en í lok árs 2013 voru þau aðeins 56 þrátt fyrir algert metár í fjölda hælisumsókna.“ Tíðni veitinga í hælismálum sem tekin voru til efnislegrar meðferðar hefur verið breytileg undanfarin ár. Árið 2013 var hún aðeins 16 prósent. „Þetta lága veitingarhlutfall skýrist að miklu leyti af stórum hópum hælisleitenda frá öruggum Evrópuríkjum, einkum Albaníu og Króatíu. Til samanburðar var veitt hæli í um 67% tilfella árið 2011, í 41% tilfella árið 2012 og það sem af er árinu 2014 er áætlað að veitingarhlutfallið sé um eða yfir 50%.“ Umsóknum útlendinga um dvalarleyfi hefur fækkað eftir efnahagshrunið haustið 2008. „Árið 2010 bárust 3625 umsóknir en árið 2013 var fjöldi þeirra 3076. Á þessu tímabili var fallist á veitingu dvalarleyfis í 87 til 94% tilfella. Meðal þeirra sem fengu dvalarleyfi árin 2012 og 2013 voru Bandaríkjamenn fjölmennastir en fólk frá Filippseyjum og Taílandi fylgdu í kjölfarið. Árið 2013 byggðust flestar synjanir um dvalarleyfi á því að umsóknir og fylgigögn fullnægðu ekki skilyrðum laga.“Ársskýrslurnar má sjá hér að neðan.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira