Fyrrverandi ráðherra sakar lögreglu um fáheyrða óskammfeilni Heimir Már Pétursson skrifar 22. október 2014 13:05 Yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra segir að brýnt hafi verið að fá nýjar hríðskotabyssur og vísar til skýrslu fyrrverandi innanríkisráðherra. Hann segir um fáheyrðan útúrsnúning að ræða. vísir
Yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra segir brýnt að lögregla hafi aðgang að hríðskotabyssum eins og norska lögreglan hefur gefið þeirri íslensku og vísar til skýrslu innanríkisráðherra fyrir tveimur árum. Fyrrverandi ráðherra segir þessi svör lögreglunnar vera fáheyrðan útúrsnúning. Jón F. Bjartmarz yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra segir lögregluna alla tíð hafa haft aðgang að vopnum, sem alla jafna hafi verið geymd í læstum hirslum á lögeglustöðvum. Þær hríðskotabyssur sem lögreglan átti hafi hins vegar verið komnar til ára sinna, eða allt frá fyrri heimsstyröld, og verið aflagðar fyrir nokkrum árum. Þegar Norska lögreglan hafi boðist til að gefa íslensku lögreglunni nýtísku vopn vegna endurnýjunar hjá sér, hafi því ekki verið slegið hendinni á móti því. En Kjarninn fullyrðir reyndar í dag að byssurnar séu komnar frá norska hernum, ekki norsku lögreglunni. „Það var brýn þörf að lögreglan hefði slík vopn. Það er rétt að taka það fram að slík vopn eru miklu öruggari í notkun en skammbyssurnar. Þetta er með góðum miðunarbúnaði og er um langvopn að ræða þótt þetta sé í raun og veru skammbyssa. Það eru í raun sömu kúlugerð í þessum vopnum og skammbyssunum. Þannig að við teljum þetta geta í raun og veru má segja þá bætt stöðu lögreglunnar til að takast á við erfið mál,“ segir yfirlögregluþjónninn. Jón vísar til skýrslu Ögmundar Jónassonar þáverandi innanríkisráðherra til Alþingis árið 2012. „Þá var niðurstaðan í þeirri skýrslu að viðbúnaður lögreglu til að takast á við hryðjuverk, vopnamál og annað slíkt; og vegna öryggis ríkisins væri algerlega óviðunandi. Og í skýrslu sem Ögmundur skipaði til að vinna að gerð löggæsluáætlunar var lögð höfuðáhersla á að eitt af þeim atriðum var að efla þjálfun og búnað lögreglumanna,“ segir Jón. Ögmundur Jónasson er langt í frá sáttur við þessar skýringar yfirlögregluþjónsins. „Þetta er náttúrlega hreinn útúrsnúningur og fáheyrð óskammfleini. Hér er verið að vísa í skýrslu sem að hluta til byggir á upplýsingum sem komnar eru frá lögreglu um búnað hennar og mikilvægi þess að bæta aðstöðu lögreglunnar. Þarna er hvergi vikið að vopnakaupum á nokkurn hátt. Og fara að kenna þessa ráðstöfun, þessi kaup, við þetta plagg er algerlega út í hött,“ segir Ögmundur Jónasson fyrrverandi innanríkisráðherra.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira