Fleiri
Týndir þú hring? Hringur er í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 16.1.2013 13:19 ESA rannsakar meinta ríkisaðstoð við gagnaver Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að hefja formlega rannsókn á ríkisaðstoð í tengslum við breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem varða viðskiptavini gagnavera á Íslandi. Lagabreytingarnar voru tilkynntar til ESA þann 2. september 2011. Þær höfðu þá þegar öðlast gildi. Eftirfarandi breytingar voru gerðar á lögunum: 16.1.2013 13:15 HR fær 230 milljóna styrk frá ESB Rannsóknarmiðstöð Háskólans Í Reykjavík í nýsköpun og frumkvöðlafræðum hefur hlotið 230 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu. Þetta kemur fram á heimasíðu HR. 16.1.2013 12:57 Réttargæslumaður gagnrýnir kynferðisbrotadeildina harkalega "Ég á ekki til orð yfir þetta," segir Helga Leifsdóttir, réttargæslumaður konu á þrítugsaldri, en tvær helstu meginástæður þess að karlmaður var sýknaður af kynferðisbroti gagnvart skjólstæðingi hennar í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum, var annarsvegar vegna þess að meint fórnarlambið fór úr að ofan eftir að maðurinn hafði þuklað á henni, og svo að ummæli þess sem var ákærður fyrir brotið, um að hann vissi að hann hefði gert eitthvað rangt, voru ekki tekin gild vegna lélegra yfirheyrslu lögreglunnar. 16.1.2013 12:25 Tilgangslaust að banna munntóbak ef reykingar eru leyfðar Yfirlæknir og lækningaforstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins telja að lítill sem enginn ávinningur sé af því að banna munntóbak á meðan enn sé hægt að kaupa sígarettur og annað reyktóbak á markaðnum. Þetta kemur fram í umsögn þeirra um frumvarp velferðarráðherra um bann við sölu skrotóbaks. 16.1.2013 12:15 Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrverandi skólameistari fór að vinna í leikskóla Hörður Helgason gegndi starfi skólameistara í Fjölbrautaskóla Vesturlands í áratug og flestir reiknuðu með að hann myndi setjast í helgan stein eftir að hann hætti rúmlega sextugur. En honum bauðst staða í afleysingum á leikskóla og hefur nú verið ráðinn í fast starf. 17.1.2013 21:08
Beðið eftir Vilborgu Engar fréttir hafa enn borist af gönguskíðakonunni Vilborgu Örnu Gissurardóttur á lokadegi göngu hennar á Suðurpólinn. 17.1.2013 20:51
Vilborg komin á Suðurpólinn Vilborg Arna Gissurardóttir varð í kvöld fyrsti Íslendingurinn til þess að ganga einn síns liðs á Suðurpólinn. Ganga Vilbogar hefur staðið yfir undanfarna tvo mánuði og eru um 1140 kílómetrar að baki. 17.1.2013 20:37
Framboðslisti Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi klár Kjördæmaráð Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi samþykkti í kvöld einróma framboðsliðsta flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Kjördæmaþing flokksins stendur yfir í húsi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. 17.1.2013 19:43
36 félagasamtök hlutu styrk frá Reykjavíkurborg Velferðarráð samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að veita á þessu ári styrki til 36 félagasamtaka, sem starfa á sviði velferðarmála, vegna ársins 2013. Styrkir eru m.a. veittir til þeirra sem starfa að málefnum geðfatlaðra, fatlaðra barna, eldri borgara og utangarðsfólks. 17.1.2013 19:16
Frumvarp um Happdrættisstofu vegur að friðhelgi einkalífs Frumvarp innanríkisráðherra um Happdrættisstofu vegur að viðskiptafrelsi og friðhelgi einkalífsins. Þetta er mat alþjóðlegrar stofnunar um tjáningar- og upplýsingafrelsi. Þá telur þingmaður frumvarpið geta takmarkað starfsemi hlutabréfasjóða á netinu, og jafnvel netleikja með sitt eigið hagkerfi. 17.1.2013 18:41
Breytingar á tóbakslögum sérsniðnar að þörfum ÁTVR Lögmaður neftóbaksinnflytjanda segir að frumvarp velferðarráðherra um breytingar á tóbakslögum sé sérsniðið að þörfum ÁTVR. Frumvarpið banni sölu á öllu neftóbaki nema því sem ÁTVR framleiðir. 17.1.2013 18:36
Reykjavíkurborg styrkir menningarlífið Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag um styrkveitingar ráðsins árið 2013. Um leið var Tríó Sunnu Gunnlaugs útnefnt Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013 og lék það við athöfnina sem styrkþegum var boðið til. 17.1.2013 17:44
Vatnsvél orsök eldsvoða í Glerárskóla Neytendastofa vill brýna fyrir almenningi að fjarlægja og taka strax úr umferð vatnsvélar frá Champ Design CO., Ltd. sem seldar voru í Byko frá mars 2006 til 2010. Rannsókn á bruna sem varð í Glerárskóla á Akureyri 14. janúar síðastliðinn leiddi í ljós að eldsupptök voru út frá vatnsvél frá Byko. 17.1.2013 16:55
Hótaði saksóknara: "Bíddu bara, eftir sjö daga þegar ég losna“ Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni, fæddum 1979, sem var dæmdur fyrir brot gegn valdstjórn, en hann hótaði meðal annars aðstoðarsaksóknara ofbeldi í mars árið 2011 með því að benda á hana og segja: 17.1.2013 16:50
Hlífar Vatnar í sextán ára fangelsi fyrir morð Hæstiréttur staðfesti í dag sextán ára fangelsisdóm yfir Hlífari Vatnari Stefánssyni sem varð Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun febrúar, á síðasta ári. 17.1.2013 16:22
Staðfesti fjórtán ára fangelsisdóm yfir Guðgeiri Hæstiréttur staðfesti í dag fjórtán ára fangelsisdóm yfir Guðgeiri Guðmundssyni, sem dæmdur var fyrir morðtilraun, sem átti sér stað á lögmannsstofu í mars síðastliðnum. Guðgeir réðst þá á Skúla Sigurz, framkvæmdastjóra lögmannsstofunnar, og stakk hann ítrekað. Þá stakk hann Guðna Bergsson lögmann í lærið þegar hann ætlaði að koma Skúla til bjargar. Auk fjórtán ára fangelsis var Guðni dæmdur til að greiða Skúla þrjár milljónir í miskabætur og Guðna 800 þúsund. 17.1.2013 16:14
Úlpuþjófurinn gómaður - reyndist búa á höfuðborgarsvæðinu Úlpunum, sem stolið var úr fatahengi í anddyri Fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðinn föstudagsmorgun, eru komnar í leitirnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. 17.1.2013 13:42
Æfa viðbrögð við sjóslysi í Landeyjahöfn Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og aðrir samstarfsaðilar æfa í dag viðbrögð við miklu sjóslysi á suðvesturströnd Íslands. Á æfingunni er tekist á við þá sviðsmynd að ferjan Herjólfur hlekkist á við innsiglinguna í Landeyjahöfn með nokkur hundruð farþega um borð. 17.1.2013 13:33
Spáð stormi í kvöld Í kvöld er spáð er Suðaustan stormi um landið sunnan- og suðvestanvert. 17.1.2013 13:27
Forsætisráðherra telur mögulegt að klára stjórnarskrármálið Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að Alþingi sé ekkert að vanbúnaði að klára stjórnarskrármálið á þessu kjörtímabili. Fulltrúar Feneyjanefndarinnar eru staddir hér á landi og funduðu meðal annars með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun. 17.1.2013 12:53
Saksóknara varð fótaskortur á tungunni Saksóknara varð fótaskortur á tungunni í fyrirtöku í héraðsdómi i morgun. Verið vara að taka fyrir mál þar sem maður var ákærður fyrir brot á umferðarlögum með ölvunarakstri. Hugðist saksóknari fara fram á ævilanga sviptingu ökuleyfis en mismælti sig og krafðist ævilangs fangelsis. Samkvæmt heimildum Vísis urðu ekki neinir eftirmálar vegna mismælanna, en málið fer í hefðbundinn farveg. 17.1.2013 12:39
Má heita Greppur Mannanafnanefnd hefur samþykkt karlmannsnafnið Greppur og úrskurðað að það skuli fært á mannanafnaskrá. Í úrskurði sem kveðinn var upp í síðustu viku kemur fram að nafnið taki íslenskri beygingu í eignarfalli, Grepps, og teljist að öðru leyti uppfylla ákvæði laga um mannanöfn. 17.1.2013 11:53
Formannskosning hefst á morgun - stærsta rafræna kosningin innan stjórnmálaafls Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýjan formann Samfylkingarinnar hefst á morgun föstudaginn 18. janúar, og stendur til mánudagsins 28. janúar, klukkan 18:00. 17.1.2013 11:39
Hjálpuðu útigangsmanni og gáfu honum samloku Lögreglan kom útigangsmanni til hjálpar snemma í morgun, en sá lá kaldur og hrakinn á bekk á Austurvelli. Hann reyndist talsvert ölvaður og var fluttur á lögreglustöð þar sem hann fékk gistingu í hlýjum klefa og samloku að borða. 17.1.2013 10:34
Vonast til að Vilborg nái á pólinn í dag Vilborg Arna Gissurardóttir nær að öllum líkindum langþráðu takmarki sínu í dag að vera fyrsti Íslendingurinn sem gengur einn síns liðs á Suðurpólinn samtals um 1140 kílómetra. Vilborg gekk í gær tæplega 20 kílómetra og á því eftir um 18 kílómetra á Pólinn. Hún hefur því að líkindum sofið sína síðustu nótt í göngutjaldinu sem verið hefur hennar næturstaður í hálfan annan mánuð. Vilborg gæti hæglega náð Pólnum um klukkan 15 að staðartíma eða klukkan 18 að íslenskum tíma. 17.1.2013 09:44
Sérsveitin gekk fram á nýfallið snjóflóð við æfingar Þegar sérsveit ríkislögreglustjóra fór til snjóflóðaleitaræfingar í Bláfjöllum í gær, kom í ljós nýfallið snjóflóð. 17.1.2013 06:44
Fuglalíf á Snæfellsnesi mælist í hámarki Fuglalíf á norðanverðu Snæfellsnesi er nú miklu meira en nokkru sinni fyrr samkvæmt talningu á vegum Náttúrustofu Vesturlands. 17.1.2013 06:38
Tekinn á ótryggðum bíl með stolnum númeraplötum Þegar lögreglulmenn stöðvuðu ökumann á Barónstígnum i Reykjavík í gærkvöldi þar sem ljósin voru í ólagi, kom í ljós á númerin á bílnum voru stolin af öðrum bíl. Auk þess var bíllinn ótryggður og eigandinn var ekki með ökuskírteinið á sér. Stolnu númerin voru klippt af bílnum og hann kyrrsettur. 17.1.2013 06:33
Umhverfisstofnun segir síldardauðann ekki vera bráðamengnun Umhverfisstofnun kemst að þeirri niðurstöðu í tilkynningu sem hún hefur sent frá sér, að umhverfisslysið í Kolgrafarfirði vegna síldardauðans þar, sé ekki bráðamengun, af því að hún sé ekki af mannavöldum. 17.1.2013 06:25
Vöktunar á lífríkinu sárt saknað Þegar ráðist var í framkvæmdir við Snæfellsnesveg um Kolgrafafjörð var lítið vitað um lífríkið í firðinum. Náttúruvernd ríkisins, nú Umhverfisstofnun, mæltist til þess á sínum tíma að lögð yrði fram vöktunaráætlun til að fylgjast með því hvort áhrifin af framkvæmdinni, þverun fjarðarins, yrðu raunverulega þau sem gert var ráð fyrir í mati á umhverfisáhrifum. Það var ekki gert, og stóð aldrei til. Sérfræðingur gagnrýnir hart að framkvæmdum eins og þverun Kolgrafafjarðar skuli ekki vera fylgt eftir með vöktun. 17.1.2013 06:00
Vilja að mengunarákvæði standi óbreytt næstu árin Jarðhitafyrirtækin þrjú, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og HS Orka, hafa óskað eftir því við umhverfisráðherra að gildistöku hertra ákvæða reglugerðar um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti verði frestað til ársins 2020. Reglugerðin var sett árið 2010, meðal annars til að draga úr skaðlegum áhrifum á heilbrigði manna og umhverfið í heild og á að taka gildi um mitt ár 2014. 17.1.2013 06:00
Júlli harðneitar að yfirgefa Drauminn "Ég fer bara ekki neitt,“ segir kaupmaðurinn Júlíus Þorbergsson, Júlli í Draumnum, sem býr sig nú undir það að menn á vegum Sýslumannsins í Reykjavík banki upp á hjá honum og beri hann út. Það gæti orðið á allra næstu dögum. 17.1.2013 06:00
Skoði möguleika á kynferðisbrotalínu Engin hjálparlína, hvorki í síma né á netinu, er starfrækt hér á landi fyrir þolendur kynferðisbrota. Fólk getur hringt í Neyðarlínuna í 112 eða í hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717 og fengið þaðan samband við viðeigandi aðila. 17.1.2013 06:00
Bæjarfulltrúar efast um verðmat Ásvalla „Ég hef vissar áhyggjur af verðmatinu sem lagt er til grundvallar,“ sagði Helga Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í gær. Þar var ræddur samningur um kaup bæjarins á 20 prósenta hlut Hauka í íþróttamannvirkjum á Ásvöllum. 17.1.2013 06:00
Auka menntun á vinnumarkaði Nýju tilraunaverkefni til að hækka menntunarstig á vinnumarkaði verður hleypt af stokkunum í haust. Það verður fjármagnað með afgangsfé úr vinnumarkaðs- og menntunarátaki síðustu tveggja ára. Þetta kynntu Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í gær eftir fund með aðilum vinnumarkaðarins. 17.1.2013 06:00
Æfðu viðbrögð við snjóflóðum Árleg snjóflóðaleitaræfing sérsveitar ríkislögreglustjóra fór fram í dag. Þar var æfð notkun snjóflóðaýla, ásamt stangarleit og mat á snjóflóðahættu. Markmið æfingarinnar var að viðhalda þekkingu sveitarinnar við leit og björgun í snjóflóði. Kjöraðstæður voru í dag þar sem nýfallið snjóflóð var í Bláfjöllum, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Flóðið var í um það bil 300 metra breitt og hafði farið af stað úr fjallshlíðinni norðan við veginn að húsnæði skíðadeildar Fram. 16.1.2013 22:04
Borgar sig ekki að hreinsa ströndina í Kolgrafarfirði Alls óvíst er hvort það borgi sig að hreinsa sjávarbotninn í Kolgrafarfirði þar sem mikið magn af dauðri síld liggur. Starfsmaður Umhverfisstofnunar skoðaði fjörur Kolgrafarfjarðar síðastliðinn föstudag til að fara yfir stöðuna. 16.1.2013 19:46
25 milljónir í neyðaraðstoð til Sýrlands Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita tæplega 25 milljónum íslenskra króna til neyðar- og mannúðaraðstoðar á vegum Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi en blóðugt borgarastríð geisar nú í landinu sem talið er hafa kostað sextíu þúsund manns lífið. Þá er Ísland meðal 57 ríkja sem sameiginlega hafa ritað öryggisráði Sameinuðu þjóðanna bréf þar sem formlega er hvatt til þess að ráðið vísi málefnum Sýrlands til Alþjóðasakamáladómstólsins á þeirri forsendu að kerfisbundin mannréttindabrot, sem framin hafi verið í landinu undanfarin tvö ár, kunni að reynast glæpir gegn mannkyni. 16.1.2013 18:41
Sérsveitin réðst til atlögu við Outlaws Lögreglan lagði hald á efni til sprengiugerðar, haglabyssu, loftskammbyssu, skotfæri og fíkniefni í aðgerðum á höfuðborgarsvæðinu í gær gegn Outlaws-vélhjólagenginu. 16.1.2013 17:29
Haukamálið rætt á bæjarstjórnarfundi í dag - segir ákvörðunina löglega "Samkomulagið er til eins árs í senn og er háð fjárhagsáætlun hvers árs,“ segir Gunnar Axel Axelsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, spurður hvort skuldbinding bæjarráðs sem var samþykkt fyrir skömmu, um að Hafnarfjarðarbær keypti fimmtungshlut í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum, stangaðist á við sveitarstjórnarlög eins og haldið var fram í Fjarðarpóstinum fyrir um viku síðan. 16.1.2013 16:18
Allt gert til að halda í hjúkrunarfræðingana "Við erum að gera allt sem hægt er að gera til þess að sem flestir af þessum einstaklingum snúi til baka," segir Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, um þá hjúkrunarfræðinga sem hafa sagt upp störfum. 16.1.2013 16:11
Hjúkrunarfræðingar flýja þrjú svið Landspítalans Uppsagnir hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum einskorðast við þrjú svið spítalans. Þar er um að ræða skurðlækningasvið, lyflækningasvið og kvenna- og barnasvið. 16.1.2013 15:19
Vafi á lögmæti vegna björgunar Hauka Vafi er á því hvort Hafnarfjarðarbæ sé heimilt að kaupa fimmtungshlut Hauka í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum fyrir 271 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt í hafnfirska blaðinu Fjarðarpóstinum í dag. 16.1.2013 14:48
Koma á Ofbeldisvarnaráði á fót Tæplega 70 prósent stúlkna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi eru oft eða nær alltaf einmana. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fimmtán tillögum sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að undanfarna mánuði um leiðir til að minnka ofbeldi gegn börnum. 16.1.2013 13:21
ESA rannsakar meinta ríkisaðstoð við gagnaver Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að hefja formlega rannsókn á ríkisaðstoð í tengslum við breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem varða viðskiptavini gagnavera á Íslandi. Lagabreytingarnar voru tilkynntar til ESA þann 2. september 2011. Þær höfðu þá þegar öðlast gildi. Eftirfarandi breytingar voru gerðar á lögunum: 16.1.2013 13:15
HR fær 230 milljóna styrk frá ESB Rannsóknarmiðstöð Háskólans Í Reykjavík í nýsköpun og frumkvöðlafræðum hefur hlotið 230 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu. Þetta kemur fram á heimasíðu HR. 16.1.2013 12:57
Réttargæslumaður gagnrýnir kynferðisbrotadeildina harkalega "Ég á ekki til orð yfir þetta," segir Helga Leifsdóttir, réttargæslumaður konu á þrítugsaldri, en tvær helstu meginástæður þess að karlmaður var sýknaður af kynferðisbroti gagnvart skjólstæðingi hennar í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum, var annarsvegar vegna þess að meint fórnarlambið fór úr að ofan eftir að maðurinn hafði þuklað á henni, og svo að ummæli þess sem var ákærður fyrir brotið, um að hann vissi að hann hefði gert eitthvað rangt, voru ekki tekin gild vegna lélegra yfirheyrslu lögreglunnar. 16.1.2013 12:25
Tilgangslaust að banna munntóbak ef reykingar eru leyfðar Yfirlæknir og lækningaforstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins telja að lítill sem enginn ávinningur sé af því að banna munntóbak á meðan enn sé hægt að kaupa sígarettur og annað reyktóbak á markaðnum. Þetta kemur fram í umsögn þeirra um frumvarp velferðarráðherra um bann við sölu skrotóbaks. 16.1.2013 12:15