Haukamálið rætt á bæjarstjórnarfundi í dag - segir ákvörðunina löglega 16. janúar 2013 16:18 Gunnar Axel Axelsson. „
Samkomulagið er til eins árs í senn og er háð fjárhagsáætlun hvers árs," segir Gunnar Axel Axelsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, spurður hvort skuldbinding bæjarráðs sem var samþykkt fyrir skömmu, um að Hafnarfjarðarbær keypti fimmtungshlut í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum, stangaðist á við sveitarstjórnarlög eins og haldið var fram í Fjarðarpóstinum fyrir um viku síðan. Gunnar Axel segir ákvörðunina löglega en meðal annars kemur fram í lögunum að einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjárhag sveitarfélagsins. „Samkvæmt 35. grein laganna, samþykktum bæjarins og erindisbréfi bæjarráðs, sé ráðinu þó heimil fullnaðarákvörðun í málum sem eigi varða verulega fjárhags sveitarsjóðs, enda sé ekki ágreiningur um afgreiðsluna." Segir Gunnar Axel. Hann segir þær spurningar sem fram hafa komið um hvort málið sé ekki af þeirri stærðargráðu að ástæða hafi verið til þess að vísa málinu til samþykktar í bæjarstjórn fullkomlega réttmætar. Málið hafi verið tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í dag og þar hafi meðal annars komið fram að full samstaða væri um málið og afgreiðslu þess en jafnframt hafi það komið fram að verði einhverjar þær breytingar á forsendum samkomulagsins sem kalli á endurskoðun þess, þá sé verði það gert. Gunnar Axel segir það alls ekki sjálfgefið að sveitarfélög grípi inn í mál af þessu tagi og í raun ætti slíkt ekki að koma til álita nema í þeim tilgangi að vernda hagsmuni bæjarins. Það hafi verið leiðarljós bæjarráðs í þessu máli og um það hafi verið full samstaða Fjárhagserfiðleika Hauka má meðal annars rekja til yfir eitt hundrað milljóna króna kúluláns í svissneskum frönkum sem félagið tók árið 2007 og átti að greiða 2009. Félagið hefur ekki getað staðið í skilum með þessi lán. Bærinn hefur þegar greitt 62,6 milljónir króna sem skuldajöfnun á tveimur skuldabréfum Hauka hjá bæjarsjóði frá árunum 2001 og 2002. Í hverjum mánuði héðan frá í aldarfjórðung á bærinn síðan að borga mánaðarlega greiðslu inn á bankareikning Hauka til greiðslu á skuldum félagsins við Landsbankann. Fyrstu greiðslur nema 1,6 milljónunum króna en þær lækka út samningstímann, þar sem um lán með jöfnum afborgunum af höfuðstól er að ræða. Á móti kemur er Haukum settar ákveðnar kvaðir, svo sem lántökubanni. Gunnar Axel segir samkomulagið með þeim hætti að útsvarsgreiðendur sitja ekki uppi með að borga fyrir óráðssíu þeirra sem stofnuðu til skuldanna. „Á móti greiðslum bæjarins koma eignir," segir Gunnar Axel en með þessari ákvörðun eignast bærinn hlut í fasteign Hauka á Ásvöllum. Gunnar segir að samkomulagið með þeim hætti að bæjaryfirvöld þurfa að endurskoða samninginn á hverju ári. Bærinn getur að auki sagt honum upp einhliða með 6 mánaða fyrirvara. Það er því ekki þannig að bærinn hafi bókstaflega skuldbundið sig til þess að greiða af lánum Hauka næstu 25 árin. Spurður hvort samkomulagið þyngi róðurinn hjá bænum, svarar Gunnar Axel því að samkomulagið geri það ekki. Málið var rætt á bæjarstjórnarfundi en það var ekki til afgreiðslu þar. Þess má geta að bjögunaraðgerðin fékk öll greidd atkvæði í bæjarráði þegar hún var samþykkt.
Tengdar fréttir Vafi á lögmæti vegna björgunar Hauka Vafi er á því hvort Hafnarfjarðarbæ sé heimilt að kaupa fimmtungshlut Hauka í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum fyrir 271 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt í hafnfirska blaðinu Fjarðarpóstinum í dag. 16. janúar 2013 14:48 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Vafi á lögmæti vegna björgunar Hauka Vafi er á því hvort Hafnarfjarðarbæ sé heimilt að kaupa fimmtungshlut Hauka í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum fyrir 271 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt í hafnfirska blaðinu Fjarðarpóstinum í dag. 16. janúar 2013 14:48