Fleiri fréttir

Afsláttur aukist með minni útblæstri

Unnið er að reglugerðarbreytingu í fjármálaráðuneytinu sem veitir fólki, sem hefur fyrirtækjabíla til umráða, afslátt af hlunnindasköttum vegna þeirra eftir því sem þeir menga minna. Samkvæmt heimildum blaðsins er verið að útfæra breytinguna nánar, en gert er ráð fyrir því að

Skjöldur settur við Langabar

Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, afhjúpaði bókmenntamerkingu til heiðurs rithöfundinum Elíasi Mar í Aðalstræti í gær. Þetta er fyrsti skjöldurinn af níu sem Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO, kemur upp í borginni á þessu ári í tilefni af fyrstu Lestrarhátíðinni í Reykjavík. Bókin Vögguvísa eftir Elías Mar er í brennidepli á hátíðinni. Skjöldurinn er staðsettur í Aðalstræti 6 til 8 þar sem Sódabarinn Adlon, oft

Lesa fyrir farþega í strætó

Sameiginleg lestrarhátíð grunnskólanna í Vesturbæ Reykjavíkur í samstarfi við leikskólana og Borgarbókasafnið er hafin og stendur út vikuna. Hátíðin er haldin í framhaldi af því að skólarnir (Vesturbæjar-, Haga-, Granda- og Melaskóli) hafa unnið að sameiginlegri læsistefnu. Nemendur lesa sér til yndisauka milli níu og hálftíu árdegis alla vikuna, en síðan taka við heimsóknir á milli skólastiga, auk þess sem nemendur heimsækja stofnanir og fyrirtæki og lesa upp. Stefnt er að því að nemendur lesi upp í strætó. - óká

Algjör óvissa hvernig eigi að túlka svör

Algjör óvissa virðist ríkja um hvernig túlka á svör í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga þótt nú sé aðeins tæp vika í kosningarnar.

Felix sló þrenn heimsmet

Felix Baumgartner er lentur á heilu og höldnu en hann sló rétt í þessu heimsmet í að stökkva úr hvað mestri hæð. Hann stökk úr loftfari sínu úr rúmlega 38 kílómetra hæð. Það er óhætt að segja að stökkið hafi verið gríðarlega dramatískt, en um stund hringsnérist hann og virtist eiga í erfiðleikum. Honum tókst aftur á móti að ná jafnvægi á ný.

Valgerður vill leiða í Reykjavík

Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hyggst gefa kost á sér í 1. til 2. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer dagana 16. til 17. nóvember.

Máli Gunnlaugs vísað frá Hæstarétti

Hæstiréttur hafnaði kröfu um að taka meiðyrðamál Gunnlaugs M. Sigmundssonar til efnislegrar málsmeðferðar síðasta föstudag. Gunnlaugur áfrýjaði frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á öðrum tölulið ummæla sem hann kærði bloggarann Teit Atlason fyrir en hann tapaði meiðyrðamálinu í héraðsdómi og var gert að greiða Teiti eina og hálfa milljón króna í málskostnað.

Snarpur skjálfti í Vatnajökli í hádeginu

Skömmu fyrir klukkan hálf eitt í dag mældist jarðskjálfti um það bil fjórum kílómetrum norðnorðaustan við Kistufell í Vatnajökli samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Fáir ferðamenn sækja Vestfirði heim

Aðeins 3,2 prósent ferðamanna sem komu hingað til lands síðasta vetur fóru til Vestfjarða eða litlu fleiri en fóru á hálendið. forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða segir erfiðar samgöngur helstu ástæðuna.

Bókmenntamerking afhjúpuð

Klukkan tvö í dag verður fyrsta bókmenntamerking Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur afhjúpuð. Það gerir Einar Örn Benediktsson formaður Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, en þessi skjöldur er sá fyrsti af níu merkingum sem Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO mun koma upp í borginni á þessu ári.

Æfinga- og kennsluflug bannað í dag

„Þetta er frekar tilfallandi en eitthvað annað," segir Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia en allt æfinga- eða kennsluflug verður bannað á Keflavíkurflugvelli í dag vegna manneklu flugumferðastjóra. Slík mannekla bitnar þá helst á Flugakademíu Keilis sem heldur úti flugnámi á svæðinu.

Kristján Þór: Til marks um „mikinn metnað“ hjá Tryggva Þór

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hvergi banginn við mótframboð Tryggva Þórs Herbertssonar í baráttunni um fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, fyrir alþingiskosningarnar í apríl á næsta ári. Kjördæmisþing flokksins stendur nú yfir í Mývatnssveit.

Tölvuþrjótar hringja aftur á íslensk heimili

Eitthvað hefur borið á því í vikunni útlendir einstaklingar hafi hringt á íslensk heimili og þóst vera starfsmenn tölvufyrirtækja, svo sem Microsoft, og reynt að beina fólki inn á sýktar heimasíðu í þeim tilgangi að komast yfir aðgang að heimilistölvum Íslendinga. Vísi bárust nokkrar ábendingar um þetta, en málið svipar til tölvuþrjóta sem hringdu hingað til lands í nafni Microsoft síðustu páska.

Rasmusar minnst við Reykjavíkurtjörn

Minningarathöfn verður haldin í dag um færeyska gítarleikarann Rasmus Rasmussen sem svipti sig lífi 10. október. Frá þessu greinir tónlistarspegúlantinn Jens Guðmundsson á síðu sinni.

Fjölmenning í ráðhúsinu

Alþjóðatorg ungmenna stendur fyrir fjölmenningarlegri sýningu í ráðhúsinu sem hefst klukkan tvö í dag og stendur fram á miðvikudag.

Réðist að foreldum sínum og lögreglu

Það var um þrjúleitið í nótt þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var send að heimili í Hlíðunum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu hafði rúmlega tvítugur maður veist að foreldrum sínum. Þegar lögregla kom á vettvang reyndi hann að berja lögreglumenn með húsmunum.

Handtekinn fyrir að hringja í Neyðarlínuna

Um miðnætti hafði tæplega fertugur maður hringt 50 sinnum í neyðarlínu 112. Maðurinn var ölvaður og höfðu neyðarverðir ítrekað beðið manninn um að láta af þessum hringingum sem voru allar tilefnislausar samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.

Leita ferðamanns í hlíðum Esjunnar

Upp úr klukkan sex í kvöld voru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út vegna slasaðs manns í Esjuhlíðum. Staðsetning mannsins liggur ekki nákvæmlega fyrir en samkvæmt samferðarmanni hans eru þeir staddir austan við hefðbundna gönguleið.

Ríflega helmingur kennara tilbúin að mæta raddlaus til vinnu

Yfir sjötíu prósent leikskólakennara hafa engar sem litlar áhyggjur af því hvort nemendur heyri til þeirra og sami fjöldi hefur ekki kynnt sér heyrnarsögu barnanna. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri íslenskri rannsókn.

Segir skort á vegriðum skapa stórhættu

Varaformaður FÍB gagnrýnir að ekki sé búið að setja upp vegrið á milli akbrauta á Reykjanesbrautinni en mildi þykir að ekki hafa farið illa í umferðarslysi þar í gær. Umferðin um brautina er þess eðlis að núverandi aðstæður skapa hættu á stórslysi.

Dæmi um að geðfatlaður hafi tekið smálán upp á aðra milljón

Skuldir vegna smálána sliga sífellt fleiri einstaklinga sem leggjast inn á Klepp. Dæmi eru um að sjúklingar hafi tekið skammtímalán upp á eina og hálfa milljónir króna. Margir eiga í erfiðleikum með að hætta að taka lánin segir félagsráðgjafi.

Segir geðfötluðum ekki verr sinnt en hjá ríkinu

Yfirgeðlæknir á Kleppi segir aðstæður geðfatlaðra hafa versnað eftir að málaflokkurinn færðist frá ríkinu til sveitarfélaga. Formaður sambands Íslenskra sveitarfélaga er þessu ósammála.

Tveir handteknir og búðarþjófur gripinn glóðvolgur

Lögreglan handtók tvo menn í bifreið við Skeifuna í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í dag. Samkvæmt dagbók lögreglunnar óku mennirnir bifreiðinni skömmu áður, en þeir voru báðir undir áhrifum vímuefna.

Lokað rafrænt forval hjá Samfylkingunni í Reykjavík

Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag var ákveðið að val á framboðslista fyrir alþingiskosningarnar næstu yrði bundið við flokksfélaga. Flokksvalið sem verður rafrænt fer fram 16. – 17. nóvember næstkomandi samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Samfylkingarinnar og rennur framboðsfrestur út laugardaginn 27. október næstkomandi kl: 19.00.

Kristján Þór og Tryggvi Þór berjast um fyrsta sætið

Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi var sett í Mývatnssveit í dag. Á fundinum var lögð fram tillaga stjórnar um að efnt skuli til prófkjörs við val á framboðslista flokksins við þingkosningarnar næsta vor. Tillagan var samþykkt og verður prófkjörið líklega haldið í janúar samkvæmt fréttavef Vikudags.

Sérsveitin kafar eftir munum sem tengjast hinum látna

Kafarar sérsveitar ríkislögreglustjóra eru nú við köfun á þeim stað þar sem lík af 42 ára gömlum pólskum karlmanni fannst í gærmorgun. Samkvæmt fréttavef Víkurfrétta eru aðstæður eru erfiðar á staðnum þar sem mikil hreyfing er á sjónum og aldan lemur klettaveggi.

Snorri Betel bíður eftir svörum - vill frekar fara í mál

Snorri Óskarsson, oftast kenndur við Betel-söfnuðinn, segist enn bíða eftir svörum frá innanríkisráðuneytinu en hann krafði ráðuneytið svara eftir að honum var sagt upp sem kennari hjá Akureyrarbæ síðasta vor. Það er Vikudagur sem greinir frá þessu en í skriflegu svari sem hann sendi fjölmiðlinum segir:

Sýnt beint frá liðakeppni Crossfit í kvöld

Liðakeppni milli liðs Bandaríkjanna gegn liði Evrópu í Crossfit fer fram í kvöld í Lundúnum, en þrír Íslendingar eru í evrópska liðinu. Það eru þau Annie Mist Þórisdóttir, Katrín Davíðsdóttir og Númi Snær Katrínarson.

Vélarvana skammt frá Gróttu

Ársæll, björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kölluð út núna á tíunda tímanum í morgun til aðstoðar vélarvana bát. Sá var staddur rétt norðaustan við Gróttu og var rétt um einn kílómetra frá landi.

Forgangsverkefni að útrýma kynbundnum launamun

Þingi BSRB var slitið síðdegis í gær. Kosningar í embætti BSRB fóru einnig fram í gær þar sem Elín Björg Jónsdóttir var endurkjörin formaður með miklum yfirburðum. Þá kemur Snorri Magnússon, formaður Landsambands lögreglumanna, nýr inn í framkvæmdanefnd BSRB en hann var kosinn gjaldkeri.

Búið að bera kennsl á manninn í fjörunni

Í gærkvöldi voru borin kennsl á lík sem fannst í fjörunni neðan við gömlu sundhöllina í Keflavík í gærdag samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þetta fékkst staðfest með samanburði á fingraförum.

Leigubílstjórar í hættu

Ráðist var á leigubílstjóra í Aðalstræti í miðborg Reykjavíkur í nótt. Árásin átti sér stað um klukkan hálf sjö í morgun, en farþegi tók leigubílstjórann hálstaki en hann hafði áður neitað að borga bílstjóranum fyrir farið.

Handtekinn fyrir sjálfsfróun á Hverfisgötunni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann skömmu fyrir klukkan sex í morgun en sá hafði stillt sér upp gegn fjölda fólks, tekið getnaðarlim sinn út og hafði tilburði til að fróa sér. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann fékk að sofa úr sér, en hann var mjög ölvaður samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Fjölmennt unglingapartý leyst upp

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði gríðarlega fjölmennt unglingapartý seint í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar voru um hundrað unglingar í gleðinni þegar lögreglu bar að.

Ekki búið að bera kennsl á líkið

Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn vitna vegna líkfundarins í Keflavík í gær. Líkið fannst í stórgrýttri fjöru neðan við gömlu sundhöllina í Keflavík og reyndist það vera af fullorðnum, óþekktum karlmanni.

Ruglaðist á húsum

Karlmaður fékk að gista í fangageymslu lögreglunnar á Selfossi í nótt eftir að hann hafði farið húsavillt. Maðurinn hafði farið að húsi þar sem hann lamdi á það utan frá og vildi komast inn til sín, í hlýtt rúmið. Húsráðendur urðu eðlilega heldur pirraðir yfir tilætlunarsemi þessa drukkna manns og kölluðu því til lögregluna á Selfossi.

Jarðskjálftahrina nærri Grímsey

Jarðskjálftahrina hófst skammt frá Grímsey upp úr miðnætti í nótt. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,2 á richter en sá skók jörðu upp úr klukkan hálf eitt í nótt.

Fjórir af fimm fastir á Kleppi

Um áttatíu prósent endurhæfðra sjúklinga á Kleppi sitja þar föst. Alvarlegur skortur á úrræðum fyrir hópinn hjá sveitarfélögunum. Skuldir vegna smálána sliga marga sjúklinga þegar þeir leggjast þar inn.

Þverbraut siðareglur en lék þó við Albani

Þrátt fyrir grófar alhæfingar um Albani sem glæpaþjóð hélt Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, sæti sínu í byrjunarliðinu þegar Íslendingar léku við Albani ytra í gær.

Ísland heldur stöðu í tæknisamanburði

Ísland er í fjórða sæti á heimsvísu í samanburði Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) á tæknivæðingu þjóða. Sé bara horft til Evrópu er landið í þriðja sæti. Staða fimm efstu þjóða er óbreytt milli ára. Flest lönd auka tæknivæðingu sína.

Fjölgun á kjörskrá frá 2009

236.944 kjósendur eru á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna vegna tillagna stjórnlagaráðs hinn 20. október. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.

Stunginn með skærum í ennið

Lögregla leitaði enn í gærkvöldi tveggja manna vegna árásar í Bankastræti nóttina áður, þar sem 28 ára maður var stunginn með skærum í ennið.

Sjá næstu 50 fréttir