Innlent

Jarðskjálftahrina nærri Grímsey

Grímsey.
Grímsey. mynd / Pjetur Sigurðsson
Jarðskjálftahrina hófst skammt frá Grímsey upp úr miðnætti í nótt. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,2 á stærð en sá skók jörðu upp úr klukkan hálf eitt í nótt.

Skjálftarnir héldu svo áfram út nóttina og fram eftir morgun á svæðinu en nú hafa hátt í þrjátíu skjálftar riðið yfir á svæðinu. Jörð hristist þó víðar á Íslandi í nótt því stærsti skjálftinn sem reið yfir í nótt var um ellefu kílómetra frá Kópaskeri en sá reyndist vera 3,9 á stærð.

Samkvæmt tilkynningu frá veðurstofu Íslands voru flestir skjálftarnir nærri Grímsey á um það bil 15 kílómetra dýpi. Eftir klukkan 05:30 hefur verið rólegt á svæðinu.

Í síðustu viku varð skjálftahrina á svipuðum slóðum en skjálftahrinur eru ekki óalgengar á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×