Innlent

Nennir ekki að hlusta á frasa um að kynið skipti ekki máli

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, telur að kona eigi að vera í forustusveit flokksins.

Hún segist ekki nenna að hlusta á frasa um að kynið skipti ekki máli enda sé svo stór hópur góðra kvenna komin í stjórnmál að ekki sé lengur hægt að tala með þeim hætti. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali við Þorgerði í Fréttablaðinu í dag.

Í því fer Þorgerður yfir ákvörðun sína um að hætta í stjórnmálum - að minnsta kosti að sinni og veita fjölskyldu sinni meiri tíma.

Segir hún umræðuna eftir hrun hafa verið erfiða. Hún sé einnig hissa á því að Sjálfstæðisflokkurinn virðist ætla útiloka einn kost í gjaldeyrismálum og á þá væntanlega við evruna. Sjálfstæðisflokkurinn eigi að bjóða upp á valfrelsi á sem flestum sviðum en ekki útiloka kosti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×