Innlent

Sérsveitin kafar eftir munum sem tengjast hinum látna

Frá aðgerðum lögreglunnar í dag.
Frá aðgerðum lögreglunnar í dag. Myndir Hilmar Bragi Bárðarson
Kafarar sérsveitar ríkislögreglustjóra eru nú við köfun á þeim stað þar sem lík af 42 ára gömlum pólskum karlmanni fannst í gærmorgun. Samkvæmt fréttavef Víkurfrétta eru aðstæður eru erfiðar á staðnum þar sem mikil hreyfing er á sjónum og aldan lemur klettaveggi.

Sérsveitarmennirnir njóta aðstoðar Björgunarsveitarinnar Suðurnes, sem sigldi með kafarana á staðinn. Samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta er verið að leita að munum sem gætu tengst hinum látna.

Hægt er að sjá fleiri myndir frá aðgerðum lögreglunnar á vef Víkurfrétta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×