Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gekon kortleggur ferðaþjónustuna Yfir 40 aðilar í íslensku ferðaþjónustunni undirrituðu þjónustusamninga til eins árs við fyrirtækið Gekon um framkvæmd og verkstjórn á kortlagningu atvinnugreinarinnar. 11.10.2012 12:09
Milljarður í eldfjallaverkefni íslensks vísindamanns Einu stærsta rannsóknarverkefni sem íslenskur vísindamaður hefur stjórnað er ýtt úr vör í dag. Um er að ræða ofurstöð í eldfjallafræði og nemur styrkur til verkefnisins um 950 milljónum króna. Nú í hádeginu stendur yfir kynning á verkefninu í hátíðarsal Háskóla Íslands. 11.10.2012 12:07
Mo Yan hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Kínverski rithöfundurinn Mo Yan hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Mo Yan, sem er 57 ára gamall, á langan feril að baki en hann hefur gefið út fjölda skáldsagna og ritsafna. 11.10.2012 11:58
Spánverji í háska fór fjallabaksleiðina til þess að fá hjálp Björgunarsveitin Eyvindur á Flúðum sótti nú í morgun spænskan ferðalang sem lenti í vandræðum þegar hann hugðist ganga yfir Kjöl samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg. 11.10.2012 11:47
"Snýst um að efla stjórnsýsluna og þjóna íbúum betur" "Ég held að við Kópavogsbúar munum áfram vera stoltir Kópavogsbúar, og ég geri fastlega ráð fyrir því að Hafnfirðingar, Garðbæingar og Álftnesingar verði áfram stoltir af sínum byggðarlögum," segir Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi VG í Kópavogi. 11.10.2012 11:34
Brutust inn í hesthús í eigu Landsbankans Óprúttnir aðilar réðust inn í hesthús í eigu Landsbankans, sem staðsett er á Suðurnesjum, og hreinsuðu út úr því á dögunum. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú þjófnað og eignaspjöll. Landsbankinn eignaðist húsið á nauðungaruppboði í vor, en eftirlitsmaður með eignum bankans uppgötvaði þjófnaðinn eftir að honum barst upplýsingar um að farið hefði verið inn í húsið. Tiltækið var kært til lögreglu í lok síðasta mánaðar. Sá eða þeir sem voru að verki í hesthúsinu eiga yfir höfði sér kæru og skaðabótakröfu. 11.10.2012 11:28
Bæjarráð Kópavogs vill búa til sveitarfélagið Heiðmörk Bæjarfulltrúar Kópavogs, þeir Ómar Stefánsson, sem situr í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn, og Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vg, lögðu fram í vikunni tillögu þess efnis að leitast ætti eftir því að sameina Hafnarfjörð, Garðabæ, Álftanes og Kópavog í eitt sveitarfélag. 11.10.2012 10:51
Dömulegir dekurdagar og handþrykktir taupokar á Akureyri Búið er að skreyta miðbæ Akureyrar og svæðið í kring með bleikum slaufum, en samkvæmt tilkynningu frá bænum þá er tilefnið það að halda á Dömulega dekurdaga í bænum. Dekurdagarnir hefjast í dag og standa fram á sunnudag. Í tilkynningu frá bænum er viðburðurinn útskýrður svona: 11.10.2012 10:24
Mynd af sprengjukúlunum sem fundust í gær Sprengjukúlurnar tvær sem fundust á svæði Björgunar í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í gærmorgun var eytt síðdegis en talið er að þær séu úr síðari heimstyrjöldinni. Hér til hliðar má sjá mynd af kúlunum sem fréttastofa fékk senda frá Landhelgisgæslunni í morgun. Kúlurnar eru 75 mm og 40 cm að lengd. Að sögn landhelgisgæslunnar voru kúlurnar fullar af púðri og geta skapað mikla hættu, jafnvel þó þær hafi legið í sjó í áratugi. 11.10.2012 10:08
Róbert Marshall styður ríkisstjórnina fram að kosningum Róbert Marshall segir að hann muni styðja ríkisstjórnin fram að kosningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingmanninum þar sem hann boðar úrsögn sína úr Samfylkingunni og inngöngu í flokkinn Björt framtíð. 11.10.2012 08:27
Miðstjórn ASÍ vill ekki að félagsmenn kjósi forseta samtakanna Miðstjórn ASÍ leggst alfarið gegn því að hinn almenni félagsmaður fái að kjósa sér forseta samtakanna, og vill að það verði áfram í höndum fulltrúa á þingum ASÍ. 11.10.2012 07:14
Ökumaðurinn var 16 ára og bíllinn á stolnum númerum Þegar lögreglumenn stöðvuðu bíl í Hafnarfirði í nótt, við reglubundið eftirlit, reyndust bæði ökumaðurinn og farþegi í bílnum vera 16 ára og var ökumaðurinn því réttindalaus. 11.10.2012 06:57
Stórútkall hjá slökkviliðinu að Prikinu í nótt Bílar og mannskapur frá öllum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru send af stað þegar boð kom um eld í veitingastaðnum Prikinu í miðborginni um klukkan fjögur í nótt, en Prikið er í gömlu timburhúsi. 11.10.2012 06:43
Ríkisstjórnin að missa meirihluta sinn á Alþingi Ríkisstjórnin hefur ekki lengur hreinan meirihluta á alþingi, eftir að Róbert Marshall, samfylkingarmaður og áttundi þingmaður Suðurkjördæmis tilkynnir úrsögn úr þingflokki Samfylkingarinnar í dag, eins og fregnir herma að hann geri. 11.10.2012 06:33
Tvö blind börn á ári á Íslandi Talið er að um 108 blind og sjónskert börn séu á Íslandi í dag. Á hverju ári fæðast sex til sjö blind og sjónskert börn hér á landi, þar af að meðaltali tvö alblind. Viðbótarfötlun meðal barnanna er algeng, til dæmis heyrnarskerðing, að því er fram kemur í tilkynningu frá Blindrafélaginu. 11.10.2012 00:00
Geðveikt fólk er ekki alltaf brjálað Sjúklingur á geðdeild LSH segir nauðsynlegt að skilja fólk betur að inni á deildunum. Hún merkir mun á starfsfólkinu eftir niðurskurð síðustu ára og segir álagið ólíðandi. Hún finnur fyrir fordómum gagnvart geðsjúkum, bæði frá sjálfri sér og samfélaginu. 11.10.2012 00:00
Rannsaka öll kúabú vegna smitsjúkdóms landbúnaðurSmitandi barkabólga, sem er alvarlegur smitsjúkdómur, hefur greinst á einu kúabúinu á Egilsstöðum á Austurlandi. Matvælastofnun mun kalla eftir sýnum frá öllum kúabúum landsins á næstu dögum. Sjúkdómurinn er litinn alvarlegum augum, en hann flokkast með þekktum skaðvöldum eins og riðu, sullaveiki og gin- og klaufaveiki. 11.10.2012 00:00
Talinn hafa verið ginntur af lögreglu Notkun tálbeitu varð til þess að maður sem braut gegn barnungum stúlkum náðist. Hann var á þriðjudag dæmdur í níu mánaða fangelsi. Hluti dómsins er skilorðsbundinn. Sýknað var vegna ákæruliðar þar sem tálbeitu var beitt. 11.10.2012 00:00
Ekki nóg að setja á laggirnar rannsóknir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sem hefur með höndum skipun rannsóknarnefndanna, segir að þingið hafi brugðist við þeim kröfum sem settar voru fram um úrbætur í skýrslu þingmannanefndarinnar, sem fór yfir niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis. „Við hér í þinginu höfum reynt að verða við flestöllum þeim atriðum sem bent var á í skýrslunni að mættu betur fara. Þingsköpum hefur til dæmis aldrei verið breytt eins mikið og frá hruni,“ segir Ásta Ragnheiður. 11.10.2012 00:00
Hættir í þingflokki Samfylkingarinnar Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, mun tilkynna úrsögn sína úr þingflokknum í dag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hann mun segja sig úr Samfylkingunni og bjóða fram fyrir Bjarta framtíð í alþingiskosningunum í vor. 11.10.2012 00:00
Sjúklingar gagnrýna aðbúnað Sjúklingar sem hafa legið á geðdeild Landspítalans (LSH) við Hringbraut gagnrýna hversu lítill aðskilnaður er á milli ólíkra sjúklinga. 11.10.2012 00:00
Jón Jónsson semur við Sony „Mig hefði aldrei grunað að ég myndi nokkurn tíma fá samning hjá Sony. Þetta er tækifæri sem ég verð að stökkva á og prófa,“ segir tónlistarmaðurinn, ritstjórinn og knattspyrnukappinn Jón Ragnar Jónsson. Jón hefur skrifað undir útgáfusamning við stórfyrirtækið Sony eftir að hann heillaði útgáfustjórann og X Factor-dómarann L.A. Reid. 11.10.2012 00:00
Yfir 90 prósenta verðmunur á dekkjaskiptum Mestur verðmunur í verðkönnun ASÍ á 24 hjólbarðaverkstæðum síðastliðinn mánudag var á þjónustu vegna dekkjaskipta á jeppa. Þjónusta vegna dekkjaskipta á Mitsubishi-jeppa með 18 tommu stálfelgum var ódýrust hjá Nýbarða, þar sem hún kostaði 7.000 krónur, en dýrust hjá Sólningu, þar sem hún kostaði 13.398 krónur. Verðmunurinn var 6.398 krónur, eða 91 prósent. 11.10.2012 00:00
Hundar keppa í reiðhjóladrætti Keppt verður í svokölluð hundadragi í Krýsuvík á laugardaginn. Keppnin felst í því að hundar draga manneskju á reiðhjóli, samkvæmt lýsingu formanns Reykjavíkurdeildar Draghundasports Iceland í erindi til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. 11.10.2012 00:00
Þriðja besta lággjaldafélagið Íslenska lággjaldaflugfélagið Iceland Express hefur verið valið þriðja besta lággjaldaflugfélagið í Danmörku. Niðurstöður Danish Travel Awards voru kynntar á þriðjudag. 11.10.2012 00:00
Toyota kallar inn 3.690 bíla Bílar Toyota á Íslandi þarf að innkalla 3.690 bifreiðar hérlendis, en Toyota-verksmiðjurnar innkalla nú 7,4 milljónir bifreiða um allan heim vegna bilaðs hnapps í bílstjórahurð. Um er að ræða Corolla, Yaris, Auris og Rav 4 af árgerð 2006 til 2008. Eigendur þessara bifreiða verða boðaðir með bíla sína í viðgerð á næstu dögum. Ekki er gert ráð fyrir að viðgerðin taki meira en klukkutíma. Bilunin lýsir sér þannig að hnappur í bílstjórahurð bílanna stendur á sér. Eigendur umræddra bifreiða munu ekki bera neinn kostnað af innkölluninni. 11.10.2012 00:00
Foreldrar Corrie á fundi í Iðnó Í tilefni þess að bandaríska baráttukonan Rachel Corrie hlaut friðarverðlaun Lennon og Ono verður haldinn opinn fundur í Iðnó næsta föstudag klukkan tólf. 10.10.2012 23:56
Erlendir ferðamenn orðnir alltof margir Fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi er orðinn alltof mikill að mati þingmannsins Þórs Saari. Hann segir einsýnt að það verði að bregðast við með fjöldatakmörkunum með einhverjum hætti. 10.10.2012 22:22
Heitir fundarlaunum fyrir týnt hlaupahjól Átta ára drengur skilur ekki af hverju hlaupahjólinu hans var stolið í gær. Hann hefur hengt upp auglýsingu og býður fimm hundruð krónur af sparifé sínu í fundarlaun. 10.10.2012 21:35
Tómatar veita vörn gegn fleiru en heilablóðfalli Finnsk rannsókn hefur leitt í ljós að neysla tómata dregur úr líkum á heilablóðfalli. Efnið lycopene, sem gefur tómötunum rauða litinn, dregur úr bólgum og stuðlar að því að tapparnir myndist ekki í heilanum. 10.10.2012 21:23
Nauðsynlegt að endurskoða fyrirtækjaform Orkuveitunnar Ásu Ólafsdóttur, nefndarmaður í úttektarnefndinni um stöðu Orkuveitunnar, finnst umhugsunarvert hve litlar umræður fóru fram á Alþingi um lög um rekstur Orkuveitunnar áður en þau voru samþykkt. 10.10.2012 20:35
Nubo vill borga 5 milljónir dala Fyrirtæki Huang Nubo greiðir fimm milljónir bandaríkjadala, eða um 615 milljónir króna á núvirði, fyrir sextíu ára leigu á Grímsstöðum á Fjöllum, samkvæmt samningsdrögum. Þetta er þremur milljónum dollara minna en upphaflega var áætlað. 10.10.2012 20:12
Aðstaðan á Reykjavíkurflugvelli óboðleg Aðstaðan á Reykjavíkurflugvelli er óboðleg, bæði fyrir farþega og starfsfólk. Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands og alþingismaður sammældust um það í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis að nauðsynlegt væri að byggja betri aðstöðu á flugvellinum hvort sem hin endanlega niðurstaða verður sú að færa flugvöllinn eða ekki. 10.10.2012 20:03
Með nokkur kíló af amfetamíni í sjampóbrúsum Þrír pólverjar voru dæmdir í þriggja ára fangelsi í morgun fyrir innflutning á tæplega níu kílóum af amfetamíni til landsins. Verjandi segir mennina geta vel við unað enda hafi saksóknari farið fram á sex til sjö ára fangelsi. 10.10.2012 19:13
Mun beita sér fyrir minni ítökum stjórnmálamanna í OR Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, mun beita sér fyrir því að ítök stjórnmálamanna í Orkuveitu Reykjavíkur verði minnkuð. Þetta sagði hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. 10.10.2012 18:53
Jón Gnarr er sorgmæddur yfir skýrslu Orkuveitunnar "Viðbrögðin, ég er svolitið sorgmæddur, en ég vona að framtíð Orkuveitunnar verði bjartari en fortíðin,“ sagði Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, í viðtali við fréttastofu þegar hann var inntur jum viðbrögð vegna sannleiksskýrslu um Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem meðal annars kemur fram að stjórnendur ráku fyrirtækið nánast eins og einkafyrirtæki. 10.10.2012 18:40
Með eljusemi má útrýma kynbundnum launamun Kyndbundinn launamunur er hvorki til staðar í Reykjanesbæ né á Akureyri. Bæði sveitarfélögin birtu upplýsingar um þetta á heimasíðum sínum í dag en fyrr í vikunni kom hins vegar fram að rúmlega 13% óútskýrður kynbundinn launamunur hjá starfsmönnum BSRB mælist á landinu. 10.10.2012 18:19
ASÍ gagnrýnir meint leynisamkomulag Á fundi miðstjórnar ASÍ í dag kom fram hörð gagnrýni á vinnubrögð stjórnarflokkana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Þar eru vinnubrögð Álfheiðar Ingadóttur, þingkonu VG, gagnrýnd sérstaklega. 10.10.2012 17:59
Öll grunnskólabörn fá verk Þorgríms að gjöf Grunnskólabörn landsins fengu í dag átta bækur eftir Þorgrím Þráinsson gefins á rafbókarformi. Hér eftir getur hver einasti grunnskólanemi sótt þær á rafrænu formi og lesið án endurgjalds. 10.10.2012 17:36
Öllum þremur sleppt í Outlaws-málinu Tveir karlar og ein kona, sem voru handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald í tengslum við aðgerðir lögreglu gegn vélhjólagenginu Outlaws í síðustu viku, eru laus úr haldi, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir einnig að rannsókn málsins haldi þó áfram og miði ágætlega. 10.10.2012 17:21
Skuldir Orkuveitunnar þrettánfölduðust á átta árum Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur jukust úr 17.7 milljörðum króna í upphafi árs 2002 í 224 milljarða króna í lok árs 2010 og hækkuðu því um 207 milljarða króna á tímabilinu. Þetta segir í skýrslu úttektarnefndar um Orkuveitunnar sem kynnt var nú í dag. Þar segir jafnframt að þrátt fyrir þetta bendi kennitölur um greiðsluhæfi til þess að fyrirtækið geti staðið við skuldbindingar sínar með ágætum hætti náist langtímafjármögnun. 10.10.2012 17:15
Toppar Orkuveitunnar hundsuðu nefndina Tveir af lykilmönnum við stjórnun Orkuveitunnar sinntu ekki boði úttektarnefndar um starfsemi Orkuveitunnar um fund til að svara máli sínu. Það eru þeir Hjörleifur Kvaran, fyrrverandi forstjóri, og Ingi Jóhannes Erlingsson, sem starfaði á fjármálasviði, lántöku- og áhættustýringarsvið og í fleiri verkefnum. 10.10.2012 17:15
Chris Hemsworth kominn til landsins Leikarinn Chris Hemsworth, sem flestir kannast við úr kvikmyndinni Thor, er kominn hingað til lands samkvæmt heimildum Vísis til þess að taka upp framhald kvikmyndarinnar, Thor 2. 10.10.2012 16:32
Segir eigendafund um OR hafa verið ólöglega boðaðan Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að mikill vafi leiki á því hvort eigendafundur í Orkuveitu Reykjavíkur hafi verið löglega boðaður. Fundurinn var boðaður í dag, vegna útkomu sannleiksskýrslu um rekstur borgarinnar til ársloka 2010. 10.10.2012 15:51
Munað getur 91% á verði á dekkjaskiptum Mikill verðumunur er á milli verkstæða á því hvað það kostar að setja vetrardekk undir bílinn. Þetta sýnir ný verðkönnun Alþýðusambands Íslands. Mestur verðmunur var á dekkjaskiptum á jeppa. 10.10.2012 15:40