Ekki nóg að setja á laggirnar rannsóknir 11. október 2012 00:00
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sem hefur með höndum skipun rannsóknarnefndanna, segir að þingið hafi brugðist við þeim kröfum sem settar voru fram um úrbætur í skýrslu þingmannanefndarinnar, sem fór yfir niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis. „Við hér í þinginu höfum reynt að verða við flestöllum þeim atriðum sem bent var á í skýrslunni að mættu betur fara. Þingsköpum hefur til dæmis aldrei verið breytt eins mikið og frá hruni,“ segir Ásta Ragnheiður. Hún nefnir starf vinnuhóps um eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu, sem var settur á laggirnar sumarið 2008 – fyrir bankahrun. Í hópnum sátu Bryndís Hlöðversdóttir, Andri Árnason og Ragnhildur Helgadóttir. Hann skilaði niðurstöðum sínum í september 2009 og lagði til fjölda breytinga. „Rannsóknarnefnd Alþingis tók svo undir þau atriði og við höfum komið þeim flestum í framkvæmd,“ segir Ásta. Meðal breytinganna sem gerðar hafa verið nefnir Ásta lög um rannsóknarnefndir og stofnun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins. „Hennar tilvist er farin að skila sér verulega,“ segir hún. Þá tiltekur hún breytta nefndarskipan til að hún endurspegli ekki skipulag stjórnarráðsins heldur vinnuálag þingsins, sem var hugsað til að skerpa á þrískiptingu ríkisvaldsins. Þá hafi verið bætt í þingsköpin ákvæðum um opna nefndarfundi, beinar útsendingar af þeim og sérstaka fundi með fjölmiðlum. „Ný lög um umboðsmann Alþingis og Ríkisendurskoðun eru í undirbúningi, en lög um ráðherraábyrgð og landsdóm hafa af eðlilegum ástæðum beðið. Ég á von á að nú getum við hafið þá endurskoðun.“ Síðan hafa verið skipaðar tvær rannsóknarnefndir á grundvelli nýju laganna og rætt hefur verið um að skipa fleiri. Við setningu Alþingis í september vék Ásta að þessu og sagði mikilvægt að menn spyrðu sig hvort starf slíkra nefnda stæði undir væntingum og skilaði raunverulegum árangri fyrir samfélagið. Þær væru kostnaðarsamar og ekki bót allra meina. „Ég legg ríka áherslu á, að það er ekki nóg að setja bara á laggirnar rannsóknir – það verður líka að fylgja þeim eftir,“ segir Ásta um þetta. Nefndirnar tvær, um sparisjóðakerfið og Íbúðalánasjóð, áttu báðar að skila af sér fyrir mörgum mánuðum en þær eru enn að störfum og ekki er ljóst hve langt er í að þær skili. „Ég tel reyndar að þeim hafi verið markaður of skammur tími,“ segir Ásta. „En hef áhyggjur af því að þeim miði ekki betur, meðal annars vegna þess að þetta er kostnaðarsamt.“
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Logandi pottur Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira