Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætlaði á Vog en endaði í gæsluvarðhaldi - og fær bætur fyrir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun íslenska ríkið til þess að greiða karlmanni rúmlega tvær milljónir króna vegna gæsluvarðhalds sem hann þurfti að sæta árið 2011 í tengslum við skotárás sem átti sér stað á aðfangadegi árið 2010. 10.10.2012 11:03
Veðurstofan ætlar að spá fyrir um norðurljós á landinu Á kynningarfundi Ísland – allt árið, sem fram fer síðar í dag, mun Ráðherra umhverfis- og auðlinda opna nýjan hluta á vef veðurstofunnar þar sem hægt verður að nálgast spá veðurfræðings um hvar er líklegast að sjáist til norðurljósa á landinu. Þetta er því ný þjónusta við notendur vefsins sem hingað til hafa treyst á skarpskyggni veðurfræðinga sem spá fyrir um veður. 10.10.2012 10:03
Vill bæta rétttarstöðu transfólks Eygló Þóra Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram frumvarp sem myndi tryggja réttarstöðu transfólks þannig að refsivert verði fyrir aðila í atvinnurekstri eða þjónustustarfsemi að neita manneskju um vöru eða þjónustu vegna kynvitundar hennar. 10.10.2012 09:57
Fíkniefnasmyglarar í þriggja ára fangelsi Þrír pólskir karlmenn voru í morgun dæmdir í þriggja ára fangelsi hver fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl í apríl á þessu ári. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa smyglað inn 8,5 kílóum af amfetamíni í sjampóbrúsum. Mennirnir földu fíkniefnin í sjampóbrúsa við komuna til landsins. 10.10.2012 09:54
Ekið á ungan dreng Ekið var á ungan dreng við Hlíðarskóla, þegar hann var á leið í skólann í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliðinu mun drengurinn ekki hafa slasast alvarlega. 10.10.2012 09:44
Kröfu Gunnars um frávísun vísað frá Kröfu Gunnars Þ. Andersen um að ákæru gegn honum vegna brots á þagnarskyldu yrði vísað frá var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Gunnar er, ásamt öðrum manni, ákærður fyrir að hafa komið gögnum úr Landsbankanum um fyrirtæki Guðlaugs Þ. Þórðarsonar alþingismanns yfir til Inga Freys Vilhjálmssonar fréttastjóra á DV. 10.10.2012 09:21
Sextán ára stúlku nauðgað á Selfossi Rétt fyrir klukkan fjögur aðfaranótt síðastliðins sunnudags kom í lögreglustöðina 16 ára gömul stúlka og tilkynnti að henni hefði verið nauðgað skömmu áður á grasflöt skammt frá skemmtistaðnum Hvíta Húsinu á Selfossi. Stúlkan hafði verið inni á skemmtistaðnum en farið út undir lok dansleiksins. Maður kom að stúlkunni og leiddi hana afturfyrir húsið þar sem hann nauðgaði henni. Þegar í stað var farið með stúlkuna í Neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum þar sem fram fór læknisrannsókn og stúlkunni veitt aðhlynning. 10.10.2012 09:02
Óvissa með seinni ferðir Herjólfs í dag Vegna ölduspár fyrir seinni partinn í dag og kvöldið er óvissa með tvær síðustu ferðir dagsins hjá Herjólfi í dag. Samkvæmt áætlun á Herjólfur að sigla frá Vestmannaeyjum kl. 17:30 og 20:30 og frá Landeyjahöfn 19:00 og 21:30. 10.10.2012 08:40
Eldur laus í stórum haug hjá Sorpu í Álfsnesi Eldur kviknaði í stórum haug af trjágreinum á ruslahaugunum í Álfsnesi laust fyrir klukkan sjö í morgun og var slökkviliðið kallað á vettvang. 10.10.2012 07:52
Gaslaust á metandælum N1 á Ártúnshöfða Gaslaust er á öllum metangasdælum N1 á Ártúnshöfða og komast nokkrir ruslabílar ekki leiðar sinnar vegna þess, auk þess sem ökumenn fleiri bíla eru að lenda í vandræðum, að því er einn Þeirra tjáði fréttastofu nú fyrir stundu. 10.10.2012 07:50
Keflavíkurflugvöllur fær annað póstnúmer Bæjarstjóra Sandgerðis hefur verið falið að leiðrétta póstnúmer fyrirtækja á flugvallarsvæðinu við Leifsstöð, en þau eru skráð á póstnúmer 235, sem er póstnúmer Reykjanesbæjar. 10.10.2012 06:59
Matvælastofnun vill sýni frá öllum kúabúum landsins Matvælastofnun, í samvinnu við Landssamband kúabænda, ætlar að kalla eftir sýnum frá öllum kúabúum í landinu vegna smitandi barkabólgu í kúm, sem greindist á Egilsstaðabúinu nýverið. 10.10.2012 06:43
Meintur brennuvargur óskaði eftir gistingu hjá lögreglunni Maður, sem Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í allt að 30 daga gæsluvarðhald, meðal annars vegna tilburða til íkveikja í bænum, gengur aftur laus eftir að Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi. Hann var á kreiki á Selfossi í nótt. Undir morgun knúði hann dyra á lögreglustöðinni og óskaði eftir mat og gistingu, en var fálega tekið. 10.10.2012 06:32
Rocard ræðir Norðurslóðir Michel Rocard, sérlegur sendimaður forseta Frakklands í málefnum heimskautanna, flytur fyrirlestur um alþjóðlega samvinnu á norðurskautssvæðinu í Háskóla Íslands í dag. Fyrirlesturinn er haldinn í hátíðasal Háskólans og hefst klukkan tólf. 10.10.2012 00:30
Eindaga veiðigjalds frestað Ákveðið hefur verið að fresta eindaga á fyrstu greiðslu sérstaks veiðigjalds. Upphaflegi eindaginn var 15. október en verður 1. desember samkvæmt reglugerð frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. 10.10.2012 00:30
Blandaðar deildir geta skapað hættu Brýn þörf er á meiri aðskilnaði milli sjúklinga á geðdeildum LSH við Hringbraut. Framkvæmdir vegna nýrrar geðgjörgæsludeildar standa til á næstu mánuðum. Um 400 manns eru á biðlista eftir meðferðarúrræðum á geðsviði. Biðtími er um fjórir mánuðir. 10.10.2012 00:00
Engin geðgjörgæsla fyrir árásargjörnu sjúklingana Sjúklingum með misalvarlega geðsjúkdóma er ekki haldið nægilega aðskildum á geðdeildum Landspítalans við Hringbraut. Dæmi eru um að mjög veikir einstaklingar, sem vita vart hvar þeir eru staddir, deili herbergi með fólki á góðum batavegi. 10.10.2012 00:00
"Við erum öll nágrannar“ Verðlaunahafar á friðarhátíð Yoko Ono hrósuðu Jóni Gnarr sem vill að Reykjavík verði laus við allt hernaðarbrölt. Einn vildi klóna hann og Lady Gaga sagði að fleiri ráðamenn þyrftu að vera eins og borgarstjórinn. 10.10.2012 00:00
Bændur vilja skjóta bæði álftir og gæsir Tjón af völdum andfugla í ræktarlöndum getur verið verulegt hjá hverju búi. Bændur kalla eftir úrræðum til að fást við friðaða fugla. Ódýrara að flytja inn korn en rækta það haldi fram sem horfir. Fuglar hrekja bændur úr kornrækt. 10.10.2012 00:00
Hér ræður reynslan af Huawei framhaldinu Bandarísk þingnefnd sem fjallar um öryggismál leggst gegn því að kínversku tæknifyrirtækin Huawei og ZTE fái að eiga viðskipti í Bandaríkjunum. Fyrirtækin eru sögð ógna öryggi landsins vegna mögulegra áhrifa frá stjórnvöldum í Kína og hættunnar á njósnum. 10.10.2012 00:00
Nánast allir komnir á netið Tölvur eru nú á 96 prósentum íslenskra heimila og aðgangur að neti á 95 prósentum þeirra. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar Hagstofu Íslands á tölvu- og netnotkun Íslendinga. 10.10.2012 00:00
Tærleiki Þingvallavatns niður í B-flokk Staðfestar vísbendingar eru um að magn þörunga sé að aukast í Þingvallavatni. Þetta kemur fram í vöktunarskýrslu fyrir árið 2011. Með þessu minnkar tærleiki vatnsins. 10.10.2012 00:00
Kosningarnar verða bindandi „Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla eins og þessi er í reyndinni bindandi,“ sagði Þorvaldur Gylfason hagfræðingur, sem átti sæti í stjórnlagaráði, um kosningarnar 20. október, þar sem kosið verður um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. 10.10.2012 00:00
Meta þarf EES-samstarfið Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir nauðsynlegt að gera mat á kostum og göllum EES-samningsins, en ýmis ákvæði hans séu farin að „rekast í hana“. Hann segir að farið sé að „togna á stjórnarskránni“ og meira muni reyna á samspil hennar við samninginn á næstunni. 10.10.2012 00:00
Skoða styttingu náms í þrjú ár Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, segir að endurskoða verði nám leikskólakennara. Síðan það var lengt úr þremur í fimm ár hafi aðsókn minnkað um 77 prósent sem skaði leikskólastigið og geri sveitarfélögum erfitt um vik að uppfylla kröfur um hlutfall menntaðra starfsmanna. 10.10.2012 00:00
Skátar halda friðarþing í Hörpu Skátar standa fyrir friðarþingi í Hörpu um næstu helgi í tilefni af 100 ára afmæli skátastarfs á Íslandi. Þingið er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á hugmyndinni um frið. 9.10.2012 23:20
Kettir hverfa sporlaust á Eyrarbakka Fjölmargir kettir hafa horfið sporlaust á Eyrarbakka það sem af er ári. Það eru alla jafna skógarkettir eða aðrir dýrir kettir sem hverfa og eftir það sést hvorki tangur né tetur af þeim. 9.10.2012 22:39
Ögmundur sáttur við nýjar fangareglur Innanríkisráðherra líst vel á hertar reglur í fangelsum vegna fanga sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum. Hann segir þær alls ekki mismuna föngum. 9.10.2012 21:40
Yoko Ono tendraði ljós Friðarsúlunnar Yoko Ono kom sjálf út í Viðey í kvöld og var viðstödd þegar kveikt var á Friðarsúlunni. Fjölmennur hópur fólks var viðstaddur en hópurinn samanstóð af stærstum hluta af erlendum ferðamönnum og fjölmiðlamönnum. 9.10.2012 20:31
Aðgerðir gegn hraðakstri bera árangur Vel hefur gengið að sporna við hraðakstri við Melaskóla eftir að nýjum hraðahindrunum var komið upp á veginum við skólann. Margir foreldrar höfðu áður kvartað undan hraðakstri þar, sérstaklega á morgnanna. 9.10.2012 19:48
Yfir 450 off-venue tónleikar á Airwaves Skipuleggjendur Iceland Airwaves hafa kynnt hina svokölluðu off-venue dagskrá sem fer fram samhliða Airwaves hátíðinni. Á dagskrá eru yfir 450 tónleikar á 31 stað víðsvegar um borgina. 9.10.2012 19:28
Fjölmenni á leið út í Viðey Fjölmenni hefur nú safnast saman á Skarfabakkanum á leið út í Viðey til að fylgjast með tendrun Friðarsúlunnar. Hundruð gesta bíða þess nú að verða ferjaðir út í eyjuna til að fylgjast með þegar kveikt verður á súlunni. 9.10.2012 19:09
Undanþágur inni í myndinni fyrir Nubo Í drögum að samningi sveitarfélaga á Norðurlandi við fyrirtæki Huang Nubo kemur fram að hægt er að veita ýmsar undanþágur til nýtingar auðlinda. Fréttastofa hefur þessi óbirtu drög undir höndum. 9.10.2012 18:53
Kallar eftir sýnum frá öllum kúabúum landsins Matvælastofnun hefur ákveðið að kalla eftir sýnum frá öllum kúabúum landsins á næstu dögum vegna sjúkdóms sem greindist á kúabúi á Egilsstöðum. 9.10.2012 17:57
Kominn tími á Snilldarlausnir Hin árvissa keppni, Snilldarlausnir Marel, er nú að hefjast í fjórða sinn. Snilldarlausnir er hugmyndasamkeppni milli framhaldsskólanema sem snýst um að búa til verðmæta vöru úr verðlausu drasli. 9.10.2012 17:22
Fallhífarstökkvarinn hætti við heimsmetið Fallhífarstökkvarinn Felix Baumgartner hætti við tilraun sína við heimsmet í fallhífarstökki sem átti að fara fram í dag. Ástæðan er sú að veðurskilyrði voru ekki hagstæð en stefnt er á að framkvæma stökkvið á næstu dögum. 9.10.2012 15:47
Verðlaunaafhendingunni lokið Verðlaunaafhendingu Lennon/Ono sjóðsins í Hörpu lauk núna um þrjúleytið. Fjölmörg ungmenni biðu fyrir utan húsið í von um að berja söngstjörnuna Lady Gaga augum, en hún var einjn af fimm handhöfum verðlaunanna að þessu sinni. Hátíðarhöldunum er þó ekki lokið því að í kvöld verður athöfn í Viðey þegar kveikt verður á friðarsúlunni. Yoko Ono bíður Íslendingum í Eyjuna, eins og áður hefur fram komið. 9.10.2012 15:16
Lady Gaga vill fleiri borgarstjóra eins og Jón Lady Gaga tók við friðarverðlaunum LennonOno í Hörpu nú fyrir stundu, en það var Yoko Ono, ekkja bítilsins John Lennon, og Jón Gnarr borgarstjóri, sem afhentu henni verðalaunin. 9.10.2012 14:52
Jón Gnarr mætti í Star Wars búningi Á meðal gesta í Hörpunni, þar sem friðarverðlaun Lennon/Ono verða afhent í dag eru Jón Gnarr borgarstjóri og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. 9.10.2012 14:08
Umkringja Hótel Borg - vilja eiginhandaráritun frá Gaga Fjöldi fólks er nú fyrir utan Hótel Borg við Austurvöll í miðborg Reykjavíkur. Tilefnið er að reyna fá eiginhandaráritun frá söngkonunni Lady Gaga sem dvelur þar. Gaga kom hingað í morgun en klukkan tvö hefst verðlaunarafhending í Hörpu en þar mun Lady Gaga taka á móti verðlaunum frá Lennon-Ono sjóðnum. 9.10.2012 13:44
Fjöldi fólks kom saman fyrir utan Hótel Borg Mikill fjöldi ungs fólks var saman kominn fyrir framan Hótel Borg nú eftir hádegi eftir að fjölmiðlar höfðu greint frá því að hin fræga söngkona Lady Gaga væri stödd þar. Hún mun taka á móti friðarverðlaunum úr Ono/Lennon sjóðnum í Hörpu í dag. Söngkonan kom í morgun til landsins frá London, en þar hafði hún meðal annars haldið tónleika og hitt Julian Assange. 9.10.2012 13:31
Vilja vita hvort Alþingi var gert viðvart um tafir á Oracle-málinu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að senda Sveini Arasyni, ríkisendurskoðanda bréf, síðar í dag vegna Oracle málsins svokallaða. Málið snýst um launa- og bókhaldskerfi ríkisins, en kostnaður við innleiðingu þess fór algjörlega úr böndunum. Skýrsla sem Ríkisendurskoðun var falið að vinna um verkefnið hefur verið fjölda ára í vinnslu. 9.10.2012 13:08
Ekki tekin ákvörðun um áfrýjun í máli barnaníðings Maður á fertugsaldri, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að misnota stjúpdóttur sína kynferðislega ítrekað og gróflega yfir margra ára tímabil, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort að dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar, að sögn verjanda hans. Áfrýjunarfrestur í málinu rennur út á mánudaginn næstkomandi. 9.10.2012 12:57
Samband komið aftur á - gætir þurft að endurræsa símann Farsímasamband er aftur komið á hjá farsímafyrirtækinu Nova en sambandið datt út í einn og hálfan klukkutíma í morgun. Í tilkynningu frá Nova er beðist afsökunar á óþægindunum sem sambandsleysið kann að hafa valdið viðskiptavinum fyrirtækisins sem og öðrum. 9.10.2012 12:03
Daði nýr formaður Vg í Reykjavík Daði Heiðrúnarson Sigmarsson var kjörinn formaður Vinstri grænna í Reykjavík í gærkvöldi. Fráfarandi formaður er Líf Magneudóttir. 9.10.2012 11:45